Ferill 124. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 124 . mál.
Sþ.
130. Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um sölu á sælgæti og sætum drykkjum.
Frá Valgerði Sverrisdóttur.
1. Mun ráðherra beita sér fyrir því að lagafyrirmæli og reglugerðir um söluturna og kvöldsölustaði verði endurskoðuð með heilbrigðissjónarmið í huga og að spornað verði við slíkri sölustarfsemi í námunda við skóla og aðra samkomustaði æskufólks?
2. Er fyrirhugað að setja reglur hér á landi um hvar heimilt sé að stilla upp sælgæti og sætum drykkjum í verslunum?