Ferill 7. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 7 . mál.
Sþ.
7. Tillaga til þingsályktunar
um tvöföldun Reykjanesbrautar.
Flm.: Júlíus Sólnes, Hreggviður Jónsson.
Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að láta hefja nú þegar undirbúning að tvöföldun Reykjanesbrautar frá Hafnarfirði að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Skal gert ráð fyrir því að lögð verði önnur akbraut við hliðina á hinni gömlu þannig að fullkomin hraðbraut með algerlega aðskildum akstursstefnum og tveimur akreinum í hvora átt tengi saman þessa tvo staði. Stefnt verði að því að ljúka verkinu fyrir árslok 1992. Þetta verkefni verði tekið út úr vegáætlun og meðhöndlað sem sjálfstætt verkefni óháð langtímaáætlun um vegagerð. Leitað verði leiða til þess að afla fjár til verksins utan vegáætlunar.
Greinargerð.
Reykjanesbrautin frá Hafnarfirði til Keflavíkur er fyrsti vegarkafli þjóðvegakerfisins á Íslandi með bundnu slitlagi. Lagning vegarins á árunum 1963 og 1965 markaði tímamót í sögu vegagerðar á Íslandi. Ekki mátti draga það öllu lengur að leggja fullkominn veg milli höfuðborgarsvæðisins og Keflavíkur. Þegar fyrir 20 árum var umferðin á milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins orðin svo mikil að malarvegurinn gamli var orðinn ófullnægjandi.
Með tilkomu nýja vegarins varð mikil breyting til batnaðar. Flutningsgeta jókst gífurlega og öll umferð bíla milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins varð miklu greiðfærari. Þetta olli straumhvörfum í öllum samskiptum milli íbúa þessara svæða og átti sinn þátt í því að efla atvinnulíf á Suðurnesjum. Um svipað leyti og nýi vegurinn var tekinn í notkun var öllu millilandaflugi beint til Keflavíkurflugvallar. Hafa allir flugfarþegar, sem koma og fara frá Íslandi, átt leið um Reykjanesbrautina allar götur síðan. Reykjanesbrautin er því þjóðvegur allra landsmanna.
Umferð um Reykjanesbrautina hefur aukist jafnt og þétt, bæði fólksflutningar og vöruflutningar. Í vaxandi mæli eiga vöruflutningar til landsins með flugi þátt í því. Samstarf atvinnufyrirtækja á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu hefur einnig vaxið og það hefur í för með sér aukna umferð. Bættar samgöngur eru höfuðforsenda þess að tengja atvinnulíf þessara tveggja landsvæða saman, þannig að Suðurnesin og höfuðborgarsvæðið geti orðið að einu og sama atvinnusvæði. Þetta skiptir höfuðmáli í sambandi við byggðaþróun á Suðurnesjum og möguleika til þess að nýta til fullnustu þá kosti sem hin nýja Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur upp á að bjóða. Hefur verið talað um tollfrjáls atvinnusvæði í námunda við flugstöðina og eins um byggingu miðstöðvar fyrir erlend viðskipti. Atvinnulíf hefur átt erfitt uppdráttar seinni árin á Suðurnesjum. Mikill samdráttur hefur verið í útgerð og iðnaður og verslun ekki styrkst að sama skapi. Tvöföldun Reykjanesbrautar mundi gjörbreyta allri aðstöðu fyrir Suðurnesjamenn og er næg réttlæting fyrir því að hraða þessari framkvæmd.
Reykjanesbrautin í núverandi mynd fullnægir hvergi nærri þeim kröfum sem verður að gera til höfuðsamgönguæðar milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Akstursskilyrði á Reykja
Í töflu 1 eru tölur sem sýna umferðarþunga og fjölda umferðarslysa á Reykjanesbraut á ári hverju frá því að brautin var fullgerð eins og hún er nú. ÁDU táknar meðalfjölda bíla á sólarhring yfir árið, SDU táknar meðalfjölda bíla á sólarhring sumarmánuðina fjóra og MDU er mesta sólarhringsumferð ársins.
Tafla 1.
Umferð og slys á Reykjanesbraut.
| Ár | MDU | ÁDU | SDU | Slys á ári |
| 1965 | 1340 | |||
| 1966 | 1530 | |||
| 1967 | 1500 | |||
| 1968 | 1540 | |||
| 1969 | 1630 | |||
| 1975 | 2820 | 3220 | ||
| 1976 | 3310 | |||
| 1977 | 3250 | 3540 | ||
| 1978 | 3240 | 3710 | ||
| 1979 | 3240 | 3460 | ||
| 1980 | 3120 | 3530 | ||
| 1981 | 3130 | 3550 | ||
| 1982 | 4000 | 3070 | 3590 | 90 |
| 1983 | 3900 | 3010 | 3670 | 110 |
| 1984 | 4100 | 3180 | 3930 | 107 |
| 1985 | 5300 | 3610 | 4170 | 100 |
| 1986 | 5400 | 3610 | 4310 | 124 |
| 1987 | 7450 | 172 | ||
Eftir nokkra stöðnun á árunum 1978–1982 fer því umferð á Reykjanesbraut greinilega ört vaxandi. Að byggja fullkomna hraðbraut með aðskildum akstursstefnum er nú jafnnauðsynlegt og það var fyrir 20 árum að leggja veg með bundnu slitlagi milli Keflavíkur og Reykjavíkur.
Sérfræðingar Vegagerðarinnar telja að þegar mesta umferð á sólarhring sé komin í 8000–10.000 bifreiðar þurfi að skilja akstursstefnur að. Í apríl 1987 mældist mesta umferð á sólarhring 7450 bifreiðar. Er ætlað að mesta umferð á sólarhring á árinu 1988 sé komin vel yfir 10.000 bifreiðar, enda þekkja þeir sem þurfa að fara um Reykjanesbraut endalausar lestir bif
Samkvæmt upplýsingum Vegagerðar ríkisins er talið að lagning nýrrar akbrautar við hliðina á hinni gömlu með nauðsynlegum lagfæringum og ráðstöfunum vegna flokkunar vegarins sem hraðbrautar kosti um 1 milljarð króna. Sjálf tvöföldun brautarinnar mun kosta um 350–400 milljónir króna, lýsing með allri brautinni um 200 milljónir króna og gerð umferðarmannvirkja á gatnamótum, svo og lagfæring afreina, um 300–400 milljónir króna. Með því að bjóða verkið út til stórra verktaka, jafnt erlendra sem innlendra, má eflaust lækka þennan kostnað verulega.