Ferill 47. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 47 . mál.
Sþ.
49. Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um breytingu á gjalddaga söluskatts.
Frá Guðmundi Ágústssyni.
1. Stendur til að breyta gjalddaga söluskatts frá því sem nú er þannig að eindaga söluskatts beri upp á sama dag og útborgun greiðslukorta?
2. Ef svo er, hvenær má búast við að sú breyting komi til framkvæmda?
3. Ef svo er ekki, eru þá í undirbúningi aðrar aðgerðir til að létta af smásöluversluninni að fjármagna skilvísa greiðslu söluskatts?