Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Það mál sem hér er til umfjöllunar er með hátt dagskrárnúmer. Hins vegar var það frv. sem flutt var með mjög lágt númer og í nefndinni var gerð ákveðin sátt. Hún fólst í flutningi þeirrar þáltill. sem var áðan tekin á dagskrá.
    Ég leyfi mér að bera hér fram svohljóðandi
dagskrártillögu:

    ,,Till. til þál. um endurskoðun laga um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins verði strax tekin til atkvæða án umræðu.`` --- [Fundarhlé.]