Framhaldsskólar
Laugardaginn 20. maí 1989

     Ragnhildur Helgadóttir:
    Herra forseti. Þetta var sérkennileg stuðningsræða við frv., flutt af formanni nefndarinnar og frsm. Ég lái ekki hv. þm. Ragnari Arnalds þó að hann hafi ekki flutt mál sitt af meiri hrifningu af frv. en raun bar vitni, enda er ég honum hjartanlega sammála um að á því er ýmiss konar vansmíð sem lagfæra þurfti og enn þarf að lagfæra. Vissulega hafði hv. þm. af því áhyggjur að ekki hefði reynst unnt, eins og sagt var, að hafa samráð við kennara um þeirra eigin hagi sem mjög er vikið að og fjallað um í frv. Ríkisvaldið hafði samráð við kennara um aðra þætti í högum þeirra þessa daga og því var ekki ,,tækifæri`` til að tala um þetta við þá líka. Svo sagði hv. þm.: ,,En við því er ekkert að gera.`` Ég spyr: Hvaða nauður rekur til að keyra þessi ósköp í gegn með þessum hætti? Við því er einmitt hægt að gera. Ósköp einfaldlega að láta málið bíða þangað til hægt er að ræða við þá sem hlut eiga að því. Svo einfalt er það. Menn tala eins og þeir standi frammi fyrir örlögum sínum, að það verði að vera svo að menn samþykki þetta mál með allri þeirri vansmíð sem á því er.
    Það er eins og hv. 2. þm. Reykv. sagði áðan, það var nánast fyrir tilviljun í öllu því annríki sem hér var í gær gafst mér tími til að bera frv. saman við gildandi lög, grein fyrir grein. Þá rek ég augun í að það er verið að svipta meginþorra þeirra sem munu verða ráðnir eftir þessum nýju lögum þeim rétti að komast í biðröðina til að fá orlof eftir fimm ára starf. Þetta er atriði sem margar þær ungu konur sem vinna kennslustörf hafa bundið vonir við og þessi réttur til orlofs skiptir þær mjög miklu máli. Sem betur fer féllst formaður nefndarinnar undir eins á þetta atriði. Ekki veit ég hvort tími hefur unnist til að benda sjálfum hæstv. ráðherra á þetta austur á landi og ekki veit ég hvort tími hefur verið til að spyrja hæstv. ráðherra hvor prentunin sé réttari, sú sem stendur í frumvarpstextanum eða skýringin á frumvarpstextanum í greinargerðinni. Það er eðlilegt að spurt sé því að þetta frv. var prentað upp og endurprentað upp en samt voru þessir stóru gallar á því sem fundust í gær og eiga vafalaust eftir að finnast fleiri.
    Í frumvarpsgreininni um ráðningu kennara stendur: ,,Skólameistari ræður að fengnum tillögum skólanefndar kennara, námsráðgjafa og skólasafnverði.`` Nú er það svo að í frv. er samsetningu skólanefnda mjög breytt. Það er ein meginbreytingin í frv. Þar er vald kennara aukið, en þetta vald er algerlega frá þeim tekið aftur í 7. gr. vegna þess að áður var ætlunin að skólanefndin hefði þessa ráðningu með höndum, ekki skólameistarinn heldur átti skólanefndin að hafa þetta vald. Það stendur í athugasemdinni við 7. gr. og er rækilega tekið fram að þær breytingar séu gerðar við greinina að skólanefnd ráði kennara, námsráðgjafa og skólasafnverði. Það er grundvallarmunur hvort skólanefndin hefur þetta vald eða skólameistarinn. Ef það er verið að láta í veðri vaka að vald kennaranna í stjórn skólans sé aukið með aukinni hlutdeild þeirra í skólanefnd er það sem frv. gerði ráð fyrir tekið út ef textinn í sjálfu frv. er

hin rétta prentun.
    Ég spyr nú: Er nú ekki vissara að spyrja hæstv. ráðherra sjálfan um hvor útgáfan eigi að gilda? Auðvitað veit ég að hið lagalega gildir, það sem stendur í frumvarpstextanum. En hvort er ætlun ráðherra? Getur ekki verið að þetta sé misprentun þegar litið er til þessarar rækilegu útskýringar í 7. gr.? Ekki þar fyrir að ég er andvíg þessum breytingum frá núgildandi lögum. En er ekki vissara að athuga þetta betur? Það má segja að þetta ætti fremur að vera áhyggjuefni hv. formanns nefndarinnar því að hann er fylgjandi því að frv. fái afgreiðslu. En mér virðist eins og þetta sé ekki ljóst. Ég veit ekki til að ráðherra hafi útskýrt þetta. Menn hafa verið að segja þetta hver við annan á göngum og lauslega á nefndarfundinum í gær og talið að það hlyti að vera. Auðvitað er það frumvarpstextinn sem er lagalega réttur ef samþykktur verður. En hvar prentvillurnar eru núna veit ég ekki eða hvar vansmíðarnar eru.
    Ég hlýt að draga fram að ég skildi formann Skólameistarafélagsins svo að það hefði svo sem ekki verið að þeirra frumkvæði sem þetta lagabreytingafrv. lægi fyrir. Hins vegar stóðu þeir greinilega frammi fyrir því að það átti að gera breytingu, enda sagði formaðurinn að málamiðlanir hefði orðið að gera. Af því að mér var alls ekki ljóst hvort Skólameistarafélagið vildi að gerðar yrðu breytingar eða ekki spurði ég beint: Telur formaður Skólameistarafélagsins að það eigi að samþykkja frv. eða ekki? Áður hafði hann sagt að það hefði orðið að ganga að málamiðlunartillögum og svaraði spurningu minni svo að hann teldi að rétt væri að samþykkja frv. Þetta var hinn eindregni stuðningur. Mér þóttu athugasemdir annars fyrrum skólameistara, Jóns Böðvarssonar, sem einnig sat fundinn, hníga allar í þá átt að það væri gjörsamlega fráleitt að samþykkja frv., sérstaklega ákvæðin sem vörðuðu skólanefndina og stjórn skólans. Sá gestur nefndarinnar lagði á það höfuðáherslu þar sem hann vitnaði til reynslu sinnar við undirbúning núgildandi laga, þar hefði verið víðtækt samráð allra sem hlut áttu að máli og þetta hefði verið málamiðlun eftir mikla vinnu. En nú eru þau lög tekin, hrist til og frá. Hæstv. ráðherra vill gera einhverja breytingu og formaður nefndarinnar segir: Jú, hann telur að það þurfi að gera breytingu. Þetta eru að vísu ekki þær breytingar sem hann hefði viljað gera,
en samt finnst honum rétt að samþykkja frv. Þetta eru bara einhverjar breytingar. Þetta er lýsing á stöðu málsins.
    Ég tek það fram að ef kostur hefði verið á því tæknilega að aðlaga hugmyndir formanns nefndarinnar, hv. þm. Ragnars Arnalds, um skipan skólanefnda að þessu frv. tel ég að hans hugmyndir um það efni séu langtum skynsamlegri en þær sem í frv. eru. Ef formaður legði fram brtt. í þá átt þætti mér eðlilegt að fylgja þeim fremur en því sem er í frv. þó að ég hafi ekki verið sammála honum um öll atriði þess frv. sem hann flutti á fyrra þingi.
    Úr því að umræða er hafin um þetta mál vil ég á

nýjan leik ítreka að hlutur nemenda er því miður fyrir borð borinn á fleiri en einum stað í frv. Ég held að tími sé til kominn að nemendur fái miklu betri tryggingu fyrir því að þeim sé veitt sú þjónusta í skólunum sem skólarnir hafa tekið að sér að veita. Það er a.m.k. ljóst að um þessar mundir er mikil ólga meðal framhaldsskólanemenda sem hafa orðið fyrir miklu tjóni vegna kjaradeilnanna er staðið hafa yfir og vegna þeirra verkfalla sem þær hafa haft í för með sér. Þetta hefur gerst hvað eftir annað með vissa árganga. Það sem þetta frv. gerir í þágu nemenda er að það dregur úr því aðhaldi sem var í lögum til að nemendur gætu fengið bættan upp lélegan árangur af fyrra skólastigi. Nú er ekki skylt að veita þeim viðbótarkennslu eða undirbúningskennslu fyrir framhaldsskóla þar sem þess hefur verið talin þörf. Það er að vísu ekki bannað að gera þetta en það er ekki lengur skylt. Hvað erum við að gera nemendum með þessu? Við erum að draga úr sjálfstrausti þeirra sem af einhverjum ástæðum hafa helst úr lestinni eða lent aftarlega í lestinni, kannski af ástæðum sem alls ekki voru þeirra eigin sök. Því ber okkur að sjá til þess í öllu þessu flókna kerfi sem skólakerfið okkar er að slíkum nemendum sé veitt sú aðstoð sem tryggð var með frv. sem hér er verið að breyta og sem tryggð var með ákvæðum sem lagt er til í frv. að séu hreinlega afnumin. Ég skil ekki þá umhyggju fyrir ungu fólki sem birtist í þessu því að þetta er ekki umhyggja heldur kæruleysi.