Framhaldsskólar
Laugardaginn 20. maí 1989

     Frsm. meiri hl. menntmn. (Ragnar Arnalds):
    Herra forseti. Vegna ummæla seinasta ræðumanns, hv. þm. Ragnhildar Helgadóttur, skal það fúslega viðurkennt að frv. sem hér um ræðir var ekki gallalaust og í því voru missagnir sem verið er að leiðrétta. Það er líka rétt, sem hv. þm. nefndi áðan, að 7. gr. frv. og athugasemd við 7. gr. ber ekki saman þannig að það segir dálítið annað í 7. gr. en segir í athugasemdinni. Það er því eðlilegt að hún veki máls á því að þessi ágalli hafi verið á frv. og að hún spyrji hvort formaður nefndarinnar sé fullviss um hvað sé hið rétta.
    Ég vil upplýsa að ég náði ekki tali af hæstv. ráðherra því hann var austur á landi eins og ég sagði áðan, en ég talaði við Stefán Ólaf Jónsson deildarstjóra í menntmrn. sem hefur haft umsjón með gerð frv. og hann staðfesti það, sem ég þóttist nú reyndar vita áður og hafði lýst yfir á nefndarfundinum, að frumvarpsgreinin er rétt, en það sem segir í athugasemdinni er rangt. Það er ágætt að þetta komi fram við 3. umr. þannig að enginn þurfi að velkjast í vafa um að það sem verið er að bera upp til afgreiðslu er sú tillaga sem flm. frv. og þeir sem hafa undirbúið það ætlast til að verði samþykkt. En þeir hafa gert þau mistök, hvaða sögu sem þau mistök eiga, að orða þetta alrangt í greinargerðinni. Það er alveg hárrétt. Það leiðréttist hér með.
    Ég vil hins vegar segja að ég sagði ekki aðeins að á frv. hefðu verið vankantar. Ég sagði líka að á gildandi lögum væru vankantar. Ég sagði að það hefði verið vansmíð á lögunum sem voru samþykkt í fyrra og það er álit menntmrh. og menntmrn. að flytja þurfi frv. og fá það afgreitt á Alþingi til þess að bæta þar úr.