Frsm. 1. minni hl. allshn. (Kristín Halldórsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá 1. minni hl. allshn. sem er á þskj. 1288 og hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Frv. þetta var lagt fram samhliða 417. máli í Nd., frv. til laga um umhverfismál, en tengist því þó aðeins með ákvæði 1. gr. Fyrsti minni hl. er eindregið þeirrar skoðunar að stofna skuli sérstakt ráðuneyti umhverfismála og telur ekkert því til fyrirstöðu að fresta þinglokum á þessu vori svo lengi sem þurfa þykir til að afgreiða það mál. Til þess virðist ekki nægilegur vilji meðal þingmanna þrátt fyrir mörg og fögur orð um nauðsyn þess að koma góðri skipan á umhverfismálin. Miklu betra en ekki er þá að lögfesta það frumvarp um Stjórnarráð Íslands sem hér um ræðir og er þá lögfest að sérstakt ráðuneyti fari með umhverfismál. Sex ára ákvæðið í fyrri málslið 5. gr. er til bóta en önnur atriði þessa frv. skipta minna máli.
Fyrsti minni hl. mælir með samþykkt frv.``
Virðulegi forseti. Ég hef engu við þetta álit að bæta öðru en því að láta í ljós þá ósk að vel og ötullega verði unnið að framtíðarskipan umhverfismála nú á milli þinga svo að um þau mál megi takast sem best samkomulag allra þingflokka og sátt við fólkið í landinu.
Það var mjög leitt að ekki skyldi takast að ljúka umfjöllun um 417. málið. Vinnan við það er hafin. Allmargar umsagnir hafa borist og eru að sjálfsögðu misjafnar eins og við var að búast, en þessari vinnu verður að halda áfram.
Ég er því miður ekki fjarskalega trúuð á að sú ósk sem ég lét hér í ljós rætist með tilliti til reynslunnar. Þá er nú þessi trú mín ekkert sérstaklega sterk og sannfærandi. En óskin er hér engu að síður borin fram og Kvennalistinn mun ekki liggja á sínu liði frekar en hingað til.