Ferill 87. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 87 . mál.


Sþ.

89. Tillaga til þingsályktunar



um rannsókn á tíðni og umfangi kynferðislegrar misnotkunar á börnum.

Flm.: Ingi B. Albertsson, Ásgeir Hannes Eiríksson, Guðmundur Ágústsson.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nú þegar starfshóp er kanni tíðni og umfang kynferðislegrar misnotkunar á börnum hér á landi og geri tillögur um samræmdar aðgerðir opinberra aðila til að sporna við slíku atferli. Jafnframt skal starfshópurinn gera tillögur um lagabreytingar á þessu sviði telji hann þörf á.
    Starfshópurinn skal skipaður sérfræðingum á þeim sviðum sem mál þessi varða og skal hafa aðgang að þeim gögnum og upplýsingum hjá opinberum aðilum sem honum eru nauðsynleg við könnunina.

Greinargerð.


    Eins og öllum er vafalaust í fersku minni var nú nýverið sýnd hér á landi norsk heimildarmynd um kynferðislega misnotkun á börnum. Er ekki ofmælt að öllum almenningi hafi verið stórlega brugðið við þær upplýsingar sem fram komu í heimildarmyndinni og viðbrögð almennt einkennst af hryllingi.
    Af umræddri heimildarmynd og umræðum, sem fylgt hafa í kjölfarið, hefur komið skýrt fram að ríkrar tilhneigingar gætir til að neita tilvist þessara brota hér á landi eins og raunar víða annars staðar. Má ef til vill segja að þessi sjónarmið séu eðlileg þar sem hér er um dulin afbrot að ræða sem eru af fjölskyldu- og tilfinningaástæðum sjálfsagt sjaldnast kærð. Því miður er hins vegar engin ástæða til að ætla að ástand þessara mála sé á annan veg hér á landi en annars staðar. Er því full ástæða til að fram fari heildstæð úttekt á þessum málum svo að móta megi heildarstefnu af hálfu opinberra aðila sem beinist ekki síst að fyrirbyggjandi aðgerðum, jafnframt því sem hugað verði að úrræðum til aðstoðar fórnarlömbum sem oftast geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér. Þá er ekki síður ástæða til að leita leiða til að aðstoða brotamennina sjálfa sem oft á tíðum má ætla að séu haldnir annarlegum hvötum sem þeir
ráða ekki við sjálfir án læknisaðstoðar í einhverju formi.
    Framangreindum markmiðum verður ekki náð án þess að opinberir aðilar og almenningur viðurkenni vandann í reynd og nái að skilgreina hann. Markviss rannsókn af því tagi sem hér er lögð til færir okkur nær því marki og gerir okkur betur kleift að veita börnum okkar þá vernd sem þau þarfnast og eiga rétt á af hálfu samfélagsins.