Starfslok neðri deildar
Laugardaginn 20. maí 1989

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Ég þakka hv. 2. þm. Reykn. fyrir hlý og fögur orð í minn garð og árnaðaróskir til mín og fjölskyldu minnar. Ég óska öllum hv. þm. deildarinnar og fjölskyldum þeirra heilla og velfarnaðar og ég þakka ykkur öllum fyrir samstarfið bæði fyrr og síðar.
    Þessum fundi er slitið.