Ferill 46. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 46 . mál.
Sþ.
48. Fyrirspurn
til samgönguráðherra um Ferðaskrifstofu ríkisins.
Frá Guðmundi Ágústssyni.
1. Hvert var matsverð og hvert var söluverð Ferðaskrifstofu ríkisins?
2. Hvernig voru eignir metnar og hve stór hluti matsfjárhæðarinnar var viðskiptavild?
3. Hve margir starfsmenn keyptu hlut í Ferðaskrifstofunni og hve hár var hlutur hvers starfsmanns?
4. Hvaða kvaðir eru á sölu hlutabréfanna?
5. Hefði verið hægt að fá hærra verð fyrir fyrirtækið á almennum markaði?