Ferill 115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 115 . mál.


Nd.

121. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 32 12. maí 1978, um hlutafélög.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988.)



1. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 1. gr. laganna:
a.     3. mgr. orðist svo:
.      Í hlutafélagi skal vera hlutafé sem skipt er í tvo eða fleiri hluti. Hlutafélagið skal minnst vera 400.000 kr. Þessari lágmarksfjárhæð skal ráðherra breyta í hátt við breytingar á lánskjaravísitölu. Breyting á fjárhæðinni skal taka gildi við upphaf árs enda hafi verið tilkynnt um hana eigi síðar en 15. desember árið áður. Fjárhæðinni skal þó ekki breytt nema efni sé orðið til breytingar sem nemur að minnsta kosti tuttugu af hundraði frá því að breyting var síðast gerð. Þá skal lágmarksfjárhæðin jafnan standa á heilu hundraði þúsunda króna. Nú uppfyllir hlutafélag kröfu um lágmarkshlutafé þegar það er stofnað og er því þá ekki skylt að hækka hlutafé sitt þótt endurskoðun lágmarksfjárhæðar samkvæmt þessari málsgrein leiði til þess að hlutafé félagsins nái ekki lengur þeirri lágmarksfjárhæð hlutafjár sem þarf til þess að hlutafélag verði stofnað.
b.     1. málsl. 4. mgr. orðist svo: Hlutafélögum einum er rétt og skylt að hafa orðið hlutafélag í heiti sínu eða skammstöfunina hf. (h/f, h.f.).

2. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 3. gr. laganna:
a.     Í stað orðsins „fimm“ í 1. málsl. 2. mgr. komi: tveir.
b.    3. mgr. orðist svo:
.      Stofnendur geta verið einstaklingar, íslenska ríkið og stofnanir þess, sveitarfélög og stofnanir þeirra, skráð hlutafélög, skráð samvinnufélög, önnur skráð félög með takmarkaðri ábyrgð, skráð sameignarfélög, skráð samlagsfélög og sjálfseignarstofnanir sem eru undir opinberu eftirliti.
c.    5. mgr. orðist svo:
.      Sá sem undirritar stofnsamning og önnur stofnskjöl fyrir hönd lögaðila skal fullnægja þeim skilyrðum er segir um einstaklinga. Hann ber auk umbjóðanda síns ábyrgð svo sem sjálfur væri hann stofnandi nema á greiðslu þeirra hluta sem umbjóðandi hans hefur skrifað sig fyrir.

3. gr.

    2. málsl. 3. mgr. 5. gr. laganna orðist svo: Enn fremur skal fylgja stofnsamningi upphafsefnahagsreikningur félagsins með nauðsynlegum gögnum um að hagur fyrirtækis þess, sem félagið yfirtekur, hafi ekki rýrnað frá þeim tíma sem yfirtakan skal miðuð við og að stofnun hlutafélagsins. Skýrsla löggilts endurskoðanda um gögn þau, sem um ræðir í þessari málsgrein, skal lögð fram á stofnfundi.

4. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 6. gr. laganna:
a.    2. tl. 2. mgr. orðist svo: Heimilisfang félagsins.
b.    10. tl. 2. mgr. falli niður og breytist tölusetning eftirkomandi liða til samræmis.
c.    Í stað orðsins „ágóða“ í 3. mgr. komi: hagnaði.

5. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 10. gr. laganna orðist svo: Það sem þegar hefur verið greitt af hlutafé skal þá þegar endurgreiða eftir að frá hefur verið dreginn kostnaður við stofnun enda hafi verið gerður um það fyrirvari í stofnsamningi.

6. gr.

    2. mgr. 11. gr. laganna orðist svo:
    Eigi má skrá félag nema heildarhlutafé það, sem áskrift hefur fengist fyrir,
sé í samræmi við það er greinir um hlutafé í samþykktum og þar af skal minnst helmingur vera greiddur. Sama gildir um það sem greiða á umfram nafnverð. Aldrei skal lægri fjárhæð en sú sem ákveðin er sem lágmarksfjárhæð skv. 3. mgr. 1. gr. vera greidd við skráningu.

7. gr.

    1. mgr. 14. gr. laganna orðist svo:
    Greiði hluthafi ekki tilskilið hlutafé á gjalddaga skal hann greiða vexti af skuldinni frá þeim degi er séu jafnháir og vextir af innstæðum á almennum sparisjóðsbókum eins og þeir eru hæstir þar sem félagið á heimili enda sé ekki annað ákveðið í samþykktum félagsins.

8. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 17. gr. laganna:
a.    Í stað orðsins „fimm“ í 1. mgr. komi: tveir.
b.    2. málsl. 2. mgr. orðist svo: Í samþykktum má þó ákveða að hlutum skuli skipt í sérstaka flokka, m..a. flokka án atkvæðisréttar.

9. gr.

    2. málsl. 18. gr. laganna orðist svo: Í samþykktir má þó aðeins setja ákvæði um viðskiptahömlur að því er hlutabréf varðar sem séu í samræmi við ákvæði 19. og 20. gr. eða sérstakra laga.

10. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 19. gr. laganna:
a.    Aftan við c-lið í 1. mgr. bætist nýr málsliður er orðist svo: Ef fyrir liggur tilboð frá þriðja aðila sem forkaupsréttarhafi gengur inn í skulu þó ákvæði þess tilboðs um greiðsluskilmála gilda.
b.    Í stað orðanna „margra hluta“ í 1. málsl. 2. mgr. komi: margra hluta eins eða fleiri hluthafa.
c.    Síðasti málsl. 4. mgr. falli niður.

11. gr.


    Við 20. gr. laganna bætist ný málsgrein er verði 3. mgr. og orðist svo:
    Synji stjórn félags um sölu eða annað framsal á hlutum getur hluthafinn
krafist þess að félagið leysi til sín hlutina sem um ræðir. Náist ekki samkomulag um verð skal það ákveðið innan þriggja mánaða af matsmönnum sem dómkvaddir skulu á heimilisvarnarþingi félagsins. Félagið ber kostnað af matinu. Nú vill annar hvor aðilja ekki hlíta ákvörðun hinna dómkvöddu matsmanna og getur hann þá borið ákvörðunina undir dómstóla en mál skal höfðað innan þriggja mánaða frá því að hinir dómkvöddu matsmenn luku mati sínu.

12. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 21. gr. laganna:
a.    1. mgr. orðist svo:
.      Hlutabréf skulu gefin út til nafngreinds aðila.
b.    Í stað orðsins „Nafnbréf“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: Hlutabréf.
c.    3. tl. 3. mgr. falli niður og 4. tl. greinarinnar verði 3. tl.
d.    Við 1. tl. 4. mgr. bætist nýr málsliður sem orðist svo:
Séu hlutabréf án atkvæðisréttar skal auðkenna slíkt greinilega í nafni þeirra eða á annan áberandi hátt.
e.    Við bætist ný málsgrein er verði 6. mgr. og orðist svo:
.      Hlutabréf getur tekið til tveggja eða fleiri hluta í sama flokki. Á slíku hlutabréfi skal tilgreina númer þess, svo og númer hlutanna sem það tekur til og nafnverð þeirra. Ákvæði þessarar greinar gilda að öðru leyti um slík hlutabréf. Hluthafi á þó jafnan rétt til að fá slíku hlutabréfi skipt fyrir hlutabréf sem taka til einstakra hluta.

13. gr.

    2. málsl. 23. gr laganna falli niður.

14. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 24. gr. laganna:
a.    2. mgr. orðist svo:
.      Í hlutaskrá skulu hlutir eða hlutabréf skráð í númeraröð og skal fyrir sérhvern hlut eða hlutabréf tekið fram um nafn eiganda, heimilisfang og nafnnúmer eða skráningarnúmer.
b.    Við bætist tvær nýjar málsgreinar er verði 3. og 4. mgr. og orðist svo:
.      Taki hlutabréf til tveggja eða fleiri hluta skal hlutaskráin jafnframt geyma upplýsingar um númer slíks hlutabréfs, númer hlutanna sem hlutabréfið tekur til og nafnverð þeirra.
.      Í hlutaskrá skal enn fremur vera að finna skrá um hluthafa í stafrófsröð og sé tekin fram hlutafjáreign hvers hluthafa.
c.    Úr 1. málsl. 3. mgr., sem verður 5. mgr., falli niður orðin „sem skráður er á nafn“.

15. gr.


a.    Úr 25. gr. laganna falli niður orðin „sem hljóðar á nafn“.
b.    Við 25. gr. laganna bætist: Nú er arður sendur hluthöfum eða greiddur út án framvísunar arðmiða eða hlutabréfa og telst félagið þá þrátt fyrir næsta málslið hér að framan hafa lokið arðgreiðslu ef það greiðir þeim sem á útborgunardegi er skráður eigandi hlutabréfa í hlutaskrá eða hefur á þeim degi tilkynnt og fært sönnur á eign sína á hlutnum.

16. gr.

    Í stað orðanna „35. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr. 27. gr. laganna komi: 35. og 37. gr.

17. gr.

    Í stað 2. málsl. 1. mgr. 28. gr. laganna komi tveir nýir málsliðir sem orðist svo: Í hlutafélögum, sem ekki leggja hömlur á viðskipti með hlutabréf milli íslenskra aðila, geta hluthafar framselt öðrum íslenskum aðilum áskriftarrétt sinn að einhverju leyti eða í heild en þó einungis að heilum hlutum. Nú notar eða framselur, sbr. 2. málsl., einhver hinna eldri hluthafa ekki áskriftarrétt sinn að fullu og eiga þá aðrir eldri hluthafar aukinn rétt til áskriftar sem ekki verður framseldur öðrum.

18. gr.

    Tveir síðustu málsl. 2. mgr. 29. gr. laganna falli niður.

19. gr.

    7. tl. 1. mgr. 30. gr. laganna falli niður.

20. gr.

    Í 32. gr. laganna komi ný málsgrein sem verði 2. mgr. og orðist svo:
    Þeim hluthöfum eða öðrum, sem hafa forgangsrétt til áskriftar, skal strax eftir ákvörðun um hlutafjárhækkun send tilkynning um hana eftir sömu reglum og gilda um boðun til hluthafafundar, ásamt upplýsingum um nafnverð og útboðsgengi hluta þeirra er hluthafi á rétt til að kaupa, um frest til áskriftar og um greiðslukjör.

21. gr.

    1. málsl. 2. mgr. 34. gr. laganna orðist svo: Hafi áskrift fengist fyrir hinu ákveðna lágmarki hlutafjárauka á réttum tíma og minnst fjórðungur hans verið greiddur, að viðbættum minnst fjórðungi þess sem greiða á umfram nafnverð, skal tilkynna hlutafélagaskrá hlutafjárupphæð þá sem áskrift hefur fengist fyrir, stjórnin hefur samþykkt og ekki ógilt samkvæmt ákvæðum 16. gr. og þá fjárhæð sem þegar hefur verið greidd fyrir hlutina.

22. gr.

    1. málsl. 2. mgr. 35. gr. laganna orðist svo: Í samþykktum skal þá taka fram um hámark þeirrar fjárhæðar sem stjórn er heimilt að hækka hlutaféð, um frest til notkunar þessarar heimildar, sem þó má eigi fara fram úr fimm árum, og um þau atriði sem um getur í 2. og 3. tl. 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 30. gr.

23. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 37. gr. laganna:
a.    Í stað orðanna „verðhækkunar eigna“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: færslna í endurmatssjóð.
b.    Í stað 2. málsl. 2. mgr. komi tveir málsl. sem orðist svo: Þó getur hluthafafundur veitt stjórn félags heimild til þess að ákveða útgáfu jöfnunarhlutabréfa á yfirstandandi reikningsári um fjárhæð sem nemur allt að tilteknu hámarki. Ákvæði 2. tl. 1. mgr., 2. mgr. og 3. mgr. 30. gr. gilda um ákvörðunina.
c.    Inn komi ný mgr. sem verði 3. mgr. og orðist svo:
.      Um breytingar á samþykktum vegna útgáfu jöfnunarhlutabréfa gilda ákvæði 1. mgr. 36. gr.

24. gr.

    Í stað orðsins „greiðslu“ í 4. tl. 2. mgr. 42. gr. laganna komi: að leggja.

25. gr.

    Í stað orðanna „birta þrisvar“ í 1. mgr. 44. gr. laganna komi: birta tvisvar, og í stað orðanna „þriggja mánaða“ í sömu málsgrein komi: tveggja mánaða.

26. gr.

    1. mgr. 46. gr. laganna orðist svo:
    Hlutafélag má aldrei sjálft eiga meira en 10% af eigin hlutafé lengur en þrjá mánuði. Eignist félagið meira af hlutafénu, svo sem með kaupum eða fyrir annað framsal, skal það hafa selt hlutabréf þannig að lögmæltu marki sé náð innan þriggja mánaða.

27. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 47. gr. laganna:
a.    1. mgr. orðist svo:
.      Í stjórn hlutafélags skulu eiga sæti fæst þrír menn. Ef hluthafar eru fjórir eða færri nægir þó að stjórnina skipi einn eða tveir menn. Ef stjórn félags er skipuð einum eða tveim mönnum skal valinn að minnsta kosti einn varamaður.
b.    Í stað orðanna „minnst 1 / 4 hlutafjárins“ í 4. mgr. komi: minnst 1 / 5 hlutafjárins.

28. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 49. gr. laganna:
a.    Fyrri málsl. 1. mgr. orðist svo: Í félagi, þar sem hlutaféð er að minnsta kosti fimmtánföld sú lágmarksfjárhæð sem þarf til að hlutafélag verði stofnað, sbr. 1. gr., skal stjórn ráða einn eða fleiri framkvæmdastjóra.
b.    2. mgr. orðist svo:
.      Í félagi, sem um ræðir í 1. málsl. 1. mgr., skal meirihluti stjórnar vera menn sem ekki eru framkvæmdastjórar í félaginu.

29. gr.

    1. mgr. 54. gr. laganna orðist svo:
    Félagsstjórn skal kjósa sér formann nema ákveðið sé í samþykktum að hluthafafundur kjósi formann sérstaklega. Ef atkvæði eru jöfn ræður hlutkesti. Ekki má kjósa framkvæmdastjóra félags sem formann í félögum sem um ræðir í 1. málsl. 1. mgr. 49. gr.

30. gr.

    2. málsl. 1. mgr. 65. gr. laganna orðist svo:
    Í félagssamþykktum má ákveða að tilteknir hlutir skuli hafa aukið atkvæðagildi og hlutir megi jafnvel vera án atkvæðisréttar.

31. gr.

    Í stað orðanna „efnahagsreiknings og rekstrarreiknings“ í a-lið 2. mgr. 67. gr. laganna komi: ársreiknings.

32. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 71. gr. laganna:
a.    3. málsl. 2. mgr. falli niður.
b.    Í stað orðsins „ársreikningur“ í 4. mgr. komi: ársreikningur, ársskýrsla stjórnar.

33. gr.

    1. málsl. 72. gr. laganna orðist svo: Mál, sem ekki hafa verið greind í dagskrá, er ekki unnt að taka til úrlausnar á hluthafafundi nema með samþykki allra atkvæðisbærra fundarmanna sem samtals fara með minnst 3 / 4 hluta atkvæða í félaginu.

34. gr.

    1. málsl. fyrri mgr. 76. gr. laganna orðist svo: Ákvörðun um breytingu félagssamþykkta í öðrum tilvikum en þeim sem nefnd eru í 16., 36., 37. og 45. gr. skal tekin á hluthafafundi.

35. gr.

    Í stað tveggja fyrstu málsl. 1. mgr. 80. gr. laganna komi nýr málsl. sem orðist svo: Á aðalfundi skal kjósa einn eða fleiri endurskoðendur í samræmi við samþykktir félagsins.

36. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 82. gr. laganna.
a.    1. málsl. 1. mgr. orðist svo: Í hlutafélögum, þar sem hlutafé er að minnsta kosti fimmtánfalt hærra en lágmark þeirrar fjárhæðar sem þarf til að stofna hlutafélag, sbr. 1. gr., eða hafa fleiri en 100 starfsmenn (ársmenn) eða þar sem skuldir og bundið eigið fé nemur að minnsta kosti tvö hundruð sinnum hærri fjárhæð en þeirri sem þarf til að stofna hlutafélag, skal að minnsta kosti einn endurskoðenda, sem kosinn er á aðalfundi, vera löggiltur.
b.    2. mgr. orðist svo:
.      Í félögum, þar sem engar hömlur eru lagðar á viðskipti með hlutabréf milli íslenskra aðila, skal að minnsta kosti einn endurskoðenda, sem kosinn er á aðalfundi, vera löggiltur.

37. gr.

    Inn í 3. mgr. 88. gr. laganna komi nýr málsliður, sem verði 2. málsliður, svohljóðandi: Ef ársskýrsla stjórnar hefur ekki að geyma þær upplýsingar, sem ber að veita, eða er ekki í samræmi við ársreikning skulu endurskoðendur vekja á því athygli í skýrslu sinni.

38. gr.

    Yfirskrift XII. kafla orðist svo:
    Ársreikningur og ársskýrsla stjórnar.

39.gr.


    Eftirtaldar breytingar verði á 93. gr. laganna:
a.    2. málsl. 1. mgr. orðist svo: Ársreikningur skal hafa að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning og skýringar.
b.    Í stað orðsins „ársskýrslu“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: ársskýrslu stjórnar, sbr. 103. gr.
c.    Í stað orðanna „einum og hálfum mánuði“ í 3. mgr. komi: einum mánuði.

40.gr.


    2. mgr. 95. gr. laganna orðist svo:
    Í ársreikningi skulu vera skýringar á einstökum liðum í samræmi við ákvæði þessa kafla, sbr. 102. gr.

41. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 97. gr. laganna:
a.    Í stað 2. málsl. 4. mgr. komi þrír nýir málsliðir sem orðist svo: Þá fjárhæð, sem hækkuninni nemur, skal setja í endurmatssjóð. Í endurmatssjóð skal og gerð mótbókun við gjaldfærslu vegna reiknaðra áhrifa verðlagsbreytinga á peningalegar eignir og skuldir.
.     Endurmatssjóði má aðeins ráðstafa til:
. 1.    nauðsynlegrar niðurfærslu á öðrum fastafjármunum,
. 2.    að mæta tekjufærslu vegna reiknaðra áhrifa verðlagsbreytinga á peningalegar eignir og skuldir,
. 3.    hækkunar á hlutafé,
. 4.    að verðbæta varasjóð, sbr. 108. gr., í samræmi við verðlagsbreytingar en þó aðeins að því marki sem svarar útgefnum jöfnunarhlutabréfum,
. 5.    að verðbæta frjálst eigið fé í samræmi við verðlagsbreytingar,
.     6.    að verðbæta þau tillög í skattalega sjóði og aðrar hliðstæðar ráðstafanir, sbr. 6. tl. 4. mgr. 101. gr., sem skylt er að verðbæta.
b.    Í stað orðanna „liðum 1 eða 3“ í 5. mgr. komi: lið 1.
c.    Inn komi ný lokamálsgrein sem verði 7. mgr. og hljóði svo:
.      Ráðstöfun endurmatssjóðs í því skyni, sem um ræðir 2., 4., 5. og 6. 4. málsl. 4. mgr. þessarar greinar, er heimil frá upphafi árs 1979.

42. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 101. gr. laganna:
a.    1. tl. 3. mgr. orðist svo: Tekjur af aðalstarfsemi.
b.    Í 3. mgr. komi inn nýr tl., sem verði 5. tl., og breytist tölusetning eftirkomandi liða til samræmis. Hinn nýi liður orðist svo: Tekjufærslu vegna reiknaðra áhrifa verðlagsbreytinga á peningalegar eignir og skuldir.
c.    6. tl. 3. mgr., sem verður 7. tl., orðist svo: Óreglulegar tekjur.
d.    Í 4. mgr. komi inn nýr tl., sem verði 2. tl., og breytist tölusetning eftirkomandi liða til samræmis. Hinn nýi liður orðist svo: Gjaldfærslu vegna reiknaðra áhrifa verðlagsbreytinga á peningalegar eignir og skuldir.
e.    4. tl. 4. mgr., sem verður 5. tl., orðist svo: Óregluleg gjöld.
f.    5. mgr. orðist svo:
.      Óreglulegar tekjur og gjöld samkvæmt 7. lið 3. mgr. og 5. lið 4. mgr., svo og þær ráðstafanir sem nefndar eru í 6. lið 4. mgr. þessarar greinar, skal sundurliða eftir tegundum.

43. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 102. gr. laganna:
a.    1. málsl. orðist svo: Í skýringum í ársreikningi skal gefa upplýsingar um eftirfarandi atriði með vísun til viðeigandi liða í efnahagsreikningi og rekstrarreikningi komi þau ekki þar greinilega fram:
b.    Inn komi nýr tl., er verði 2. tl., og breytist tölusetning eftirkomandi liða til samræmis. Hinn nýi tl. orðist svo: Hafi við gerð efnahagsreiknings og rekstrarreiknings verið tekið tillit til áhrifa verðlagsbreytinga á peningalegar eignir og skuldir skal gera grein fyrir þeirri aðferð sem beitt hefur verið.

44. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 103. gr. laganna:
a.    Í stað orðsins „ársskýrslu“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: ársskýrslu stjórnar sem lögð skal fram á aðalfundi.
b.    Í lok 2. mgr. komi nýr málsl. sem orðist svo: Í ársskýrslu skal upplýst um fjölda hluthafa í lok reikningsárs. Þá skal í ársskýrslu upplýst um hundraðshluta hlutafjár þeirra hluthafa sem eiga að minnsta kosti tíu hundruðustu hlutafjár félagsins í lok reikningsárs. Ef atkvæðagildi hluta er hlutfallslega mismikið miðað við fjárhæð hluta skal ennfremur gerð grein fyrir atkvæðahlutdeild þeirra hluthafa sem ráða yfir að minnsta kosti tíu hundruðustu allra atkvæða. Við útreikning í þessu skyni telst samstæða hlutafélaga vera einn aðili.

45. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 105. gr. laganna:
a.    1. málsl. orðist svo: Eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings hlutafélags, sem leggur engar hömlur á heimild hluthafa til meðferðar á hlutabréfum sínum, þó eigi síðar en tíu mánuðum eftir lok reikningsárs, skal staðfest endurrit hans ásamt ársskýrslu stjórnar og endurskoðunarskýrslu hafa borist til hlutafélagaskrár.
b.    Inn komi nýr málsl., er verði 2. málsl., svohljóðandi: Hlutafélagaskrá er heimilt að kalla eftir ársreikningum annarra hlutafélaga.

46. gr.

    Fyrri málsl. 1. mgr. 107. gr. laganna orðist svo: Einungis er heimilt að úthluta sem arði hagnaði samkvæmt samþykktum ársreikningi síðasta reikningsárs, yfirfærðum hagnaði frá fyrri árum og frjálsum sjóðum eftir að dregið hefur verið frá tap, sem ekki hefur verið jafnað, og það fé sem samkvæmt lögum eða félagssamþykktum skal lagt í varasjóð eða til annarra þarfa.

47. gr.

    Í stað orðsins „árságóða“ í 1. málsl. 1. mgr. 108. gr. laganna komi: hagnaðar.

48. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 109. gr. laganna:
a.    Í stað orðanna „um skiptingu eða aðra ráðstöfun ágóðans“ í 1. mgr. komi: um það efni.
b.    2. mgr. orðist svo:
.      Hluthafar, sem eiga samtals minnst 1 / 10 hluta hlutafjárins, eiga á aðalfundi kröfu til þess, sé krafan tilkynnt félagsstjórn samkvæmt ákvæðum 69. gr., að aðalfundur taki ákvörðun um að úthluta sem arði fjárhæð sem nemur allt að fjórðungi þess sem eftir stendur af árshagnaði þegar tap fyrri ára hefur verið jafnað og það dregið frá sem samkvæmt lögum eða félagssamþykktum skal lagt í varasjóð eða sem af öðrum ástæðum er ekki unnt að úthluta sem arði. Þó er ekki unnt að krefjast þess að meiru sé úthlutað en sem nemur tveim hundraðshlutum af eigin fé félagsins.
c.    3. mgr. orðist svo:
.      Hluthafafundur, sem tekur ákvörðun um úthlutun arðs, skal jafnframt ákveða hver vera skuli gjalddagi hans en gjalddagi skal þó ekki vera síðar en sex mánuðum eftir að ákvörðun um úthlutun hans hefur verið tekin.

49. gr.

    Í stað orðanna „jafnháir vöxtum á almennum sparisjóðsbókum“ í 1. mgr. 110. gr. laganna komi orðin „jafnháir hæstu vöxtum á almennum sparisjóðsbókum, sbr. 1. mgr. 14. gr.“

50. gr.

    113. gr. laganna orðist svo:
    Félagsstjórn er skylt að afhenda bú félags til gjaldþrotaskipta samkvæmt ákvæðum 14. gr. gjaldþrotalaga.
    Standi eignir eftir við gjaldþrotaskipti að greiddum kröfum lánardrottna skal skiptaráðandi skipta þeim milli hluthafa í hlutfalli við hlutafjáreign þeirra nema samþykktir félags kveði á um aðra skipan. Lögmætur hluthafafundur getur þó ákveðið að halda starfsemi félagsins áfram að fullnægðum lögmæltum skilyrðum til þess.

51. gr.

    114. gr. laganna orðist svo:
    Hluthafar, sem ráða yfir minnst 1 / 5 hluta hlutafjár, geta krafist dóms fyrir því að félagi skuli slitið á þeim grundvelli að hluthafar hafi af ásetningi misnotað aðstöðu sína í félaginu eða tekið þátt í brotum á lögum þessum eða samþykktum félagsins.
    Sé þess krafist fyrir dómi af hálfu félagsins má í dómi ákveða að í stað félagsslita geti félagið innan frests og fyrir verð, sem ákveðið er í dóminum, leyst til sín hlutabréf þeirra hluthafa sem félagsslita hafa krafist samkvæmt 1. mgr.

52. gr.

    115. gr. laganna orðist svo:
    Skiptaráðandi skal taka bú hlutafélags til skipta samkvæmt kröfu ráðherra:
1.    Þegar félagi skal slitið samkvæmt ákvæðum í lögum en hluthafafundur ákveður ekki félagsslit.
2.    Ef hluthafar verða færri en tveir enda sé eigi úr bætt innan þriggja mánaða.
3.    Ef félagið tilkynnir ekki hlutafélagaskrá um stjórn eða stjórnarmenn, sem fullnægja lögákveðnum skilyrðum, innan þriggja ára frá lokum lögmælts frests til þess eða hefur ekki framkvæmdastjóra sé þess krafist í lögum.
4.    Þegar endurskoðaðir og samþykktir ársreikningar þeirra hlutafélaga, sem skila skulu ársreikningum, hafa ekki verið sendir hlutafélagaskrá fyrir þrjú síðustu reikningsár.
5.    Ef ráðherra neitar um eða fellir úr gildi löggildingu skilanefndar samkvæmt 4.–6. mgr. 118. gr.
    Skiptaráðandi skal taka bú hlutafélags til skipta samkvæmt kröfu hluthafa:
1.    Þegar félagi skal slitið samkvæmt ákvæðum í samþykktum þess en hluthafafundur ákveður ekki félagsslit.
2.    Hafi krafa samkvæmt 1. mgr. 114. gr. verið tekin til greina með dómi.
    Skiptaráðandi skal taka bú hlutafélags til skipta samkvæmt kröfu félagsstjórnar hafi hluthafar, er ráða yfir minnst 2 / 3 hlutum heildarhlutafjár félagsins, samþykkt að slíta félaginu á þennan hátt eða skilyrðum 2. mgr. 117. gr. fyrir skipun skilanefndar er ekki fullnægt.

53. gr.

    116. gr. laganna orðist svo:
    Er skiptaráðanda hefur borist krafa um skipti samkvæmt 1. eða 2. mgr. 115. gr. skulu um meðferð hennar gilda reglur 2.–5. tl. 18. gr. gjaldþrotalaga.
    Skiptaráðandi skal kveða upp úrskurð um hvort orðið skuli við kröfu um að bú hlutafélags verði tekið til skipta. Sé krafan tekin til greina skal skiptaráðandi auglýsa skiptin að hætti 3. tl. 19. gr. gjaldþrotalaga þar sem greint er á hvern hátt búið sé komið til skipta og skal kröfulýsingarfrestur vera sá sami og þar greinir, svo og réttaráhrif innköllunarinnar.
    Um búsmeðferð að öðru leyti skulu gilda ákvæði 20. og 21. gr., IV.–VII. og IX.–XIX. kafla gjaldþrotalaga, eftir því sem við á, og 2. mgr. 113. gr. laga þessara.
    Komi fram að loknum kröfulýsingarfresti að eignir félagsins muni ekki hrökkva fyrir skuldum þess getur skiptaráðandi með úrskurði kveðið svo á samkvæmt kröfu lánardrottins félagsins að með búið skuli farið sem þrotabú og gilda þá almennar reglur gjaldþrotalaga um búsmeðferð upp frá því.

54. gr.

    117. gr. laganna orðist svo:
    Hafi hluthafar, er ráða yfir minnst 2 / 3 hlutum heildarhlutafjár félags, tekið um það ákvörðun á hluthafafundi að félaginu skuli slitið, og æskja þess ekki að skipti fari að hætti 3. mgr. 115. gr., skal félagsstjórn þegar láta gera efnahags- og rekstrarreikning fyrir félagið. Reikningi þessum skal fylgja álitsgerð löggilts endurskoðanda um hvort eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum þess.
    Innan mánaðar frá því að hluthafafundur hefur tekið ákvörðun um félagsslit samkvæmt 1. mgr. skal haldinn nýr hluthafafundur þar sem reikningar samkvæmt 1. mgr. skulu lagðir fram. Komi fram að eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum skal á fundinum kosin skilanefnd. Komi fram að eignir félagsins hrökkvi ekki svo víst sé fyrir skuldum þess skal félagsstjórn óska eftir skiptum á búi félagsins samkvæmt 3. mgr. 115. gr.

55. gr.

    118. gr. laganna orðist svo:
    Í skilanefnd skulu kosnir hlutfallskosningu hið minnsta tveir, en hið mesta fimm menn. Hluthafahópi, er ræður yfir minnst 1 / 3 hluta heildarhlutafjár, er rétt að ráða vali eins skilanefndarmanns.
    Hið minnsta einn skilanefndarmaður skal vera héraðsdóms- eða hæstaréttarlögmaður eða löggiltur endurskoðandi.
    Þegar er kosin hefur verið skilanefnd skal hún tilkynna hlutafélagaskrá um ákvörðun um slit félagsins og kosningu sína og óska eftir löggildingu ráðherra á starfa sínum. Er löggilding hefur fengist tekur skilanefnd við réttindum og skyldum félagsstjórnar og framkvæmdastjóra.
    Ráðherra er rétt að synja um löggildingu skilanefndar ef fyrirliggjandi gögn bera ekki með sér að réttilega hafi verið staðið að ákvörðun um félagsslit eða kjöri skilanefndar eða vafasamt þykir að eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum þess.
    Óski maður, sem hlotið hefur löggildingu til starfa í skilanefnd, lausnar frá starfi sínu eða andist skilanefndarmaður áður en hún hefur lokið störfum skal skilanefnd tafarlaust tilkynna það ráðherra og boða innan eins mánaðar til hluthafafundar til að kjósa nýjan mann í hans stað. Sé ekki leitað löggildingar nýs skilanefndarmanns án ástæðulausrar tafar er ráðherra heimilt að fella löggildingu skilanefndar úr gildi.
    Telji ráðherra að ástæðulaus dráttur hafi orðið á starfi skilanefndar eða að hún hafi á annan hátt brotið skyldur sínar skal hann veita henni áminningu og frest til úrbóta. Sé málum ekki komið í rétt horf innan slíks frests er ráðherra heimilt að fella löggildingu skilanefndar úr gildi.
    Skilanefndarmenn ábyrgjast einn fyrir alla og allir fyrir einn hluthöfum og lánardrottnum félagsins allt tjón er þeir kunna að baka þeim með störfum sínum af ásetningi eða stórfelldu gáleysi.

56. gr.

    119. gr. laganna orðist svo:
    Þegar er skilanefnd hefur verið löggilt skal hún láta birta tvívegis í Lögbirtingablaði auglýsingu um félagsslitin ásamt áskorun til lánardrottna um að þeir lýsi kröfum sínum á hendur félaginu til skilanefndar innan tveggja mánaða frá því að auglýsingin birtist fyrra sinni. Réttaráhrif slíkrar innköllunar skulu vera hin sömu og við gjaldþrotaskipti á búi hlutafélags.
    Í auglýsingu samkvæmt 1. mgr. skal skilanefnd boða til fundar með lánardrottnum félags og hluthöfum til þess að fjalla um kröfur á hendur félaginu og skal sá fundur haldinn innan mánaðar frá lokum kröfulýsingarfrests.
    Löggilding skilanefndar og innköllun krafna breyta ekki rétti lánardrottna til að leita fullnustu krafna sinna samkvæmt almennum reglum.
    Um kröfur á hendur félaginu og gagnkvæma samninga þess skulu gilda ákvæði VI. og VII. kafla gjaldþrotalaga, eftir því sem við á.

57. gr.

    120. gr. laganna orðist svo:
    Þegar kröfulýsingarfrestur er á enda skal skilanefnd gera skrá um þær kröfur sem henni hafa borist. Skal hún láta í ljós álit sitt á því hvort eða að hversu miklu leyti hún telji að viðurkenna skuli hverja kröfu. Telji skilanefnd ekki unnt að viðurkenna kröfu að öllu leyti eins og henni hefur verið lýst skal hún tilkynna hlutaðeigandi kröfuhafa um það á sannanlegan hátt og boða hann sérstaklega til þess fundar þar sem fjallað verður um lýstar kröfur.
    Komi ekki andmæli fram gegn afstöðu skilanefndar til viðurkenningar á lýstum kröfum á fundi sem haldinn er til umfjöllunar um lýstar kröfur skal afstaða hennar teljast endanlega samþykkt af öllum hlutaðeigandi.
    Andmæli lánardrottinn afstöðu skilanefndar til viðurkenningar kröfu sinnar eða sæti krafa andmælum af hendi annars lánardrottins eða hluthafa og ekki er á fundinum leystur ágreiningur þeirra skal skilanefnd þegar í stað vísa honum til úrlausnar skiptaráðanda á varnarþingi félagsins sem kveður upp úrskurð um hann.
    Berist skilanefnd krafa eftir lok kröfulýsingarfrests skulu um meðferð hennar gilda ákvæði 111. gr. gjaldþrotalaga eftir því sem við á.
    Telji skilanefnd orka tvímælis að eignir félagsins hrökkvi fyrir skuldum þess að loknum kröfulýsingarfresti skal hún án tafar afhenda bú þess til gjaldþrotaskipta. Skiptaráðandi skal auglýsa tvívegis í Lögbirtingablaði að búið hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta en innköllun skilanefndar og kröfulýsingarfrestur samkvæmt 1. mgr. 119. gr. skal vera endanlegur við gjaldþrotaskiptin. Að öðru leyti gilda almennar reglur gjaldþrotalaga um skiptin.
    Sé bú hlutafélags tekið til gjaldþrotaskipta með þeim hætti er segir í 5. mgr. skal við búsmeðferð telja frestdag þann dag, sem hluthafafundur hefur ákveðið félagsslit samkvæmt 1. mgr. 117. gr., en úrskurðardag eða upphafsdag skipta þann dag sem skilanefnd hefur hlotið löggildingu ráðherra.

58. gr.

    121. gr. laganna orðist svo:
    Þegar að loknum fundi samkvæmt 120. gr., og þegar nægilegum eignum félagsins hefur verið komið í verð, skal skilanefnd greiða viðurkenndar kröfur á hendur félaginu. Skal hún taka frá fé til greiðslu umdeildra krafna.
    Skilanefnd skal eftir þörfum boða hluthafa til fundar um tilhögun á slitum félagsins.
    Þegar lokið er greiðslu krafna og fé hefur verið sérgreint til greiðslu umdeildra krafna samkvæmt 1. mgr., og þegar fram er komin afstaða hluthafa til þess að hverju leyti eignum félagsins skuli komið í verð, skal skilanefndin gera frumvarp til úthlutunargerðar til hluthafa og lokareikninga félagsins. Greiðslur til hluthafa skulu vera í réttu hlutfalli við hlutafjáreign þeirra nema öðruvísi sé ákveðið í samþykktum félagsins.
    Skilanefnd skal boða til hluthafafundar til umfjöllunar um lokareikninga og frumvarp til úthlutunargerðar. Sé frumvarpi ekki andmælt eða athugasemdir gerðar við reikninga skal skilanefnd greiða hluthöfum eða afsala þeim eignum í samræmi við frumvarpið.

59. gr.

    122. gr. laganna orðist svo:
    Hafi skilanefnd ekki lokið störfum innan eins árs frá löggildingu skal hún gera ráðherra skriflega grein fyrir ástæðum þess og síðan tvívegis á ári hverju þar til hún lýkur störfum.
    Rísi ágreiningur við meðferð skilanefndar sem við gjaldþrotameðferð ætti undir lögsögu skiptaráðanda skal skilanefnd tafarlaust vísa ágreiningsefninu til úrlausnar skiptaráðanda á varnarþingi félagsins sem kveður upp úrskurð um ágreininginn. Um málskot slíkra úrskurða gilda almennar reglur.

60. gr.

    123. gr. laganna orðist svo:
    Ef lánardrottinn eða hluthafi vitjar ekki fjár, sem í hlut hans á að koma við félagsslitin, eða ef ágreiningur um réttmæti kröfu samkvæmt 3. mgr. 120. gr. er óleystur við úthlutun skilanefndar skal skilanefnd leggja viðkomandi fjárhæð á geymslureikning við viðskiptabanka. Sé fjárins ekki vitjað innan tíu ára, eftir atvikum frá lyktum ágreinings um kröfu lánardrottins að telja, skal það renna til ríkissjóðs.
    Þegar skilanefnd hefur lokið úthlutun til hluthafa eða lagt fé á geymslureikninga samkvæmt 1. mgr. skal hún tilkynna hlutafélagaskrá um lok starfa sinna og afhenda henni lokareikninga félagsins, úthlutunargerð sína, kvittanir þeirra, er við greiðslum hafa tekið, og skilríki fyrir geymslureikningum, svo og öll skjöl og bækur félagsins.
    Skilanefnd skal auglýsa í Lögbirtingablaði um lok starfa sinna og hver málalok hafi orðið.

61. gr.

    124. gr. laganna orðist svo:;
    Þegar lokið hefur verið greiðslu krafna á hendur félaginu eða fé til greiðslu umdeildra krafna hefur verið lagt á geymslureikning getur hluthafafundur ákveðið að starfi skilanefndar skuli lokið og að félagið taki upp starfsemi á ný ef hluthafar, sem ráða yfir minnst 2 / 3 hlutum heildarhlutafjár, eru því samþykkir. Skal tilkynna hlutafélagaskrá um samþykktina en ekki er heimilt að hefja á ný starfsemi fyrr en samþykktin hefur verið skráð og félagið fullnægir lögmæltum skilyrðum að öðru leyti.

62. gr.

    125. gr. laganna orðist svo:
    Komi fram eignir félags eftir að skilanefnd hefur lokið störfum, eða verði þau málalok á ágreiningi um réttmæti kröfu lánardrottins að fé, sem lagt hefur verið á geymslureikning vegna kröfunnar, notist ekki að öllu leyti til greiðslu hennar, skal skilanefnd taka upp starf sitt á ný án innköllunar og úthluta eignum í samræmi við upphaflega úthlutunargerð sína. Um lok framhaldsskipta gilda ákvæði 2. og 3. mgr. 123. gr.
    Sé þess ekki kostur að skilanefnd annist um framhaldsskipti samkvæmt 1. mgr. skal ráðherra beina því til skiptaráðanda á varnarþingi því sem félagið hafði að hann annist um framhaldsskiptin í stað skilanefndar.

63. gr.

    Síðari málsl. 2. mgr. 145. gr. laganna falli niður. Í staðinn komi tveir nýir málsl. sem orðist svo: Ráðherra er heimilt að veita almennan aðgang að skránni. Þó er einungis heimilt að veita aðgang að ársreikningum þeirra hlutafélaga sem leggja engar hömlur á heimild hluthafa til meðferðar á hlutabréfum sínum, sbr. 19. og 20. gr.

64. gr.

    Við 4. mgr. 146. gr. laganna bætist við nýr málsl., svohljóðandi:
    M.a. getur hann krafist þess að fá yfirlýsingu lögmanns eða löggilts endurskoðanda um að upplýsingar í tilkynningu um stofnun hlutafélags varðandi greiðslu hlutafjár séu réttar.

65. gr.

    Eftirtaldar breytingar verði á 147. gr. laganna:
a.    3. og 4. málsl. falli niður. Í staðinn komi tveir nýir málsl. sem orðist svo: Tilkynningar um breytingar skulu undirritaðar af meiri hluta stjórnar eða prókúruhafa. Ákvæði 4. mgr. 146. gr. gilda eftir því sem við á.
b.    Við bætist ný málsgrein, 2. mgr., er orðist svo:
.      Auk tilkynninga samkvæmt 1. mgr. um breytingar á stjórn o.fl. skal í júnímánuði ár hvert tilkynna heimilisföng hlutafélaga og nöfn, kennitölur og heimilisföng stjórnarmanna, framkvæmdastjóra, endurskoðenda, þeirra sem hafa heimild til að rita firma félagsins og prókúruhafa, miðað við 1. júní, nema ráðherra ákveði að tilkynningarnar skuli miðast við annan dag.

66. gr.

    Í stað orðsins „greiðslur“ í 2. tl. 151. gr. laganna komi: tillög.

Gildistaka laganna o.fl.


67. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Ákvæði laga þessara taka til þeirra hlutafélaga sem stofnuð hafa verið og skráð fyrir gildistöku þeirra, með þeim undantekningum sem greinir í 65. gr. og 69. gr.

68. gr.

    Ákvæði 1. gr. um hlutafé og ákvæði 12. gr. um að hlutir og hlutabréf skuli hljóða á nafn gilda ekki um félög og útgefin hlutabréf félaga sem stofnuð eru og skráð fyrir gildistöku laga þessara í samræmi við ákvæði laga nr. 32/1978 eða eldri laga.
    Hafi hlutafélag ekki verið skráð er lögin taka gildi en stofnun þess ráðin til lykta á stofnfundi skv. II. kafla laga nr. 32/1978 og að öðru leyti í samræmi við ákvæði þeirra laga er skráning þess heimil enda sé félagið tilkynnt til skráningar innan sex mánaða frá dagsetningu stofnsamnings.
    Nú eru eða verða hluthafar í hlutafélögum skv. 1. eða 2. mgr. fjórir eða færri og er það þá skilyrði þess að fækka megi stjórnarmönnum í einn eða tvo, sbr. 27. gr. laga þessara, að hlutafé nemi a..m..k. þeirri fjárhæð sem ákveðin er sem lágmarksfjárhæð hlutafjár skv. 1. gr.

69. gr.

    Hafi skilanefnd verið löggilt í félagi fyrir gildistöku þessara laga skulu um störf hennar gilda ákvæði 5. og 6. mgr. 53. gr., sbr. 5. tl. 1. mgr. 50. gr., svo og 54.–60. gr., eftir því sem við á.

Ákvæði til bráðabirgða.


    Þrátt fyrir ákvæði XIV. kafla laga þessara skal heimilt samkvæmt skriflegri beiðni félagsstjórnar að afmá félag úr hlutafélagaskrá að fullnægðum eftirfarandi skilyrðum:
1.    Að engin starfsemi hafi átt sér stað hjá félaginu á næstu fjórum reikningsárum áður en beiðni berst.
2.    Að eigi sé kunnugt um að nokkrar kröfur hvíli á félaginu.
3.    Að hluthafar, er ráði yfir minnst 2 / 3 hlutum heildarhlutafjár félagsins, lýsi því yfir að þeir ábyrgist einn fyrir alla og allir fyrir einn greiðslu á öllum kröfum sem kunna að koma fram á hendur félaginu eða í tengslum við slit þess.
    Beiðni samkvæmt 1. mgr. skulu fylgja staðfest endurrit ársreikninga og staðfest endurrit skattframtala fyrir sama tímabil og í 1. tl. 1. mgr. greinir. Þá skal og fylgja ítarleg greinargerð um hvernig eignum félagsins verði ráðstafað til hluthafa ef beiðni verður tekin til greina. Öll útgefin hlutabréf með óslitinni framsalsröð til núverandi hluthafa skulu þeir, sem ábyrgðaryfirlýsingar gefa, einnig afhenda með beiðni eða færa fram aðra óyggjandi sönnun fyrir hlutafjáreign sinni.
    Telji ráðherra fullnægt skilyrðum til þess skal félagið afmáð úr hlutafélagaskrá með sömu réttaráhrifum og ef því hefði verið slitið samkvæmt almennum reglum. Skal auglýst í Lögbirtingablaði að félagið hafi verið afmáð úr hlutafélagaskrá og hverjir þeir hluthafar séu sem gengið hafi í ábyrgð fyrir kröfum samkvæmt framansögðu.
    Ákvæði þetta skal falla niður að liðnum fjórum árum frá gildistöku laga þessara.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Á 109. löggjafarþingi 1986 var lagt fram frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 32 12. maí 1978 um hlutafélög, sem nefnd, skipuð af viðskiptaráðherra 1984, hafði samið. Frumvarp þetta var endurflutt á 110. löggjafarþingi 1987 en varð heldur ekkiútrætt þá. Það er nú endurflutt með tveimur smávægilegum efnisbreytingum,þ.e. varðandi 3. mgr. 1. gr. laganna
(aðeins vísað í lánskjaravísitölu)og nýja 3. mgr. 20. gr. laganna (tímamörk sett vegna mats áinnlausnarverði hlutabréfa), svo og leiðréttingum á fjórum augljósumprentvillum. Tölur í athugasemd við 1. gr. frumvarpsins hafa veriðendurreiknaðar.
    Gerð verður grein fyrir helstu breytingum á frumvarpi nefndarinnar í athugasemdum við einstakar greinar. Þó skal tekið hér fram til yfirlits, að lágmarksfjárhæð hlutafjár hefur verið hækkuð, þó ekki eingöngu með hliðsjón af verðbólgu. Einnig er veitt heimild til útgáfu hlutabréfa án atkvæðisréttar. Nokkru strangari kröfur eru gerðar um úrlausn mála, sem ekki hafa verið greind í dagskrá hluthafafundar. Skylda til að skila ársreikningum er ekki lögð fortakslaust á öll hlutafélög, heldur einungis þau, sem leggja engar hömlur á heimild hluthafa til meðferðar á hlutabréfum sínum. Þá skulu hlutafélög auk venjulegra tilkynninga senda hlutafélagaskrá sérstaka tilkynningu um nöfn stjórnarmanna o.fl. miðað við 1. júní ár hvert til að auka áreiðanleika þeirra upplýsinga, sem skráin veitir. Þá er í ákvæði til bráðabirgða gert ráð fyrir tímabundnum möguleika til að slíta hlutafélögum á einfaldari hátt en nú er unnt.
    Tekið er fram hér á eftir, ef vikið er frá athugasemdum nefndarinnar um annað en tæknilegar smábreytingar, en athugasemdir hennar voru svohljóðandi:
    Frumvarp þetta hefur samið nefnd, sem viðskiptaráðherra skipaði hinn 11. janúar 1984 til þess meðal annars „(að) endurskoða lög nr. 32/1978 um hlutafélög og koma með tillögur um nauðsynlegar úrbætur, með hliðsjón af fenginni reynslu af framkvæmd laganna, einkum hvað snertir smærri hlutafélög“. Í nefndina voru skipaðir: Árni Vilhjálmsson prófessor, formaður nefndarinnar, Baldur Guðlaugsson lögmaður, Björn Líndal lögfræðingur, Gísli Ólafsson forstjóri og Guðmundur Skaftason lögmaður. Hreinn Loftsson lögfræðingur var starfsmaður nefndarinnar fram í september 1984, en þá tók við af honum Sigurbjörn Magnússon fulltrúi. Þá hefur Markús Sigurbjörnsson, fulltrúi yfirborgarfógetans í Reykjavík, aðstoðað nefndina með því að taka saman ný drög að XIV. kafla laganna um félagsslit.
    Lögin frá 1978 eru mun rækilegri en fyrri lög, sem staðið höfðu nær óbreytt frá 1921. Lögin byggðu mjög á árangri norrænnar samvinnu um endurskoðun og samræmingu hlutafélagalöggjafar á Norðurlöndum, sem staðið hafði yfir um langt árabil. Þar kom þó, að leiðir skildu í þessu efni, er Danir gengu í Efnahagsbandalag Evrópu. Var sá kostur valinn við undirbúning lagasetningar hér að hafa einkum dönsku lögin um „aktieselskaber“ til hliðsjónar.
    Fljótlega eftir setningu laganna varð vart gagnrýni á þau. Að því var helst fundið, að þau væru um of sniðin að þörfum tiltölulega stórra félaga sem væru í eigu tiltölulega margra hluthafa. Í Danmörku hafði það gerst, að samtímis lögunum um „aktieselskaber“ tóku gildi hinn 1. jan. 1974 lög um „anpartsselskaber“, sem er sérstök gerð hlutafélaga. Þau eru einkum ætluð fyrirtækjum, sem eru tiltölulega smá að því er varðar umsvif og fjölda hluthafa. Gagnrýnin beindist m.a. að því, að kröfur íslensku laganna væru of strangar, þegar hafðar væru í huga þarfir smárra fyrirtækja, sem skipta þó hér á landi tiltölulega meira máli en í nágrannalöndunum. Í byrjun árs 1982 var samþykkt á Alþingi þingsályktunartillaga um „að fela ríkisstjórninni að endurskoða lög um hlutafélög með hliðsjón af réttarstöðu smárra hlutafélaga“.
    Frumvarpið, sem varð með minni háttar breytingum að gildandi lögum og lagt var fyrst fyrir Alþingi vorið 1977 og aftur haustið sama ár, virðist hafa falið í sér viðhorf, sem gengu á snið við sjónarmið, sem voru á þessum árum að ná tökunum í nágrannalöndum okkar. Í frumvarpinu var lagt til, að stofnendur og hluthafar félags skyldu vera tíu hið fæsta. Í skýringum við 1. gr. frv. segir um þetta efni: „Tilgangurinn með því að hækka lágmarksfjölda hluthafa úr fimm í tíu er að styrkja hlutafélagsformið m.a. með því að gera erfiðara um vik, að stofnuð séu gervihlutafélög“. Ekki er útskýrt, hvað átt er við með gervihlutafélagi. Gefið er í skyn, að ef lágmarkstala hluthafa haldi áfram að vera fimm, gæti eitt hlutafélag, sem stofnað yrði, verið verra að einhverju leyti en annað, þótt hlutafé beggja væri jafnhátt. Frumvarpið gerði ráð fyrir, að lágmark hlutafjár yrði óháð því, hve margir hluthafarnir væru, og reyndar aðeins 1 milljón kr. (gamalla), sem svarar um 220 þús. kr. í desember 1984. Verið gæti, að höfundar frumvarpsins hafi talið í sjálfu sér óréttmætt, að þátttakendur í fámennum félögum ættu kost á að takmarka ábyrgð sína, án tillits til þess, hve áhættusamur reksturinn væri og án tillits til þess, hversu mikið fjármagn þeir legðu í sölurnar. Í almennri greinargerð með frumvarpinu falla orð, sem benda til þess, að með breytingu á hlutafélagalögunum skyldi stuðlað að eflingu stórrekstrar á kostnað smárekstrar, þar sem segir: „Í langflestum íslenskum hlutafélögum eru hluthafar örfáir. Almenningur leggur ekki fé sitt í hlutafélög, þ.e. kaupir ekki hlutabréf. Þessu þarf að breyta og að því er reynt að stuðla með frumvarpi þessu“. Ef til vill hefur ákvæði frumvarpsins um lágmark tíu þátttakenda verið hugsað sem liður í þessari viðleitni.
    Við meðferð málsins á Alþingi var ekki fallist á þetta sjónarmið frumvarpsins um fjölda hluthafa. Ákveðið var, að lágmarksfjöldi hluthafa skyldi halda áfram að vera fimm.
    Þótt þess væri ekki getið í frumvarpinu, var á þessum árum með lagasetningu verið að lækka kröfuna um lágmarksfjölda hluthafa á hinum Norðurlöndunum. Í lögum um „aktielselskaber“ í Danmörku, sem tóku gildi 1. janúar 1974, var ákveðið, að til að stofna hlutafélag þyrfti þrjá stofnendur, en hluthafar þyrftu ekki að vera fleiri en einn. Þrjá þurfti áður. Lögin um „anpartsselskaber“, sem tóku gildi á sama tíma, gerðu lágmarkskröfu um aðeins einn stofnanda og að hluthafar þyrftu ekki að vera fleiri en einn. Sænsku hlutafélagalögin, sem sett voru árið 1975, norsku lögin sett árið 1976, svo og finnsku lögin sem sett voru árið 1976, eru öll samhljóða um þetta efni: Þess er ekki krafist, að fleiri en einn þurfi til að stofna hlutafélag og að eiga hlutaféð allt.
    Í Þýskalandi, þar sem eru tvenns konar hlutafélög, Aktiengesellschaft og GmbH (Gesellschaft mit beschrÝnkter Haftung), þarf síðan árið 1980 aðeins einn aðila til að stofna og eiga allt hlutaféð í GmbH. Áður þurftu hluthafar að vera a.m.k. tveir við stofnun, en tala hluthafa gat síðar farið niður í einn, án þess að slíta þyrfti félaginu. Í Bretlandi, þar sem líka eru tvenns konar hlutafélög, gildir sú regla um „private company“, að stofnendur skulu vera a.m.k. tveir. Samkvæmt lögum mega hluthafar ekki vera færri en tveir, en unnt er að sniðganga þá kröfu með því að einkaeigandi fyrirtækisins skrái einn eða fleiri hluti á nafn fjárhaldsmanns (nominee).
    Ein veigamesta breyting á lögunum, sem tillaga er gerð um með frumvarpi þessu, er sú að íslensk lög verði samræmd lögum nágrannalandanna um kröfur að því, er varðar fjölda stofnenda og hluthafa. Lagt er til, að ekki þurfi fleiri en tvo aðila til að stofna hlutafélag og að tala hluthafa geti farið niður í tvo.
    Til þess að hægt sé að fá marga menn til að leggja áhættufé í atvinnurekstur, er óhjákvæmilegt, að þeir eigi þess kost að takmarka ábyrgð sína með einhverjum hætti. Hið sama verður ekki sagt fyrirvaralaust um rekstur, sem einn maður hyggst standa að, eða tveir til þrír, sem allir ætla sér að hafa náin afskipti af rekstrinum. Engu að síður skal því haldið fram, að ekki sé efni til þess að meina þeim fæðar þeirra vegna að takmarka ábyrgð sína við eiginfjárframlög þeirra, ef það er gert nægilega ljóst viðsemjendum þeirra á þann hátt, sem tíðkast við rekstur hlutafélaga. Viðbúið er, að lánardrottnar verði ekki eins fúsir að leggja þeim lið eins og væri, ef ábyrgðin væri ótakmörkuð. Ef slíkir atvinnurekendur ætla að gerast svo stórtækir, að þeir, sem falast er eftir láni hjá, telja stefnt í tvísýnu um áhættu, geta þeir neytt þess úrræðis að setja sem skilyrði fyrir lánveitingu,
að hluthafarnir veiti persónulega ábyrgð. Slíkrar ábyrgðar er krafist, ef þurfa þykir, hvort sem hlutafélag er smátt eða stórt, á mælikvarða hlutafjár eða hluthafafjölda, og ekki aðeins hér á landi, þar sem lánastofnanir hafa reyndar um langt skeið átt alls kostar við lánþega, vegna skipunar vaxtamála, heldur og víðs vegar erlendis. Á það þykir rétt að minnast, að þessar athugasemdir stinga í stúf við þá dóma, sem felldir eru í frumvarpinu að gildandi lögum um þetta efni, en þar segir svo í almennum athugasemdum: „Þá er það alkunna, að gagnvart velflestum hlutafélögum krefjast lánastofnanir þess, að hluthafar eða a.m.k. stjórn taki persónulega ábyrgð á skuldbindingum hlutafélagsins. Með þessu er kippt burtu einni af grunnstoðum hlutafélaganna, þeirri meginreglu, að hluthafar beri ekki persónulega ábyrgð á skuldbindingum hlutafélags. Þessu þarf að breyta og reynt er að stuðla að því í frumvarpi þessu.“ Allt er þó á huldu um, með hverjum hætti stuðlað væri með frumvarpinu að umræddri breytingu.
    Fyrir einstakling, sem hyggst standa einn að atvinnurekstri, stendur val um rekstrarform milli þess annars vegar að reka fyrirtækið sem einstaklingsfyrirtæki, með ótakmarkaðri ábyrgð, og hins vegar sem hlutafélag. Í síðara tilvikinu verður hann, að óbreyttum lögum, að útvega sér fjóra málamyndahluthafa, t.d. með því að gefa þeim smáhluti í félaginu. Hann verður að velja a.m.k. tvo menn með sér í stjórn, að óbreyttum lögum, og halda með hluthöfum a.m.k. einn fund á ári. Álíti frumkvöðullinn sig ekki hafa gagn af ráðum félaga sinna leitast hann við að halda sem fæsta fundi með þeim félögum og tryggja með öðrum hætti, að þeir hafi sem minnst afskipti af rekstrinum. Frá sjónarhóli frumkvöðulsins hlýst af þátttöku málamyndahluthafanna ekkert nema umstang og bein fjárútlát. Á þennan kostnað má líta sem gjald fyrir réttinn til að takmarka ábyrgð frumkvöðulsins, og frá samfélagslegu sjónarmiði má ætla, að um hreina sóun geti oft verið að ræða.
    Þegar tveir eða þrír menn hyggjast stofna til atvinnurekstrar gegnir svipuðu máli. Hlutafélagsformið getur þá líka og ekki síður þótt álitlegur kostur í samanburði við t.d. sameignarfélagsform. Frumkvöðlarnir þurfa þá að verða sér úti um málamyndahluthafa, og allt eða flest af því, sem sagt hefur verið að framan um umstang og óhagræði, á hér líka við. Að vísu má vel vera, að hlutafélagsformið verði fyrir valinu ekki einungis til að takmarka ábyrgð eigenda, heldur og til að koma þeirri festu á samskipti aðilanna, sem leiðir af hinum ítarlegu lögbundnu reglum hlutafélagsformsins.
    Einn nefndarmanna, Björn Líndal, hefur gert athugun, sem varpar ljósi á, hversu mikið er um það, að hlutafélagsformið sé notað með atbeina
málamyndahluthafa (skilegar úrbætur á lögum nr. 32/1978 um hlutafélög með hliðsjón af stærð íslenskra hlutafélaga, ritgerð til embættisprófs við Lagadeild Háskóla Íslands, vorið 1981). Athugunin beindist að gerð hlutafélaga, sem stofnuð voru og skráð hjá hlutafélagaskrá árið 1980. Í ljós kom m.a., að af 85 félögum, sem athugunin tók til, reyndust einn eða tveir aðilar eiga 67-99% hlutafjárins í 31 tilviki.
    Önnur mikilvæg breyting, sem gerð er tillaga um í frumvarpinu, varðar fjölda stjórnarmanna í hlutafélagi. Samkvæmt gildandi lögum skal stjórn hlutafélags skipuð þrem mönnum hið fæsta. Gert er ráð fyrir, að þessi regla gildi framvegis sem aðalregla, en ef hluthafar eru fjórir eða færri, nægi þó, að stjórnina skipi einn eða tveir menn. Þessa breytingu má virða sem eðlilega afleiðingu þess, að kröfur um lágmarksfjölda hluthafa hafi verið færðar niður. Það verður að teljast óeðlileg skipan, þegar hluthafar eru tveir og yfirgnæfandi hluti hlutafjár er í eigu eins manns, að honum sé skylt að velja sér tvo meðstjórnendur, sem hugsanlega gætu myndað meirihluta, sem ynni gegn fyrirætlunum hans. Væri þess þá að vænta að aðaleigandinn veldi til stjórnarsetu menn, sem undirgengjust að lúta boðum hans og bönnum um afskipti af rekstrinum. Eins og þegar hefur verið vikið að, má með sömu rökum gagnrýna þá skipan, sem skylt er að viðhafa á þessum málum samkvæmt gildandi lögum, þegar hluthafarnir fimm eru tilkomnir við það, að valdir hafa verið fjórir málamyndahluthafar til þess eins að fylla töluna fimm.
    Á hinum Norðurlöndunum gilda í meginatriðum þær reglur, er nú skal greina. Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er aðalreglan sú, að stjórn hlutafélags sé mynduð þrem mönnum, en ef hlutaféð nær ekki einni milljón NOK, einni milljón SEK eða einni milljón FIM mega vera færri en þrír í stjórn, þ..e. annaðhvort einn eða tveir. Í dönsku lögunum um „aktieselskaber“ er gerð krafa um a..m..k. þrjá í stjórn. Aftur á móti er meginreglan um dönsku „anpartsselskaber“ sú, að sé hlutaféð undir DKK 300.000 megi ákveða, að í stjórn séu tveir eða einn eða jafnvel að engin stjórn sé skipuð og ræki þá framkvæmdastjóri skyldur stjórnar, enda er slíkum félögum ávallt skylt að ráða framkvæmdastjóra. Frá reglunum, eins og þeim hefur hér verið lýst, eru gerðar undantekningar, ef starfsmenn eiga og nýta lögbundinn rétt til að velja menn í stjórn.
    Í Bretlandi skulu hlutafélög af gerðinni „public companies“ hafa a..m..k. tvo menn í stjórn, en í hinni gerð hlutafélaga, „private companies“, nægir að einn skipi stjórn. Meginreglum þýskra laga um GmbH um þetta efni verður ekki lýst í stuttu máli. Stærð fyrirtækja, eins og hún er mæld með fjölda starfsmanna, ræður miklu um skipan mála. Sem meginregla fyrir fyrirtæki með
allt að 500 starfsmenn gildir, að ekki er gerður greinarmunur á stjórnarmönnum og framkvæmdastjórum. Sömu persónur gegna verkefnum af því tagi, sem þessum aðilum eru ætluð samkvæmt íslenskum rétti. Hlutafélagi skal veita forystu einn eða fleiri slíkir forstöðumenn (Geschaftsfuhrer), valdir á hluthafafundi eða samkvæmt ákvæðum samþykkta.
    Með þeirri breytingu, sem lögð er til um skipan stjórnar hlutafélags, er gengið nokkuð lengra en gert hefur verið á hinum Norðurlöndunum að því leyti, að í frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir, að heimild til að hafa færri en þrjá í stjórn, sé bundin skilyrði um fjárhæð hlutafjár, en það skilyrði verður reyndar að teljast vera mjög rúmt að því er varðar Noreg, Svíþjóð og Finnland. Ekki verður komið auga á nein knýjandi rök fyrir því, að farið sé nákvæmlega í spor þessara ríkja um þetta efni. Stjórn hlutafélags er valin af hluthöfum til þess fyrir þeirra hönd að hafa forystu um rekstur fyrirtækis og til þess að veita framkvæmdastjóra leiðbeiningu og aðhald. Ótækt þykir, að fyrir þær einar sakir, að einn eða tveir eigendur hlutafélags hafi lagt í reksturinn tiltölulega mikið áhættufjármagn sé komin ástæða til þess, að þeim sé skylt að kveðja til utanaðkomandi aðila, valinn að geðþótta eigenda, til þess að taka þátt í störfum stjórnar.
    Við umræður í nefndinni vaknaði snemma sú spurning, hvort skynsamlegt væri að lögfesta ákvæði um tvenns konar hlutafélög eins og gert hefur verið sums staðar erlendis. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu, að ekki væri ástæða til slíkrar tvískiptingar. Rétt þykir að fara nokkrum orðum um fyrirkomulag í þessum efnum í nokkrum nágrannalanda okkar, svo og um ástæður fyrir niðurstöðu nefndarinnar.
    Lögum um hlutafélög er í nágrannalöndum okkar skipað með þrenns konar hætti. Í Danmörku, Þýskalandi og ýmsum öðrum ríkjum Mið-Evrópu eru sérstök, aðgreind lög um hvora tegund hlutafélaga. Í Bretlandi eru aftur á móti sérákvæði um tvær tegundir hlutafélaga, „public companies og „private companies“, felld saman í ein allsherjarlög. Svipaður háttur er hafður á í Frakklandi. Loks er svo það fyrirkomulag, sem valið hefur verið í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, þar sem gilda ein lög um hlutafélög og öll hlutafélög bera sama heiti, þótt ákvæði laganna um nokkur efni séu ólík eftir vissum einkennum hlutafélaganna, án þess þó að greint sé á milli tveggja skýrt afmarkaðra tegunda hlutafélaga. Lög í þessum ríkjum sættu rækilegri endurskoðun um svipað leyti og íslensku lögin; í Svíþjóð voru sett ný lög árið 1975, í Noregi 1976 og í Finnlandi árið 1978.
    Í Danmörku var hafið að greina á milli tvenns konar hlutafélaga, A/S og
Aps., með lagasetningu árið 1973, en í Þýskalandi hefur verið greint á milli tvenns konar hlutafélaga síðan seint á 19. öld. Þegar Danir gengu í Efnahagsbandalag Evrópu voru öll ríki bandalagsins með lög um tvenns konar hlutafélög, og munu aðgerðir Dana hafa verið liður í nauðsynlegri samræmingu við löggjöf annarra landa Efnahagsbandalagsins, sem hugðust sameiginlega láta til sín taka löggjöf um hin stærri félög. Af heimildum nefndarinnar verður ráðið, að sérstakar sögulegar skýringar séu á tilurð GmbH í Þýskalandi með lögum árið 1882, nánar tiltekið þær „að fylla í eyðu, sem myndast hafði þar, sem hið flókna AG (Aktiengesellschaft) hentaði ekki sem rekstrarform, og til þess að gefa kost á rekstrarformi með takmarkaðri ábyrgð, sem hæfði fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Það var mótað sem félag, sem krefðist aðeins lítils hlutafjár, einfalt væri að stofna, auðvelt að stjórna, hannað fyrir fámennan hóp hluthafa, sem væru í nánum innbyrðis tengslum og krefðust þess ekki, að auðvelt væri að framselja hlutina, en sæktust eftir rúmum heimildum til þess að móta félagið eftir sérstökum hagsmunum þeirra“ (R. Mueller o..fl.: The German GmbH, Frankfurt am Main, 1981). Sú leið var með öðrum orðum valin að stofna til sérstakrar gerðar hlutafélaga, sem rúmaði mikla fjölbreytni, fremur en að hrófla við hinum ströngu, miður sveigjanlegu kröfum laganna um AG.
    Óhjákvæmilegt þykir, að gerð sé nokkru nánari grein fyrir þeim atriðum, sem greina á milli félagstegundanna tveggja í þeim ríkjum, sem nefnd hafa verið. Látið skal nægja að taka fyrir dönsku Aps.-félögin og hin ensku „private companies“. Í rauninni skilja mjög mörg atriði á milli, sum mikilvæg, en önnur minniháttar, og er þó álitamál, hvað telja skuli meginatriði. Meðal hins helsta, sem greinir á milli lagaákvæða um A/S og Aps., eru eftirfarandi atriði:
1.    Hlutafé í A/S verður að vera a.m.k. DKK 300.000, hjá Aps. er lágmarkið aðeins DKK 80.000.
2.    Til að stofna A/S þarf þrjá aðila hið minnsta, en til að stofna Aps. þarf aðeins einn.
3.    Hlutabréf í A/S mega hljóða á handhafa, en hjá Aps. skulu þau ávallt hljóða á nafn.
4.    A/S er skylt að gefa út hlutabréf, en Aps. ekki. Gefi Aps. út hlutabréf mega almennar reglur viðskiptabréfa ekki gilda um þau.
5.    Í A/S má mismunur á atkvæðisrétti hluta með sama nafnverði ekki nema meiru en einum á móti tíu. Hins vegar er Aps. leyfilegt að gefa út atkvæðislausa hluti.
6.    Stjórn A/S skal skipuð a.m.k. þrem mönnum, en ef hlutafé Aps. er undir vissu marki, mega vera í stjórn einn eða tveir eða jafnvel enginn eins og áður hefur verið tekið fram.
7.    A/S er skylt að leggja hluta hagnaðar í sérstakan varasjóð, engin slík ákvæði eru um Aps.
8.    A/S er heimilt að kaupa og eiga allt að 10% útgefinna hlutabréfa, en Aps. er bannað að eiga eigin hlutabréf.
9.    Hafi a.m.k. helmingur hlutafjár Aps. tapast, er skylt að gera ráðstafanir til að berja í brestinn með því að lækka eða niðurskrifa hlutaféð og, ef með þarf, að afla viðbótarhlutafjár til þess að koma hlutafénu í a.m.k. það lágmark, sem hlutafé þarf að nema við stofnun hlutafélags, eða slíta félaginu að öðrum kosti. Um A/S eru engin ákvæði af þessu tagi.
    Meðal þess, sem greinir hin bresku „public companies“ (plc) frá „private companies“ (ltd.), er helst að nefna:
1.    Hlutafé plc verður að nema minnst GBP 50.000, en engar lágmarkskröfur eru gerðar til ltd. um þetta efni.
2.    Ltd. má hvorki bjóða hlutabréf sín né skuldabréf til sölu meðal almennings.
3.    Ákveða má í samþykktum ltd., að hluthafar njóti ekki forkaupsréttar að nýjum hlutum við hlutafjáraukningu. Þetta er plc óheimilt.
4.    Ltd. nýtur rýmri heimilda til að eignast eigin hlutabréf heldur en plc.
5.    Einungis ltd., sem talin eru vera smá eða meðalstór, nægir að senda hlutafélagaskrá útdrátt úr ársreikningi sínum. Til skamms tíma máttu hluthafar í ltd. ekki vera fleiri en 50. Nýlega hefur þeirri takmörkun verið aflétt.
    Af lýsingunni hér að framan má ráða, að margt geti verið ólíkt með tveim félögum ólíkrar gerðar í þessum löndum, sem eru með tvær tegundir hlutafélaga, t.d. á A/S og Aps. tla má, að dæmigert Aps. sé ólíkt dæmigerðu A/S. Á þeim sé stærðarmunur, fleiri hluthafar séu í A/S; þess sé frekar að vænta um A/S, að það leggi ekki hömlur á heimild hluthafa til meðferðar á hlutabréfum. Með hlutabréf sumra A/S (örfárra hundraða) er verslað á kaupþingi, en það kemur ekki til greina um Aps. Þar með er þó ekki allt sagt, sem áhugavert er við samanburð A/S og Aps. Sum Aps. leggja ekki hömlur á heimild hluthafa til sölu á hlutabréfum, á meðan sum A/S gera það. Mörg Aps. eru miklu umsvifameiri og hafa yfir að ráða miklu meira fjármagni heldur en hin smærri A/S, sum Aps. eru með fjölmennari stjórn heldur en sum A/S, og þannig mætti lengur telja. Ekki fer þó á milli mála, hvort félagsformið þykir henta betur smærri og
meðalstórum fyrirtækjum. Í lok árs 1979 voru í Þýskalandi aðeins 2.139 AG með DEM 88.6 billjónir samanlagt í hlutafé, en 225.209 GmbH með hlutafé samtals að fjárhæð DEM 92,4 billjónir. Í Bretlandi voru um sama leyti 9.163 public companies og 751.642 private companies. Frá því að lögin um Aps. tóku gildi í Danmörku í ársbyrjun 1974, hefur fjölmörgum A/S verið breytt í Aps., og eru Aps. félögin orðin miklu fleiri en A/S.
    Hlutafélög í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, þar sem ekki er greint á milli tveggja tegunda hlutafélaga, rúma mikla fjölbreytni um tilhögun samþykkta. Um sum efni njóta öll hlutafélög sömu heimilda til að ákveða hvernig þeim skuli skipa. Sem dæmi má nefna, að öllum hlutafélögum í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi er í samþykktum sínum frjálst að ákveða, hvort skorður séu reistar við heimild hluthafa til meðferðar á hlutum sínum. Sömuleiðis búa öll hlutafélög við sömu heimildir til að gefa út skuldabréf, sem eftir ákveðnum reglum er hægt að breyta í hlutabréf. Og öllum hlutafélögum er bannað að gefa út handahafahlutabréf. Í Danmörku gilda aftur á móti ólíkar reglur um þessi efni fyrir A/S annars vegar og Aps. hins vegar.
    Um önnur efni eru félögum settar skorður, sem ráðast af sérstökum einkennum þeirra. Til dæmis geta einungis þau félög, sem eru með lægra hlutafé en NOK 1 milljón ákveðið, að stjórn félags skuli skipuð færri en þrem mönnum. Þá verða öll félög, sem fara yfir ákveðin stærðarmörk, að kjósa a.m.k. einn löggiltan endurskoðanda (statsautorisert revisor) til að fara yfir ársreikninginn, en þau minni geta komist af með endurskoðanda, sem minni kröfur eru gerðar til (registrert revisor).
    Þau sérstöku einkenni hlutafélaga, sem í löggjöf þessara landa eru látin ráða því, hvernig þeim beri að haga samþykktum sínum og gjörðum um tiltekin efni, þegar félögum er á annað borð mismunað, tengjast yfirleitt stærð þeirra. Hið sama meginviðhorf er og í fyrirrúmi í löndum, þar sem hlutafélögum hefur verið skipað í tvo flokka. Munurinn á þessum tveim kerfum er þá fyrst og fremst sá, að á Norðurlöndunum þrem er boðið upp á meiri sveigjanleika. Smæstu hlutafélögunum er leyfilegt allt, sem stærstu félög gera. Munurinn á starfsskilyrðum smárra félaga og stórra er sá, að til hinna smærri eru um sum efni gerðar vægari kröfur. Ekki er annað vitað en að þetta fyrirkomulag hafi reynst bærilega vel, og ekki er vitað að á döfinni séu fyrirætlanir um að víkja frá þessu fyrirkomulagi. Þetta er það fyrirkomulag, sem nefndin var sammála um, að haft skyldi að fyrirmynd við endurskoðun laganna um hlutafélög.
    Ef íslenskum hlutafélögum yrði skipað í tvo flokka eftir stærð á svipaðan hátt og hlutafélög í Þýskalandi og Bretlandi skiptast í flokkana AG og GmbH og
í „public companies“ og „private companies“, kæmi ekki á óvart, að telja mætti á fingrum sér þau fyrirtæki, sem fylltu flokk hinna stærri fyrirtækja. Jafnframt má benda á, að ef fylgt væri dönsku fyrirmyndinni, gætu öll íslensk hlutafélög engu að síður ákveðið að haga skipulagi sínu á þann hátt, sem Aps.-gerðin mælir fyrir um, nema þess væri krafist, að félagi yrði breytt í A/S gerðina, ef það færi yfir ákveðin stærðarmörk. Virðist því ekki til mikils að vinna, að sett séu sérstök lög fyrir þau fyrirtæki.
    Eins og þegar hefur verið tekið fram er lagt til, að stofnendur hlutafélags þurfi að vera tveir hið fæsta og að hluthafar skuli ekki vera færri en tveir. Að þessu leyti víkur sú skipan, sem gerð er tillaga um, frá fyrirkomulagi mála í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Nefndarmenn eru á einu máli um, að réttmætt sé, að einstaklingi sé gert heimilt að reka fyrirtæki með takmarkaðri ábyrgð á skuldbindingum vegna starfseminnar. Nefndin telur hins vegar, að illa færi á því að kenna slíkt fyrirtæki við félag, jafnvel þótt áskilið væri, að hlutir skyldu ávallt vera tveir eða fleiri. Ef veita skyldi einstaklingi heimild til að reka fyrirtæki með takmarkaðri ábyrgð, álítur nefndin, að setja ætti sérstök lög um slík fyrirtæki, fremur en að lagaákvæði um þau skyldu felld inn í lög um hlutafélög, vegna þess hve mörg þau ákvæði laga um hlutafélög eru, sem geta ekki átt við um einstaklingsfyrirtækið, svo sem ákvæði um hluthafafundi og minnihlutavernd. Á meðan einstaklingi stendur ekki til boða að reka fyrirtæki með takmarkaðri ábyrgð, þarf hann þó ekki að semja við fleiri en einn aðila um, að hann gerist hluthafi, til þess að starfsemin geti fallið að kröfum laga um hlutafélög, ef frumvarp þetta verður að lögum. Slík skipan felur í sér verulega framför frá þeirri tilhögun, sem verið hefur.
    Með frumvarpinu er gerð tillaga um allmargar aðrar breytingar á lögunum en þegar hafa verið nefndar. Hér á eftir fer yfirlit um hinar helstu þeirra og eru þá, til að fyllra yfirlit fáist, endurteknar þær tvær breytingartillögur sem þegar hafa verið kynntar.
1.    Lagt er til, að lágmarksfjöldi þeirra, sem þarf til að stofna hlutafélag og að eiga hlut í félagi, lækki úr fimm í tvo. (1. og 8. gr. frv.)
2.    Gerð er tillaga um, að sú lágmarksfjárhæð, sem hlutafé þarf að nema, til þess að hlutafélag verði stofnað, skuli breytast í hátt við verðlagsbreytingar eins og þær eru mældar með lánskjaravísitölu. Við gildistöku laganna nemi lágmarkið 400.000 kr., sbr. athugasemd við 1. gr. (1. gr. frv.)
3.    Ekki verði lengur heimilt að gefa út handhafahlutabréf. Hlutabréf skuli ávallt gefin út til nafnskráðs aðila. (4. og 12. gr. frv.)
4.    Reglur um innborgun hlutafjár við stofnun hlutafélags verði hertar, þannig að í stað þess, að krafist verði innborgunar a.m.k. fjórðungs hlutafjár til þess að hlutafélag fáist skráð, skuli innborgun nema a.m.k. helmingi, en þó aldrei lægri fjárhæð en svarar til þess lágmarks, sem þarf til að stofna hlutafélag. (6. gr. frv.)
5.    Synji stjórn félags um sölu eða annað framsal á hlutum, geti hluthafi krafist þess, að félagið leysi til sín hlutina, sem um ræðir. (11. gr. frv.)
6.    Lagt er til, að sett verði í lögin ákvæði um, að hlutabréf geti tekið til tveggja eða fleiri hluta í sama flokki hlutafjár. (12. gr. frv.)
7.    Lagt er til, að stjórn félags megi skipa einn eða tveir menn, ef hluthafar eru fjórir eða færri. (27. gr. frv.)
8.    Í lögum eru ákvæði um, að sé hlutafé félags yfir ákveðnu marki, skuli ráða einn eða fleiri framkvæmdastjóra. Sams konar ákvæði er um bann við því, að meirihluti stjórnar séu menn, sem eru framkvæmdastjórar í félaginu. Loks er sams konar ákvæði um skilyrði fyrir því, að framkvæmdastjóri félags megi jafnframt vera formaður stjórnar þess. Lagt er til, að sú fjárhæð hlutafjár, sem við skuli miðað, breytist í sama hlutfalli og lágmarkskrafan um hlutafé við stofnun félags. (28. og 29. gr. frv.)
9.    Lagt er til, að mál, sem ekki hafa verið greind í dagskrá, verði ekki unnt að taka til úrlausnar á hluthafafundi nema með samþykki allra atkvæðisbærra fundarmanna, sem samtals fara með minnst 3 / 4 hluta atkvæða í félaginu, í stað 2 / 3 hluta mættra hluthafa eins og verið hefur, sbr. athugasemd við 33. gr. frv. (33. gr. frv.)
10.    Í stað þess, sem nú er í lögum, að krafist er, að kosnir skuli a..m..k. tveir menn til að endurskoða ársreikning hlutafélags, er lagt til, að kjósa þurfi a.m.k. einn mann. (35. gr. frv.)
11.    Í lögunum eru ákvæði um, að skylt sé að kjósa löggiltan endurskoðanda m..a. í tilvikum, þegar hlutafé og/eða annað fjármagn fer yfir ákveðin stærðarmörk. Lagt er til, að þessar viðmiðunarstærðir skuli breytast til hækkunar í hátt við kröfur um lágmarkshlutafé, sbr. lið 2) hér að framan. (36. gr. frv.)
12.    Gerð er tillaga um, að ákvæði hlutafélagalaga um ársreikning verði felld að þeim breytingum, sem orðið hafa á reikningsskilareglum hér á landi á síðustu árum. (41., 42. og 43. gr. frv.)
13.    Lagt er til, að heimilt verði að ráðstafa endurmatssjóði til að verðbæta lögbundinn varasjóð og frjálst eigið fé í samræmi við verðlagsbreytingar. (41. gr. frv.)
14.    Gerð er tillaga um, að skylda félags til að úthluta arði, að kröfu tiltölulega lítils minnihluta hluthafa, verði þrengd verulega. (48. gr. frv.)
15.    Gerð er tillaga um umtalsverðar breytingar á ákvæðum laganna um slit hlutafélaga. Sett er það skilyrði fyrir heimild til löggildingar skilanefndar, að fyrir liggi, að eignir félags hrökkvi fyrir skuldum þess. Jafnframt er um að ræða endurbætur á verklagsreglum um hvernig skuli staðið að slitum hlutafélaga. (50.–62. gr. frv.)
16.    Lagt er til, að í stað þess að ráðherra geti veitt aðgang að ársreikningum allra hlutafélaga, verði einungis heimilt að veita almennan aðgang að ársreikningum hlutafélaga, sem leggja engar hömlur á heimild hluthafa til meðferðar á hlutum sínum. (63. gr. frv.)
    Auk þess vísast til upphafs almennu athugasemdanna hér að framan varðandi viðbótartillögur við tillögur nefndarinnar, er samdi frumvarp þetta. Breytingarnar varða m.a. einfaldari slit á hlutafélögum og heimild til útgáfu hlutabréfa án atkvæðisréttar.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.



Um 1. gr.


    Í gildandi lögum er mælt fyrir um, að hlutir, sem hlutafé skiptist í, skuli ekki vera færri en fimm. Þar sem lagt er til í frumvarpinu, að ekki þurfi fleiri en tvo aðila til að stofna og eiga allt hlutafé í hlutafélagi, er lagt til í a-lið, að hlutafé skuli skipt í tvo eða fleiri hluti. Í almennum athugasemdum hefur verið gerð grein fyrir rökunum fyrir þessari breytingu.
    Samkvæmt gildandi lögum skal hlutafé nema minnst kr. 20.000. Þessi fjárhæð, umreiknuð með lánskjaravísitölu frá gildistöku ákvæðisins í maí 1978 (68,3) til september 1988 (2254), jafngildir um kr. 660.000. Fjárhæðir í athugasemd við þessa grein hafa verið endurskoðaðar. Ljóst er, að verðlagsbreytingar eins og þær, sem hér hafa orðið, geta mjög rýrt gildi slíkrar viðmiðunar, sem tjáð er í fastri krónutölu. Þótt ætla megi að sú skoðun njóti almenns fylgis, að raungildi lágmarksfjárhæðarinnar haldist nokkurn veginn óbreytt, sýnir reynslan, að fyrir ferst að efna til þeirra breytinga á lögunum að haldið sé í horfinu um kaupmátt hennar. Því er lagt
til, að lágmarksfjárhæðinni, sem verður í lögunum við gildistöku, skuli ráðherra breyta í hátt við lánskjaravísitölu. Nægilegrar nákvæmni þykir gætt, þótt fjárhæðinni sé ekki breytt oftar en einu sinni á ári, og að henni verði því aðeins breytt, að samsöfnuð tilefni til hækkunar nemi a..m..k. 20 af hundraði hverju sinni. Loks þykir nógu nákvæmt að fjárhæð lágmarkshlutafjár standi ávallt á heilu hundraði þúsunda króna.
    Lagt er til, að við gildistöku ákvæðisins um lágmark hlutafjár skuli fjárhæðin nema kr. 400.000. Játa verður, að óhægt er um vik að koma auga á haldbær rök fyrir því, að ein tiltekin fjárhæð verði hiklaust tekin fram yfir aðra.
    Til fróðleiks fer hér á eftir yfirlit um lágmark hlutafjár hlutafélaga í nokkrum nágrannalandanna (miðað við árið 1984) sem hliðsjón er höfð af auk breytinga á lánskjaravísitölu:

             Jafngildi í ísl. krónum
             9. september 1988 um það bil
Danmörk:     A/S DEK 300.000         1.960.000
    Aps. DEK 80.000         520.000
Noregur:     NOK 50.000, óbreytt frá 1976         340.000
Svíþjóð:     SEK 50.000, óbreytt frá 1975         360.000
Finnland:     FIM 15.000, óbreytt frá 1978         160.000
Þýskaland:     AG DEM 100.000         2.510.000
    GmbH DEM 50.000         1.260.000
Bretland:     Public company GBP 50.000         3.940.000
    Private company         ekkert lágmark

    Með breytingartillögunni í b-lið er lögð áhersla á, að orðið hlutafélag sé í heiti félags réttilega skammstafað hf., fremur en h.f. eins og gefið er í skyn í gildandi lögum, og lagt til, að í sviga skuli settar skammstafanirnar h.f. og h/f.

Um 2. gr.


    Í a-lið er gerð tillaga um þá meginbreytingu á lögunum, að til að stofna hlutafélag þurfi tvo eða fleiri aðila í stað þess að krefjast fimm stofnenda eins og gert er í gildandi lögum. Um rökstuðning fyrir þessari tillögu er vísað í almennar athugasemdir.
    Í gildandi lögum eru taldir upp þeir aðilar, sem geta verið stofnendur hlutafélags. Í b-lið greinarinnar er gerð tillaga um, að bætt verði við eftirtöldum aðilum: skráðum félögum með takmarkaðri ábyrgð, öðrum hlutafélögum og samvinnufélögum, sameignarfélögum, auk þeirra, sem eru sjálfstæðir skattþegnar og eru þá hlutgeng sem stofnaðilar, og loks samlagsfélögum. Í frv. til gildandi laga um hlutafélög var gert ráð fyrir, að sameignarfélögum yrði meinað að taka þátt í stofnun hlutafélaga; sameignarfélögum, sem eru sjálfstæðir skattþegnar, var bætt við lista hæfra stofnenda við meðferð málsins á Alþingi. Á þeirri afstöðu, sem tekin var í upphaflegu frv., var gefin sú skýring, að „skipulag og form hérlendra sameignarfélaga er mjög laust í reipum, enda er engin heildarlöggjöf til um þau“. Dregið er í efa, að í reynd skeri sameignarfélög, jafnvel þau, sem ekki eru sjálfstæðir skattþegnar, sig úr um það, sem máli skipti, að þau verði talin miður hæf sem aðilar að stofnun hlutafélags. Hið sama er fullyrt um þá aðra aðila, sem bætt hefur verið við í upptalningu leyfilegra stofnenda. Taka má fram, að nefndinni, sem samið hefur frumvarp þetta, hefur og verið falið að semja frumvarp til laga um sameignarfélög. Í Danmörku þar sem engin sérstök löggjöf er til um sameignarfélög geta þau engu að síður verið stofnendur hlutafélaga. Hið sama gildir um samlagsfélög.
    Með hliðsjón af nýjum sveitarstjórnarlögum, nr. 8 18. apríl 1986, þar sem ákveðið var að fella sýslufélög niður, er ákveðið að sýslufélög geti ekki verið meðal stofnenda hlutafélaga.
    Í c-lið er lagt til, að niður verði fellt ákvæði um að umbjóðandi lögaðila, sem er stofnandi hlutafélags, beri auk umbjóðanda síns ábyrgð svo sem sjálfur væri hann stofnandi. Skilja má þetta lagaákvæði þannig, að umboðsmanni sé lögð sú skylda á herðar að standa skil á hlutafjárloforði umbjóðanda, sem verður gjaldþrota eftir að hann hefur undirritað stofnsamning. Þykir hér lengra gengið en svo, að ákvæðið megi standa. Um ábyrgð umboðsmanns mundu þá framvegis gilda almennar réttarreglur.

Um 3. gr.


    Í greininni er annars vegar gerð tillaga um skýrara orðalag í ljósi þeirrar atburðarrásar, sem um er að ræða, þegar félag, sem til stendur að stofna, skal yfirtaka fyrirtæki í rekstri, og hins vegar lagt til, að löggiltur endurskoðandi fjalli um gögnin, sem fram eru lögð um viðkomandi fyrirtæki, enda getur verið mikið í húfi fyrir stofnendur, að upplýsingar, sem lagðar skulu fyrir stofnfund um þetta efni, séu sem áreiðanlegastar.

Um 4. gr.


    Með tillögunni í a-lið, sem er viðbót við frumvarp nefndarinnar, er gert ráð fyrir því að greina skuli frá heimilisfangi hlutafélags en ekki einungis í hvaða sveitarfélagi það skuli teljast. Eykur þetta gildi þeirra upplýsinga, sem fá má hjá hlutafélagaskrá, sbr. og b-lið 65. gr. frumvarpsins.
    Með tillögunni í b-lið er gert ráð fyrir, að ekki verði lengur heimilt að gefa út handhafahlutabréf. Samkvæmt upplýsingum hlutafélagaskrár munu aðeins örfá félög hafa gefið út hlutabréf, sem hljóða á handhafa. Allt er á huldu um, hvaða ástæður hafa legið að baki útgáfu slíkra hlutabréfa. Samkvæmt gildandi lögum er ekki heimilt að leggja hömlur á heimild manna til viðskipta með slík bréf. Ekki er þó kunnugt um neitt dæmi þess, að hér á landi hafi verið gefin út slík bréf gagngert til þess að auðvelda viðskipti með hlutabréf. Því fer reyndar fjarri, að nauðsynlegt sé eða mikilvægt, að hlutabréf hljóði á handhafa til þess að viðskipti með þau gangi snurðulaust. Í mörgum ríkjum er virkur hlutabréfamarkaður, innan og utan sérstakra verðbréfakaupþinga, þótt útgáfa handhafahlutabréfa sé bönnuð. Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hefur um alllangt skeið verið bannað að gefa út handhafahlutabréf. Í Danmörku er hlutafélögum af gerðinni A/S það heimilt, en Aps. óheimilt. Í Bretlandi er mjög sjaldgæft, að hlutafélög hafi notað rétt, sem þau þó hafa, til að gefa út handhafahlutabréf.
    Ekki verður séð, að handhafahlutabréf hafi neina þá kosti, sem geri eftirsóknarvert, að þau megi gefa út. Hins vegar getur tilvist þeirra torveldað lögskylda upplýsingagjöf til skattyfirvalda. Í bréfi skattstjórans í Reykjavík, dags. 18. sept. 1984, segir þannig um þetta efni: „Skattlagningu sem snertir hlutabréf á einhvern hátt verður ekki haldið uppi, nema öll viðskipti, sem varða eignarhald á slíkum bréfum séu auðrakin“. Þá gera ákvæði hlutafélagalaga um lágmarksfjölda hluthafa að verkum, að stjórn félags verður að fylgjast með eigendaskiptum handhafahlutabréfa jafnt sem nafnskráðra hlutabréfa. Breytingartillögur sem gerðar eru með frv. þessu, um fjölda stjórnarmanna, sbr. 27. gr., og um skýrslugjöf um eignarhluta hluthafa, sbr. 44. gr., taka í sama streng. Af þessum ástæðum hefur þótt rétt að leggja til, að heimild til útgáfu handhafahlutabréfa verði felld niður.
    Með breytingunni, sem lögð er til í c-lið, þ.e. að orðið hagnaður komi í stað orðsins ágóða, er komið á samræmi við orðnotkun í þeim kafla laganna, sem fjallar um ársreikning. Orðið hagnaður er skilgreint í 101. gr. laganna, og þykir ekki fara á milli mála, að með orðinu ágóða í 6. gr. laganna sé átt við hagnað eins og hann er skilgreindur. Aftur á móti er ágóði hvergi skilgreindur í lögunum.

Um 5. gr.


    Í gildandi lögum eru fyrirmæli um, að ekki megi stofna hlutafélag, ef á stofnfundi hefur komið fram, að ekki hafi fengist áskrift fyrir nægilega miklu hlutafé, og skal þá þegar endurgreiða það, sem þegar hefur verið greitt af hlutafé. Lagt er til, að tekin skuli af tvímæli um, að halda megi eftir fé fyrir þeim kostnaði, sem hlotist hefur af tilrauninni til að stofna félagið, en þó því aðeins, að gerður hafi verið um þetta efni fyrirvari í stofnsamningi. Þessi viðbót þykir til þess fallin að hvetja aðila til að huga að því í tæka tíð, hvert framhaldið verði, ef stofnun tekst ekki, með því að semja vandlega um, hvaða kostnaður skuli borinn uppi af inngreiddu hlutafé og hvaða kostnaður ekki.

Um 6. gr.


    Í greininni er fjallað um breytingar á reglum, sem gilda um innborgun hlutafjár, sem aðilar hafa skrifað sig fyrir við stofnun félags. Í gildandi lögum er þess krafist, til að félag fáist skráð, að minnst einn fjórði hluti heildarverðs hluta hafi verið greiddur og þó aldrei minna en helmingur þeirrar fjárhæðar, sem lög ákveða sem lágmark hlutafjár, sbr. 1. gr. laganna. Í frumvarpinu er lagt til, að greiða verði a..m..k. helming heildarverðs hlutanna, til að félag fáist skráð, en þó ekki minna en hið lögákveðna lágmark hlutafjár samkvæmt 1. gr. hinna breyttu laga. Að því er fyrra atriðið varðar, þ.e. hækkunina úr fjórðungi í helming, væri lögunum komið í það horf, sem gert var ráð fyrir í upphaflega frv. til laga, sem lagt var fyrir Alþingi 1976–1977, og komið á sömu skipan og gildir á öllum hinna Norðurlandanna. Um síðara atriðið gefa dönsk lög fordæmi. Hvorki A/S né Aps. fæst skráð, nema inngreitt hlutafé hafi numið a.m.k. hinu lögbundna lágmarki hlutafjár. Tekið skal fram, að í þessu frumvarpi er ekki gert ráð fyrir, að hróflað verði við gildandi ákvæðum um, hvenær hluthafar skuli í síðasta lagi hafa gert fullnaðarskil hlutafjárloforða sinna vegna stofnunar hlutafélags. Um þetta efni, sem um er fjallað í 15. gr. laganna, gera lögin mun vægari kröfur heldur en gert er á hinum Norðurlöndunum.
    Ekki er kunnugt um einhlít rök, sem mæli fyrir um það brot hlutafjár, sem skuli hafa verið inngreitt við skráningu. Á meðan ekki er til að dreifa sérstökum ástæðum, sem benda í aðra átt, þykir ekki stætt á, að hér á landi skuli setja markið lægra en gert er á hinum Norðurlöndunum. Þá þykir mega taka Dani til fyrirmyndar um þá kröfu, að til að félag fáist skráð, skuli inngreiðsla hlutafjár hafa numið a.m.k. hinu lögákveðna lágmarki hlutafjár.
Álitið er, að með þeirri breytingu sé gengið til móts við þá réttmætu hagsmuni viðsemjenda félagsins, að því megi treysta, að inngreidd hafi verið a.m.k. sú fjárhæð, sem öllum megi vera kunnugt um, hver sé.

Um 7. gr.


    Með breytingatillögunni er litið til þess, að nokkur munur geti verið á þeim vöxtum af almennu sparisjóðsinnstæðum, sem innlánsstofnanir greiða. Tekið er af skarið um, að miðað skuli við hæstu vexti, þar sem félagið á heimili, enda þykir vart verða skemmra gengið í vaxtatöku, þar sem um er að ræða vexti af vanskilaskuld.

Um 8. gr.


    Lagt er til, að hluthafar skuli vera tveir hið fæsta í stað fimm eins og verið hefur. Um rök fyrir þessu nýmæli er vísað til almennra athugasemda að framan.
    Í b-lið er sú viðbót við frumvarp nefndarinnar að heimilað er að gefin séu út hlutabréf án atkvæðisréttar, sbr. og d-lið 12. gr. frumvarpsins og 30. gr. þess. Er þetta nýmæli, því að samkvæmt gildandi lögum skal hverjum hlut fylgja atkvæðisréttur. Að vísu er nú heimilt að gefa út hlutabréfaflokka með aðeins 10% atkvæðisrétti á við almenn hlutabréf. Hlutabréf án atkvæðisréttar eru mjög vinsæl víða í viðskiptalöndum okkar, t.d. í Frakklandi, á Ítalíu og í Þýskalandi. Gefa þau hlutafélögum færi á að afla fjár, án þess að slíkt hafi áhrif á atkvæðahlutföll milli gamalla og nýrra eigenda, auk þess sem almenningi gefst kostur á að kaupa slík hlutabréf til ávöxtunar, sem er oft aðalmarkmiðið með kaupum á bréfunum. Þykir rétt að gefa kost á þessum möguleika hérlendis til að örva atvinnulífið og viðskipti með hlutabréf, auk þess sem fyrirtæki þurfa þá síður að leita eftir innlendu eða erlendu lánsfé.

Um 9. gr.


    Breytingin, sem lögð er til, leiðir af lögfestingu ákvæðis um, að einungis megi gefa út hlutabréf til nafngreindra aðila, sbr. 4. gr. þessa frv.

Um 10. gr.


    Í 1. mgr. lagagreinarinnar eru fyrirmæli um, að í samþykktum skuli vera reglur um frest forkaupsréttarhafa til að greiða kaupverð hlutar, og má þessi frestur þó eigi vera lengri en þrír mánuðir frá því, að kaup voru ákveðin. Rétt þykir, að forkaupsréttarhafa sé ekki gert að njóta lakari kjara um
greiðslufrest heldur en þeirra, sem seljandi er fús að veita þriðja aðila. Því er í a-lið lagt til, að liggi fyrir tilboð frá þriðja aðila, sem forkaupsréttarhafi gengur inn í, skuli ákvæði þess tilboðs um greiðsluskilmála gilda.
    Með tillögunni í b-lið er ætlunin, að tekin séu af tvímæli um, að sama regla gildi um hóp hluthafa, sem standa sameiginlega að sölutilboði, og um einn hluthafa, að eigi sé unnt að neyta forkaupsréttar að því, er varðar nokkra þeirra hluta, sem tilboðið tekur til, nema slíkt sé sérstaklega heimilað í samþykktum.
    Í c-lið er lagt til, að niður falli ákvæði í lögunum þess efnis, að hlutafélag skuli bera kostnað, sem hlýst af því, að dómkvaddir matsmenn ákveða kaupverðið, sem forkaupsréttarhafi skal gjalda fyrir hlutabréf. Þykir ekki vera sanngjarnt, að félag skuli undantekningarlaust bera þennan kostnað. Ákvæðið óbreytt stuðlar að því, að aðilar geri óraunhæfar kröfur um verð, seljendur í hærra lagi og kaupendur í lægra lagi, og gæti þetta leitt til ofnotkunar þess úrræðis að vísa málinu til dómkvaddra matsmanna. Þegar ákvæðið væri brott fallið, og samþykktir gengju ekki í aðra átt, mundi sá sem biður um mat þurfa að greiða matskostnað.

Um 11. gr.


    Lagagreinin, sem breytingartillagan varðar, kveður m..a. á um, að félagsstjórn, sem hafi til þess heimild í samþykktum, geti synjað hluthafa um leyfi til að selja hlut sinn, og verður hluthafinn þá að sitja uppi með hlutinn. tla má, að menn, sem hafa eignast hlut í félögum með slíku ákvæði í samþykktum sínum, geri sér ekki fulla grein fyrir, hve illa þeir geti orðið settir. Því er lögð til sú breyting, að félag, sem hefur synjað hluthafa um leyfi til sölu, sé skylt að leysa til sín hlutina, sem um ræðir. Jafnframt er kveðið á um, hvernig verð hluta skuli ákveðið, náist ekki um það samkomulag. Rétt þykir, að félagið beri kostnað af matinu, enda sé litið svo á, að félagið hafi stofnað til þess vanda, sem þurft hefur að leysa.

Um 12. gr.


    Tillagan í a-lið leiðir af þeirri breytingu, að ekki verði lengur heimilt að gefa út hlutabréf til handhafa, sbr. 5. gr. frumvarpsins.
    B-liður og c-liður þarfnast ekki skýringa.
    Í d-lið er breyting á frumvarpi nefndarinnar, sbr. aths. við 8. gr. frumvarpsins. Rétt þykir að gera þá kröfu, að hlutabréf án atkvæðisréttar séu
auðkennd greinilega, í nafni bréfanna eða á annan áberandi hátt, til að girða fyrir það að menn ruglist á þeim og hlutabréfum er njóta fulls eða takmarkaðs atkvæðisréttar.
    E-liður felur í sér það nýmæli, að hlutabréf geti tekið til fleiri en eins hlutar í sama flokki. Að slíku fyrirkomulagi getur orðið margs konar hagræði, t..d. sparnaður í pappír og geymslurými. Til að koma í veg fyrir, að slík samantekt hluta í hlutabréf geti orðið til að torvelda viðskipti með hluti, er lagt til, að hluthafi eigi rétt til að fá slíku hlutabréfi skipt fyrir hlutabréf, sem taki til einstakra hluta.

Um 13. gr.


    Breytingin leiðir af afnámi heimildar til að gefa út handhafahlutabréf.

Um 14. gr.


    Með tveim fyrstu liðum þessarar greinar er gerð tillaga um breytingu á efni og gerð hlutaskrár. Hlutaskrá geymi ávallt a..m..k. tvenns konar yfirlit. Annars vegar er skrá um hluti í númeraröð, þar sem fyrir sérhvern hlut sé tekið fram um nafn eiganda og aðrar upplýsingar um hann, og er þetta yfirlit undirstaða annarra parta hlutaskrár. Hins vegar er svo skrá um hluthafa í stafrófsröð, þar sem tekið sé fram um hlutafjáreign hvers hluthafa. Ef gefin hafa verið út hlutabréf, sem taka til tveggja eða fleiri hluta, skal hlutaskrá í þriðja lagi taka til skrár um slík hlutabréf og veita fyrir hvert hlutabréf upplýsingar um hlutina, sem það nær yfir.
    Þá er í tillögunni gerð sú orðalagsbreyting, að í stað þess að í hlutaskrá skuli tekið fram nafn áskrifanda hlutafjár, skuli skráð nafn eiganda hlutar, enda hefur staða hluthafa sem áskrifanda tímabundið gildi. Ennfremur hefur verið felld niður krafa um, að getið sé stöðu, þ..e. atvinnu, hluthafa.
    C-liður þarfnast ekki skýringar.

Um 15. gr.


    A-liður þarfnast ekki skýringar.
    Með b-lið frumvarpsgreinarinnar er stefnt að því, að eytt verði óvissu um, hvort hlutafélag skuli talið hafa efnt skyldur sínar um greiðslu arðs út á hlutabréf. Þykir réttmætt að telja, að félag hafi lokið arðgreiðslu, ef það greiðir þeim, sem á útborgunardegi er skráður eigandi hlutabréfa í hlutaskrá eða hefur á þeim degi tilkynnt og fært sönnur á eign sína á hlutunum. Í þessu sambandi skal vakin athygli á c-lið 48. gr. frv., þar sem lagt er til að
hluthafafundur, sem tekur ákvörðun um úthlutun arðs, skuli jafnframt ákveða, hver vera skuli gjalddagi arðsins. Aðili, sem eignast hlut í félagi eftir aðalfund, en áður en arður skal greiddur út, ætti að gerðri þessari breytingu að hafa aðgang að þeim upplýsingum, sem geri honum kleift að gæta hagsmuna sinna að því, er varðar arðgreiðslu.

Um 16. gr.


    Í 23. gr. frv. er lagt til, að á 37. gr. laganna verði gerð breyting þess efnis, að hluthafafundur geti veitt stjórn félags heimild til þess að auka hlutaféð með útgáfu jöfnunarhlutabréfa á yfirstandandi reikningsári um fjárhæð, sem nemur allt að tilteknu hámarki. Hér er um að ræða undantekningu frá þeirri almennu reglu, sem ákvæði er um í 1. mgr. 27. gr., þ.e. að hluthafafundur einn geti ákveðið hækkun hlutafjár. Fyrir er í lögunum sú undantekning, sem um er fjallað í 35. gr. Með viðbótinni sem lögð er til, er einungis vísað til þeirrar undantekningar, sem tekin er fyrir í 37. gr.

Um 17. gr.


    Til þess að tryggja sem best, að takast megi að koma út hlutafjárauka, getur þess úrræðis verið neytt að bjóða hina nýju hluti á verði, sem er undir gangverði eða því virði, sem ætlað er, að hugsanlegir kaupendur telji hlutabréfin hafa. Vera má, að hluthafi, sem á áskriftarrétt að hlutafjárauka, geti ekki eða vilji ekki notfæra sér kaupréttinn. Kauprétturinn gæti verið seljanlegur, og tíðkast víða erlendis að verslað sé með áskriftarrétt, jafnvel á skipulegum kaupþingum. Hluthafi gæti að vísu forðað sér frá tapi með því að beita kauprétti sínum og selja svo hin nýkeyptu hlutabréf. Þessi háttur gæti hins vegar valdið bæði meiri fyrirhöfn og útlögðum kostnaði en hinn fyrri. Því þykir rétt að leggja til, að þau hlutafélög, sem ekki leggja hömlur á viðskipti með almenn hlutabréf milli íslenskra aðila, verði að gefa hluthöfum sínum kost á að framselja áskriftarrétt sinn.
    Vissulega getur á það reynt fyrir önnur félög, að áskriftarréttur sé einhvers virði. Seljanda áskriftarréttar gæti þó í þeim tilvikum ekki verið frjálst að velja kaupanda, og við þær aðstæður, sem þessi félög hafa að öðru leyti búið sér, getur heimild til að selja kaupréttinn haft mjög takmarkað gildi.

Um 18. gr.


    Tilgangur 2. málsl. 2. mgr. 29. gr. laganna er óljós, en gæti verið sá að
koma í veg fyrir, að sá sem kaupir hlutabréf velkist í vafa um, hvort áskriftarrétturinn, sem honum er ljóst, að hlutabréfið veitir, hafi verið nýttur. Ef ákvæðið yrði fellt niður, yrði kaupandinn að afla sér fullvissu í þessu efni með því að krefjast þess, að seljandinn legði fram áskriftarvottorð, og yrði útgáfu þess þá getið á hlutabréfinu, enda yrði þá áskriftarrétturinn ekki nýttur, nema því aðeins að áskriftarvottorð yrði afhent félaginu. Þegar haft er í huga, hversu mörg hlutabréf félags geta verið, er ljóst, að ákvæðið óbreytt skyldar til óþarfrar eða lítt þarfrar skriffinnsku.
    Síðasti málsl. 2. mgr. 29. gr., sem einnig er lagt til, að numin verði brott, kveður á um, að skráð skuli á hlutabréf, „ef jöfnunarbréf eru gefin út án þess, að notuð hafi verið áskriftarvottorð (sic)“. tla verður, að umræddri skráningu á hlutabréf sé ætlað að hafa þær verkanir, að eigandi hlutabréfsins einn eigi rétt til að taka við jöfnunarbréfunum, sem um er að ræða. Vel má þó vera, að hluthafi vilji einungis selja hlutabréfið, en ekki jafnframt réttinn, sem það veitir til væntanlegs jöfnunarbréfs. Meginmáli hlýtur þó að skipta, að sá sem kaupir hlutabréf geti verið viss um, hvort hlutabréfið, sem um er að ræða, veiti honum tilkall til jöfnunarhlutabréfs, sem samþykkt hefur verið að gefa út, en hefur þó ekki verið útbúið. Oft líða margir mánuðir milli þessara atburða. Ef seljandi og kaupandi eru ásáttir um, að kaupin skuli taka til bæði hlutabréfsins, sem til er, og réttarins til væntanlegs jöfnunarbréfs, getur kaupandinn fullvissað sig um, að hann hafi fengið það, sem um hefur verið samið, með því að fá afhent vottorð það, sem fjallað er um í 1. mgr. lagagreinarinnar. Þegar ekki reynir á, að viðskipti eigi sér stað með hlutabréf á tímanum, sem líður frá því að útgáfa jöfnunarbréfa er ákveðin, og til þess tíma, að þau eru afhent réttum aðila, verður að telja, að ákvæði síðasta málsl. 2. mgr. sé til þess eins að valda ónauðsynlegri skriffinnsku. Því þykir rétt að leggja til, að ákvæðið verði fellt úr lögunum.

Um 19. gr.


    Þarfnast ekki skýringar.

Um 20. gr.


    Sú viðbót við 32. gr. laganna, sem gerð er tillaga um, er um skyldu félagsstjórnar til að tilkynna hluthöfum á sem tryggilegastan hátt um hlutafjáraukningu, sem ákveðin hefur verið og um allt, sem máli skiptir í sambandi við hana. Nauðsyn ákvæðisins helgast af því, að ekki er víst, að
allir hluthafar hafi verið viðstaddir hluthafafundinn, sem tók ákvörðunina. Viðbótin er sama efnis og 2. mgr. 36. gr. laganna, þar sem fjallað er um kynningu á þeirri ákvörðun stjórnar, að hún hafi notað rétt sinn til hlutafjáraukningar.

Um 21. gr.


    Tillagan er um orðalagsbreytingu. Í málsgreininni, eins og hún er óbreytt, er sagnorðið „skrá“ tvívegis notað um að „fá áskrift fyrir“. Í lögunum er sagnorðið skrá einnig notað um gjörðir embættismanna hlutafélagaskrár, og þykir rétt að bæta úr þessum galla með breytingu á orðalagi.

Um 22. gr.


    Lagagreinin, sem um ræðir, fjallar um ákvæði í samþykktum um heimild stjórnar til að hækka hlutaféð. Samkvæmt gildandi lögum er heimild stjórnar ótímabundin. Fyrir hluthafa, sem vill vera viðbúinn að taka þátt í slíkri hlutafjáraukningu, getur verið bagalegt að vita ekki, hvenær hann eigi von á að mega eða þurfa taka þátt í hlutafjáraukningu. Því er lagt til, og þykir ekki skemmra verða gengið, að í samþykktir skuli þá jafnframt setja ákvæði um, hve langan frest stjórnin hafi til að nota heimildina og að sá frestur megi ekki vera lengri en fimm ár. Hliðstæðar reglur gilda í Noregi og í Danmörku fyrir A/S. Aps. í Danmörku mega ekki auka hlutafé með þessum hætti.

Um 23. gr.


    Með breytingartillögunni í a-lið er gert ráð fyrir, að breyting hafi orðið á 4. mgr. 97. gr. laganna, sem geri að verkum, að endurmatssjóður myndist ekki einungis við verðhækkun eigna, heldur og við mótbókun við gjaldfærslu vegna reiknaðra áhrifa verðlagsbreytinga á peningalegar eignir og skuldir. Með orðalagsbreytingunni, sem gerð er tillaga um, er náð til þessara tvenns konar hátta við myndun endurmatssjóðs.
    Með fyrri breytingunni í b-lið er hluthafafundi leyft að veita stjórn félags heimild til að auka hlutaféð með útgáfu jöfnunarhlutabréfa á yfirstandandi reikningsári að vissu marki, sem tilgreint er í samþykkt hluthafafundar. Þau rök má færa fyrir þessari breytingu, að þegar aðalfundur er haldinn, getur ríkt veruleg óvissa um, hvernig afkoman verði á reikningsárinu. Það er ef til vill ekki fyrr en undir lok reikningsársins, sem ljóst verður, hve miklu verði ráðlegt að úthluta í arð vegna ársins. Þar sem kostir þess að gefa út jöfnunarhlutabréf ráðast mjög af hæfi fyrirtækisins til
að úthluta arði, er talið æskilegt, að hluthafafundur geti veitt stjórn félags nokkurn sveigjanleika við ákvörðun um, hve mikið skuli gefið út af jöfnunarhlutabréfum.
    Síðari breytingin í b-lið stafar af afnámi heimildar til útgáfu handhafahlutabréfa.
    Í c-lið er lagt til, að stjórn félags megi gera á samþykktum þær breytingar, sem leiðir af útgáfu jöfnunarhlutabréfa samkvæmt heimild, sem stjórnin hefur fengið hjá hluthafafundi.

Um 24. gr.


    Tillagan er um orðalagsbreytingu, svo að orðið greiðsla verði ekki notað um athöfn, sem ekki felur í sér greiðslu.

Um 25. gr.


    Í málsgr., sem fjallar um lækkun hlutafjár, sem ráðstafað skal til annars en að jafna tap, eru fyrirmæli um birtingu áskorunar til kröfuhafa félagsins um að tilkynna kröfur sínar og ákvæði um kröfulýsingarfrest. Lagt er til, að birtingar skuli vera tvær í stað þriggja samkv. gildandi lögum og að kröfulýsingarfrestur skuli styttur úr þrem mánuðum í tvo mánuði. Reglur um þessi efni yrðu þar með samræmdar reglum, sem gilda við skipti þrotabúa, sbr. og 56. gr. þessa frv., þar sem gerð er tillaga um sams konar breytingu við innköllun skilanefndar.

Um 26. gr.


    Óvissa þykir hafa ríkt um, hvort hlutafélag megi með kaupum, jafnt sem með öðrum hætti, eignast meira en 10% af eigin hlutafé, enda selji það síðan hlutabréf þannig, að lögmæltu marki sé náð innan þriggja mánaða. Með tillögunni eru tekin af tvímæli í þessu efni með því, að félagi skuli heimilt að eignast með kaupum og eiga um stundarsakir meira en 10% af eigin hlutafé. tla má, að slík kaup geti haft talsvert gildi með því að greiða fyrir vandasömum eigendaskiptum.

Um 27. gr.


    Í a-lið er gerð tillaga um þá róttæku breytingu frá meginreglu laganna um, að í stjórn skuli eiga sæti fæst þrír menn, að nægjanlegt sé, að stjórnina skipi einn eða tveir menn, ef hluthafar eru fjórir eða færri. Um rökstuðning fyrir þessu nýmæli er vísað í almennar athugasemdir. Engin ákvæði eru í
gildandi lögum um skyldu til að velja varamenn. Þykir rétt, ef stjórn er skipuð einum eða tveim mönnum, að mæla þá fyrir um skyldu til að velja a.m.k. einn varamann.
    Í b-lið frumvarpsgreinarinnar er lagt til, að til þess að skylt sé að beita hlutfallskosningu eða margfeldiskosningu við kjör stjórnar, þegar ekki eru í samþykktum fyrirmæli um slíka aðferð við stjórnarkjör, þurfi að koma fram krafa um það frá hluthöfum, sem ráða yfir minnst 1 / 5 hlutafjárins, í stað 1 / 4 eins og er samkvæmt gildandi lögum. Í hlutafélögum, þar sem stjórn er skipuð þrem mönnum og atkvæðagildi hluta er í réttu hlutfalli við fjárhæð þeirra, geta þeir, sem ráða yfir liðlega 1 / 4 hlutafjár komið manni að í stjórn, ef farið er með atkvæði fyrir alla hlutina á hluthafafundi. Til þess að koma að einum manni í fimm manna stjórn þarf hluthafahópurinn að ráða yfir rúmlega 16 2 / 3 hlutafjárins. Með breytingunni, sem gerð er tillaga um, er stefnt að fyllra samræmi á milli kröfunnar um lágmark hlutareignar þeirra, sem krefjast hinnar sérstöku aðferðar við kosningu, og þess atkvæðafjölda, sem þeir þurfa að geta ráðstafað á hluthafafundi til þess að koma að manni í fimm manna stjórn.

Um 28. gr.


    Í 49. gr. gildandi laga er ákvæði um, að í félögum, þar sem hlutafé er a.m.k. kr. 300.000, skuli stjórn ráða einn eða fleiri framkvæmdastjóra. Við sama mark hlutafjár er miðað í ákvæði í sömu grein, sem kveður á um heimild framkvæmdastjóra til setu í stjórn. Umgetin fjárhæð hlutafjár er fimmtánfalt hærri en sú lágmarksfjárhæð hlutafjár, sem þarf til að hlutafélag verði stofnað.
    Í frumvarpinu er lagt til, að þessu hlutfalli verði haldið óbreyttu, en meginmáli skiptir, að fjárhæðin, sem fimmtánfölduð er, breytist í hátt við lánskjaravísitölu, sbr. 1. gr. frumvarpsins og skýringar við hana. tla verður, að við setningu laganna hafi megináhersla verið lögð á umrætt hlutfall, og hefur við umfjöllun nefndarinnar ekki verið komið auga á neinar gildar ástæður til að víkja frá tölugildi hlutfallsins. Í a-lið eru sett fram hin breyttu ákvæði um skyldu félags til að ráða framkvæmdastjóra og í b-lið um heimild framkvæmdastjóra til að sitja í stjórn.

Um 29. gr.


    Greinin hefur að geyma tillögu um tvær breytingar. Hin fyrri er um það, hverjir skuli kjósa formann félagsstjórnar. Í gildandi lögum segir, að
félagsstjórn skuli kjósa sér formann. Á hinum Norðurlöndunum er heimilt að ákveða í samþykktum, að hluthafafundur kjósi formann sérstaklega. Hér er lagt til, að íslenskum lögum verði komið í sama horf. Sú skipan, að hluthafafundur kjósi formann sérstaklega, fremur en að stjórnin kjósi hann, felur í sér aukningu á valdsviði hluthafafundar um efni, sem ekki er ástæða til að ætla, að hluthafar séu síður færir um að ráða til lykta en stjórnin. Þær aðstæður eru hugsanlegar, þar sem annar háttur væri fráleitur, t.d. þegar einn aðili á yfirgnæfandi meirihluta hlutafjár, og þeir sem með honum sitja í stjórn, eru þangað komnir að tilhlutan hans. Til að taka af tvímæli um, hvort túlka megi lögin svo, að ekkert sé því til fyrirstöðu, að hluthafafundur kjósi formann sérstaklega, er lagt til, að ákvæði þess efnis standi skýrum stöfum í lögunum.
    Síðari breytingartillagan er um viðmiðun, sem höfð skuli um það, hvort kjósa megi framkvæmdastjóra félags sem formann í stjórn sama félags. Samkvæmt gildandi lögum ræður úrslitum, hvort hlutaféð nær því að vera kr. 300.000, þ.e. fimmtánföld sú fjárhæð, sem þarf til að stofna megi félag. Lagt er til, að hlutfallinu verði haldið óbreyttu á þann hátt, sem gerð er grein fyrir í skýringum við 28. gr. frumvarpsins.

Um 30. gr.


    Hér er um að ræða breytingu á frumvarpi nefndarinnar, sem samdi frumvarp þetta, sbr. athugasemd við 8. gr. frumvarpsins varðandi hluti án atkvæðisréttar.

Um 31. gr.


    Í 93. gr. gildandi laga er ársreikningur skilgreindur sem svo, að hann hafi að geyma ársskýrslu, rekstrarreikning og efnahagsreikning. Í 39. gr. þessa frv. er lagt til, að sú breyting verði gerð á þessari skilgreiningu, að ársreikningur skuli taka til rekstrarreiknings, efnahagsreiknings og skýringa. Skýringarnar, sem um er að ræða og nánar er gerð grein fyrir í 102. gr. laganna, eru til fyllingar rekstrar- og efnahagsreikningi, og mynda þessir þrír hlutar í rauninni eina órjúfanlega heild. Rétt þykir, að sú fjárhagsskýrsla, sem aðalfundur skal taka afstöðu til, sé ársreikningurinn í heild eins og hann er skilgreindur samkvæmt frumvarpinu.

Um 32. gr.


    Tillagan í a-lið leiðir af þeirri tillögu í þessu frv., að afnumin skuli heimild til að gefa út hlutabréf, sem hljóða á handhafa.
    Sú breyting, sem gerð er tillaga um í b-lið, stafar af þeirri breytingu, sem um er fjallað í 38. gr. frv., að ársskýrsla, þ.e. ársskýrsla stjórnar, skuli framvegis ekki vera talin hluti ársreiknings.

Um 33. gr.


    Hér er gengið nokkru lengra en nefnd sú, er samdi frumvarp þetta, lagði til. Er ekki látið nægja, að mál, sem ekki hafa verið greind í dagskrá, sé hægt að taka til úrlausnar á hluthafafundi með samþykki allra mættra hluthafa heldur er krafist að hinir atkvæðisbæru fundarmenn, sem samþykki veita, fari jafnframt með minnst 3 / 4 hluta atkvæða í félaginu. Er þá m..a. höfð hliðsjón af athugasemdum lögmanna um þetta atriði.
    Í gildandi lögum er þess krafist, að til þess að mál, sem ekki hefur verið greint í dagskrá, verði tekið til úrlausnar á hluthafafundi, þurfi samþykki 2 / 3 hluta mættra hluthafa. Úrslit máls, sem með þessum hætti er tekið til meðferðar á hluthafafundi, geta verið þess eðlis, að hafi hluthafi vitað, að málið yrði tekið fyrir, mundi hann hafa mætt á fundinum. Þykir ekki skemmra verða gengið en að áskilja, að samþykki skv. ofansögðu komi til. Tillaga þessi gengur ekki eins langt og gert var með frumvarpinu 1976–1977, þar sem lagt var til, að samþykki allra hluthafa þyrfti að koma til, þ.e. bæði mættra og hinna, sem eru fjarverandi. Sú tillaga var hins vegar samhljóða ákvæðunum um sama efni í lögum allra hinna Norðurlandanna.

Um 34. gr.


    Í 1. málsl. 76. gr. laganna eru taldar upp þær breytingar á félagssamþykktum, sem heimilt er að gera án þess að ákvörðunin sé tekin á hluthafafundi. Lagt er til, að við sé bætt þeirri breytingu á samþykktum, sem leiðir af útgáfu jöfnunarhlutabréfa, sem stjórn ákveður að fenginni heimild hluthafafundar, sbr. c-lið 23. gr. frumvarpsins.

Um 35. gr.


    Í grein þessari er lagt til, að lágmarkstala kjörinna endurskoðenda lækki úr tveim í einn. skilegt verður að telja, að sá eða þeir, sem annast um endurskoðun ársreiknings, hafi öðlast þá þekkingu og þjálfun, sem löggiltir endurskoðendur hafa til að bera. Eins og fram kemur í næstu grein frv., hefur þó ekki verið talið fært að ganga lengra í kröfum um afskipti löggiltra endurskoðenda af ársreikningum hlutafélaga heldur en ætlunin var að gera, þegar lögin tóku gildi. Mörg hlutafélög, sem ekki er skylt að kjósa löggiltan
endurskoðanda til að endurskoða ársreikning sinn, munu engu að síður kaupa þjónustu þeirra. Tillagan, sem gerð er í þessari grein, byggir á þeirri skoðun, að félag sem ekki ræður löggiltan endurskoðanda, þurfi ekki að vera betur sett, þótt fengnir séu til verksins tveir ófaglærðir endurskoðendur frekar en einn.

Um 36. gr.


    Í 82. gr. laganna er kveðið á um það, hvenær skylt sé, að a.m.k. einn endurskoðandi, sem kosinn er á aðalfundi, sé löggiltur endurskoðandi. Tekið er mið af vissum krónutölum fjármagns, þ.e. annars vegar hlutafjár og hins vegar samtölu skulda og bundins eigin fjár, auk viðmiðunar við fjölda starfsmanna. Vegna þeirrar rýrnunar, sem orðið hefur á verðgildi peninga síðan lögin voru sett, má ætla, að þeim félögum hafi stórum fjölgað, sem skylt er að kjósa löggiltan endurskoðanda. Með a-lið frumvarpsgreinarinnar er lagt til, að þessum málum verði komið í svipað horf eins og var, þegar lögin voru sett. Auk þess er lagt til, að viðmiðunarfjárhæðirnar verði tiltekið margfeldi af lágmarki hlutafjár, samkv. 1. gr. laganna breyttra, sem skal breytt í hátt við breytingar á verðlagi. Þetta ákvæði stuðlar að því að staða félags að því, er varðar kröfu um kosningu löggilts endurskoðanda, verði ekki fyrir áhrifum af þeirri þróun, sem verður í verðlagsmálum.
    Í b-lið er gerð tillaga um breytingu á 2. málsgr. 82. gr., sem fjallar um endurskoðun ársreikninga félaga, sem enn hafa ekki komið fram á sjónarsviðið, þ.e. félaga, þar sem hlutabréf eru háð opinberri verðskráningu. Tillagan um, að í félögum, þar sem engar hömlur eru lagðar á viðskipti með hlutabréf, skuli kosinn a.m.k. einn löggiltur endurskoðandi, þykir vera grundvölluð á svipaðri hugsun og ákvæðið, sem leyst er af hólmi, þ.e. að félög, sem ætla má, að geti sóst eftir hlutafjárframlögum frá almenningi, skuli sæta svo tryggu eftirliti um gerð ársreikninga, sem kostur er á.

Um 37. gr.


    Sú viðbót, sem gerð er tillaga um, er afleiðing þess að annars staðar í frv., þ.e. í 39. gr., er gerð tillaga um, að ársskýrsla stjórnar skuli ekki vera talin hluti ársreiknings. Réttmæti viðbótarinnar helgast af því, að í ársskýrslu hljóta ávallt að vera upplýsingar, sem endurskoðandi er fær um að sannreyna, og að sjálfsagt þykir að endurskoðandi taki afstöðu til þeirra upplýsinga.

Um 38. gr.


    Tillagan um breytt kaflaheiti stafar af breytingu á skilgreiningu ársreiknings, sem gerð er tillaga um í 39. gr. þessa frv. Vísað er til þeirrar gr. um nánari skýringar.

Um 39. gr.


    Í a-lið frumvarpsgreinarinnar er lagt til, að skilgreiningu á ársreikningi verði breytt á þann veg, að hann taki til rekstrarreiknings, efnahagsreiknings og skýringa, í stað þess, eins og segir í gildandi ákvæði, að ársreikningur hafi að geyma ársskýrslu, rekstrarreikning og efnahagsreikning. Í reikningsskilum er litið á rekstrarreikning, efnahagsreikning og skýringar sem eina órofa heild. Skýringarnar varða rekstrar- og efnahagsreikning og skal í skýringum beinlínis vísað til þeirra liða rekstrar- og efnahagsreiknings, sem um er að ræða. Ársskýrslan, sem um er fjallað í gildandi lögum, er sérstök skýrsla stjórnar, og þykir rétt, að hún sé auðkennd á þann hátt, sem gerð er tillaga um í b-lið. Meginástæða þess, að ekki þykir við hæfi að telja ársskýrsluna vera hluta ársreiknings, er sú, að skýrslan getur haft að geyma ýmsan fróðleik, sem ekki er á færi endurskoðanda að taka afstöðu til, svo sem spár um þróun markaða og sölu. Ekki þykir stætt á, að ársskýrsla stjórnar sé höfð hluti þess ársreiknings, sem öll ákvæði laganna um endurskoðun skuli taka til. Engu að síður er gert ráð fyrir, að endurskoðandi taki afstöðu til allra þeirra atriða í ársskýrslu stjórnar, sem hann er fær að fjalla um, sbr. 37. gr. frv. Þess er að vænta, að engin breyting verði á þeirri venju, sem myndast hefur, að ársskýrslu stjórnar sé komið fyrir í hefti með hinum eiginlega ársreikningi. Slík hefti eru gjarnan auðkennd sem ársskýrsla viðkomandi fyrirtækis, og mun svo væntanlega verða framvegis.
    Í c-lið frumvarpsgreinarinnar er lagt til, að frestur, sem félag hafi til að leggja ársreikning fyrir endurskoðanda, verði styttur úr einum og hálfum mánuði í einn mánuð fyrir aðalfund. Lágmarksfresturinn samkv. gildandi lögum þykir vera óþarflega langur, m..a. í ljósi þess, að löggiltir endurskoðendur leitast við að ljúka sem mestu af endurskoðunarvinnunni, áður en ársreikningurinn sjálfur verður til. Að gerðri umræddri breytingu yrði fresturinn hinn sami og í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.

Um 40. gr.


    Sú breyting, sem um er að ræða, stafar af þeirri breytingu, sem um er fjallað í 39. gr. frv., þ.e. að skýringar á einstökum liðum rekstrar- og efnahagsreiknings skuli taldar vera óaðskiljanlegur hluti ársreikningsins.

Um 41. gr.


    Í gildandi lögum eru ákvæði um heimild til að hækka bókfært verð fastafjármuna við nánar tilgreindar aðstæður. Að því leyti, sem þeirri fjárhæð, sem hækkuninni nemur, er ekki samtímis ráðstafað til nauðsynlegrar niðurfærslu á öðrum fastafjármunum eða til hækkunar á hlutafé, skal fjárhæðin lögð í sérstakan sjóð, endurmatssjóð, sem nota má síðar í sama skyni. Á síðustu árum hefur orðið veruleg breyting á reikningsskilum fyrirtækja hér á landi, sem byggjast á ákvæði XI til bráðabirgða í lögum um tekjuskatt og eignarskatt nr. 75/1981. Á grundvelli þessarar lagaheimildar eru í reikning, sem venjulega er nefndur endurmatsreikningur, gerðar þær færslur, sem varða endurmatssjóð samkv. lögum um hlutafélög, en að auki eru í þennan reikning gerðar mótfærslur við tekju- og gjaldfærslu vegna verðlagsbreytinga. Með a-lið frumvarpsins er lagt til, að komið verði fyrir í lögum um hlutafélög ákvæði, sem lögfestir þessa skipan mála. Að auki er lagt til að heimilt verði bæði að ráðstafa endurmatssjóði til hækkunar á lögbundnum varasjóði, þ.e. þeim varasjóði, sem um er fjallað í XIII. kafla laganna, og til að verðbæta frjálst eigið fé. Í XIII. kafla laganna er ákvæði um skyldu hlutafélags til að leggja í varasjóð hluta af hagnaði, þangað til varasjóðurinn hefur náð því að nema einum fjórða hluta hlutafjárins. Þótt þessu marki hafi einhverju sinni verið náð, getur hlutfallið milli varasjóðsins og hlutafjár raskast í verðbólgu við það, að hlutafé sé aukið með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Réttmætt þykir, að hlutafélagi sé heimilt að verðbæta tillög, sem það hefur gert í lögbundinn varasjóð með færslu úr endurmatssjóði. Með þeim hætti yrði félag firrt þeirri skyldu að ráðstafa ávallt vissum hundraðshluta hagnaðar í varasjóð, nái hann ekki tilskyldu marki.
    Frjálst eigið fé verður fyrst og fremst til við það, að hagnaði er haldið eftir í félaginu í stað þess, að honum sé úthlutað í arð á árinu, sem hann myndast. Við verðbólgu rýrnar kaupmáttur þeirrar fjárhæðar, sem þannig er geymd. Telja verður sanngjarnt, að raungildi fjárhæðar, sem fyrirtæki er heimilt að úthluta í arð, rýrni ekki fyrir það, að úthlutun hafi verið frestað. Að öðrum kosti gætu forráðamenn fyrirtækis hneigst til þess að úthluta hagnaði fyrr heldur en hagkvæmt þætti með hliðsjón af öðrum hagsmunum félagsins. Þess vegna er lagt til, að heimilt verði að verðbæta frjálst eigið fé í samræmi við verðlagsþróun með færslu úr endurmatssjóði.
    Loks er gert ráð fyrir, að ráðstafa megi endurmatssjóði til að verðbæta tillög í skattalega sjóði eða aðrar hliðstæðar ráðstafanir. Fjárfestingarsjóður er dæmi um slíkan skattalegan sjóð, sbr. 10. gr. laga nr. 8/1984 um breytingu á lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt.
    B-liður þarfnast ekki skýringar.
    Með tillögunni í c-lið er orðið við ábendingum frá Félagi löggiltra endurskoðenda og formanni nefndarinnar er frumvarp þetta hefur samið. Ábendingin er fram komin eftir að nefndin hafði skilað frumvarpinu til ráðuneytisins. Með ákvæðinu er upphaf gildistíma umræddra heimilda samræmt gildistöku þeirra ákvæða laga um tekju- og eignarskatt, sem lögðu grundvöll að myndun endurmatssjóða.

Um 42. gr.


    Í 101. gr. laganna eru ákvæði um gerð rekstrarreiknings. Í frumvarpsgreininni eru gerðar tillögur annars vegar um lagfæringu á orðalagi og hins vegar um aðlögun lagagreinarinnar að þeim breytingum, sem orðið hafa á gerð reikningsskila hér á landi á síðustu árum. Í flokk síðarnefndu breytinganna falla b-liður og d-liður, þar sem lagt er til, að meðal þeirra liða, sem skuli sérgreindir, séu tekjufærsla eða, eftir atvikum, gjaldfærsla vegna áhrifa verðlagsbreytinga á peningalegar eignir og skuldir.
    Með tillögunni í a-lið er viðkomandi ákvæði komið í það horf, sem ætla verður, að lýsi betur þeirri meginhugsun, sem liggur að baki ákvæðinu, þ..e. að tekjur af aðalstarfsemi skuli sérgreindar. Það þykir ekki vera við hæfi að nefna í sömu andrá heildartekjur og gjöld, nema því aðeins að með tekjum af aðalstarfsemi væri átt við þá reikningsstærð, sem nefnd hefur verið „brúttóhagnaður“, en telja verður, að svo sé ekki.
    Með orðalaginu „aðrar óreglulegar tekjur“ í 6. tl. 3. mgr. er gefið í skyn, að þær tekjur, sem upp eru taldar í 5. tl., séu líka óreglulegar tekjur. Þar sem svo þarf ekki að vera, er lagt til í c-lið, að orðið „aðrar“ verði fellt niður. Svipað tilefni er til breytingartillögunnar í e-lið. Með f-lið greinarinnar er lagt til, að niður verði felldur 1. málsl. 5. mgr. af þeirri ástæðu, að þar er tekið á tæknilegu efni, sem óþarft þykir, að tekið sé fyrir í lögunum, enda er um að ræða efni, sem um gilda almennt viðurkenndar reikningsskilareglur.

Um 43. gr.


    Í a-lið er tillaga um orðalagsbreytingu, sem stafar af þeirri breytingu á stöðu skýringa gagnvart ársreikningi, sem um er fjallað í 39. gr. þessa frv.
    Eins og vikið er að í skýringum við 42. gr. getur í rekstrarreikningi komið fyrir liðurinn tekjufærsla eða gjaldfærsla vegna verðlagsbreytinga. Liður þessi getur haft úrslitaáhrif á þá niðurstöðu um afkomu, sem
rekstrarreikningur sýnir. Sú hefur orðið raunin, að fyrirtæki beita ekki öll sömu aðferð við útreikning þessarar verðbreytingafærslu. Þykir því vera brýnt, að þess verði krafist, að í ársreikningi sé gerð grein fyrir þeirri aðferð, sem beitt hefur verið. Um það er gerð tillaga í b-lið.

Um 44. gr.


    Tillögunni í a-lið veldur annars vegar sú tillaga, sem orðuð er í 39. gr., að ársskýrsla stjórnar skuli auðkennd sem slík, og hins vegar sú tillaga í sömu gr., að ársskýrslan verði ekki talin vera hluti ársreiknings. Þar sem ársskýrslu stjórnar skal leggja fyrir aðalfund, eins og verið hefur, er nauðsynlegt að taka það sérstaklega fram um hana, á sama hátt og tekið er fram um ársreikning, að hann skuli lagður fyrir aðalfund til staðfestingar, sbr. 67. gr. laganna og 31. gr. þessa frv.
    Í b-lið er lagt til, að í ársskýrslu stjórnar skuli gefnar upplýsingar um fjölda hluthafa í lok reikningsárs. Sú nauðsyn ber til, að hlutafélagaskrá þarf að geta fylgst með fjölda hluthafa vegna ákvæða laganna um réttindi og skyldur, sem tengjast fjölda hluthafa. Er þar annars vegar um að ræða ákvæði um fjölda stjórnarmanna, sbr. 27. gr. frv., og ákvæði laganna um afleiðingar þess, að fjöldi hluthafa fari niður fyrir hið lögmæta lágmark. Þá er ennfremur lagt til, að gefnar skuli í ársskýrslu upplýsingar um hlutareign og, eftir atvikum, atkvæðahlutdeild þeirra hluthafa, sem eiga tiltölulega stóra hluti í félaginu. Ástæða tillögu um þetta nýmæli er sú, að ætla má, að vitneskja um eignaraðild að hlutafélagi geti skipt verulegu máli um áhuga aðila til að eiga eða eignast hluti í félaginu.

Um 45. gr.


    Látið skal nægja að vísa til a-liðar 39. gr. frv. og skýringa við hann.

Um 46. gr.


    Þær breytingar, sem gerð er tillaga um, varða einungis orðalag. Í lagagreininni, sem um er að ræða, er orðið árságóði notað um niðurstöðu rekstrarreiknings um afkomu. Aftur á móti er í kaflanum um ársreikning notað orðið hagnaður um jákvæðan mismun tekna og gjalda. Þykir betur fara á, að notað sé eitt og sama heiti í lögunum um þetta hugtak. Þar sem allir skattar vegna rekstrarársins eru í 101. gr. laganna taldir meðal gjalda í rekstrarreikningi, eins og vera ber samkvæmt viðurkenndum reikningsskilavenjum, er ekki við hæfi að nefna áætlaða skatta sem
frádráttarlið í 1. mgr. 107. gr., eftir að orðið hagnaður hefur verið sett í stað ágóða.

Um 47. gr.


    Þessi grein þarfnast ekki annarrar skýringar en þeirrar, sem gefin er í athugasemdum um 46. gr.

Um 48. gr.


    Tillagan í a-lið er um orðalagsbreytingu. Með því að þegar er í 103. gr. ákvæði um, að stjórn félags skuli í ársskýrslu gera tillögu um ráðstöfun á hagnaði eða jöfnun taps, og þegar litið er til þess, að samkv. 107. gr. laganna er heimilt, við nánar tilgreindar aðstæður, að úthluta í arð meiru heldur en hagnaði viðkomandi reikningsárs, þykir ekki vera efni til þess að binda ákvörðun hluthafafundar um úthlutun arðs skilyrði á þann hátt, sem gert er í 1. mgr. 109. gr. Meginefni málsliðarins stæði óhaggað: að það sé hluthafafundur einn, sem tekur ákvörðun um úthlutun arðs og að stjórn félags skuli hafa lagt fram tillögu um, hve hárri fjárhæð skuli úthlutað í arð. Í ársskýrslu stjórnar hljóta að koma skýrt fram tengslin á milli arðsins, sem lagt er til, að greiddur verði, og rekstrarafkomu ársins.
    Í 2. mgr. 109. gr. laganna er ákvæði um minnihlutavernd, sem þykir ganga óhóflega langt. Ákvæði þetta stingur mjög í stúf við ákvæði laganna um, að ekki megi úthluta meiri arði en félagsstjórn leggi til eða samþykki. Hinn tiltekni minnihluti getur krafist þess, að „fjárhæð, sem minnst svarar til helmings“ ráðstafanlegs hagnaðar á rekstrarárinu verði úthlutað í arð. Eftir orðanna hljóðan virðist kveðið á um, að arðskrafan verði að nema að minnsta kosti helmingi ráðstafanlegs hagnaðar, en þó ekki hærri fjárhæð heldur en öllum ráðstafanlegum hagnaði. Óeðlilegt þykir, að lítill minnihluti geti á þennan hátt gert slíkan usla í fjármálum fyrirtækis. Ákvörðun um arðsúthlutun er í flokki mikilvægustu ákvarðana, sem teknar eru í hlutafélagi. Náið samhengi er gjarnan á milli afkomu og fyrirætlana um fjáröflun til fjárfestinga í rekstrarfjármunum. Óvænt ákvörðun um arð, sem knúin er fram á þann hátt, sem lýst er í lagagreininni, getur kippt grundvellinum undan heilbrigðri fjármálastjórnun. Af þessum ástæðum er í b-lið lagt til, að réttur minnihluta í þessu efni verði þrengdur verulega. Lagt er til, að hámark þess, sem hinn tiltekni minnihluti geti krafist, að úthlutað sé í arð, verði fjórðungur af ráðstafanlegum hagnaði rekstrarársins og jafnframt, að ekki verði unnt að krefjast þess, að meiru sé úthlutað en sem svarar tveim
hundruðustu af eigin fé, í stað fimm hundruðustu eins og kveðið er á um í gildandi lögum. Vert er að vekja athygli á, að hundraðshlutinn er reiknaður af öllu eigin fé, en ekki aðeins af hlutafé.
    Í c-lið er lagt til, að hluthafafundur, sem tekur ákvörðun um úthlutun arðs, skuli jafnframt ákveða, hver skuli vera gjalddagi hans. Það getur varðað hluthafa miklu að vita, hvenær hann megi eiga von á þeim arði, sem þeir leggja til, að úthlutað verði. Gert er ráð fyrir, að tillaga stjórnar um arð taki þá jafnframt til gjalddaga arðsins.

Um 49. gr.


    Hér er um nauðsynlega breytingu að ræða vegna mismunandi vaxta af almennum sparisjóðsbókum, sbr. athugasemd við 7. gr. frumvarpsins.

Um XIV. kafla.


    Með ákvæðum þessa kafla frumvarpsins eru gerðar tillögur um umtalsverðar breytingar frá reglum XIV. kafla laganna um slit hlutafélaga. Felast breytingar þessar einkum í tvennu. Eru annars vegar sett fyllri skilyrði fyrir heimild til löggildingar skilanefndar til slita á félagi. Er meginskilyrði slíks samkvæmt frumvarpinu að fyrir liggi að eignir félags hrökkvi fyrir skuldum þess, en slíkt skilyrði er ekki í núgildandi lögum og getur það leitt til misnotkunar. Hins vegar er í kafla þessum að finna verklagsreglur um hvernig skuli staðið að slitum hlutafélaga, en lítið er af slíkum reglum í núgildandi lögum. Reglum þessum er einkum ætlað að eyða óvissu um þessi efni og ráða bót á verulegum seinagangi, sem að nokkru hefur einkennt framkvæmd slita hlutafélaga. Einstakar efnisreglur um heimildir til að krefjast slita hlutafélags eru að öðru leyti samsvarandi núgildandi lögum, eins og nánar er vikið að í eftirfarandi athugasemdum við einstakar greinar.

Um 50. gr.


    Ákvæði þetta samsvarar 113. gr. núgildandi laga.

Um 51. gr.


    Fyrri málsgrein þessa ákvæðis er sama efnis og 115. gr. núgildandi laga. Í seinni málsgrein felast hins vegar nýmæli, sem þykja ekki þarfnast sérstakra skýringa.

Um 52. gr.


    Ákvæði þetta samsvarar að mestu 114. gr. núgildandi laga, en efnisskipan er nokkuð breytt. Í 5. tl. 1. mgr. er þó að finna ákvæði, sem ekki á sér hliðstæðu í núgildandi lögum, en þar er mælt fyrir um afleiðingar þess að ráðherra synji um eða felli úr gildi löggildingu skilanefndar samkvæmt 4.–6. mgr. 55. gr. frumvarpsins. Nokkrar smábreytingar hafa verið gerðar á eldri útgáfu frumvarpsins.

Um 53. gr.


    Í núgildandi lögum er engin fyrirmæli að finna um það, eftir hverjum reglum fara eigi, er skiptaráðandi annast um slit hlutafélags samkvæmt 3. mgr. 114. gr. þeirra. Er með ákvæði þessu ætlað að ráða bót þar á, og farin sú leið að láta meðferð lúta meginákvæðum gjaldþrotalaga nr. 6/1978.
    Samkvæmt 1. mgr. ber skiptaráðanda að framkominni kröfu samkvæmt 1. eða 2. mgr. 52. gr. frumvarpsins að boða fyrirsvarsmann félags og þann, er slita krefst, til þinghalds vegna framkominnar kröfu, og gilda ákvæði gjaldþrotalaga um það, hver áhrif þess séu að þingsókn falli niður af hálfu annars hvors aðilja. Ástæðulaust þykir að mæla sérstaklega fyrir um frestsveitingu til félags til að koma málum í rétt horf, eins og gert er í niðurlagi 114. gr. núgildandi laga, enda eru slíkir frestir jafnan veittir við meðferð gjaldþrotabeiðna, er rök þykja fyrir þeim.
    Í 2. mgr. er mælt fyrir um að skiptaráðandi taki afstöðu til þess með úrskurði, hvort orðið skuli við kröfu um slit á félagi, og ef svo er gert, að gefin verði út innköllun til lánardrottna, þar sem tekið sé fram að verið sé að slíta félaginu samkvæmt ákvæðum þessum.
    Í 3. mgr. er vísað til tiltekinna greina og kafla gjaldþrotalaga um hvernig hagað skuli meðferð. Er VIII. kafli þeirra laga ekki meðal ívitnaðra ákvæða, en hann fjallar um riftun ráðstafana þrotamanns. Eigi þau ákvæði ekki við, er slitið er gjaldfæru félagi. Í 4. mgr. er að finna reglu um að ef ljóst verður að eignir félags, sem til slita er hjá skiptaráðanda, hrökkvi ekki til greiðslu skulda, megi skiptaráðandi samkvæmt kröfu lánardrottins kveða svo á í úrskurði að bú félagsins sé tekið til gjaldþrotaskipta. Ef svo er gert, kæmu þau ákvæði gjaldþrotalaga, sem ekki er vísað til í 3. mgr., til framkvæmda við skipti á búi félagsins.

Um 54. gr.


    Í ákvæði þessu er að finna meginskilyrði frumvarpsins fyrir skilanefndarmeðferð, og mælt fyrir um aðdraganda að kosningu skilanefndar. Ákvörðun um félagsslit með þessum hætti þarf atbeina sama hlutfalls hluthafa og mælt er fyrir um í 2. mgr. 114. gr. núgildandi laga. Að öðru leyti er í ákvæði þessu mælt fyrir um það meginskilyrði skilanefndarmeðferðar, að áður en til löggildingar skilanefndar kemur, hafi verið staðreynt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum sé tvímælalaust að eignir félagsins eigi að hrökkva fyrir skuldum þess. Ef gjaldfærni félags er ekki tvímælalaus, og hluthafafundur fellur ekki frá fyrirætlan um slit félagsins, ber samkvæmt niðurlagi 2. mgr. að fela skiptaráðanda að annast um félagsslitin að hætti 3. mgr. 52. gr. frumvarpsins.

Um 55. gr.


    Í 1. mgr. er mælt fyrir um fjölda skilanefndarmanna og tryggður réttur minnihluta hluthafa til að ráða vali a.m.k. eins þeirra, sbr. 2. mgr. 116. gr. núgildandi laga.
    2. mgr. á sér ekki hliðstæðu í gildandi lögum, en þykir eðlilegt skilyrði, er litið er til viðfangsefnis skilanefndar.
    Ákvæði 3. mgr. eru hliðstæð 2. mgr. 116. gr. núgildandi laga.
    Í 4.–6. mgr. er að finna reglur, sem tryggja eiga eftirlit ráðherra með framvindu meðferðar skilanefndar í ríkara mæli en nú er.
    Í 7. mgr. eru fyrirmæli um bótaábyrgð skilanefndarmanna gagnvart hluthöfum í félagi og lánardrottnum þess, og er ábyrgð þessi víðtækari en berum orðum er mælt fyrir um í 120. gr. núgildandi laga.

Um 56. gr.


    Fyrirmæli 1. mgr. um fjölda birtinga innköllunar skilanefndar og kröfulýsingarfrests fela í sér breytingar frá 118. gr. núgildandi laga til samræmis við tilhögun þessara mála við skipti þrotabúa. Í 2. mgr. felast þau nýmæli, að í innköllun eigi skilanefnd jafnframt að boða til fundar með lánardrottnum og hluthöfum þegar eftir lok kröfulýsingarfrests til umfjöllunar um lýstar kröfur, eins og skylt er við meðferð þrotabúa. Ákvæðum þessum báðum er ætlað að leiða til hraðari meðferðar skilanefndar.
    Í 3. mgr. felst ekki breyting frá gildandi rétti, en æskilegt þykir að lögfesta ákvæði þessa efnis til að girða fyrir tvímæli.
    Reglum þeirra kafla gjaldþrotalaga, sem vísað er til í 4. mgr., verður
vart beitt við slit hlutafélaga að gildandi lögum, þótt þær eigi eðli máls samkvæmt við í þeim efnum. Þykir því rétt að lögfesta heimild til notkunar þeirra.

Um 57. gr.


    Ákvæði fjögurra fyrstu málsgreina þessarar greinar eiga sér ekki hliðstæðu í núgildandi lögum, og er þeim ætlað að eyða óvissu um starfshætti skilanefnda, og jafnframt að tryggja lánardrottnum félags og hluthöfum að óþarfa dráttur verði ekki á starfi skilanefndar. Reglur þessar eru hliðstæðar reglum gjaldþrotalaga um viðkomandi efni.
    Í 5. og 6. mgr. eru fyrirmæli um skyldu skilanefndar til að afhenda bú félags til gjaldþrotaskipta, ef fram kemur að eignir þess hrökkvi ekki fyrir skuldum að loknum kröfulýsingarfresti. Þótt skilyrði 54. gr. frumvarpsins ættu almennt að koma í veg fyrir skilanefndarmeðferð, þegar svo er ástatt, verður ekki útilokað að áður ókunnar kröfur berist í kröfulýsingarfresti, eða að eignir hafi ekki reynst hafa það verðgildi, er í upphafi var ætlað. Reglur þessar eru einkum settar fram til verndar réttindum lánardrottna. Ákvæðum 6. mgr. er ætlað að fyrirbyggja misnotkun heimilda til skilanefndarmeðferðar og leiða til að ráðstöfunum skilanefndar megi rifta, ef bú félags verður síðar tekið til gjaldþrotaskipta og lánardrottnar kjósa þá leið fremur en að beita ábyrgðarreglu 7. mgr. 55. gr. frumvarpsins.

Um 58. gr.


    Ákvæði þessarar greinar eru samsvarandi ýmsum dreifðum ákvæðum XIV. kafla núgildandi laga um viðkomandi efni, og þykja ekki þarfnast sérstakrar skýringar.

Um 59. gr.


    Í núgildandi lögum er ekki að finna ákvæði, er samsvarar 1. mgr., sem ætlað er að fyrirbyggja drátt á starfi skilanefndar. Telji ráðherra skýringar skilanefndar á drætti óviðunandi, getur hann neytt heimilda 6. mgr. 55. gr. frumvarpsins, og eftir atvikum fellt úr gildi löggildingu hennar og krafist þess að skiptaráðandi taki við meðferð slitanna.
    Ákvæði 2. mgr. samsvara 121. gr. núgildandi laga.

Um 60. gr.


    Grein þessi samsvarar 122. og 123. gr. núgildandi laga.

Um 61. gr.


    Grein þessi samsvarar að mestu 125. gr. núgildandi laga.

Um 62. gr.


    Grein þessi samsvarar 124. gr. núgildandi laga.

Um 63. gr.


    Í gildandi lögum er kveðið á um, að ráðherra sé heimilt að veita almennan aðgang að hlutafélagaskrá, þ.m.t. reikningum hlutafélaga. Í frumvarpsgreininni er lagt til, að þessu ákvæði verði breytt á þann veg, að einungis verði heimilt að veita aðgang að ársreikningum þeirra félaga, sem ekki leggja hömlur á heimild hluthafa til meðferðar á hlutabréfum sínum.
    Í 105. gr. gildandi laga er mælt fyrir um, að eigi síðar en mánuði eftir samþykkt ársreiknings, þó ekki síðar en tíu mánuðum eftir lok reikningsárs, skuli staðfest endurrit hans ásamt endurskoðunarskýrslu hafa borist hlutafélagaskrá. Samkvæmt 114. gr. laganna skal hlutafélagi slitið að ákvörðun skiptaréttar, þegar ársreikningar hafa ekki verið sendir hlutafélagaskrá fyrir hin síðustu þrjú ár. Gætt hefur megnrar óánægju með ákvæði 145. gr. um opinberun ársreikninga. Ráðherra hefur enn ekki notað sér heimild til að veita almennan aðgang að ársreikningum, en óttinn við afleiðingar ákvörðunar hans um opinberun reikninga virðist hafa valdið því, að mikill meirihluti hlutafélaga hefur vanrækt að afhenda hlutafélagaskrá ársreikninga sína. Í bréfi Verslunarráðs Íslands til viðskiptaráðherra, dags. 5. júlí 1983, segir, að allmargir félagar V.Í. hafi haft samband við skrifstofu ráðsins vegna þess, að þeim hafi borist tilkynningar frá hlutafélagaskrá þess efnis, að þar sem þeir hafi ekki fylgt ákvæðum 105. gr. laganna um skil á ársreikningum, verði viðurlögum 114. gr. sömu laga beitt og hlutafélaginu slitið. Síðan segir: „Í öllum tilvikum hafa viðkomandi borið því við, að engin trygging sé fyrir því, að reikningarnir verði ekki hafðir almenningi til sýnis, en heimild er að finna fyrir því í 145. gr. laganna. Var það sameiginlegt álit þessara aðila, að sömu reglur ættu að gilda um meðferð þessara reikninga og gilda um meðferð skattframtala. Á þessu tvennu sé enginn eðlismunur.“ Í bréfinu bar V.Í. fram þá ósk, að 145. gr. laganna yrði komið í svipað horf og hér er lagt til. Um þetta efni farast Sigmari Ármannssyni, lögfræðingi, orð á þessa leið í Tímariti lögfræðinga, 2. tbl. 1980, þegar hann hefur kynnt reglur þær, sem gilda í Danmörku: „Málið horfir hins vegar við með öðrum hætti hér á landi, þar sem hlutafélög eru flest lítil og hluthafar fáir. Það telst til
undantekninga, að hlutabréf slíkra félaga fari á almennan markað. Ekki er því ljóst, hvaða tilgangi það þjónar, að óviðkomandi aðilar geti af einskærri forvitni rannsakað rekstur slíkra hlutafélaga og sökkt sér ofan í gögn um félagið, sem varða einkamálefni þess. Viðsemjendum þessara fyrirtækja ætti að vera í lófa lagið að fá nauðsynlegar upplýsingar beint frá forráðamönnum fyrirtækjanna, áður en gengið er til samninga, og eftir atvikum hætt við fyrirhuguð viðskipti, fái þeir ekki fullnægjandi upplýsingar. Nauðsynlegu öryggi í viðskiptalífinu yrði því ekki stefnt í tvísýnu, þó að takmörkuð yrði heimild almennings til þess að kynna sér gögn í fórum hlutafélagaskrárinnar, eins og t..d. ársreikninga og endurskoðunarskýrslur. Vel getur þó verið, að annað eigi að gilda, þegar um tiltölulega stór almenningshlutafélög er að ræða.“ Síðar í sömu grein skrifar Sigmar: „Taka verður tillit til sérkenna íslenskra hlutafélaga og meta verður þær aðstæður, sem skapast í fámennu þjóðfélagi, þar sem allir þekkja alla. Ef hlutafélögin yrðu ein tekin út úr að þessu leyti, yrði einnig um að ræða augljósa mismunun milli félagsforma. Friðhelgi um einkamálefni hlutafélaga eða annarra félaga má ekki rjúfa, slíkt væri að brjóta meginreglur íslensks réttar.“
    Að lagagreininni breyttri yrði öllum heimill aðgangur að ársreikningum þeirra hlutafélaga, sem ekki leggja hömlur á viðskipti með hlutabréf sín. tla verður, að þau félög, sem þannig háttar um, vilji veita almenningi sem fyllstar upplýsingar um rekstur sinn til þess bæði að greiða fyrir viðskiptum með hlutabréfin, sem úti standa, og til þess að auðvelda sölu hlutafjárauka. Hlutafélagaskrá þykir henta vel sem miðstöð fyrir slíka upplýsingamiðlun og gæti með tímanum gefið fólki kost á að kaupa endurrit af viðkomandi reikningum. Framvegis sem hingað til er gert ráð fyrir, að ofangreindum hlutafélögum sé skylt að afhenda hlutafélagaskrá eintak af ársreikningum sínum. Með þeim einum hætti getur hlutafélagaskrá rækt hæfilegt eftirlit með starfsemi hlutafélaga. Af atriðum, sem unnt er að hafa gát á með aðstoð ársreikninga, má nefna: fjölda hluthafa og stjórnarmanna, tillag í lögbundinn varasjóð, úthlutun arðs og breytingar á hlutafé. Á það skal bent, að til að forðast tvíverknað kæmi til greina, að hluthafaskrá semdi við skattstjóra um, að embætti þeirra gerðu, t.d. á grundvelli úrtaka, nauðsynlega athugun á, hvort fylgt væri ákvæðum laga um ýmis efni, sem ársreikningar geyma upplýsingar um, svo sem um úthlutun arðs og um tillög í varasjóð.
    Rétt þykir, að gerð sé nokkur grein fyrir þeim reglum, sem gilda í þessum efnum í nokkrum nágrannalandanna. Í Noregi, Svíþjóð og Danmörku er öllum hlutafélögum skylt að afhenda sérstakri miðstöð eintak af ársreikningi, sem
almenningur á ótakmarkaðan aðgang að. Í Noregi getur þó konungur veitt vissum hlutafélögum undanþágu frá þeirri kvöð, að hann skuli vera almenningi til sýnis.
    Í Bretlandi gildir sú almenna regla, að hlutafélög skulu senda til hlutafélagaskrár eintak af endurskoðuðum ársreikningi og ársskýrslu stjórnar, og er öllum heimill aðgangur að innsendum upplýsingum. Fyrir lítil og meðalstór „private companies“ eru hins vegar gerðar vissar mikilvægar undanþágur. Félag er lítið, ef það uppfyllir einhver tvö eftirtalinna skilyrða (1981 Act S8):
1.    Velta þess fer ekki fram úr GBP 1.400.000 á ári,
2.    niðurstöðutala efnahagsreiknings fer ekki yfir GBP 700.000,
3.    meðalfjöldi starfsmanna fer ekki fram úr 50.
    Árið 1982 var talið, að í Bretlandi væru um 500.000 lítil hlutafélög. Til þess að geta talist meðalstórt, verður hlutafélag að fullnægja einhverjum tveim eftirtalinna skilyrða: 1) Ársvelta þess fer ekki fram úr GBP 5.750.000; 2) niðurstöðutala efnahagsreiknings fer ekki upp fyrir GBP 2.800.000; 3) fjöldi starfsmanna fer ekki fram úr 250. Undanþágurnar, sem um er að ræða, ná ekki til banka, tryggingarfélaga og vissra skipafélaga. Lítið hlutafélag getur komist af með að senda hlutafélagaskrá útdrátt úr efnahagsreikningi, sem tekur aðeins til nokkurra mikilvægustu liða reikningsins. Það þarf hvorki að senda inn rekstrarreikning né ársskýrslu stjórnar. Fyrir meðalstórt fyrirtæki nægir, að útdráttur úr efnahagsreikningi svo og útdráttur úr rekstrarreikningi, séu látnir af hendi, og gerðar eru vægari kröfur um meðfylgjandi skýringar heldur en til stærri hlutafélaga.
    Í Þýskalandi eru í sjálfum lögunum um GmbH engin ákvæði um skyldu til að afhenda stjórnvöldum ársreikninga hlutafélaga né heldur um birtingu þeirra. Í sérstökum lögum, sem nefnd hafa verið PublizitÝtsgesetz, eru hins vegar ákvæði, sem taka til hvers konar fyrirtækja, um skyldu til að birta ársreikninga, fari fyrirtæki yfir ákveðin stærðarmörk. Skylda til birtingar tekur til allra fyrirtækja sem uppfylla einhver tvö eftirtalinna skilyrða: Í samfellt þrjú rekstrarár 1) er niðurstöðutala efnahagsreiknings hærri en DEM 125 milljónir, 2) árssala fer fram úr DEM 250 milljónum og 3) að meðaltali vinna fleiri en 5000 menn hjá fyrirtækinu. Bankar og fjárfestingarfélög (Kapitalanlagegesellschaften) njóta þó ekki undanþágu samkvæmt þessari viðmiðun. Og sem aðilar að Efnahagsbandalagi Evrópu mun að því koma, að Þjóðverjar verði að laga reglur sínar um þessi efni að talsvert strangari sameiginlegum reglum bandalagsins.
    Mörg önnur ríki hafa gert áþekkan mun á kröfum um upplýsingagjöf og um opinberun ársreikninga, þ..e. bæði eftir gerð og stærð hlutafélags. Sem dæmi má nefna Holland, Frakkland, Austurríki og Sviss.

Um 64. gr.


    Hér er um að ræða breytingu á frumvarpi því, sem lagt var fyrir Alþingi 1986. Samkvæmt þessu getur ráðherra krafist þess að fá yfirlýsingu lögmanns eða löggilts endurskoðanda um að upplýsingar í tilkynningu um stofnun hlutafélags varðandi greiðslu hlutafjár séu réttar. Getur aukið öryggi verið fólgið í því að aðili utan stjórnar gefi slíka yfirlýsingu.

Um 65. gr.


    Í 147. gr. laganna eru fyrirmæli þess efnis, að tilkynning um breytingu á samþykktum eða öðru því, sem tilkynnt hefur verið, skuli undirrituð af öllum stjórnarmönnum. Til að forðast vandræði, sem gætu hlotist af forföllum eða fjarvistum stjórnarmanna, er lagt til, að látið verði nægja, að slíkar tilkynningar skuli undirritaðar af meirihluta stjórnar eða af prókúruhafa. Telja verður, að með þessum breytta hætti yrði gætt nægilegs öryggis um áreiðanleika tilkynningar.
    Í b-lið er um að ræða nýmæli miðað við tillögur nefndarinnar, er samdi lagafrumvarp þetta. Miðar það að því, að sem áreiðanlegastar upplýsingar liggi fyrir hverju sinni í hlutafélagaskrá, m..a. um heimilisföng félaga og stjórnarmanna, en mikið er leitað til skrárinnar um hvers kyns upplýsingagjöf, m..a. af hálfu opinberra aðila og lögmanna.

Um 66. gr.


    Gerð er tillaga um orðalagsbreytingu, sem ekki þarfnast nánari skýringar.

Um 67.–68. gr.


    Þarfnast ekki skýringa.

Um 69. gr.


    Í ákvæði þessu er mælt fyrir um, hver verði áhrif þessa frumvarps, ef að lögum verður, á starfsemi skilanefnda sem þegar hafa verið löggiltar til að slíta félögum við gildistöku laganna. Er ætlunin með ákvæði þessu að reglur frumvarpsins um aðgerðir vegna lausnarbeiðni skilanefndarmanns og andláts komi þegar til framkvæmda, svo og þau úrræði ráðherra að geta áminnt skilanefnd og
fellt löggildingu hennar úr gildi. Að öðru leyti ættu verklagsreglur 56.–62. gr. að koma til framkvæmda við störf þegar löggiltra skilanefnda að því leyti, að þær gildi um þá þætti meðferðar, sem eru óloknir við gildistöku laganna, en hrófli í engu við þegar loknum þáttum.

Um ákvæði til bráðabirgða.


    Ákvæði þetta er byggt á tillögu skiptaráðenda og gerir ráð fyrir möguleika um nokkurra ára skeið á einfaldari aðferð til slita á hlutafélögum en er í gildandi lögum. Nokkur hluti þeirra um 6000 hlutafélaga, sem skráð eru hér á landi, hafa í reynd hætt starfsemi og má telja, að til bóta sé að gefa kost á slitum þeirra með tiltölulega einföldum hætti. Hin einfalda skipan félagsslita samkvæmt ákvæði þessu getur haft verulegan sparnað í för með sér, jafnt fyrir eigendur viðkomandi hlutafélags og hið opinbera.