Ferill 164. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 164 . mál.


Sþ.

177. Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um orkufrekan iðnað.

Frá Jóni Kristjánssyni og Valgerði Sverrisdóttur.



1.     Hvaða ráðstafanir hefur iðnaðarráðuneytið gert til þess að leita samstarfs við erlenda aðila um orkufrekan iðnað, aðrar en að kanna hagkvæmni þess að stækka álverið í Straumsvík eða byggja nýtt álver þar?
2.     Er í gangi kynningarstarfsemi sem byggist á því að orkufrek iðnfyrirtæki verði reist annars staðar en í Straumsvík eða á öðrum hugmyndum en vinnslu á áli?