Ferill 161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 161 . mál.


Ed.

172. Frumvarp til laga



um breyting á lögum nr. 65/1982, um skattskyldu innlánsstofnana, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988.)



1. gr.

    1. gr. laganna orðast svo:
    Viðskiptabankar, sparisjóðir og opinberir fjárfestingarlánasjóðir, sbr. þó 2. gr., skulu með þeim takmörkunum, er síðar greinir, skyldir til þess að greiða tekjuskatt af öllum tekjum sínum, hvar sem þeirra er aflað, og eignarskatt af öllum eignum sínum, hvar sem þær eru, í samræmi við ákvæði laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.
    Skattskyldan tekur til þessara aðila sem lögaðila skv. 2. gr. laga nr. 75/1981 þrátt fyrir undanþáguákvæði 4. gr. sömu laga eða ákvæði annarra laga sem kunna að hafa undanþegið einstakar stofnanir opinberum gjöldum og sköttum.

2. gr.

    2. gr. laganna orðast svo:
    Til skattskyldra tekna og eigna skv. 1. gr. teljast þó ekki tekjur og eignir Ríkisábyrgðasjóðs, Byggðasjóðs, Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna. Séu sjóðir þessir hluti af eða tengdir annarri skattskyldri starfsemi samkvæmt lögum þessum skal fjárhagur þeirra greinilega aðskilinn.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og skulu koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts og eignarskatts á árinu 1989 vegna tekna á árinu 1988 og eigna í lok þess árs. Við gildistöku laga þessara fellur 11. gr. laga nr. 13/1975 úr gildi.

Ákvæði til bráðabirgða.


I.


    Með skattframtali á árinu 1989 vegna tekna á árinu 1988 og eigna í lok þess árs skulu aðilar, sem skattskyldir verða samkvæmt ákvæðum þessara laga, framkvæma endurmat á þeim fyrnanlegu eignum, sbr. 32. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, sem voru í eigu þeirra í byrjun þess árs.
    Endurmatið skal framkvæma þannig að kostnaðarverði (stofnverði) skal breytt eftir verðbreytingarstuðli fyrir hvert ár. Kostnaðarverð, þannig framreiknað, myndar fyrningargrunn sem fyrning reiknast af, í fyrsta sinn á árinu 1988.
    Til frádráttar framreiknuðu stofnverði reiknast sá hundraðshluti fyrninga af stofnverðinu, sem um getur í 38. gr. laga nr. 75/1981, eftir því sem við á, fyrir hvert ár frá og með kaup- eða byggingarári til ársloka 1987. Samtala þessara fyrninga telst fengin heildarfyrning, en hún skal þó aldrei vera hærri en 90% af framreiknuðu stofnverði, sbr. 45. gr. laga nr. 75/1981.
    Mismunur fyrningargrunns, sbr. 2. mgr. þessa ákvæðis, og framreiknaðra fyrninga, sbr. 3. mgr., telst eftirstöðvar fyrningarverðs. Fyrningargrunnur og fengnar fyrningar breytast síðan árlega, sbr. 26. gr. laga nr. 75/1981.
    Ríkisskattstjóri skal reikna verðbreytingarstuðul fyrir eignir sem aðili skv. 1. mgr. þessa bráðabirgðaákvæðis hefur eignast á árunum 1973 til 1987. Stuðullinn reiknast í samræmi við ákvæði 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða IV í lögum nr. 75/1981, sbr. 26. gr. sömu laga. Hafi skattaðili eignast fyrnanlegar eignir skv. 1., 3., 4. eða 5. tölul. 32. gr. laga nr. 75/1981 fyrir ársbyrjun 1973 skulu þær ekki endurmetnar samkvæmt þessu ákvæði. Þegar endurmetnar eru eignir skv. 2. tölul. greindrar 32. gr. sem verið hafa í eigu skattaðila í fimmtán ár eða lengur skal ríkisskattstjóri reikna stuðul til notkunar í því sambandi og skal hann hafa sömu viðmiðun og um getur í upphafi þessarar málsgreinar. Liggi byggingarvísitala ekki fyrir skal stuðullinn reiknaður eftir hliðstæðum upplýsingum og skal ríkisskattstjóri hafa samráð við Hagstofu Íslands við útreikninginn.
    Endurmatsverð mannvirkja, sbr. 2. tölul. 32. gr. laga nr. 75/1981, er skattaðila heimilt að ákveða jafnt gildandi fasteignamati í árslok 1988 í stað framreiknaðs kostnaðarverðs (stofnverðs). Sé þessi heimild notuð myndar fasteignamatið nýjan fyrningargrunn. Sé fasteignamatið notað sem fyrningargrunnur samkvæmt þessari málsgrein reiknast ekki fyrningar skv. 3. mgr. þessa bráðabirgðaákvæðis fyrir liðinn tíma.
    Ef sérstakar ástæður eru fyrir hendi má víkja frá skyldu til endurmats samkvæmt ákvæði þessu að því er varðar eignir skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. 32. gr. laga nr. 75/1981 og veitir ríkisskattstjóri heimild til slíkra frávika.
    Reglur þessa ákvæðis gilda einnig um endurmat ófyrnanlegra eigna eftir því sem við á.
    Aðilar skv. 1. mgr. þessa ákvæðis, sem eiga eignir í ársbyrjun 1988 sem ber að endurmeta, skulu senda skattstjóra, eigi síðar en með skattframtali 1989, greinargerð um endurmatið í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
    Endurmatsbreyting samkvæmt þessu ákvæði telst ekki til tekna heldur færist í sérstakan reikning, endurmatsreikning, sem telst til eigin fjár.

II.


    Við ákvörðun á söluhagnaði eigna, sem skattaðili skv. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I hefur eignast fyrir árið 1988, skal stofnverð þeirra framreiknað eftir sömu verðbreytingarstuðlum og með sama hætti og endurmetið er samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I, eftir því sem við á. Eftir þann tíma gilda ákvæði 26. gr. laga nr. 75/1981 um beitingu verðbreytingarstuðuls. Sé um sölu á fyrnanlegum eignum að ræða fer á sama hátt um framreikning fyrninga umræddra eigna.
    Þegar eignir skv. 1., 3., 4. og 5. tölul. 32. gr. laga nr. 75/1981, sem aðili eignaðist fyrir ársbyrjun 1973, eru seldar skal framreikna stofnverð þeirra frá kaupári til söluárs með verðbreytingarstuðli kaupárs og telst söluhagnaður þá mismunur á söluverði og 10% af þannig framreiknuðu stofnverði.
    Nú hefur ríkisskattstjóri veitt undanþágu frá endurmati eigna, sbr. 7. mgr. ákvæðis til bráðabirgða I, og telst þá söluverð þeirra að fullu til tekna á söluári.

III.


    Aðilar, sem skattskyldir verða samkvæmt lögum þessum, skulu reikna verðbreytingarfærslu skv. 53. gr. laga nr. 75/1981 í fyrsta sinn vegna ársins 1988 miðað við stöðu eigna og skulda í lok ársins 1987.

IV.


    Við mat á eignum í ársbyrjun 1988 skulu skattskyldir aðilar samkvæmt lögum þessum draga 1% frá samanlögðum útlánum og veittum ábyrgðum í árslok 1987.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Tekjur og eignir opinberra fjárfestingarlánasjóða, svo og stofnlánasjóða og veðdeilda, sem stofnuð eru með sérstökum lögum eða með reglugerð á grundvelli heimilda í lögum og reknar eru í tengslum við innlánsstofnanir, hafa til þessa ekki verið skattskyldar til tekjuskatts og eignarskatts. Undanþáguákvæði þessi hafa allt frá gildistöku laga nr. 65/1982, um skattskyldu innlánsstofnana, verið nokkuð umdeild, enda hafa þau í för með sér augljósa skattalega mismunun. Í kjölfar þeirra breytinga á lánastarfseminni, sem rutt hefur sér til rúms á nýliðnum árum, hefur þessi mismunun aukist. Þá hefur borið á því að veðdeildir bankanna hafi aukið nokkuð umsvif sín frá því sem áður var í skjóli þessarar undanþágu.
    Í frumvarpi þessu er lagt til að fjárfestingarlánasjóðir, aðrir en þeir sem um ræðir í 2. gr., verði skattskyldir með sama hætti og bankar og sparisjóðir. Meginmarkmið frumvarpsins er að jafna stöðu lánastofnana í þessum efnum. Breytingunni er að auki ætlað að auðvelda framkvæmd og eftirlit með skattheimtunni. Að öðru leyti vísast til athugasemda við einstakar greinar.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Í greininni felst að opinberir fjárfestingarlánasjóðir, svo og stofnlánasjóðir og veðdeildir sem starfa í tengslum við innlánsstofnanir, verða með þeim takmörkunum, sem um ræðir í 2. gr., skattskyldir samkvæmt lögum nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum, á sama hátt og viðskiptabankar og sparisjóðir. Með hugtakinu opinber fjárfestingarlánasjóður eða stofnlánasjóður er í frumvarpi þessu átt við sjóði, stofnanir eða fyrirtæki sem eru stofnuð með lögum eða með heimild í þeim í því skyni að veita fjárfestingarlán til atvinnugreina eða opinberra framkvæmda og undanþegin hafa verið tekjuskatti og eignarskatti til þessa.
    Samkvæmt núgildandi lögum eru stofnanir þessar yfirleitt undanþegnar skattskyldu með tvennum hætti. Annars vegar skv. 4. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, og 2. gr. laga nr. 65/1982, um skattskyldu innlánsstofnana, og hins vegar samkvæmt sérstökum ákvæðum er undanþiggja einstakar stofnanir af þessu tagi opinberum gjöldum og sköttum.
    Verði frumvarp þetta að lögum ná ofangreind undanþáguákvæði ekki lengur til þessara stofnana. Af því leiðir að þær verða skattlagðar eftir sömu reglum og gilda um innlánsstofnanir samkvæmt lögum nr. 65/1982, sbr. lög nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, og gilda ákvæði þeirra að öllu leyti um skattlagninguna eftir því sem við á.
    Sem dæmi um sjóði og veðdeildir, sem skattskyldar verða, má nefna Framkvæmdasjóð Íslands, Orkusjóð, Hafnabótasjóð, Ferðamálasjóð, Fiskveiðasjóð, Fiskræktarsjóð, Framleiðnisjóð landbúnaðarins, Stofnlánadeild landbúnaðarins, Iðnlánasjóð Íslands, Iðnþróunarsjóð, Landflutningasjóð, Stofnlánadeild verslunarfyrirtækja, Stofnlánadeild samvinnufélaga, Lánasjóð sveitarfélaga og veðdeildir innlánsstofnana.
    Rétt er að vekja athygli á því að ákvæði þessa frumvarps hafa hvorki áhrif á gildandi lagaákvæði um skattfrelsi Lánasjóðs íslenskra námsmanna, Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina, lífeyrissjóða né opinberra tryggingar- og jöfnunarsjóða sem njóta skattfrelsis samkvæmt svipuðum lagaheimildum og minnst er á hér að framan. Má í þessu sambandi nefna tryggingarsjóð sparisjóða og viðskiptabanka, opinbera verðjöfnunarsjóði o.s.frv. Hér er ekki um að ræða fjárfestingarlánasjóði eins og þeir eru skilgreindir í frumvarpi þessu og því tekur skattskyldan ekki til þeirra séu þeir undanþegnir skv. 4. gr. tekjuskattslaga eða sérlögum sem um þá kunna að gilda.

Um 2. gr.


    Samkvæmt þessari grein er lagt til að Ríkisábyrgðasjóður, Byggðasjóður, Byggingarsjóður ríkisins, og Byggingarsjóður verkamanna verði undanþegnir skattskyldu samkvæmt lögunum. Hér er um tæmandi talningu að ræða á þeim fjárfestingarsjóðum sem undanþegnir eru skattskyldu.

Um 3. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um ákvæði til bráðabirgða IIV.


    Þar sem í frumvarpi þessu felst skattlagning á stofnanir og fyrirtæki sem ekki hafa áður sætt skattlagningu og hafa því e.t.v. ekki hagað bókhaldi sínu og uppgjöri í samræmi við ákvæði skattalaga er nauðsynlegt að setja ákvæði um endurmat, fyrningarstofn og stofn til söluhagnaðar vegna þeirra eigna sem þessir aðilar hafa eignast fyrir gildistöku laga samkvæmt frumvarpi þessu. Sama á við um stofn til verðbreytingarfærslu. Ákvæðin eru efnislega samhljóða þeim bráðabirgðaákvæðum sem sett voru við gildistöku laga nr. 65/1982, svo og núgildandi tekjuskattslaga, og vísast til þeirra um skýringar.