Ferill 59. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 59 . mál.
Ed.
61. Frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 45 16. apríl 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í
Flm.: Egill Jónsson.
1. gr.
4. gr. laganna, sbr. l. nr. 41/1982, breytist svo:a. 2. tölul. fyrri málsgreinar falli niður.
b. Lokamálsliður fyrri málsgreinar 3. tölul., er verður 2. tölul., orðast svo:
. Gjald þetta nær til allra sömu vörutegunda og búnaðarmálasjóðsgjald, sbr. lög nr. 40 7. maí 1982, er lagt á.
c. Orðin „nemur samanlögðum“ í 5 tölul., er verður 4. tölul., falla niður.
2. gr.
Aftan við I. kafla laganna, sbr. l. nr. 68/1973, komi nýr kafli, II. kafli, um stofnfjárreikninga, er orðast svo:a. 19. gr.
. Innheimta skal við sölu búvara og leigu á landi lögbýla, sem gjaldskyld er skv. lögum nr. 40 7. maí 1982, um búnaðarmálasjóð, sérstakt stofnfjárgjald er nemi 2% af verði til framleiðenda eða leigu til leigusala. Stofnfjárgjaldi skal varið til að greiða afborganir og vexti af lánum þeim sem veitt hafa verið búvöruframleiðendum af Stofnlánadeild landbúnaðarins eins og nánar er mælt fyrir í lögum þessum.
. Afurðastöðvar skulu innheimta stofnfjárgjald af verði þeirra afurða, sem þær kaupa af framleiðendum búvara, og standa skil á gjaldinu til Stofnlánadeildar landbúnaðarins á sama tíma og greiðsla afurðaverðs eða leigu fer fram. Heimilt er að taka stofnfjárgjald lögtaki. Í reglugerð skulu sett nánari ákvæði um álagningu og innheimtu stofnfjárgjalds, þar með talið um álagningu þess samkvæmt áætlun, gjalddaga og vanskilavexti.
b. 20. gr.
. Stofnfjárgjöld er greiðast til Stofnlánadeildar landbúnaðarins skulu leggjast inn á reikning þess búvöruframleiðanda eða leigusala sem lagt hefur inn á afurðastöð eða leigt út land þá vöru sem gjaldið er greitt af. Hver búvöruframleiðandi og leigusali skal hafa stofnfjárreikning hjá deildinni. Sé innstæða á stofnfjárreikningi lengur en einn mánuð skal Stofnlánadeildin færa á reikninginn tiltekna vexti. Ráðherra ákveður vaxtakjör, þar með taldar verðbætur, og skulu þau miðuð við að fé á stofnfjárreikningum beri sambærilega vexti og útlán hjá Stofnlánadeild.
c. 21. gr.
. Ef innstæða er á reikningi búvöruframleiðanda eða leigusala hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins og viðkomandi skuldar jafnframt Stofnlánadeild árgjöld, þ.e. gjaldfallnar afborganir, verðbætur, vexti, dráttarvexti og kostnað af lánum, skal Stofnlánadeild taka fé af reikningi þessum til að greiða hinar gjaldföllnu greiðslur að svo miklu leyti sem það hrekkur til þess.
d. 22. gr.
. Stofnlánadeild skal á gjalddaga meiri hluta þeirra lána, sem eigandi stofnfjárreiknings skuldar hjá deildinni, endurgreiða honum innstæðu á reikningnum ásamt vöxtum að frádregnum greiðslum skv. 21. gr.
. Sé greiðandi stofnfjárgjalds ekki skráður skuldari að láni hjá Stofnlánadeild skal innstæða á stofnfjárreikningi viðkomandi endurgreidd ásamt vöxtum eigi síðar en 1. september ár hvert en ráðherra getur í reglugerð ákveðið fleiri gjalddaga endurgreiðslna og mega þær vera mismunandi eftir upphæð innstæðna á stofnfjárreikningum. Þá er stjórn Stofnlánadeildar heimilt að endurgreiða innstæðu á stofnfjárreikningi vegna sérstakra aðstæðna greiðanda gjaldsins, svo sem framkvæmda, breytinga eða áfalla í rekstri, enda telji stjórn ekki ástæðu til að ætla að til vanskila lána komi við deildina á næsta gjalddaga þeirra.
. Stofnlánadeild er heimilt að undanþiggja þá búvöruframleiðendur og leigusala gjaldskyldu skv. 19. gr. sem ekki eru skráðir skuldarar að láni hjá Stofnlánadeild eða eiga þegar innstæðu á stofnfjárreikningi er nægi til greiðslu á árgjöldum af lánum viðkomandi hjá deildinni það ár.
e. 23. gr.
. Innstæða á stofnfjárreikningi hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins er undanþegin löghaldi, fjárnámi og lögtaki, enda þótt færð hafi verið til tekna á reikning eiganda.
. Óheimilt er að veðsetja slíka innstæðu eða vísa á hana til greiðslu. Framsal innstæðu er aðeins heimilt sem þáttur í sölu jarðar eða bústofns sem veðsettur hefur verið til tryggingar á lánum hjá Stofnlánadeild enda yfirtaki kaupandi greiðslu viðkomandi lána.
3. gr.
Greina- og kaflanúmer laganna, sbr. e-lið 14. gr. laga nr. 90 31. maí 1984, breytast til samræmis við lög þessi.4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1989.Greinargerð.
Frumvarpið var flutt á 109. löggjafarþingi en hlaut þá ekki afgreiðslu. Um frekari skýringar er vísað til greinargerðar sem fylgdi frumvarpinu og birtist hér í heild.
1. Setning laganna 1962.
Lög um Stofnlánadeild landbúnaðarins voru sett 1962 í samræmi við yfirlýsingu þáverandi ríkisstjórnar.
Í athugasemdum við frumvarpið segir svo m.a.:
„Gerð var á síðastliðnu ári ítarleg athugun á fjárhag Ræktunarsjóðs Íslands og Byggingarsjóðs sveitabæja, sem sannar ótvírætt, að sjóðir þessir eru nú raunverulega gjaldþrota, ...“
Um ástæður hins þrönga fjárhags sjóðanna, tekjuöflun og kjör á útlánum deildarinnar kemur eftirfarandi fram í athugasemdum við frumvarpið:
„Fjáröflun sú til stofnlána í landbúnaði, sem lagt er til að lögfesta með þessu frumvarpi, er við það miðuð, að Stofnlánasjóði landbúnaðarins verði innan skamms tíma kleift af eigin fé að standa undir eðlilegri fjárfestingarlánaþörf vegna framkvæmda í landbúnaði. Svo sem áður er að vikið er vonlaust með öllu að velta þessu vandamáli á undan sér með nýjum lántökum og eigi er það heldur viðunandi lausn þótt gengishallanum einum væri létt af sjóðunum. Það hefur jafnan verið viðurkennt nauðsynlegt að stofnlán í landbúnaði væru að verulegu leyti með hagstæðari kjörum en gilda á hinum
almenna lánamarkaði. Eigi því sjóðirnir í senn að gegna því hlutverki að starfa á eðlilegum og raunhæfum fjárhagsgrundvelli er eina leiðin sú að sjóðirnir verði að mestu byggðir upp af eigin fé. Með hliðsjón af þessari veigamiklu staðreynd verður að meta fjáröflunartillögurnar.“
Árlegar tekjur deildarinnar voru ákveðnar þannig: Framlag úr ríkissjóði eins og verið hafði, 1% gjald á framleiðsluvörur landbúnaðarins, sem skyldi dregið frá útborgunarverði til framleiðenda. Á móti legði ríkissjóður fram jafnháa upphæð. Enn fremur skyldi sölugjald lagt á landbúnaðarvörur, 0,75% af söluverði framleiðenda.
Í athugasemdum með frumvarpinu segir m.a. um þessar ákvarðanir:
„Í 2. og 3. tölul. (4. gr.) er lagt til að bændastéttin og ríkissjóður leggi fram að jöfnu árlegt tillag til Stofnlánadeildarinnar. Með hliðsjón af því alvarlega vandamáli, sem hér er við að fást og mikilvægi þess fyrir alla framtíðaruppbyggingu landbúnaðarins í landinu, er lagt til að leggja 1% gjald á framleiðsluvörur landbúnaðarins, sem ákvarðist og innheimtist á sama hátt og það 1 / 2 % gjald til búnaðarmálasjóðs og 1 / 2 % gjald til byggingar bændahallar, sem nú er innheimt.“
Ekki voru allir á eitt sáttir um lögin um Stofnlánadeild landbúnaðarins. Framleiðendagjaldið hlaut mikla andstöðu meðal bænda og fjölmörg samtök í landbúnaði mótmæltu því, m.a. var stofnað til samtaka innan landbúnaðarins um málshöfðun til að hnekkja gjaldinu. Niðurstaða dómstóla var hins vegar sú að með framleiðendagjaldinu væru lög á bændum ekki brotin.
2. Lögum breytt 1971.
Sú breyting, sem gerð var á lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins 1970, var til samræmis við lögin um Lífeyrissjóð bænda. Í athugasemdum með frumvarpinu segir m.a.:
„Frumvarp þetta er samið og gert til samræmis við ákvæði í frumvarpi til laga um Lífeyrissjóð bænda, sem lagt hefur verið fyrir Alþingi.
Í frumvarpi að lögum um Lífeyrissjóð bænda er gert ráð fyrir að bændur greiði sjálfir í sjóðinn 4% iðgjald af tryggðum tekjum, en álagningargrundvöllur verði framleiðsluverðmæti búsins. Samkvæmt lögum nr. 38/1945 greiða bændur búnaðarmálasjóðsgjald, 1% af brúttóframleiðsluverðmæti landbúnaðarvara, og 1% stofnlánasjóðsgjald af sama stofni. Hér er um slíka gjaldabyrði að ræða, að vegna framangreindrar iðgjaldagreiðslu ber nauðsyn til að afnema stofnlánasjóðsgjaldið í áföngum fram til ársins 1990.“
Ekki orkar tvímælis að mikilvægasta ákvörðun við þessar breytingar er lækkun sjóðagjaldanna í áföngum og afnám þeirra að fullu árið 1990.
Bændastéttin var ekki að fullu sátt við framleiðendagjaldið og menn treystu sér ekki til að fara af stað með nýtt gjald af sama stofni, þótt til Lífeyrissjóðs bænda væri, nema samtímis væri tekin ákvörðun um að lækka og síðar að fella niður sjóðagjöldin til Stofnlánadeildar landbúnaðarins.
3. Lögum breytt 1973.
Svo sem kunnugt var var verðlag á sjöunda áratugnum stöðugt og auðveldaði það rekstur Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Enn fremur dró erfitt árferði úr framkvæmdum í landbúnaði, sem jafnframt dró úr lánum til landbúnaðar og þannig minnkuðu útlán deildarinnar. En Adam var ekki lengi í Paradís, því að nú fóru verðbólguhjólin að snúast og framkvæmdir að aukast. Útlánaþörfin jókst og hagur deildarinnar versnaði. Um þetta segir svo í athugasemdum við frumvarpið:
„Það sem langmest hefur rýrt hag Stofnlánadeildar á undanförnum árum eru erlendar lántökur og þau stórfelldu gengistöp sem hún hefur orðið fyrir ...“
Og enn fremur segir:
„Það hefur einnig rýrt ráðstöfunarfé deildarinnar að hún hefur orðið að taka að láni fjármagn sem bæði hefur verið á hærri vöxtum og lánað til skemmri tíma en deildin hefur síðan endurlánað það.“
Til þess að bæta fjárhagsstöðu deildarinnar er 0,75% gjaldið hækkað í 1% til 1980 og framleiðendagjaldið látið haldast óbreytt til 1980. Jafnframt er ríkissjóði gert að greiða framlag til deildarinnar að jöfnu á móti báðum þessum gjöldum. Enn fremur voru þau tímamörk, sem þá voru á framleiðslugjöldunum, felld niður.
Þrátt fyrir þessar aðgerðir til styrktar fjárhag deildarinnar hefðu þær eins og jafnan áður náð skammt ef ekki hefði meira komið til.
Á grundvelli reglugerðar um Stofnlánadeild landbúnaðarins frá 1973 var tekin upp 25% verðtrygging á almenn útlán deildarinnar til bænda árið 1976. Árið 1978 var verðtryggingin hækkuð í 33% en á árinu 1979 var svo lánareglum breytt í 100% vísitölubindingu allra lána deildarinnar. Hér var um grundvallarbreytingu á lánakjörum til landbúnaðarins að ræða þar sem segja má að lánin séu greidd á kostnaðarverði. Hér voru áhrif hinnar mikilvægu breytingar á lögunum 1973 komin fram en skv. 6. gr. þeirra laga var stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins heimilt að fengnu samþykki landbúnaðarráðherra að setja deildinni lánareglur. Á grundvelli þessarar heimildar var m.a. opnuð leiðin til verðtryggingar á lánum til landbúnaðarins.
4. Lögum breytt 1978.
Í lok síðasta áratugar er enn svo komið að rekstur Stofnlánadeildar landbúnaðarins er kominn í erfiða stöðu. Um þetta segir í athugasemdum við frumvarp sem lagt var fram á þingi 1977–1978:
„Lánakjör útlána Stofnlánadeildar hafa verið þyngd á undanförnum árum, en ekki í samræmi við þann fjármagnskostnað sem deildin býr við. Er nú svo komið að vextir og verðbætur nema hærri upphæð en af útlánum og fer munurinn vaxandi ár frá ári. Á sama hátt hefur lánstíminn rýrt ráðstöfunarfé deildarinnar verulega.“
Til að treysta rekstur Stofnlánadeildar landbúnaðarins var tekið upp nýtt gjald, jöfnunargjald, sem í raun var tvöföldun gjaldsins sem lagt var á heildsöluverð búvöru.
Eins og að framan greinir átti Stofnlánadeild landbúnaðarins jafnan í erfiðleikum með að standa straum af greiðslum vegna þeirra lána sem hún þurfti að taka til að geta sinnt eðlilegri þörf landbúnaðarins fyrir lánsfé. Í þessum efnum réð verðtrygging tekinna lána mestu um þessa þróun mála, þess vegna jókst þessi vandi deildarinnar með aukinni verðbólgu í landinu.
Eins og áður segir var árið 1979 tekin sú örlagaríka ákvörðun að verðtryggja öll útlán til landbúnaðarins. Nú liggur fyrir hvaða áhrif þessar ákvarðanir hafa haft á rekstur Stofnlánadeildar landbúnaðarins þau átta ár sem lán til landbúnaðarins hafa verið veitt með fullri verðtryggingu, sjá töflur 1 og 2 (þús. kr.):
Tafla 1.
1982 1983 1984 1985
1. Tekjur skv. rekstrarreikningi .... 19.790 103.103 61.178 125.390
2. Gjaldfærsla verðlagsbreytinga .... 7.697 29.958 33.066 95.774
3. Reiknuð uppfærsla skulda ......... 198.593 420.558 144.412 530.031
4. Reiknuð uppfærsla útlána o.fl. ... 208.854 461.841 226.561 552.396
—— —— —— ——
5. Til ráðstöfunar frá rekstri ...... 17.226 91.778 12.095 198.799
.Framleiðendagjald ................ 11.500 30.100 24.500 67.900
Tafla 2.
Upphæðir á verðlagi sept. 1986, lánskjaravísitala 1486 stig; þús. kr.:
1982 1983 1984 1985
1. Tekjur skv. rekstrarreikningi .... 78.764 228.889 101.555 159.245
2. Gjaldfærsla verðlagsbreytinga .. 30.634 66.507 54.890 121.633
3. Reiknuð uppfærsla skulda ......... 790.400 933.639 239.724 673.139
4. Reiknuð uppfærsla útlána o.fl. ... 831.239 1.025.287 376.091 701.543
—— —— —— ——
5. Til ráðstöfunar frá rekstri ...... 68.559 203.748 20.078 252.474
.Framleiðendagjald ................ 45.770 66.882 40.670 86.233
Á síðustu árum hafa skuldir bænda við Stofnlánadeild landbúnaðarins farið stöðugt vaxandi, m.a. vegna áhrifa verðtryggingar á útlán, sjá töflu 3 (millj. kr.):
Tafla 3.
1980 1981 1982 1983 1984 1985
Heildarskuldir bænda ......... 143 231 404 782 1037 1701
Skuldir vinnslustöðva ........ 75 112 191 314 425 502
Jafnframt hefur greiðslubyrði aukist sem m.a. kemur fram í meiri vanskilum við deildina, sjá töflu 4 (millj. kr.):
Tafla 4.
1980 1981 1982 1983 1984 1985
Vanskil í árslok ............. 13,8 22,4 38,0 92,8 130,6 206,2
Hlutfall af árgjöldum ........ 36,8 37,8 43,1 56,2 60,8 60,1
Vegna markaðsaðstæðna og framleiðslustjórnar í landbúnaði er brýnt að leita leiða til að auka launahlut framleiðenda í söluverði búvara. Framleiðslugjaldið kemur til lækkunar á verði því sem framleiðendum er ætlað. Niðurfelling þess þýðir því auknar tekjur til framleiðenda.
Lögbundinn sparnaður, eins og hér er mælt fyrir um, ætti að auðvelda bændum að standa í skilum við Stofnlánadeildina og bæta til muna rekstrarstöðu deildarinnar og vega þannig að hluta upp tekjutap deildarinnar vegna niðurfellingar framleiðendagjaldsins.
Í töflu 5 er yfirlit yfir tekjur Stofnlánadeildar landbúnaðarins árin 1980–1985. Þar kemur m.a. fram hverjar hafa verið árlegar greiðslur framleiðenda til deildarinnar og eins og yfirlitið ber með sér er hér um að ræða umtalsverðar greiðslur af hendi landbúnaðarins, sjá töflu 5.
Tafla 5.
Tekjur Stofnlánadeildar landbúnaðarins 1980–85, sundurliðaðar eftir árum
og töluliðum í 4. gr. laga nr. 68/1973 og reglugerðar nr. 627/1982.
(Tölur í milljónum króna):
1980 1981 1982 1983 1984 1985
Framlag ríkissjóðs ........... 0,2 0,25 0,25 0,0 0,0 0,0
Framleiðendagjald ............ 4,9 7,10 11,50 30,1 24,5 67,9
Neytendagjald ................ 6,9 12,00 17,30 32,9 39,6 58,3
Lánajöfnunargjald ............ 6,7 12,00 17,30 32,9 39,6 58,3
Framlag ríkissjóðs ........... 7,0 10,00 15,40 23,1 12,1 30,6
Vaxtatekjur og gengismunur ... 69,8 111,00 247,50 513,7 291,9 666,4
Við samningu þessa frumvarps hefur verið tekið mið af lögum nr. 13/1976, um Stofnfjársjóð fiskiskipa, og þeirri reynslu sem fengist hefur af þeirri löggjöf varðandi hagsmuni sjávarútvegsins.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Samkvæmt frumvarpinu er svonefnt 1% framleiðendagjald fellt niður sem tekjustofn Stofnlánadeildar landbúnaðarins en sú niðurfelling lækkar einnig framlag ríkissjóðs skv. 5 tölul. 4. gr. l. 45/1971, sbr. l. nr. 41/1982, en samkvæmt þeim lið skal ríkissjóður árlega greiða deildinni framlag er nemi jafnhárri fjárhæð og nemur samanlögðum tekjum af framleiðendagjaldi og neytendagjaldi.
Aðrar breytingar samkvæmt greininni eru til samræmis við ofangreinda breytingu.
Um 2. gr.
19. gr.
Í samræmi við 2. tölul. 4. gr. stofnlánadeildarlaganna, sbr. breytingu með l. nr. 41/1982, er lagt til að stofnfjárgjald verði innheimt af sömu vörum og landleigu og gjaldskyld er samkvæmt lögum um búnaðarmálasjóðsgjald. Á þetta jafnt við bein ákvæði þeirra laga um gjaldskyldu og heimildarákvæði f-liðar 2. gr. l. nr. 40/1982. Gjaldstofninn er hér einnig sá sami vegna búnaðarmálasjóðsgjalds eða verð til framleiðanda og kemur þetta gjald til lækkunar á skilaverði til hans.
Gert er ráð fyrir að afurðastöðvar annist innheimtu á stofnfjárgjaldinu og sjái um skil á því til Stofnlánadeildar landbúnaðarins.
Þótt tekið sé fram að stofnfjárgjald skuli innheimt á sama hátt og búnaðarmálasjóðsgjald útilokar það ekki að settar séu reglur um örari skil söluaðila á gjaldinu en nú er varðandi búnaðarmálasjóðsgjald og er raunar eðlilegast að þetta gjald sé greitt innheimtuaðila á greiðsludegi afurðaverðsins og þá inn á reikning viðkomandi greiðanda hjá Stofnlánadeild sem næst greiðsludegi.
20. gr.
Lagt er til að hver búvöruframleiðandi eða leigusali hafi sérstakan stofnfjárreikning hjá Stofnlánadeildinni og á grundvelli reglna, sem settar eru skv. 19. gr., þarf að kveða á um skyldu þeirra sem standa eiga skil á gjaldi þessu til að upplýsa um hver hafi lagt inn hina seldu vöru eða tekið við leigunni.
Þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir tilteknum lögbundnum sparnaði er eðlilegt að umræddar innstæður beri vexti. Er lagt til að vaxtakjörin verði í samræmi við þau kjör sem hverju sinni eru á útlánum deildarinnar en þar sem þau kjör kunna að vera mismunandi eftir lánaflokkum verður að taka mið af meðaltali þeirra.
Á Stofnlánadeild hvílir sú skylda að ávaxta það fé sem hverju sinni er inni á stofnfjárreikningnum með eigin útlánum eða á annan hátt þannig að deildin verði ekki fyrir útgjöldum umfram tekjur vegna vaxtagreiðslna til eigenda stofnfjárreikninga.
Rétt er að vekja athygli á því að telji stjórn Stofnlánadeildar vaxtagreiðslur á innstæður á stofnfjárreikningum umfram greiðslu árgjalda deildinni óhagstæðar getur hún skv. 22. gr. ákveðið hraðari endurgreiðslur en þar er að lágmarki mælt fyrir um.
21. gr.
Samkvæmt meginhlutverki stofnfjárreikninganna kveður þessi grein á um að innstæður á þeim skuli notaðar til greiðslu gjaldfallinna afborgana, vaxta, verðbóta, dráttarvaxta og annars kostnaðar af lánum eigenda reikninganna hjá Stofnlánadeild. Nægi innstæða á stofnfjárreikningi ekki til greiðslu á skuld viðkomandi fer eftir almennum reglum og ákvæðum skuldabréfanna um innheimtu á þeim mismun með þeirri undantekningu að greiðslur, sem koma inn á stofnfjárreikning skuldara eftir gjalddaga, skulu þá þegar notaðar til greiðslu á hinni gjaldföllnu skuld.
Um 22. gr.
Þessi grein fjallar um endurgreiðslu á fé sem greitt hefur verið inn á stofnfjárreikninga og veitir jafnframt heimild til að veita undanþágur frá greiðslu stofnfjárgjalds.
Í 1. mgr. er fjallað um endurgreiðslur til þeirra sem eru skráðir skuldarar að lánum hjá Stofnlánadeild. Í þeim tilvikum er gert ráð fyrir að uppgjör vegna endurgreiðslna fari fram einu sinni á ári og þá á gjalddaga meiri hluta þeirra lána sem eigandi reikningsins skuldar og er þá miðað við upphæð lána en ekki fjölda þeirra.
Ekki er talin ástæða til að lögbinda nema einn árlegan gjalddaga á endurgreiðslum en hins vegar er eðlilegt að endurgreiðslur verði inntar af hendi eins ört og hagkvæmt getur talist og því er gert ráð fyrir að hægt sé að mæla fyrir um fleiri gjalddaga á endurgreiðslum.
Þar sem markmið frumvarpsins er að auðvelda búvöruframleiðendum að standa straum af greiðslum árgjalda af lánum þeirra hjá Stofnlánadeild er eðlilegt að heimilt sé að veita þeim, sem ekki skulda lán hjá deildinni eða eiga þegar næga innstæðu til greiðslu árgjalda viðkomandi árs á stofnfjárreikningi sínum, undanþágu frá greiðslu stofnfjárgjalds. Það kann hins vegar að fara eftir viðskiptaháttum í viðkomandi grein hvort notaðar eru heimildir um endurgreiðslu eða undanþágu frá greiðslu gjaldsins.
23. gr.
Þar sem innstæður á stofnfjárreikningum eru ætlaðar til greiðslu á tilteknum útgjöldum vegna lána hjá Stofnlánadeild, eins og kveðið er á um í 20. gr., er óhjákvæmilegt að undanþiggja innstæðuna löghaldi, fjárnámi eða lögtaki og enn fremur er óheimilt að veðsetja eða ávísa á hana.
Heimilt er hins vegar í samningi um sölu jarðar eða bústofns, sem hefur verið veðsettur vegna lána hjá Stofnlánadeild, að framselja innstæðu á stofnfjárreikningi enda yfirtaki þá kaupandi áhvílandi lán frá deildinni. Ef ekkert er um þetta samið er seljandi áfram eigandi að innstæðu á stofnfjárreikningi sínum og getur eftir atvikum fengið hana endurgreidda eða undanþágu frá greiðslu gjaldsins.
Um 3. gr.
Þarfnast ekki skýringa.
Um 4. gr.
Rétt þykir að Stofnlánadeildin fái nokkurn aðlögunartíma áður en lagabreyting þessi tekur gildi og einnig er eðlilegt vegna uppgjörs ársreikninga að miða þessa breytingu við áramót.