Ferill 92. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 92 . mál.


Sþ.

95. Fyrirspurn



til utanríkisráðherra um sölu á landbúnaðarafurðum.

Frá Guðna Ágústssyni.



1.     Hversu mikið af landbúnaðarafurðum seldu Íslendingar varnarliðinu í Keflavík, sundurgreint eftir tegundum, á árunum 1985, 1986 og 1987?
2.     Hversu mikið af kjötvörum fékk varnarliðið að flytja til Íslands á árunum 1985, 1986 og 1987, sundurgreint eftir tegundum? Hversu mikið var flutt inn af öðrum landbúnaðarafurðum, sundurgreint eftir tegundum, á sama árabili?