Ferill 101. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 101 . mál.
Sþ.
104. Tillaga til þingsályktunar
um launakostnað við mötuneyti framhaldsskólanna.
Flm.: Danfríður Skarphéðinsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir,
Margrét Frímannsdóttir, Ingi Björn Albertsson.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera nauðsynlegar ráðstafanir í því skyni að launakostnaður starfsfólks í mötuneytum framhaldsskólanna verði greiddur úr ríkissjóði.
Greinargerð.
Með stofnun nýrra framhaldsskóla um allt land á undanförnum árum hafa aðstæður til náms batnað til muna. Enn vantar þó nokkuð á að möguleikar fólks til náms eftir búsetu og efnahag séu jafnir og er almennur aðbúnaður nemenda í skólum afar mismunandi.
Hollir lifnaðarhættir eru ein af undirstöðum daglegrar vellíðunar, góðrar heilsu og þar með árangurs í starfi. Ein af frumþörfum hvers og eins er að nærast reglulega. Það er ekki síður mikilvægt fyrir nemendur en annað vinnandi fólk að geta neytt matar á vinnustað sínum og þeir sem sækja skóla langt að eiga ekki annarra kosta völ hvernig svo sem aðstæður kunna að vera í viðkomandi skólum.
Fram til þessa hefur sá háttur verið hafður á þar sem mötuneyti eru fyrir hendi að nemendur sjálfir hafa borið launakostnað vegna þeirra. Á þessu skólaári er áætlað að launakostnaðurinn einn verði 30–40%. Miðað við verðlag og laun nú má ætla að greiða þurfi a.m.k. 110 þús. kr. með hverjum nemanda í fullu fæði þetta skólaárið.
Allir hljóta að sjá hversu þungur baggi þetta er á þeim heimilum sem senda þurfa börn sín í heimavist. Víst er að fyrir marga er hann svo þungur að margir unglingar eiga þess vart kost að afla sér
framhaldsmenntunar. Hér er því um mikið hagsmunamál nemenda og foreldra að ræða, ekki síst þeirra sem búa í dreifbýli. Síbreytilegar og æ flóknari aðstæður í þjóðfélagi okkar krefjast þess að fólk verður í sífellt ríkara mæli að auka við menntun sína að grunnskólaprófi loknu. Það er því ein af skyldum samfélagsins að gera fólki slíkt kleift án tillits til búsetu og efnahags. Þessi launakostnaður er stór hluti af tekjum hvers heimilis en fyrir heildina hlýtur hann að teljast léttvægur.