Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 1 . mál.


Nd.

35. Breytingartillögur



við frv. til l. um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði.

Frá Stefáni Valgeirssyni.



1. Við 2. gr. Framan við greinina bætist ný málsgrein er orðist svo:
     Þeir sem lög þessi taka til og hafa atvinnu af viðskiptum með verðbréf skulu afla glöggra upplýsinga um hverjir viðskiptamenn þeirra eru og skrá nöfn þeirra, kennitölur og heimili á reikninga eða uppgjör vegna viðskiptanna. Einnig ber öllum, sem atvinnu hafa af viðskiptum með verðbréf, að geyma afrit eða ljósrit af öllum skjölum, sérgerðum vegna viðskiptanna, svo sem tékkum. Geyma skal afrit og ljósrit skjala, sem tengd eru einstökum viðskiptum, sérgreind og tengja þau glögglega númeri og dagsetningu reiknings.
2.     Við 30. gr. Greinin orðist svo:
     Sömu reglur gilda um verðbréfafyrirtæki og verðbréfasjóði að því er varðar bundið fé og settar eru innlánsstofnunum skv. 1.–3. mgr. 8. gr. laga nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands.