Ferill 4. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 4 . mál.


Sþ.

4. Tillaga til þingsályktunar



um bann við geimvopnum.

Flm.: Hjörleifur Guttormsson, Guðrún Agnarsdóttir.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir og styðja á alþjóðavettvangi bann við geimvopnum þar sem miðað verði við:
1.     Að allar rannsóknir og tilraunir, er tengjast hernaði í himingeimnum, verði tafarlaust stöðvaðar.
2.     Að hvers konar hernaðarumsvif og vopnakerfi til nota í himingeimnum verði bönnuð.
3.     Að óheimil sé smíði vopna sem grandað geta gervihnöttum og öðrum tækjum sem tengjast friðsamlegri nýtingu himinhvolfsins.


Greinargerð.


    Geimvopn og notkun himingeimsins í hernaðarskyni hafa tekið mikið rúm í umræðunni um vígbúnaðarkapphlaup risaveldanna, einkum eftir hina frægu „stjörnustríðsræðu“ Reagans Bandaríkjaforseta sem hann hélt 23. mars 1983. Þar boðaði hann byltingarkennda áætlun um svonefnt „geimvarnafrumkvæði“ (Strategic Defense Initiative) eða SDI-áætlun. Samkvæmt henni mundu Bandaríkin leita leiða til að eyða öllum langdrægum eldflaugum og kjarnaoddum sem skotið yrði á loft í átt til Bandaríkjanna og gera slík vopn óskaðleg.
    Með slíkum vopnabúnaði, sem að hluta til yrði komið fyrir úti í himingeimnum, boðaði Reagan forseti að unnt ætti að verða að útiloka ógnina af gereyðingu af völdum kjarnorkuvopna og gera þau þar með „óvirk og óþörf“ í reynd.
    Þessi boðskapur Bandaríkjaforseta og sú áætlun, sem honum tengist, hefur síðan kallað fram mikla og vaxandi gagnrýni, bæði innan Bandaríkjanna og á alþjóðavettvangi. Ýmsir þjóðarleiðtogar og þjóðþing hafa tekið eindregna afstöðu gegn geimvopnaáætluninni, m.a. í löndum sem aðild eiga að Atlantshafsbandalaginu. Má þar nefna Mitterand Frakklandsforseta og danska þingið en meiri hluti þess ályktaði gegn geimvopnum 26. mars 1985.
    Fyrir liggur að geimvopnaáætlun Bandaríkjanna er enn hindrun í vegi samkomulags um fækkun langdrægra eldflauga.
    Andstaða fer stöðugt vaxandi við geimvopnaáætlunina. Ástæður þess eru af margvíslegum toga og verða hér aðeins nefnd örfá atriði:
1.     Geimvopnakapphlaup milli risaveldanna mundi gera að engu samninginn um takmörkun gagneldflaugakerfa (Treaty on the Limitation of Anti-Ballistic Missile Systems), ABM-sáttmálann frá árinu 1972 sem er einn gildasti þátturinn í SALT I samkomulaginu.
2.     Geimvopnaáætlun Bandaríkjanna gæti girt fyrir allar frekari tilraunir til að hemja vígbúnaðarkapphlaupið og aukið þannig stórkostlega hættuna á gereyðingarstyrjöld.
3.     Ríki Vestur-Evrópu yrðu hernaðarlega enn háðari Bandaríkjunum en nú er og vettvangur átakanna milli austurs og vesturs færðist í enn ríkari mæli en nú er til Evrópu.
4.     Með tilkomu geimvopna mundi ákvörðun um stríð eða frið, líf eða tortímingu, færast endanlega úr mannlegu valdi yfir í vélrænar tölvur þar eð bregðast yrði við eldflaugaárás innan fárra sekúndna frá því að eldflaugum hefði verið skotið á loft. Hættan á tortímingu mannkyns vegna tæknilegra mistaka margfaldast að sama skapi.
    Margir vísindamenn og hernaðarsérfræðingar hafa enga trú á að geimvarnadæmið gangi upp og geti veitt það öryggi sem Reagan notaði sem aðalröksemd í mars 1983. Viðbrögð gagnaðilans, þ.e. Sovétríkjanna, yrðu að líkindum ekki aðeins þau að setja af stað eða herða á eigin geimvopnarannsóknum, heldur öðru fremur að fjölga langdrægum eldflaugum og fullkomna þær til að komast þannig fram hjá varnarviðbúnaði andstæðingsins. Þannig muni Sovétríkin alltaf geta tryggt að hluti af eldflaugaregninu komist á leiðarenda. Geimvopnakerfi eru heldur ekki talin geta veitt vörn gegn árás stýriflauga sem fljúga lágt yfir yfirborði jarðar. Líkur eru einnig á að auðvelt sé að trufla þau af andstæðingunum og gera þannig geimvopnin óvirk. Þannig er virkni slíkra vopnakerfa mjög óviss þótt tæknidraumarnir rættust sem SDI-áætlunin á að skera úr um. Niðurstaðan yrði að öllum líkindum langtum viðkvæmara og óvissara ástand en nú ríkir á hernaðarsviðinu. Um þetta efni vísast í fylgiskjal II, sem eru kaflar úr nýrri skýrslu frá Öryggismálanefnd eftir Albert Jónsson: „Geimvarnir: Áætlanir risaveldanna og áhrif þeirra (1987)“.
    Um tæknilegar hugmyndir að baki geimvopnaáætlun Bandaríkjastjórnar er fjallað ítarlega í fylgiskjali III með þessari tillögu, en það er grein eftir dr. Hans Kr. Guðmundsson eðlisfræðing, sem birtist í tímaritinu Þjóðlífi á árinu 1985. Þar kemur einnig fram sú mikla óvissa sem tengist stjörnustríðsáætlun Reagans á öllum sviðum.
    Hinn gífurlegi kostnaður við rannsóknaáætlun Bandaríkjanna er mál út af fyrir sig. Áætlað hefur verið að hann nemi fyrir tímabilið 1985–89 um 32 milljörðum bandarískra dala (yfir 1300 milljörðum ísl. króna). Að þessu rannsóknatímabili loknu á m.a. að vera unnt að meta tæknilegar forsendur að baki SDI-áætluninni, en þær eru taldar afar óvissar miðað við núverandi þekkingu. Þessi hugarfóstur byggja m.a. á leysigeislum sem granda eiga eldflaugum sem fyrst eftir að þeim yrði skotið á loft, en flugtími þeirra er um 30 mínútur samtals milli meginlanda. Hér eru það sekúndur sem úrslitum gætu ráðið og allt er undir vélrænu mati tölvubúnaðar komið. Það segir sitt um viðtökur vísindamanna við þessari áætlun að um miðjan október 1985 bundust um 1300 bandarískir vísindamenn og háskólakennarar, þar af 12 nóbelsverðlaunahafar, samtökum um að eiga engan hlut að geimvopnarannsóknum sem þá voru að hefjast að frumkvæði Reagans forseta.
    Í fylgiskjali I með þessari þingsályktunartillögu er að finna kafla úr riti Öryggismálanefndar, „Samningar um afvopnun og takmörkun vígbúnaðar“ eftir Albert Jónsson og Þórð Ingva Guðmundsson (útg. 1985), þar sem m.a. er fjallað um ABM-sáttmálann frá 1972 um takmörkun gagneldflaugakerfa.
    Litið hefur verið á þennan ABM-sáttmála sem einn þýðingarmesta samning milli risaveldanna um takmörkun vígbúnaðarkapphlaupsins. Í yfirlýsingu svonefnds Aspen-hóps stjórnmálamanna frá árinu 1984, sem að stóðu fjölmargir heimsþekktir menn, þeirra á meðal Helmut Schmidt, Pierre Trudeau og Robert McNamara, er ABM-samningurinn talinn vera „hornsteinn hernaðarlegs stöðugleika ... Á honum ætti að byggja og bæta um þar sem nauðsyn krefur, en ekki grafa undan honum“, segir í yfirlýsingunni. Þar er enn fremur mælt með því að „viðræður ættu að byrja strax milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna um að ná tökum á vopnum sem grandað geta gervihnöttum. Eftirlits- og fjarskiptagervihnettir hafa ásamt öðrum gervihnöttum haft grundvallarþýðingu fyrir hernaðarlegan stöðugleika sem ekki má tefla í tvísýnu með truflandi viðleitni til að ná einhliða en skammvinnum yfirburðum.“
    Í sama streng er tekið í yfirlýsingum og ályktunum margra virtra aðila sem látið hafa sig skipta vígbúnaðarkapphlaupið, t.d. Palme-nefndarinnar og Delhi-hóps sex þjóðarleiðtoga frá árinu 1984.
    Brýnt er að Alþingi Íslendinga marki afstöðu sína til geimvopna m.a. vegna þeirrar afstöðu sem fram kom hjá Matthíasi Á. Mathiesen, fyrrverandi utanríkisráðherra, til málsins. Í skýrslu sinni til Alþingis um utanríkismál í apríl 1986 sagði ráðherrann um þetta efni:
    „Eftir leiðtogafund Reagans og Gorbatsjovs í nóvember vöknuðu vonir á Vesturlöndum um að samninganefndir Bandaríkjanna og Sovétríkjanna í Genf myndu einbeita sér að því að ná samningum um atriði, sem minnstur ágreiningur var um, svo sem um 50% niðurskurð langdrægra kjarnavopna og niðurskurð meðaldrægra kjarnavopna í Evrópu. Þessar vonir hafa ekki ræst, því Sovétmenn gera þá kröfu, að Bandaríkjamenn hætti við geimvarnaáætlun sína áður en samið verði um meðaldræg og langdræg kjarnavopn. Á þetta hafa Bandaríkjamenn ekki fallist og benda á, að hér sé aðeins um að ræða rannsóknir og alls óvíst um niðurstöður þeirra. Hins vegar sé von þeirra sú, að þær sýni fram á hvernig unnt sé að gera kjarnavopn óþörf. Vilja þeir þar af leiðandi ekki útiloka sjálfar rannsóknirnar. Vekja þeir athygli á því að Sovétmenn hafi stundað svipaðar rannsóknir um árabil.
    Íslensk stjórnvöld telja mikilvægt að staðið verði við gerða alþjóðasamninga, þar á meðal áðurnefndan samning um takmörkun gagneldflaugakerfa. Rannsóknir af því tagi, sem hér um ræðir, þurfa ekki að stríða gegn slíkum samningum. Auk þess er óraunhæft að ætla að hægt sé að framfylgja banni við rannsóknum. Bendi niðurstöður geimvarnarannsókna til að geimvarnakerfi geti stefnt heimsfriðnum í hættu, ber risaveldunum að sjá til þess að geimvarnaáætlanir verði aldrei að veruleika. Sýni þær á hinn bóginn að geimvarnakerfi muni stuðla að friði og öryggi er eðlilegt að risaveldin geri samkomulag um framkvæmd slíkra áætlana. Vert er að hafa í huga, að geimvarnaáætlun Bandaríkjamanna gerir ráð fyrir stórstígum framförum á sviði tækni og vísinda, og má þar nefna upplýsinga-, efna-, orku-, leysigeisla- og kerfistækni. Geri Bandaríkjamenn öðrum þjóðum kleift að taka þátt í áætluninni, er ljóst að Íslendingar geta, ekki síður en aðrir, notið góðs af samvinnunni.“ (Lbr. flm.)
    Hér gaf fyrrverandi utanríkisráðherra til kynna að æskilegt væri fyrir Íslendinga að taka þátt í geimvopnaáætlun Bandaríkjanna. Alþingi getur ekki látið hjá líða að taka hið fyrsta afstöðu til slíkra hugmynda til að taka af öll tvímæli um afstöðu þingsins.
    Með samþykkt þessarar þingsályktunartillögu, sem hér er flutt í fjórða sinn, mundi Alþingi taka undir með þeim fjölmörgu sem gera sér ljósa hættuna af þeirri stigmögnun vígbúnaðarkapphlaupsins sem fylgja mundi í kjölfar geimvopnarannsókna. Með tillögunni er lögð á það áhersla að Alþingi Íslendinga leggi sitt lóð á vogarskálina gegn öllum hugmyndum um að nota himingeiminn til hernaðar nú og í framtíðinni og að fulltrúar Íslands fylgi þeirri stefnu eftir á alþjóðavettvangi.



Fylgiskjal I.


Albert Jónsson og Þórður Ingvi Guðmundsson:


SAMNINGAR UM AFVOPNUN OG TAKMÖRKUN VÍGBÚNAÐAR


II. SALT I samningarnir.


(Úr riti Öryggismálanefndar, 4.)


    SALT I samningunum frá 1972 má skipta í þrennt. Í fyrsta lagi var gerður samningur sem takmarkaði eldflaugavarnir. Prótókollur við samninginn var gerður tveimur árum síðar og jók hann enn á þær takmarkanir sem fyrir voru. Í öðru lagi var gerður „bráðabirgðasamningur um vissar ráðstafanir með tilliti til takmörkunar strategískra sóknarvopna“. Í þriðja lagi var komið á fót nefnd, sem skipuð er fulltrúum beggja, til að fjalla um og aðstoða við framkvæmd SALT samninganna.

II.1. Samningur milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna


um takmörkun gagneldflaugakerfa.


     (Treaty between the United States of America and the Union of Soviet Socialist Republics on the Limitation of Anti-Ballistic Missile Systems.)
     Undirritaður í Moskvu 26. maí 1972: tók gildi 3. október 1972. Samningurinn gildir um ótakmarkaðan tíma. Uppsagnarfrestur er 6 mánuðir, en aðilar skulu í sameiningu endurskoða samninginn á fimm ára fresti miðað við gildistöku hans. Prótókollur við samninginn var gerður árið 1974.
    Með samningnum er Bandaríkjunum og Sovétríkjunum bannað að setja upp gagneldflaugakerfi sem geti varið allt landsvæði þeirra. Bannið gildir einnig fyrir varnir ákveðinna staða á landsvæði þeirra, nema að því leyti sem sérstaklega er leyft í samningnum. Gagneldflaugakerfi eru einungis leyfð við tvo staði í hvoru landi. Setja má upp eitt kerfi til að verja höfuðborgina og annað til að verja eitt af þeim svæðum þar sem strategískar landeldflaugar eru staðsettar. Ekki er leyfilegt að hafa nema 100 skotpalla fyrir gagneldflaugar og 100 gagneldflaugar í hvoru kerfi. Ratsjár í hvoru kerfi mega ekki fara yfir tiltekinn fjölda. Þær eru einnig háðar takmörkunum um tæknilega gerð og eðli.
    Samningurinn felur ekki í sér fremur en hinir samningarnir að aðilar geti haft eftirlit með því innan landamæra hvor annars að samningnum sé framfylgt. Þess í stað er tekið fram að hvort ríki muni reiða sig á eigin eftirlitskerfi (national technical means of verification) til að tryggja að farið sé eftir ákvæðum samningsins. Eftirlitið hefur einkum farið fram með aðstoð gervihnatta en einnig, hvað Bandaríkjamenn hefur varðað, með sérstökum eftirlitsstöðvum — eða „hlustunarstöðvum“ — í ríkjum sem liggja að landamærum Sovétríkjanna. Í þessum samningi, sem og öðrum, er tekið fram að hvor aðili skuldbindi sig til að gera ekkert það sem truflað geti eftirlitskerfi hins. Enn fremur að hann muni ekki af ásettu ráði gera neinar þær ráðstafanir er hindrað geti eftirlit hins, s.s. að hylja vopnin. Þetta á við alla samninga risaveldanna um takmörkun vígbúnaðar.
    Í reynd var það svo þegar samningurinn var gerður að hvorugur aðila taldi sig geta sett upp áreiðanlegt og áhrifaríkt gagneldflaugakerfi. Í samningnum endurspeglast og sú trú að svo takmarkaðar eldflaugavarnir, sem leyfðar eru í honum, skipti litlu sem engu máli. Enn fremur að eldflaugavarnir geti valdið pólitískum og hernaðarlegum óstöðugleika í samskiptum risaveldanna, vegna hugsanlegs kapphlaups milli þeirra á þessu sviði og þeirrar ógnunar við endurgjaldsgetu sem felast mundi í áhrifaríkum eldflaugavörnum.
    Bandaríkjamenn settu upp gagneldflaugakerfi við eitt af hinum strategísku landeldflaugasvæðum sínum en það kerfi var síðan lagt niður. Sovétmenn byggðu kerfi við Moskvu en ekkert við landeldflaugasvæði. Í Moskvu-kerfinu eru nú einungis 32 gagneldflaugar í stað þeirra 100 sem leyfilegar eru.
    Báðir aðilar stunda viðamiklar rannsóknir á sviði eldflaugavarna. Í samningnum er tekið fram að rannsóknir og prófanir séu leyfðar. Þó má hvor aðili ekki hafa fleiri en 15 tilraunaflaugar á tilraunasvæðum í einu. Það á að tryggja að ekki sé mögulegt að gera svo viðamiklar tilraunir að komast megi að því með einhverri vissu hvort tiltekið gagneldflaugakerfi sé áhrifaríkt eða ekki. Loks er leyft að endurnýja og bæta gagneldflaugakerfi brjóti slíkt ekki í bága við ákvæði samningsins.

II.2. „Prótókollur við samning Bandaríkjanna og Sovétríkjanna


um takmörkun gagneldflaugakerfa.“


     (Protocol to the Treaty Between the United States of America and the Union of Soviet Socialist Republics on the Limitation of Anti-Ballistic Missile Systems.)
     Undirritaður í Moskvu 3. júlí 1974: tók gildi 25. maí 1976. Um gildistíma, uppsagnarfrest og endurskoðun gildir hið sama og um gagneldflaugasamninginn frá 1972, enda er tekið fram að prótókollur þessi sé óaðskiljanlegur (integral) hluti af þeim samningi.
    Í prótókolli þessum segir að hvor aðili megi einungis hafa eitt gagneldflaugakerfi, í stað tveggja eins og leyft var í samningnum frá 1972. Þetta eina kerfi skal annaðhvort vera við höfuðborg eða við eitt af þeim svæðum þar sem strategískar landeldflaugar eru staðsettar.
    Prótókollurinn heimilar t.d. Bandaríkjunum að taka niður gagneldflaugakerfið sem þeir reistu við eitt af eldflaugasvæðum sínum og reisa annað, háð sömu takmörkunum, við Washington. Á sama hátt er Sovétmönnum leyfilegt að leggja niður kerfið sem þeir hafa við Moskvu og byggja annað við eitt landeldflaugasvæða sinna. Þetta var þó háð því að tilkynning um slíka fyrirætlan bærist hinum aðilanum áður en framkvæmdir hæfust; í fyrsta lagi 3. október 1977 og í síðasta lagi 2. október 1978. Eftir það varð og er þetta leyfilegt fimmta hvert ár og hvenær sem er á því ári. Þennan rétt má einungis nota einu sinni.



Fylgiskjal II.


Albert Jónsson:


Geimvarnir:


Áætlanir risaveldanna og áhrif þeirra.


(Úr riti Öryggismálanefndar, 1987.)



3.2.      Áhrif á vígbúnaðarkapphlaupið og samninga um fækkun kjarnorkuvopna og takmörkun vígbúnaðar.
    ABM-samningurinn frá 1972 um takmörkun gagnflaugakerfa (sjá bls. 6–7) leyfir rannsóknir á hvers kyns varnarvopnum. Einu varnarvopnin, sem beinlínis er leyfilegt að smíða og gera tilraunir með, eru gagnflaugar staðsettar á jörðu niðri. Einungis er leyfilegt að taka í notkun eitt slíkt kerfi og í því mega ekki vera nema 100 gagnflaugar. Í samningnum er gert ráð fyrir að rannsóknir geti leitt til þess að varnarvopn byggð á „öðrum eðlisfræðilegum lögmálum“, þ.e. vopn sem ekki séu staðsett á jörðu, geti komið til sögunnar. Í samningnum er sérstaklega kveðið á um viðræður og samninga í framtíðinni milli risaveldanna um slík vopn.
    Bandaríkjastjórn er þeirrar skoðunar að túlka megi samninginn þannig að hann leyfi ekki eingöngu að grunnrannsóknir séu stundaðar á varnarvopnum sem byggist á „öðrum eðlisfræðilegum lögmálum“, heldur megi einnig smíða slík vopn og gera tilraunir með þau. Þá er haldið fram að svo virðist sem einungis sé bannað að taka slík vopn í notkun, þar sem samningurinn kveði aðeins á um að varnarkerfi „byggð á öðrum eðlisfræðilegum lögmálum“ og takmörkun þeirra skuli ræða sérstaklega. Margir halda fram að samkvæmt samningnum megi einungis taka varnarvopn af þessu tagi í notkun ef samkomulag takist um það milli risaveldanna. Það stafi af því að túlka beri samninginn þannig að öll varnarvopn séu bönnuð nema þau sem staðsett séu á jörðu.
    Vegna þrýstings heima fyrir og frá hendi bandamanna hefur Reagan-stjórnin ákveðið að líta ekki svo á að samningurinn leyfi að þróa megi eða taka í notkun annars konar varnarkerfi en gagnflaugar. Afstaða stjórnarinnar er að geimvarnaáætlunin, sem feli eingöngu í sér rannsóknir og tilraunir, brjóti ekki í bága við ABM-samninginn. Verði ákveðið að koma upp geimvörnum er ætlunin að semja við Sovétmenn um hvernig uppsetningu varnarkerfa beggja verði best fyrir komið og þá samhliða fækkun kjarnorkuvopna. Í yfirlýsingu Bandaríkjastjórnar kemur fram að hún álíti samt sem áður að víðari túlkunin á ABM-samningnum sé „fyllilega réttlætanleg“. Enn fremur hefur hún áskilið sér rétt til að endurskipuleggja geimvarnaáætlunina þannig að hún falli að víðari túlkuninni á samningnum. Þetta virðist þýða að þegar og ef vopnasmíði og tilraunir með vopn hefjist verði túlkuninni breytt enda er ljóst að slíkt er óumflýjanlegt eigi að halda geimvarnaáætluninni áfram eftir að vissu stigi rannsókna er náð. Þá segir að samið verði og rætt við Sovétmenn um uppsetningu geimvarna „eins og henta þyki“ („... as appropriate ...“). Þetta hefur verið túlkað þannig, þar á meðal af bandarískum embættismönnum, að vilji Sovétmenn ekki semja verði geimvarnarkerfum komið upp engu að síður. Allt þetta virðist þýða að ABM-samningnum verði rift ef þurfa þyki.
    Þá er ljóst að haldi risaveldin áfram rannsóknum á röntgengeislavopnum kemur að því að þau verður að prófa í geimnum. Slíkt bryti í bága við samning frá 1967 sem bannar kjarnorkuvopn í geimnum og við samning frá 1963 sem bannar kjarnorkusprengingar í geimnum. Eigi að halda áfram að þróa röntgengeislavopn verður því að segja þessum samningum upp. Jafnframt virðist þurfa að gera tilraunir á jörðu niðri sem brytu í bága við samning frá 1974 sem takmarkar kjarnorkusprengingar í tilraunaskyni neðanjarðar við 150 kílótonn. Bandaríkjastjórn hefur sagt að sem standi þurfi ekki að sprengja stærri sprengjur en 150 kílótonn en svo kunni að fara að allt að þúsund kílótonna sprengingar þurfi til. Þá hafa bandarískir vísindamenn haldið fram að það kunni að þurfa samtals milli 100 og 200 tilraunasprengingar til að þróa röntgengeislavopn.
    Bandaríkjastjórn hefur haldið fram að geimvarnaáætlunin hafi þegar haft þau áhrif að knýja Sovétmenn í ársbyrjun 1985 aftur að samningaborðinu um fækkun kjarnorkuvopna eftir að hafa slitið viðræðum í árslok 1983 í mótmælaskyni við uppsetningu nýrra bandarískra meðaldrægra flauga í Vestur-Evrópu. Aðrir efast um þetta og benda á að Sovétmenn hafi snúið aftur að samningaborðinu af pólitískum ástæðum, jafnvel notað geimvarnaáætlunina til að bjarga andlitinu eftir að hafa gert sér grein fyrir að það að slíta viðræðunum hafi verið mistök. Þá er því einnig haldið fram að sé það rétt að geimvarnaáætlunin hafi einhver áhrif í þá átt að hvetja Sovétmenn til samninga um fækkun kjarnorkuvopna sé best að ná fram slíkri fækkun gegn því að fallast á að takmarka rannsóknir á sviði varnarvopna. Stuðningsmenn geimvarnaáætlunarinnar hafa bent á að sú gagnrýni að áætlunin muni hafa hvetjandi áhrif á vígbúnaðarkapphlaupið sé ekki annað en gömul tugga. Svo lengi sem þróun vígbúnaðar Bandaríkjanna geti komið í veg fyrir einhvern ávinning eða yfirburði Sovétmanna verki slíkt óhjákvæmilega hvetjandi á vígbúnaðarkapphlaupið. Í sjálfu sér er hægt að taka undir þessa skoðun. Hún virðist hins vegar líta fram hjá þeim nýju vandamálum sem takmarkaðar varnir hafa í för með sér fyrir samninga um afvopnun og takmörkun vígbúnaðar, þeirri grundvallarbreytingu á vígbúnaðarkapphlaupinu sem takmarkaðar varnir leiða til. Sama má segja um þá skoðun að unnt verði að semja við Sovétmenn um fækkun kjarnorkuvopna jafnhliða uppsetningu geimvarna.
    Í fyrsta lagi virðist útilokað að samningar takist um fækkun strategískra kjarnorkuvopna svo lengi sem hugsanlegt er að annað risaveldanna komi sér upp takmörkuðum vörnum á undan hinu. Einungis það risaveldanna, sem teldi sig geta orðið á undan, yrði reiðubúið til að fækka vopnum sínum að einhverju marki. Í umfangsmikilli skýrslu, sem ein af rannsóknastofnunum Bandaríkjaþings ( Office of Technology Assessment) hefur gert um geimvarnir, kemur fram að stofnuninni tókst ekki að finna neinn sem gat fært sannfærandi rök fyrir því að samningar gætu tekist um fækkun kjarnorkuvopna og samvinnu um uppsetningu varnarkerfa áður en risaveldin vissu meira um möguleika og kostnað varðandi varnir. Þetta vandamál sést greinilega í þeim hnút sem samningaviðræður risaveldanna um fækkun strategískra kjarnorkuvopna eru í. Hann ræðst m.a. af ótta Sovétmanna við tæknilega yfirburði Bandaríkjanna og birtist í skilyrði Sovétstjórnarinnar um að ekki geti orðið af fækkun strategískra kjarnorkuvopna nema Bandaríkjamenn fallist á að hætta við geimvarnaáætlunina.
    Í öðru lagi hefur alltaf verið órjúfanlegt samband milli varnarvopna og sóknarvopna sem hefur þau áhrif að varnir kalla á fleiri og kröftugri sóknarvopn. Þessu er einungis hægt að breyta ef varnirnar eru þeim eiginleikum gæddar að ekki borgi sig að auka árásargetu. Stórlega má efast um, af mörgum áðurgreindum ástæðum, að geimvarnir nái þessu takmarki. Á sjöunda áratugnum ákváðu Bandaríkjamenn, eins og áður sagði, að hefja smíði fjölodda kjarnaflauga vegna þess að þeir óttuðust að Sovétmenn stefndu að takmörkuðum vörnum með gagnflaugakerfum. Þá má benda á að Bretar og Frakkar vinna nú að því að fjölga kjarnorkuvopnum sínum verulega meðal annars af ótta við að hugsanlegar takmarkaðar varnir kunni ella að draga mjög úr endurgjaldsgetu þeirra á næstu áratugum. Sovétmenn hafa þegar lýst yfir að þeir muni bregðast við uppsetningu bandarísks varnarkerfis með fjölgun kjarnorkuvopna og að þeir séu sannfærðir um að slíkt verði miklu ódýrara en að styrkja varnirnar sem því nemur. Yfirmaður eins stærsta fyrirtækisins, sem vinnur við bandarísku geimvarnaáætlunina, hefur sagt að takmarkaðar varnir muni óhjákvæmilega hafa neikvæð áhrif á vígbúnaðarkapphlaupið. Við þeim megi bregðast með fjölgun kjarnorkueldflauga og það verði gert. Jafnframt sé ljóst af þessu að varnarkerfið verði til lítils gagns verði það sett upp í blóra við Sovétmenn.
    Reagan forseti hefur boðist til að veita Sovétmönnum upplýsingar um niðurstöður bandarískra rannsókna á geimvörnum gegn því að þeir gangi til samninga um fækkun strategískra kjarnorkuvopna. Gallinn við hugmynd forsetans er sá að varnirnar mundu ekki byggjast á því að einhverjum einum tilteknum leyndardómi hefði verið lokið upp, einhver ein formúla fundin. Þess í stað yrði líklegt að varnarkerfið samanstæði af margvíslegum og flóknum vopnum og stjórnkerfum. Upplýsingarnar mundu því ekki tryggja að risaveldin kæmu sér upp takmörkuðum vörnum samtímis og bægja frá hættunni á auknum óstöðugleika. Upplýsingarnar mundu enn fremur sýna Sovétmönnum hvernig best yrði að yfirbuga varnirnar. Sovétmenn hafa bent á þetta og segja að ekki sé hægt að taka tilboð forsetans alvarlega. Gorbatsjov Sovétleiðtogi hafnaði tilboðinu á Reykjavíkurfundinum í fyrra og lýsti yfir að hann tryði ekki að Bandaríkjamenn mundu veita upplýsingarnar. Þá má búast við, eins og fyrr var bent á, að öflugar rannsóknir á sviði varnarvopna herði á tækniþróun og vígbúnaðarkapphlaupinu um venjuleg vopn. Loks er víst að verði hafin smíði varnarvopna mun það ekki einungis leiða til þess að herðist á vígbúnaðarkapphlaupinu í sóknarvopnum heldur einnig marka upphaf kapphlaups um smíði varnarvopna og gagnvarnavopna. Afleiðingin yrði aukinn pólitískur og hernaðarlegur óstöðugleiki í samskiptum austurs og vesturs og aukin ófriðarhætta. Það sem meira er virðast jafnvel fullkomnar varnir fela í sér þessi sömu vandamál.

3.3. Fullkomnar varnir.
    Markmiðið með þessum kafla er að sýna að jafnvel þótt bæði risaveldin hefðu „fullkomnar varnir“ leysti það ekki þau vandamál sem rædd hafa verið hér að framan. Átt er við fullkomnar varnir í þeim skilningi að unnt yrði að smíða varnarkerfi sem kæmi í veg fyrir að tryggð gereyðingargeta væri fyrir hendi. Pottþéttar varnir verða aldrei til.
    Engin trygging væri fyrir því að varnirnar héldust fullkomnar. Líklega yrði enn örðugra að viðhalda fullkomnum vörnum en koma þeim upp, sem þó yrði nógu erfitt í ljósi þeirra tæknilegu og vísindalegu vandamála sem menn standa frammi fyrir í þeim efnum. Þar sem engin trygging væri fyrir því að varnirnar héldust fullkomnar mundu bæði risaveldin í sífellu reyna að auka árásargetu sína og varnargetu. Staðan mundi jafnframt einkennast af þeirri meginstaðreynd að annað risaveldanna þyrfti einungis að auka lítillega við árásargetu sína til að raska „jafnvæginu“. Gæti annað risaveldið komið þó ekki væri nema tíu kjarnaoddum gegnum varnir hins hefði það í för með sér gífurlega eyðileggingu í samanburði við enga eyðileggingu. Sá sem gæti þetta hefði yfirburði yfir hinn. Um leið hefði hann skamman tíma til að njóta yfirburða sinna vegna þess að andstæðingurinn mundi fljótlega ná að jafna metin. Því gæti skapast sterk tilhneiging hjá þeim sem nyti tímabundinna yfirburða til að gera árás meðan hann gæti eða þvinga fram einhverja eftirgjöf með hótunum um árás.
    Fæling felur í sér fullyrðingu þess efnis að svo lengi sem unnt sé að hóta styrjöld á trúverðugan hátt megi halda andstæðingi í skefjum. Vandinn er sá að fælingarkenningin veitir ekki svar við því hvað sé trúverðugt, með öðrum orðum hvaða hótun og herstyrkur dugi til við allar kringumstæður. Þar með er sá sem að fælingunni stendur í sífelldri óvissu um hvað nægi til að tryggja frið, óvissu sem kallar á stöðugt fleiri og fullkomnari vopn án nokkurs varanlegs árangurs. Fullkomnar varnir mundu ekki binda enda á þessa óvissu og þar með ekki á vígbúnaðarkapphlaupið. Með vörnum er andstæðingi „hótað“ því að árás verði hrundið. Menn gætu hins vegar hvorki verið vissir um að varnarkerfið verkaði eins og til stæði við allar hugsanlegar kringumstæður né heldur að andstæðingurinn tryði að það gerði það. Enn fremur yrði til staðar sífelldur ótti við að andstæðingurinn kynni að finna einhverja leið til að yfirbuga varnirnar og ná yfirburðum í skjóli eigin varna.
    Þá gæti hættan á styrjöld með venjulegum vopnum aukist verulega þar sem líkur á kjarnorkustyrjöld hefðu væntanlega minnkað mikið vegna fullkominna varna, nema auðvitað á þeim tíma þegar annar eða báðir hefðu möguleika á að brjótast gegnum varnir hins. Hafi hættan á kjarnorkustyrjöld tryggt frið er óhjákvæmilegt að líkur á ófriði aukist eftir því sem hættan á kjarnorkustyrjöld minnkar. Þá gætu líkur á notkun taktískra kjarnorkuvopna í venjulegri styrjöld aukist verulega vegna þess að ekki þyrfti lengur að óttast stigmögnun til kjarnorkuátaka með strategískum eða meðaldrægum vopnum.

Niðurstaða.
    Segja má að risaveldin eigi svo langt í land að koma upp vörnum sem einhverju máli skipti að í reynd sé ótímabært að greina í smáatriðum frá því í hverju rannsóknir á þessu sviði felast, enda hefur þeim einungis verið lýst í grófum dráttum hér. Jafnvel varðandi þær takmörkuðu varnir, sem stefnt er að
og einungis er ætlað að verja hernaðarleg skotmörk, er enn við afar erfið vísindaleg og tæknileg vandamál að fást. Margir sérfræðingar telja þau óyfirstíganleg, að minnsta kosti ef verulegur áreiðanleiki á að nást og ef öryggi varnanna á að vera nægilega tryggt.
    Frumskilyrði er að unnt verði að koma upp varnarbúnaði í geimnum, en það er ekki síst á því sviði sem tæknilegu vandamálin eru hvað flest og erfiðust. Jafnframt yrði það þessi hluti varnanna sem andstæðingurinn ætti hægast með að ráðast á. Þá er ljóst að ef varnir á hinu mikilvæga hreyfilsstigi eiga að vera mögulegar verður að vera unnt að smíða áhrifarík geislavopn; því að einungis slík vopn hefðu þá afkastagetu sem til þyrfti.
    Ef hins vegar tækist einungis að koma upp nógu áreiðanlegum vörnum á hreyfilsstigi gæti andstæðingurinn hæglega yfirbugað þær með því einu að fjölga og breyta sóknarvopnum sínum. Því eru marglaga varnir nauðsynlegar en hvert einstakt lag þyrfti að vera mjög áreiðanlegt til að tryggja að varnirnar í heild leiddu til nægjanlegrar óvissu fyrir andstæðinginn og kæmu í veg fyrir að hann gæti einfaldlega aukið árásargetu sína. Varnir á farbrautarstigi kjarnaodda yrðu mjög erfiðar, einkum vegna þess að unnt væri að láta aragrúa eftirlíkinga fylgja oddunum eftir á þessu stigi. Á lokalegg oddanna inni í gufuhvolfinu þyrfti ekki að hafa áhyggjur af eftirlíkingunum, en á móti kæmi að tíminn til að verjast er örskammur. Einnig er víst að gífurlega erfitt yrði að tryggja nauðsynlega stjórnun og fjarskipti varnarkerfisins. Enn fremur yrði ekki unnt að prófa varnarkerfið nema með mismunandi ófullkomnum tölvulíkönum. Loks er það svo að þótt tækist að leysa öll tæknileg vandamál og standa undir stjarnfræðilegum kostnaði við að byggja varnarkerfið yrði afskaplega erfitt ef ekki ógerlegt að tryggja öryggi þess.
    Ef takmörkuðum vörnum verður komið upp virðast hugsanleg áhrif á stöðugleika gagnvirkrar fælingar risaveldanna verða neikvæð á heildina litið, jafnvel þótt takist að auka verulega óvissu andstæðingsins um ávinning af frumárás. Þá má efast um að takmarkaðar varnir séu nauðsynlegar í þessum tilgangi í ljósi þeirrar gífurlegu óvissu og áhættu sem nú þegar fylgir frumárás til að ná hernaðarlegum ávinningi. Loks hefðu varnir sérstök neikvæð áhrif fyrir samninga um fækkun kjarnorkuvopna vegna þess að þær mundu leiða til þess að sóknarvopnum fjölgaði. Auk þess hæfist kapphlaup í varnarvopnum og um smíði gagnvarnavopna.
    Markmiðið með rannsóknum risaveldanna á vörnum er ekki og getur ekki um fyrirsjáanlega framtíð orðið að verja almenning eða gera kjarnorkuvopn úrelt. Jafnvel þótt takast kunni að koma upp vörnum gegn eldflaugum og kjarnaoddum yrðu þær takmarkaðar. Þarna hillir því ekki undir leið út úr þeirri hernaðarlegu stöðu milli austurs og vesturs sem einkennist af gagnkvæmri gereyðingargetu, ógnarjafnvæginu svonefnda. Jafnvel fullkomnar varnir mundu ekki tryggja stöðugleika eða binda enda á vígbúnaðarkapphlaupið.



Fylgiskjal III.


Hans Kr. Guðmundsson:


Stjörnustríðsáætlun Reagans.


Endalok gereyðingarhættunnar eða ótrúleg sóun hugvits og fjármagns?


(Grein úr Þjóðlífi, 1. tbl. 1. árg. desember 1985.)



(Tölvutækur texti ekki til.)