Ferill 44. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 44 . mál.


Sþ.

46. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um þriggja fasa rafmagn.

Frá Guðna Ágústssyni.



1.     Hvaða áætlanir og reglur hafa verið í gildi um lagningu á þriggja fasa rafmagni um byggðir landsins?
2.     Hverjar eru áætlanir um lagningu á þriggja fasa rafmagni næstu tvö árin, 1989 og 1990?
3.     Hefur verið metin þörf atvinnulífsins á landsbyggðinni fyrir þriggja fasa rafmagn?