Ferill 32. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 32 . mál.
Sþ.
32. Tillaga til þingsályktunar
um eflingu Menningarsjóðs félagsheimila.
Flm.: Jón Kristjánsson, Guðmundur G. Þórarinsson.
Alþingi ályktar að efla beri Menningarsjóð félagsheimila og felur menntamálaráðherra að láta fara fram endurskoðun á lagaákvæðum um sjóðinn. Endurskoðunin skal fela það í sér að sjóðurinn geti stuðlað að aukinni menningarstarfsemi á landsbyggðinni og auðveldað þeim menningarstofnunum, sem eiga að þjóna landinu öllu, að gegna því hlutverki sínu. Miðað skal við að ný löggjöf um sjóðinn taki gildi á árinu 1989.
Greinargerð.
Tillaga þessi er endurflutt frá síðasta þingi, en hún var þá ekki útrædd.
Núgildandi lagaákvæði um Menningarsjóð félagsheimila er að finna í lögum nr. 107 frá 28. október 1970, um félagsheimili. Þar er gert ráð fyrir að í Félagsheimilasjóð renni skemmtanaskattur svo sem segir í lögum um skemmtanaskatt, en 10% af tekjum sjóðsins skuli varið til Menningarsjóðs félagsheimila sem hafi það hlutverk að stuðla að menningarstarfsemi í félagsheimilum. Einnig hefur sjóðurinn heimild til þess að styrkja menningarstarfsemi utan félagsheimila, „ef sérstaklega stendur á“, eins og það er orðað í lögunum.
Það er ástæða til þess að endurskoða hlutverk Menningarsjóðs félagsheimila með tilliti til breytinga í þjóðfélaginu, efla hann og skapa honum grundvöll til þess að takast á við ný verkefni. Hlutverk félagsheimila í menningarlífi landsmanna hefur breyst og fleiri samastaðir eru fyrir menningarstarfsemi, svo sem skólar, kirkjur og aðrar byggingar.
Ástæða er til að kanna sérstaklega með hverjum hætti sjóðurinn getur eflt stuðning við menningarstarfsemi á landsbyggðinni og stuðlað að því að tengja starfsemi menningarstofnana í höfuðborginni betur landsbyggðinni. Má í því sambandi nefna Listasafn Íslands, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Þjóðleikhúsið sem eiga að hafa þær sérstöku skyldur að sinna landsbyggðinni. Geta má þess að tónlistarflutningur Sinfóníuhljómsveitarinnar úti um land á seinni árum hefur mælst mjög vel fyrir.
Listasafnið hefur nú fengið glæsilega starfsaðstöðu hér í höfuðborginni og næsta skref ætti að vera að tengja starfsemi þess betur landsbyggðinni. Þjóðleikhúsið ætti að hafa sérstakar skyldur í þessu efni, en leiksýningar þess út um landsbyggðina hafa verið takmarkaðar í seinni tíð.
Efling Menningarsjóðs félagsheimila gæti létt undir með starfsemi þessara stofnana og ekki er síður nauðsynlegt að sjóðurinn haldi áfram að sinna áhugafólki sem starfar að menningarmálum. Þar er þörfin brýn og mikill áhugi fyrir hendi.
Tillögugreinin kveður á um eflingu sjóðsins sem þýðir að auka verður tekjur hans. Nauðsynlegt er einnig að endurmeta hlutverk sjóðsins og marka honum framtíðarstöðu, ekki síst þar sem nú er rætt um breytingar á verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Nauðsyn ber til að sjóðurinn verði öflugur um land allt, óháð því hvað verður ákveðið varðandi byggingu og rekstur félagsheimilanna í landinu.
Rétt þykir að ráðrúm gefist til endurskoðunarinnar og hugsanlegra lagabreytinga og því er gert ráð fyrir að ný löggjöf um sjóðinn taki gildi á árinu 1989.