Ferill 133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 133 . mál.


Nd.

140. Frumvarp til laga



um búminjasafn.

Flm.: Alexander Stefánsson, Friðjón Þórðarson.



1. gr.

    Stofna skal búminjasafn er hafi aðsetur á Hvanneyri.

2. gr.

    Hlutverk búminjasafns er að safna munum, minjum og hvers konar heimildum er snerta íslenskan landbúnað, varðveita og hafa til sýnis almenningi. Kosta skal kapps um að varðveita hæfilegt sýnishorn véla, tækja og verkfæra og hvers konar annarra búminja sem eru að hverfa eða hætt er að nota vegna breyttra þjóðhátta.

3. gr.

    Menntamálaráðherra skipar stjórn safnsins eftir tilnefningu eftirtalinna aðila: Þjóðminjasafns, Búnaðarfélags Íslands, Bændaskólans á Hvanneyri og Bændaskólans á Hólum. Einn stjórnarmaður skal skipaður án tilnefningar. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.

4. gr.

    Ráðherra skipar forstöðumann safnsins eftir tillögu stjórnar þess til sex ára í senn.
    Stjórn safnsins ræður safnverði og aðra starfsmenn eftir því sem fé er veitt til í fjárlögum hverju sinni.

5. gr.

    Stjórn búminjasafns og forstöðumanni ber að hafa náið samráð við Þjóðminjasafnið um varðveislu minja og skipulag og starfshætti safnsins.
    Þjóðminjasafni er heimilt að varðveita búminjar á búminjasafninu ef það telur varðveislu muna og minja nægilega trygga þar.

6. gr.

    Forstöðumaður búminjasafns skal annast kennslu í búnaðarsögu og véla- og verkfærafræði við Bændaskólann á Hvanneyri.

7. gr.

    Kostnaður við rekstur búminjasafns greiðist úr ríkissjóði.

8. gr.

    Menntamálaráðherra setur með reglugerð nánari ákvæði um starfsemi búminjasafns.

9. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. ágúst 1989.


Greinargerð.


    Bændaskólinn á Hvanneyri verður 100 ára, 3. maí á næsta ári, nánar tiltekið á krossmessu. Skólinn hefur alla tíð haft mikil áhrif á þróun landbúnaðar á Íslandi og haft forustu um nýjungar í landbúnaði sem nemendur frá skólanum hafa fylgt eftir til framfara í sveitum landsins.
    Skólinn hefur ávallt verið undir stjórn hæfustu manna sem af eldmóði hafa mótað uppbyggingu skólans. Hann hefur því hlotið viðurkenningu og virðingu landsmanna og á erlendum vettvangi. Þar er nú starfandi búvísindadeild og enn fremur bútæknideild Rannsóknastofnunar landbúnaðarins. Stefnt er að því að starfsemi á rannsóknasviði landbúnaðar verði flutt að Hvanneyri í vaxandi mæli.
    Eins og fram kemur í meðfylgjandi fylgiskjölum frá Bændaskólanum er nú þegar vísir að verkfærasafni við skólann sem mikill áhugi er á og hefur raunar vakið almenna athygli á ýmsum landbúnaðarsýningum. Sökklar undir verkfærasafn eru til við hlið verkfærahúss Bændaskólans og bíða frekari framkvæmda.
    Þegar þingmenn Vesturlands heimsóttu skólann á sl. hausti kom fram í umræðum um málefni skólans áhugi á því að tryggja betur möguleika á að koma upp búminjasafni á Hvanneyri sem rekið væri í tengslum við skólann, þar á meðal við kennslu.
    Samkvæmt beiðni 1. þm. Vesturlands sendi skólinn greinargerð um sögu safnhugmynda og framkvæmda á því sviði á Hvanneyri frá fyrstu tíð. Þessi ítarlega greinargerð skólans fylgir hér með ásamt bréfi skólastjórans, dags. 11. nóv. sl.
    Þingmenn Vesturlands hafa því ákveðið að flytja þetta frumvarp til laga um
stofnun búminjasafns er hafi aðsetur á Hvanneyri. Málið er flutt í neðri deild en þingmenn Vesturlands í efri deild munu fylgja málinu áfram í þeirri deild.
    Það væri ánægjulegt ef Alþingi afgreiddi þetta frumvarp sem lög á þessu þingi og þau tækju gildi á 100. afmælisári Bændaskólans á Hvanneyri.



Fylgiskjal I.


Bændaskólinn á Hvanneyri:

                                                                                   Hvanneyri, 11. nóvember 1988.
Hr. Alexander Stefánsson alþm.
Alþingi.

Efni: Greinargerð um búminjasafn — verkfærasafn, samkvæmt beiðni þinni.
    Sendi hjálagt greinargerð um verkfærasafn sem dr. Bjarni Guðmundsson hefur tekið saman.
    Eins og fram kemur hafa Bændaskólinn og nú á síðustu árum bútæknideild RALA haft í frammi ýmsa tilburði til að koma hér upp safni. Eins og fram kemur í greinargerð Bjarna er til grunnur með steyptum sökklum undir safnskála. Það væri vissulega ánægjulegt ef hægt væri að ýta þessu áfram. Þá er tvennt sem
kemur upp í hugann:
1.     Lög um búminjasafn á Hvanneyri.
2.     Fjárveiting til að byggja skála yfir safnið.
    Búminjasafn á Hvanneyri hefur mikla þýðingu vegna kennslu í véla- og verkfærafræði, auk þess sem það hefur almennt gildi sem safn og tengist starfsemi bútæknideildar RALA.
    Ég vil lýsa ánægju minni með þá athygli og þann áhuga sem alþingismenn Vesturlandskjördæmis sýna málefnum Bændaskólans á Hvanneyri.

Virðingarfyllst,



Sveinn Hallgrímsson.





Fylgiskjal II.


Dr. Bjarni Guðmundsson:

Verkfærasafnið á Hvanneyri.



Inngangur.
    Á Hvanneyri hefur um árabil verið til nokkurt safn gamalla tækja og búvéla. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar til þess að koma fótum undir safnið en enn hefur engin þeirra heppnast að fullu. Ekki þarf að hafa mörg orð um notagildi verkfærasafns. Sú bylting, sem orðið hefur í búnaðarháttum á liðnum áratugum, á sér fyrst og fremst rót í breyttri verktækni. Vélar, verkfæri og áhöld í ýmsum myndum hafa komið fram. Hvert af öðru hafa þau rutt hinum eldri úr vegi svo að áður en varði urði til „gömul“ tæki. Mikla sögu má lesa úr þróun landbúnaðarverkfæranna á þessari öld. Heilleg verður atvinnusaga þjóðarinnar ekki án hennar. Sú saga er enn aðeins að litlu leyti skráð.
    Víða hefur bútæknisöfnum verið komið upp erlendis og virðist vaxandi áhugi vera á bútæknisögunni eins og öðru því er snertir rætur nútímans.
    Hér á eftir verður fjallað um fáeina þætti er varða málefni verkfærasafnsins á Hvanneyri, m.a. í tilefni af því að á liðnum vetri hrundu nokkrir áhugamenn þar málinu lengra fram en áður hafði gerst í einum áfanga.

Forsagan.
    Í byrjun þessarar aldar fóru að berast til landsins verkfæri til
landbúnaðar. Ekki síst var það á bændaskólunum sem verkfærin voru reynd. Skólastjórar og kennarar höfðu þar forgöngu, oft vegna tengsla sinna við nágrannalöndin og dvalar þar. Frá skólunum barst tæknin síðan út um sveitirnar. Þá má ekki gleyma því að allmikið var um innlenda verkfærasmíð á tímabili, einkum jarðyrkjuverkfæri. Þar fór Torfi í Ólafsdal fremstur. Með merku riti Árna G. Eylands um búvélar og ræktun 1) var saga bútækni á Íslandi fram undir 1950 skráð í mikilvægum atriðum.
    Í gegnum árin hafa ýmis verkfæri „orðið til“ á Hvanneyri, verkfæri sem á sínum tíma hafa komið þangað til fyrstu reynslu. Flest hinna eldri eru frá tíma Halldórs Vilhjálmssonar skólastjóra (1907–1936), en Halldór var mikill áhugamaður um verktækni og hvers kyns nýjungar á því sviði. 2) Raunar voru forverar hans, þeir Sveinn Sveinsson og Hjörtur Snorrason, einnig forgöngumenn á sviði heyskapartækni. Á skólastjóraárum sínum öndverðum (um 1896) reyndi Hjörtur til dæmis fyrstu heyvinnuvélarnar sem til landsins komu, sláttuvél og rakstrarvél. 1) Þær eru nú löngu glataðar en verkfæri eru til frá tíð Halldórs, svo og frá Ólafsdal eins og nánar verður vikið að.

Lagasetning 1940 — verkfærasafn.
    Árið 1940 tóku gildi ný lög um rannsóknir og tilraunir í þágu landbúnaðarins (lög nr. 64/1940). Tuttugasta grein laganna var þannig:
    „Safni af landbúnaðarverkfærum skal komið upp við Bændaskólann á Hvanneyri undir umsjón verkfæranefndar. Reynt sé að fá sem flestar verkfæraverslanir og verksmiðjur til þess að leggja fram sýnishorn í safnið, en ella skulu keypt til reynslu verkfæri sem ekki fást á annan hátt.“
    Í greinargerð með frumvarpinu sagði svo um þessa grein:
    „Breytingar á þeim vélum og áhöldum sem bændur þurfa að nota í starfi sínu eru á síðari tímum nokkuð örar og margvíslegar. Nýjar hugmyndir koma oft fram á því sviði, ný verkfæri eru flutt inn og smíðuð innan lands o.s.frv. Að fylgjast með öllu þessu er fróðlegt og nauðsynlegt, einkum fyrir alla þá sem
leiðbeiningastörf hafa með höndum. Er því mjög æskilegt að koma upp verkfærasafni þar sem unnt er að fylgjast með öllum nýjungum og breytingum í verkfæragerð. Telur nefndin (er frumvarpið samdi) heppilegt að slíkt safn sé á þeim bændaskólanum sem er nær höfuðstaðnum. Líklegt telur nefndin að unnt sé að fá sýnishorn í safnið frá ýmsum þeim verksmiðjum og verslunum sem smíða eða selja verkfæri og má ætlast til þess að verkfæranefnd geri sitt til að svo verði, en annars þarf nokkra fjárupphæð til þess að kaupa í safnið þau áhöld sem ekki fást á annan hátt.“ 3)
    Með þessari ákvörðun Alþingis var verkfærasafnið á Hvanneyri lögfest sem nýmæli í byrjun hinnar raunverulegu vélaaldar til sveita, fyrst og fremst að því er skilið verður til þess að kynna nýjustu landbúnaðarverkfæri á hverjum tíma. Eðlilegur hluti safnsins hlaut hins vegar með tímanum að verða nokkurt safn eldri verkfæra. Safnið var tengt starfi verkfæranefndar er reyna skyldi „ný verkfæri eða breytingar á eldri verkfærum ...“ með verkfæratilraunum við „ ... búnaðarskólann á Hvanneyri nema hentara þyki að reyna sérstök verkfæri annars staðar ...“ eins og í lögunum sagði.
    Ekki er nákvæmlega vitað í hvaða mæli verkfæranefnd sinnti verkfærasafninu. Hins vegar komst safnið inn á fjárlög ársins 1942 með 1000 kr. framlagi úr ríkissjóði. Hélst það óbreytt allt til fjárlagaársins 1957 að upphæðin var hækkuð í 2000 kr. Stóð svo til og með fjárlagaárinu 1967. Eftir það var ekki um sérgreinda upphæð til safnsins að ræða. Öll þessi ár var framlagið reiknað Hvanneyrarskóla í samræmi við ákvæði laganna frá 1940. Með nýjum lögum um rannsóknir í þágu atvinnuveganna, nr. 64/1965 (Rannsóknastofnun landbúnaðarins), voru hins vegar engin ákvæði um verkfærasafn, þar með var það horfið úr tölu lögbundinna stofnana.
    Ríkisframlagið árin 1942–1967 dró verkfærasafnið á Hvanneyri ekki langt og ekki er fullljóst hvernig framlaginu var ráðstafað. Víst er þó að ekki komst safnið á legg sem formleg og áþreifanleg stofnun við skólann með þeim hætti er áðurnefnd lög sögðu fyrir um. Guðmundur Jónsson skólastjóri var þó
áhugasamur um málið og viðaði að sér nokkrum merkum verkfærum og áhöldum. Mörg þau verkfæri er skólinn eignaðist og nemendur kynntust og lærðu að handleika, varðveittust og urðu með öðru, er frá leið, vísir að verkfærasafni á skólastaðnum.

Úttekt á Hvanneyri 1972.
    Vegna skólastjóraskipta á Hvanneyri 1. september 1972 fól landbúnaðarráðuneytið þeim Jóni Guðmundssyni, bónda á Hvítárbakka, og Bjarna Arasyni, héraðsráðunaut í Borgarnesi, að gera úttekt á eignum skólans. Fór hún fram þá um haustið. Í ítarlegri úttektarskýrslu þeirra félaga segir svo um verkfærasafnið:
    „Á Hvanneyri er til mikið safn gamalla landbúnaðartækja. Hér er um að ræða vélar og áhöld sem eru orðin úreld og hafa fallið úr notkun vegna þess, svo sem ýmiss konar jarðvinnslu- og heyvinnutæki er hestum var beitt fyrir, svo og margs konar handverkfæri. Þá eru í þessu safni gamlar dráttarvélar og tæki við þær. Ekki verður dregið í efa að hér er saman komið stærsta safn sinnar tegundar á landinu og að þetta safn hefur mikið sögulegt gildi.
    Safn þetta er að nokkru geymt í verkfærahúsinu (gamla) og að nokkru í skemmunni, en sum tækin standa úti undir beru lofti. Aðstaða til geymslu þessara gripa er engan veginn eins og þyrfti að vera þar sem þeir eru ekki varðir gegn skemmdum sem skyldi og engin aðstaða er til að skoða þá.
    Mikil þörf er á að bæta hér um og sýna þessu einstæða safni þann sóma að koma því í húsnæði þar sem varðveisla þess væri tryggð og aðstaða væri fyrir hendi til að skoða gripina. Þá þyrfti jafnframt að skrá safnið á viðeigandi hátt en úttektarmenn töldu sig ekki hafa aðstöðu til þess við þær kringumstæður sem voru fyrir hendi.“
    Skömmu síðar lét Bændaskólinn gera skrá yfir vélar og tæki í safninu. Var hún byggð á spjaldskrá sem Guðmundur Jónsson skólastjóri hafði tekið saman. Skráðir safnmunir árið 1973–1974 reyndust vera 47 að tölu.

Þáttur vélasjóðs.
    Með endurskoðuðum jarðræktarlögum, sem lögfest voru 1972, voru felld niður ákvæði laganna um vélasjóð og vélanefnd ríkisins. Vélasjóður hafði þá um árabil annast rekstur á skurðgröfum auk annarra verkefna. Með breyttum tímum varð hans ekki lengur þörf. Vélasjóður átti verðmætar eignir. Skyldi andvirði helmings þeirra lagt í sérstakan sjóð er Búnaðarfélag Íslands varðveitti. Skyldi sjóðnum varið til þess að „styrkja tilraunir með álitlegar tækninýjungar í landbúnaði eftir tillögum búnaðarþings ... „ eins og í lögunum segir.
    Að frumkvæði Haralds Árnasonar vatnsvirkjaráðunautar, þá framkvæmdastjóra vélasjóðs, fékkst heimild landbúnaðarráðherra til þess að verja nokkru af eignum vélasjóðs til þess að kaupa gamlar búvélar og verkfæri og safna þeim saman. Til verksins réðst Karl Auðunsson sem þá var elsti starfsmaður vélasjóðs. Vélasjóður átti verkstæðisbragga í Garðaflóa við Akranes. Braggann keypti Karl og þangað safnaði hann hinum gömlu tækjum og bjó þau til varðveislu. 4)
    Árangurinn af starfi Karls Auðunssonar mátti svo fyrst sjá á þróunarsýningu atvinnuveganna í Laugardalshöll síðsumars þjóðhátíðarárið 1974, en þar voru m.a. sýnd gömul verkfæri sem hann hafði safnað og lagfært. Á sýninguna fóru einnig nokkrar gamlar búvélar frá Hvanneyri. Að sýningu lokinni voru verkfærin síðan flutt að Hvanneyri en þar var þá ekkert geymsluhús til, frekar en áður, er hæfði þessum verðmætum. En með þessu átaki vélasjóðs og þróunarsýningunni 1974 hafði verkfærasafnið vakið athygli margra.

Tilraun til átaks 1976.
    Heimamönnum á Hvanneyri rann til rifja umkomuleysi verkfærasafnsins, sérstaklega eftir það framtak vélasjóðs sem að framan var rakið. Veturinn 1976 lögðu því nokkrir starfsmenn Bændaskólans og bútæknideildar RALA á Hvanneyri
erindi fyrir búnaðarþing varðandi verkfærasafnið. Búnaðarþing tók vel í erindið og afgreiddi það með svofelldi ályktun:
    „Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags Íslands að hlutast til um það við landbúnaðarráðuneytið að kannaðar verði leiðir til að efla og reka það safn landbúnaðartækja sem til var komið með lögum nr. 64 7. maí 1940, um rannsóknir og tilraunir í þágu landbúnaðarins.
    Jafnframt felur þingið stjórninni að gangast fyrir söfnun frjálsra fjárframlaga til þess að unnt verði að reisa geymsluskála fyrir safnið á Hvanneyri þegar á þessu ári.“
    Greinargerðin með ályktuninni sýnir nánar hvað þingið hafði í huga um hlutverk safnsins og hvernig vinna mætti að málinu:
    „Vegna þess að þau lagaákvæði, er lutu að stofnun og rekstri bútækjasafns á Hvanneyri, eru ekki lengur í gildi, virðist óhjákvæmilegt að koma í lög að nýju ákvæðum er tryggi hinn upphaflega tilgang. Í fljótu bragði skoðað virðist sú leið eðlilegust að setja sérstaka grein í lög um búnaðarfræðslu þar sem safnið væri tengt búnaðarskólanum á Hvanneyri sem kennslustofnun öðrum þræði. Yrðu þá safninu að sjálfsögðu settar sérstakar reglur sem kvæðu á um aðild búnaðarskólanna og Þjóðminjasafnsins að stjórn þess og rekstri. Aðrar leiðir geta e.t.v. komið til greina er geri rekstur safnsins mögulegan þótt þær að því er virðist hljóti að vera erfiðari og óeðlilegri.
    Gera verður ráð fyrir að nokkurn tíma taki að tryggja stöðu safnsins í lögum og óvíst hvenær opinber fjárframlög til uppbyggingar þess liggja á lausu. Á hinn bóginn þolir málið ekki langa bið þar eð tæki þau og vélar sem safnað hefur verið liggja nú undir skemmdum. Nauðsynlegt er því að hefjast þegar handa um byggingu geymsluhúss fyrir munina á Hvanneyri en bíða ekki eftir því að framtíðarskipan safnsins sé ráðin. Þar sem slíkt húsnæði á ekki að þurfa að verða mjög dýrt má telja líklegt að unnt sé að ná saman með frjálsum framlögum því fé sem til þarf. Eru búnaðarsamtök, svo og
innflytjendur landbúnaðartækja, líklegir aðilar til að vilja leggja þessu menningarmáli lið með fjárframlögum, en fleiri koma vafalaust til greina.“
    Með ályktuninni lagði búnaðarþing fyrst og fremst áherslu á hið sögu- og menningarlega hlutverk safnsins, svo sem eðlilegt var í ljósi breyttra tíma og aðstæðna. Jafnframt benti þingið á að rétt væri að fleiri aðilar en ríki stæðu undir framtakinu, þar á meðal búnaðarsamtökin.

Enn önnur tilraun 1979.
    Fátt gerðist í málefnum safnsins eftir ályktun búnaðarþings 1976. Lengst af var þó munað eftir verkfærasafninu í fjárbeiðnum skólans til fjárveitingavaldsins. Liðu svo nokkur ár. Þeir Jónas Jónsson, þá ritstjóri tímaritsins Freys, og Haraldur Árnason vatnsvirkjaráðunautur lögðu mál verkfærasafnsins fyrir búnaðarþing 1979 sem afgreiddi það með svofelldri ályktun:
    „Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags Íslands að leita eftir samvinnu við Stéttarsamband bænda um að hafa forgöngu um útvegun fjár til stofnunar búvélasafns á Hvanneyri.
    Miðað verði við að safnið komist á fót á 90 ára afmæli Bændaskólans á Hvanneyri.“
    Í greinargerð var vísað til afgreiðslu búnaðarþings á málinu veturinn 1976, en þar segir:
    „Þótt ekki hafi orðið af framkvæmdum þykir sjálfsagt að freista þess á nýjan leik að kannað verði til þrautar hvort ekki sé unnt að stofna búvélasafn á Hvanneyri og tengja stofnun þess merku afmæli Bændaskólans á Hvanneyri.“
    Stjórn Búnaðarfélagsins ákvað á fundi sínum 12. mars 1979 að senda ályktun þessa „ ... til Stéttarsambands bænda og skólastjórans á Hvanneyri og mælast til þess að þeir tilnefni sinn manninn hvor til þess að ræða um frekari framkvæmdir í málinu við fulltrúa Búnaðarfélags Íslands, Harald Árnason“.
    Stéttarsamband bænda tók málið upp á stjórnarfundi 22. mars sem tilmæli um að sambandið tilnefndi einn mann í nefnd „ ... sem skal hafa forgöngu um
útvegun fjár til stofnunar búvéla- og verkfærasafns á Hvanneyri“. Magnús Sigurðsson á Gilsbakka var tilnefndur en til vara Jón Kr. Magnússon á Melaleiti.
    Um svipað leyti var Bjarni Guðmundsson tilnefndur í nefndina fyrir Bændaskólann á Hvanneyri. Var nefndin þá fullskipuð.

Hafist handa.
    Nefndin, undir forsæti Haralds Árnasonar, hélt fyrsta fund sinn á Hvanneyri 11. apríl 1979. Þar var m.a. ákveðið að skrifa fjárbeiðnibréf til búvélainnflytjenda, búnaðarsambandanna og Stéttarsambands bænda.
    Fyrstu svörin komu frá Stéttarsambandi bænda sem á aukafundi sínum á Hótel Sögu 25.–26. apríl um vorið samþykkti „ ... að taka þátt í að koma upp húsi yfir véla- og verkfærasafn á Hvanneyri með framlagi að upphæð 1,5 millj. kr“.
    Fram kom hjá framsögumanni, Grími B. Jónssyni í Ærlækjarseli, og fleiri fundarmönnum að með fjárframlaginu væri jafnframt verið að minnast 90 ára afmælis Bændaskólans á Hvanneyri. Skömmu síðar var tilkynnt um 500.000 kr. framlag til húsbyggingarinnar frá Kaupfélagi Borgfirðinga. Í báðum þessum samtökum naut málið Magnúsar á Gilsbakka.
    Nefndin lét í samvinnu við heimamenn á Hvanneyri kanna helstu kosti varðandi húsgerð og skipulag. Var staðnæmst við tvo þeirra: að byggja sérstaka skemmu og að byggja við verkfærahúsið nýja. Með hliðsjón af skipulagi á staðnum, samtengingu verkfærasafns og húsnæðis til bútæknikennslu skólans, svo og framkvæmdakostnaði, var sú ákvörðun tekin af báðum aðilum í október 1979 að byggja við verkfærahúsið svo að þar skapaðist rými fyrir verkfærasafn. Áætlað var að sú viðbót mundi kosta um 29 millj. gamalla kr., en sérstök skemma, 320 fermetrar að stærð, var hins vegar talin kosta um 34 millj. gkr.
    Jafnframt var gengið út frá því að skólinn ræki safnið áfram en viðbætur, safnauki og viðgerðir verkfæra yrðu kostaðar af sérstökum fjárveitingum.
    Seinni hluta sumars 1980 var hafist handa og þá um haustið var lokið við sökkla að viðbyggingunni. Nam byggingarkostnaðurinn alls 7.623.350 gkr.
    Framlög bárust frá ýmsum aðilum, svo sem eftirfarandi yfirlit sýnir:



     1979:     Stéttarsambandi bænda ..................         1.500.000 gkr.
         Kaupfélagi Borgfirðinga ................         500.000 gkr.
         Búnaðarsambandi Kjalarnessþings ........         50.000 gkr.
         Búnaðarsambandi Snæfellinga ............         50.000 gkr.
         Búnaðarsambandi Strandamanna ...........         50.000 gkr.
         Búnaðarsambandi Norður-Þingeyinga ......         50.000 gkr.
         Búnaðarsambandi Austurlands ............         100.000 gkr.

     1980:     Búnaðarsambandi Borgarfjarðar ..........         250.000 gkr.
         Þjóðhátíðarsjóði ......................         2.000.000 gkr.

                  (Í nýjum kr.)
     1981:     Búnaðarsambandi Vestfjarða .............         3.500 kr.
         Búnaðarsambandi Suðurlands .............         3.000 kr.

    Framlög þessi nægðu fyrir framkvæmdunum haustið 1980. Góð orð um framlög höfðu raunar fengist frá fleiri aðilum, m.a. fyrir áhuga og lempni Haralds Árnasonar. Nauðsynlegt var talið að næsti áfangi framkvæmda yrði sá að reisa veggi viðbyggingarinnar og koma um leið einu þaki yfir allt húsið. Bundu menn vonir við að fá framlag frá ríki til þess verks og reiknað var með framkvæmdinni í fjárlagatillögum skólans. Oftar en einu sinni var sótt um frekara framlag úr Þjóðhátíðarsjóði, hvorugt bar árangur. Í fáum orðum sagt verkið lá þar með niðri og hefur svo staðið allt til þessa: sökklar húss verkfærasafnsins austan við verkfærahús Bændaskólans bíða frekari framkvæmda.

Safnið verður til.
    Vorið 1987 var hafist handa um lagfæringar á nokkrum vélum safnsins í tilefni af landbúnaðarsýningunni BÚ '87, en þar átti að koma upp sérstakri sögudeild. Þangað fóru vélar og verkfæri úr safninu. Um haustið var ákveðið að verja enn frekari tíma til lagfæringa á safngripum. Forgöngu um það hafði Grétar Einarsson deildarstjóri með öðrum starfsmönnum bútæknideildar, þeim Sigurði Axel Benediktssyni og Haraldi Benediktssyni sem önnuðust verkið. Gamlar eldri dráttarvélar voru gerðar upp í frumgerð sína, sumar jafnvel gerðar gangfærar, auk þess sem fáein verkfæri voru pússuð upp.
    Í verkfærahúsi Bændaskólans var útbúið horn á tveimur hæðum til þess að stilla gripum þessum upp þannig að gestir og gangandi gætu virt þá fyrir sér. Þessi vísir að eiginlegu safni var tilbúinn í maímánuði 1988. Var þá hægt að segja að komið væri upp verkfærasafn á Hvanneyri.
    Sumarið 1988 vakti safnhornið á Hvanneyri verulega athygli hinna mörgu gesta er þangað komu. Ýmsir hinna eldri hittu þar fyrir gamla kunningja og yngri kynslóðinni þótti forvitnilegt og spennandi að sjá hin fornu tól, ekki síst dráttarvélarnar.
    Reynsla hins fyrsta sumars safnsins sýnir ótvírætt hver þörf er á að verkfærasafn sé til og það sé opið almenningi á aðgengilegum stað. Segja má að aðeins eitt verkfæri úr safninu hafi áður verið til sýnis að jafnaði á skólastaðnum. Það var tveggja hesta plógur, smíðaður í Ólafsdal um aldamótin. Plógurinn var gerður upp árið 1986 í umsjá Hilmars Hálfdánarsonar og Trausta Eyjólfssonar, kennara á Hvanneyri. Plógurinn stendur nú í aðalanddyri skólahúss Bændaskólans. Að vísu hefur þúfnabaninn margfrægi einnig verið í alfaraleið staðargesta, skólanum til hóflegs vegsauka.

Kynning — söfnun.
    Svo sem þegar er getið hafa vélar og verkfæri úr safninu á Hvanneyri verið lánuð á ýmsar sýningar. Þegar er nefnd þróunarsýningin í Laugardalshöll 1974, en árið 1968 munu fáein gömul verkfæri frá Hvanneyri hafa verið til sýnis á landbúnaðarsýningunni í Reykjavík. Nokkur verkfæri voru og sýnd á landbúnaðarsýningunni á Selfossi 1978.
    Fjáröflunarnefndin frá 1979 birti grein um safnið í tímaritinu Frey og nauðsyn þess að halda til haga gömlum verkfærum. 5) Nokkur viðbrögð urðu og ábendingar komu um verkfæri en ekki var unnt að taka við þeim sakir húsnæðisleysis. Sum þessara verkfæra fást á safnið þegar úr rætist með húsnæði þess. Vorið 1988 var birt grein um safnið í blaði Hvanneyringa, Hve-nær, en blaði þessu var m.a. dreift á öll býli í landinu. 6) Þá fékk safnið ágæta umfjöllun í útvarpi vorið 1988. Allt hefur þetta ýtt undir áhuga manna á safninu. Áþreifanlegt dæmi um þann áhuga er m.a. myndarleg peningagjöf 25 ára búfræðinga frá Hvanneyri til safnsins á liðnu sumri. Vonandi verður léttara að vinna málinu framgang á næstu árum en verið hefur.
    Þótt hér hafi einkum verið fjallað um vélar og verkfæri sem safngripi má geta þess að nokkuð hefur verið gert af því á Hvanneyri að halda til haga myndum, veggspjöldum, bæklingum og öðrum gögnum um búvélar frá ýmsum tímum. Þar átti Ólafur Guðmundsson mikinn hlut að máli er hann starfaði sem framkvæmdastjóri verkfæranefndar ríkisins og síðar deildarstjóri bútæknideildar RALA. Allt er þetta safn óskráð enn auk þess sem mikið verk er óunnið við að taka saman frekari gögn er snerta þróun verkfæra og verktækni í íslenskum landbúnaði.
Nokkrar heimildir:
1.     Árni G. Eylands, 1950. Búvélar og ræktun. Bókaútgáfa Menningarsjóðs, 475 bls.
2.     Guðmundur Jónsson, 1939. Hvanneyrarskólinn fimmtíu ára, 251 bls.
3.      Stjórnartíðindi, 1939. A-deild, bls. 141.
4.     Haraldur Árnason, 1973. Verkfæraráðunauturinn. Búnaðarrit, 87. árg., bls. 121.
5.     Bjarni Guðmundsson, 1979. Hyggið að gömlu vélunum! Ábending um eflingu væntanlegs búvélasafns. Freyr, 75(14), 456–458.
6.     Haraldur Benediktsson og Sigurður Axel Benediktsson, 1988. Búvélasafn á Hvanneyri. Hve-nær, 4. árg., bls. 26–27.