Ferill 30. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 30 . mál.


Sþ.

30. Tillaga til þingsályktunar



um að íslenska skjaldarmerkinu frá 1944, ásamt skjaldberum, verði komið fyrir á Alþingishúsinu í stað merkis Kristjáns níunda.

Flm.: Árni Gunnarsson.



    Alþingi ályktar að fela forsetum þingsins að láta taka niður merki Kristjáns níunda Danakonungs, sem nú er á norðurhlið Alþingishússins, og láta koma þar fyrir íslenska skjaldarmerkinu frá 1944 ásamt skjaldberum: griðungi, bergrisa, gammi og dreka.

Greinargerð.


    Á undanförnum árum og áratugum hafa nokkrir alþingismenn og fleiri látið í ljós þá skoðun sína að eðlilegt væri að hið fagra og löggilta skjaldarmerki þjóðarinnar frá 1944 fengi að prýða Alþingishúsið í stað merkis Kristjáns níunda Danakonungs.
    Af ýmsum ástæðum hefur ekki verið gerð gangskör að þessum breytingum. Málið hefur reynst viðkvæmt, m.a. vegna sambandsslitanna við Dani, og nefnd hafa verið fagurfræðileg sjónarmið. Einnig hefur sú skoðun komið fram að Íslendingum væri hollt að minnast þess að þeir voru undir erlendum yfirráðum í nærri átta hundruð ár.
    Flutningsmaður getur ekki fallist á þessi sjónarmið og telur ekki viðunandi að Alþingi Íslendinga komi saman undir merki erlends konungs. Í þessu felst engin biturð eða illvilji í garð dönsku krúnunnar eða dönsku þjóðarinnar yfirleitt, enda munu Danir láta sér í léttu rúmi liggja hvort merki Kristjáns konungs níunda er á Alþingishúsi Íslendinga eða ekki. En Alþingi á ekki að láta sér á sama standa. Það getur varla verið keppikefli æðstu stofnunar sjálfstæðrar þjóðar að hafa valdsmerki erlends konungs á húsi sínu.
    Því hefur einnig verið borið við að húsafriðunarlög komi í veg fyrir þessar breytingar. Þetta er ekki rétt. Þótt Alþingishúsið sé í A-flokki friðaðra húsa er ekkert sem kemur í veg fyrir þessa breytingu sé hún gerð í samráði við og með samþykki húsafriðunarnefndar.
    Í grein, sem birtist í Morgunblaðinu 28. janúar 1987 og er eftir Þorstein Halldórsson skjaldarmerkjafræðing, segir m.a.:
    „Á Alþingishúsinu hengu frá upphafi (1881) tvö skjaldarmerki, þ.e. hið íslenska: silfraður, krýndur, flattur þorskur á rauðum grunni og hið danska: þrjú krýnd blá ljón á gulum feldi með rauðum hjörtum. Voru merkin á framhlið hússins, sitt hvoru megin fyrir ofan svalagluggana. Krýndi þorskurinn var tekinn niður árið 1904 og nýtt skjaldarmerki sett í hans stað: silfraður fálki á bláum grunni. Árið 1911 voru bæði merkin tekin niður og síðan hefur ekkert skjaldarmerki hangið utan á Alþingishúsinu.“
    Þessar upplýsingar leiða hugann að því að alþingismönnum hefur fyrr á árum ekki þótt við hæfi að hafa eingöngu merki Kristjáns níunda á húsinu. Kanna mætti hvort ekki væri unnt að koma íslenska skjaldarmerkinu fyrir t.d. á svölum Alþingishússins ef mikil andstaða er við að fjarlægja merki Kristjáns níunda, sem þó verður að teljast ólíklegt.
    Flutningsmaður telur fyllilega tímabært að Alþingi afgreiði þetta mál á þessu þingi.