Ferill 37. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 37 . mál.
Sþ.
39. Tillaga til þingsályktunar
um bætta samkeppnisstöðu innlends skipaiðnaðar.
Flm.: Stefán Guðmundsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tryggja að allra leiða verði leitað til að efla og bæta samkeppnisstöðu innlends skipaiðnaðar og sporna við því að skipaiðnaðarverkefni fari úr landi.
Ríkisstjórnin tryggi að útvegsmenn og opinberir sjóðir semji ekki um nýsmíði skipa eða um viðhaldsverkefni erlendis án undangengins útboðs þar sem innlendir aðilar keppi á jafnréttisgrundvelli við erlendan skipaiðnað, m.a. varðandi meðhöndlun tilboða og fjármagnsfyrirgreiðslu. Tilboðin verði metin á viðskiptalegum grundvelli áður en lánveitingar eru ákveðnar. Gerðar verði staðlaðar reglur um útboð, veðskilmála og tilboð í skipaiðnaðarverkefni.
Ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að bankarnir veiti sambærilegar ábyrgðir vegna skipaiðnaðarverkefna innan lands og veittar eru þegar verkefnin eru unnin erlendis.
Greinargerð.
Samhljóða tillaga var lögð fram á 110. löggjafarþingi en kom þá ekki til umræðu. Því er tillagan endurflutt hér. Henni fylgdi þá svohljóðandi greinargerð:
Íslendingum ber öðrum þjóðum fremur nauðsyn til að eiga góðan skipastól. Ein af forsendum fyrir þróttmikilli útgerð er öflugur skipaiðnaður. Líkt og aðrar atvinnugreinar á Íslandi, sem eiga í alþjóðlegri samkeppni, stendur innlendur skipaiðnaður nú höllum fæti. Valda þar mestu hinar miklu kostnaðarhækkanir sem orðið hafa hér á landi umfram hækkanir hjá samkeppnisþjóðunum. Til að tryggja aukna framleiðni og betri þjónustu innlends skipaiðnaðar þurfa að koma til aukin og stöðug verkefni.
Á meðfylgjandi yfirliti frá Þjóðhagsstofnun, um fjárfestingu í fiskiskipum árin 1986 og 1987, kemur fram að hlutur innlends skipaiðnaðar hefur farið minnkandi (upphæðir í millj. kr. á verðlagi hvors árs):
1986 1987
Innflutningur 1) ..................... 295 1598
Endurbætur ............................ 931 1081
——- ——–
Innflutningur alls .................... 1226 2679
Nýframkvæmdir ......................... 370 509
Endurbætur ........................... 1052 912
——- ——–
Innan lands alls ...................... 1422 1421
Samtals innflutningur og framkvæmdir
innan lands ......................... 2648 4100
1) Söluandvirði seldra skipa úr landi er dregið frá kaupverði innfluttra skipa.
Í svari fyrrverandi iðnaðarráðherra við fyrirspurn hér í þinginu síðastliðinn vetur kom fram að Fiskveiðasjóður hefði á árinu 1987 veitt lán til smíða á 20 skipum erlendis fyrir íslenska aðila, samtals að upphæð 1680 milljónir króna. Heildarverðmæti þeirra skipa er áætlað um 2960 milljónir króna. Jafnframt kom fram hjá iðnaðarráðherra að samkvæmt upplýsingum Siglingamálastofnunar ríkisins voru 16 þilfarsbátar í smíðum í íslenskum skipasmíðastöðvum. Þar af voru 14 bátar 10 tonn eða minni. Auk þess voru 63 opnir bátar í smíðum innan lands, 10 tonn og minni. Til viðbótar þessu er ein skipasmíðastöð að hefja smíði á tveimur 220 tonna fiskiskipum.
Að undanförnu hefur borið á því að fiskiskip séu send utan til viðgerða og breytinga án undangenginna útboða innan lands. Þetta hefur aukist eftir að heimild var gefin til beinnar erlendrar lántöku. Meðan samþykki langlánanefndar þurfti til erlendrar lántöku var það jafnan haft til hliðsjónar að verk væru formlega boðin út innan lands og lán Fiskveiðasjóðs
háð því skilyrði. Samtök skipaiðnaðarins hafa lagt áherslu á að stjórnvöld komi því til leiðar að áður en lán eru veitt úr opinberum sjóðum eða leyfi veitt til erlendrar lántöku til endurbóta eða meiri háttar viðgerða á skipum erlendis verði verk formlega boðin út innan lands. Nýsmíðaverkefni eru sjaldnast boðin út en eðlilegt þykir að slíkt verði gert. Það er orðið tímabært að langlánanefnd og Fiskveiðasjóður geri hliðstæðar kröfur um útboð og verðsamanburð vegna nýsmíða og lengst af hafa gilt um endurbætur og viðgerðir. Flutningsmaður tekur undir með samtökunum að eðlilegt sé að láta á það reyna hvort innlend fyrirtæki þurfi verkefnanna við og hvort þau geti leyst þau af hendi á jafnhagkvæman hátt eða hagkvæmari en erlend fyrirtæki.
Með þessari þingsályktunartillögu er því beint til stjórnvalda að þau geri nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að íslenskur skipaiðnaður geti keppt á jafnréttisgrundvelli við þær þjóðir sem í æ ríkari mæli taka að sér íslensk skipaiðnaðarverkefni og skapað fjölda manns atvinnu. Því hefur raunar margoft verið lýst yfir af hálfu stjórnvalda að brýnt væri að grípa til aðgerða og vel verið tekið í tillögur samtaka skipaiðnaðarins í þessum efnum.