Ferill 19. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 19 . mál.


Sþ.

19. Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um mengunarvarnir hjá Íslenska álfélaginu hf.

Frá Kristínu Einarsdóttur.



1.     Í hvaða atriðum er mengunarvörnum ábótavant hjá Íslenska álfélaginu hf.?
2.     Hvernig ætla stjórnvöld að tryggja að fyrirtækið geri viðunandi úrbætur vegna mengunar?
3.     Hvers vegna er fyrirtækinu ekki gert að sækja um starfsleyfi eins og öðrum fyrirtækjum hér á landi sem geta valdið mengun?