Þinglausnir
Laugardaginn 20. maí 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Alþingi Íslendinga, 111. löggjafarþing, lýkur nú störfum hér í þingsal. Heima í héraði bíða hv. þm. mörg og mikilvæg verkefni og starfsfólks Alþingis þau störf sem urðu að víkja meðan þing hefur setið.
    Það þing, sem nú lýkur störfum, hefur verið óvenjuannasamt og um margt sérstætt. Hafði þar áhrif myndun ríkisstjórnar mjög skömmu áður en þing kom saman og leið því nokkur tími þar til mál hennar voru lögð fram. Í upphafi þings var lögð fram starfsáætlun Alþingis í fyrsta sinn. Tókst betur en búist var við að halda hana með þeim frávikum þó sem réttur hv. þm. til umræðna utan dagskrár gaf tilefni til. Nýgerðir kjarasamningar höfðu þau áhrif að ekki var unnt að ljúka þingstörfum 6. maí eins og áætlað hafði verið þar sem ný stjfrv. fylgdu í kjölfar þeirra. Við slíku má alltaf búast en almennt hefur starfsáætluninni verið vel tekið og verður hún því vafalaust fastur liður í hauststarfi þingsins framvegis.
    Nú verður gefið stutt yfirlit um störf Alþingis:

    Þingið stóð yfir frá 10. okt. 1988 til 6. jan. 1989 og frá 6. febr. 1989 til 20. maí 1989, alls 193 daga.
     Þingfundir hafa verið haldnir samtals 314.
    Í Nd. 113
    Í Ed. 119
    Í Sþ. 82
    Alls 314
     Þingmál og úrslit þeirra:
     Lagafrumvörp voru samtals lögð fram 179. Stjórnarfrumvörp voru 104 og þingmannafrumvörp 75.
    Lögð fyrir Nd. 102
    Lögð fyrir Ed. 73
    Lögð fyrir Sþ. 4
    Alls 179
    86 stjórnarfrumvörp voru afgreidd sem lög, en óútrædd stjórnarfrumvörp eru 18.
    15 þingmannafrumvörp urðu að lögum, 4 var vísað til ríkisstjórnarinnar en 56 þingmannafrumvörp eru óútrædd.
    Af 179 frumvörpum alls urðu 101 að lögum.
     Þingsályktunartillögur voru alls 108.
    Stjórnartillögur voru 10
    Þingmannatillögur voru 98
    Alls 108
    25 tillögur voru samþykktar sem ályktanir Alþingis, 9 var vísað til ríkisstjórnarinnar, 73 eru óútræddar og ein var kölluð aftur.
     Skýrslur voru samtals 22.
    Beiðni um skýrslur ráðherra voru 9
    Skýrslur bárust 8
    Aðrar skýrslur lagðar fram í Sþ. 14
    Alls 22
     Fyrirspurnir. Í Sþ. voru bornar fram 207 fyrirspurnir. Allar voru fyrirspurnir þessar afgreiddar nema 6.
    Munnlegar fyrirspurnir voru 148.
    Svarað var 143.
    Skriflegar fyrirspurnir voru 59.
    Svarað var 57.

    Tvær fyrirspurnir voru kallaðar aftur og einni fyrirspurn synjað.
    Alls voru til meðferðar í þinginu 517 mál, þar af voru 348 afgreidd.
    Tala prentaðra þingskjala var 1339.

    Eins og fram hefur komið var mikill fjöldi þingmála lagður fyrir þetta þing og óvenjumörg mál hlutu afgreiðslu. Afgreiðsla mála hefur gengið vel þegar litið er til styrkleika hæstv. ríkisstjórnar, og stjórnarandstaðan hefur sýnt ábyrgð og drengskap við þingstörfin. Fyrir það vil ég þakka.
    Það er ekki verkefni forseta að leggja dóm á mikilvægi þeirra þingmála sem hlotið hafa afgreiðslu hverju sinni. Ég vil þó geta nýsettra laga um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds sem marka munu tímamót í stjórnsýslu í landinu. Þau lög eiga sér lengri sögu en flest þau mál sem þingið hefur lögfest um langa hríð. Árið 1914 var skipuð þingnefnd í samræmi við þingsályktun sem samþykkt hafði verið á Alþingi og lagði nefndin til fullan aðskilnað umboðsvalds og dómsvalds. Álit nefndarinnar var sérprentað og gefið út árið 1916 og þykir enn hið merkasta rit. Ekki bar Alþingi þó gæfu til að aðskilja dómsvald og umboðsvald fyrr en nú.
    Um öll mál gildir að sú er ósk okkar allra að störf okkar á þessu þingi megi verða landi og þjóð til láns og blessunar. Hver sem lífsviðhorf þingmanna kunna að vera, eða pólitískar skoðanir eins og ýmsir kunna að kalla þau,
fullyrði ég að þeir leggja á sig mikla vinnu í þágu lands og lýðs og fá oft lítið þakklæti fyrir. Og það sem verra er: mikið vantar á að starfsaðstaða þeirra sé sambærileg við það sem gerist í nálægum löndum. Sama gildir um aðbúnað starfsfólks Alþingis.
    Forsetar þingsins hafa fullan hug á að bæta úr þessu og hafa unnið nokkurt starf í því skyni. Því verður haldið áfram á því sumri sem í hönd fer og ekki linnt fyrr en löggjafarsamkomunni hefur verið búin sú aðstaða sem henni hæfir.
    Við verkalok á þessu fyrsta þingi mínu sem forseti sameinaðs þings vil ég þakka þingmönnum öllum velvild og umburðarlyndi í minn garð. Forsetum deilda þakka ég gott samstarf, svo og varaforsetum og skrifurum. Skrifstofustjóra og starfsfólki Alþingis þakka ég alúð og eljusemi við erilsöm störf.
    Ég óska þingmönnum góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu. Þeim úr okkar hópi sem ekki getur lengur vænst þeirrar heimkomu sem hann áður átti og er fjarstaddur í dag sendi ég hlýjar kveðjur. Forseta Nd. óska ég heilla og hamingju í nýju starfi. Ég vona að við hittumst öll heil á hausti komanda og bið þess að heill og hamingja fylgi öllum hv. alþingismönnum og starfsliði Alþingis.