Ferill 137. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 137 . mál.
Sþ.
144. Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um rækjuveiðar og vinnslu.
Frá Halldóri Blöndal.
1. Hversu mörg rækjuvinnsluleyfi hafa verið veitt frá 1. janúar 1984 og hversu mikil er afkastageta þeirra rækjuvinnslustöðva?
2. Hafði ráðherra hliðsjón af lögunum um samræmda vinnslu sjávarafla og veiðar, sem háðar eru sérstökum leyfum, þegar rækjuvinnsluleyfi voru veitt?
3. Hversu mikil var úthafsrækjuveiðin frá 1. janúar 1984 til þessa dags, ár hvert, og hver var leyfilegur kvóti sjávarútvegsráðuneytisins?