Starfslok efri deildar
Laugardaginn 20. maí 1989

     Forseti (Jón Helgason):
    Þá er dagskrá þessa fundar tæmd og þar með störfum hv. Ed. að ljúka á þessu þingi. Það starf hefur verið umfangsmikið og lagasetning sú sem við höfum afgreitt hefur margvísleg áhrif í þjóðfélaginu og markar þar væntanlega framfaraspor á ýmsum sviðum.
    Ég vil í lok þessa fundar færa hv. þingdeildarmönnum kærar þakkir fyrir mjög ánægjulegt samstarf og umburðarlyndi í minn garð við forsetastörf og ég vil sérstaklega þakka varaforsetum og skrifurum fyrir aðstoð við mig. Einnig vil ég þakka starfsliði Alþingis fyrir ágæt störf og þeirra þjónustu við þetta löggjafarstarf og störf nefnda og deildar.
    Þá vil ég að lokum óska hv. þingmönnum og fjölskyldum þeirra allra heilla á komandi sumri og ég vonast til þess að við hittumst öll heil að nýju við upphaf næsta þings og óska öllum góðrar heimferðar og heimkomu.