Geir H. Haarde:
Herra forseti. Við höfum á síðustu dögum þingsins fjallað um ýmis mál illa undirbúin af hálfu ríkisstjórnarinnar. Kastar þó tólfunum í þessu máli sem að dómi allra sem að því hafa komið frá hinni faglegu hlið er algerlega vanundirbúið og meira að segja þannig í pottinn búið að ráðherra hefur fram á síðustu stund ekki getað gert upp sinn hug í þessu máli. Ég hlýt því að styðja þessa tillögu og segi já.