Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 176 . mál.


Nd.

194. Frumvarp til laga



um breyting á áfengislögum, nr. 82 2. júlí 1969, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988.)



1. gr.

    2. mgr. 2. gr. laganna orðast svo:
    Sterkir drykkir teljast samkvæmt lögum þessum áfengi sem meira er í en 21% af vínanda að rúmmáli. Létt vín telst áfengi, annað en öl, sem í er minna af vínanda.

2. gr.

    Í stað „flugvéla“ í 3. mgr. 4. gr., sbr. lög nr. 7/1985, kemur: loftfara.

3. gr.

    Í stað „skal hreppstjóri“ í 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. kemur: skal lögreglumaður eða hreppstjóri.

4. gr.

    10. gr. laganna orðast svo:
    Ríkisstjórninni er heimilt að setja á stofn útsölustaði áfengis, en þó aðeins í sveitarfélögum þar sem meiri hluti íbúanna býr í þéttbýli og íbúafjöldi hefur náð a.m.k. 1000 í þrjú ár samfellt.
    Áður en útsala er sett á stofn skal fara fram atkvæðagreiðsla kosningabærra manna í því sveitarfélagi sem í hlut á og þarf meiri hluta greiddra atkvæða til þess að útsala sé leyfð.
    Áfengisútsala skal lögð niður ef það er samþykkt með meiri hluta greiddra atkvæða í sveitarfélaginu.
    Atkvæðagreiðsla, sem um getur í 2. og 3. mgr., skal fara fram er þriðjungur kjósenda eða meiri hluti hlutaðeigandi sveitarstjórnar krefst þess. Nú hefur verið fellt með atkvæðagreiðslu að stofna útsölu eða loka útsölu eða samþykkt að leggja niður útsölu og getur atkvæðagreiðsla þá ekki farið fram á ný fyrr en að tveimur árum liðnum.

5. gr.

    1. mgr. l. tölul. 11. gr. laganna orðast svo:
    Lyfsalar og læknar sem rétt hafa til lyfjasölu, þó eingöngu það áfengi sem talið er í lyfjaskrá og aðeins til lyfja.

6. gr.

    12. gr. laganna orðast svo:
    Heimilt er lögreglustjóra að veita veitingastað, sem telst fyrsta flokks að því er snertir húsakynni, veitingar og þjónustu, almennt leyfi til áfengisveitinga. Áður en slíkt leyfi er veitt skal leita umsagnar hlutaðeigandi sveitarstjórnar og er óheimilt að veita leyfi ef sveitarstjórn er leyfisveitingu mótfallin. Áður en sveitarstjórn lætur uppi umsögn skal hún leita álits áfengisvarnarnefndar, sbr. 1. mgr. 30. gr.
    Þriggja manna nefnd, sem dómsmálaráðherra skipar, skal dæma um það hvort veitingastaður telst fyrsta flokks. Ráðherra skipar formann nefndarinnar án tilnefningar en áfengisvarnarráð og Samband veitinga- og gistihúsa tilnefna hvort einn mann. Skipunartími nefndarinnar er 4 ár.
    Leyfi til áfengisveitinga skal ekki veitt til lengri tíma en fjögurra ára í senn. Nú er sótt um endurnýjun leyfis og skal þá framlengja fyrra leyfi til bráðabirgða meðan sú umsókn er til meðferðar. Leyfi skal bundið við nafn veitingamanns og veitir leyfishafa aðeins rétt til veitinga í því húsnæði er hann hefur þegar leyfi er veitt. Taki nýr veitingamaður við rekstri skal hann sækja um nýtt leyfi. Meðan sú umsókn er til meðferðar skal gefa út leyfi til bráðabirgða með sömu skilmálum og fyrra leyfi. Öll leyfi skulu gefin út með fyrirvara um að stytta megi leyfistímann án skaðabótaskyldu fyrir ríkissjóð ef sérstakar ástæður mæla með því að mati dómsmálaráðherra.
    Leyfi til áfengisveitinga skal bundið því skilyrði að veitingastaður hafi á boðstólum mat og fjölbreytta óáfenga drykki við hóflegu verði. Leyfi má binda frekari skilyrðum sem lögreglustjóri eða sveitarstjórn telja nauðsynleg. Dómsmálaráðherra getur sett almennar reglur um skilyrði fyrir leyfisveitingu. Ef veitingamaður brýtur gegn settum skilyrðum eða uppfyllir þau ekki lengur skal lögreglustjóri þegar fella leyfi úr gildi.
    Skylt er lögreglumönnum að gefa sérstakar gætur að starfsemi þeirra veitingastaða sem hafa leyfi til áfengisveitinga. Ráðherra getur ákveðið nánar hvernig eftirliti með veitingastöðum þessum skuli háttað. Skulu leyfishafar endurgreiða ríkissjóði kostnað af eftirliti eftir reglum sem ráðherra setur.
    Nánari fyrirmæli um áfengisveitingar, þar á meðal um veitingatíma, álagningu og eftirlit með veitingastöðum, skulu sett í reglugerð. Áður en slík reglugerð er sett skal leita umsagnar áfengisvarnarráðs og Sambands veitinga- og gistihúsa.

7. gr.

    3. málsl. 2. mgr. 19. gr. laganna fellur niður.

8. gr.

a.     Í stað „vínveitingaleyfi“ í 4. málsl. 2. mgr. 20. gr. kemur: leyfi.
b.     Í stað „vínveitingar“ í 4. mgr. sömu greinar kemur: veitingar áfengis.

9. gr.

a.     1. mgr. 30. gr. laganna orðast svo:
.      Áfengisvarnarnefnd skal vera í hverju sveitarfélagi. Sveitarstjórn ákveður fjölda nefndarmanna. Ráðherra skipar formann áfengisvarnarnefndar að fengnum tillögum áfengisvarnarráðs en að öðru leyti skulu nefndarmenn kosnir af sveitarstjórn. Nefndirnar skulu vera ólaunaðar, en kostnaður við störf þeirra, ef einhver er, greiðist úr ríkissjóði að öðru leyti en því að hlutaðeigandi sveitarstjórn greiðir fyrir nauðsynlegt húsnæði.
b.     Í stað 3. og 4. mgr. sömu greinar kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
.      Heimilt er í samþykkt um stjórn sveitarfélags að fela nefnd eða ráði, sem fjallar um félagslega aðstoð sveitarfélags við íbúa þess, jafnframt hlutverk áfengisvarnarnefndar.

10. gr.

    Í stað „víntegundir“ í 1. mgr. 38. gr. laganna, sbr. lög nr. 52/1978, komi: áfengistegundir.

11. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1989.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með sveitarstjórnarlögum, nr. 8/1986, var réttarstöðu sveitarfélaga breytt þannig að þau hafa öll sömu réttarstöðu og verða sýslunefndir lagðar niður frá ársbyrjun 1989 að telja.
    Í áfengislögum, nr. 82/1969, kemur mismunandi staða sveitarfélaga fram á þremur stöðum, þ.e. í 10. gr. þar sem kveðið er á um útsölustaði áfengis, í
12. gr. þar sem fjallað er um leyfi veitingastaða til áfengisveitinga og í 30. gr. um áfengisvarnarnefndir.
    Nauðsyn ber til að breyta ákvæðum þessum og færa þau til samræmis við aðstæður nú. Er frumvarp þetta flutt í því skyni. Jafnframt er lagt til að breytt verði þeirri skipan að dómsmálaráðherra veiti veitingastöðum leyfi til áfengisveitinga. Er lagt til að það vald verði fært til lögreglustjóra í samræmi við þá þróun að færa verkefni frá miðstjórn til staðbundinna yfirvalda.
    Með lögum nr. 38/1988 var áfengislögunum breytt þannig að frá 1. mars 1989 verður sala og veitingar áfengs öls ekki lengur óheimil. Áfengt öl verður þá heimilt að selja í áfengisútsölum og í veitingahúsum sem leyfi hafa til áfengisveitinga. Nauðsyn ber til að aðlaga ákvæði áfengislaganna þeirri skipan og verði hugtakið „áfengi“ þá jafnan notað, en í nokkrum ákvæðum laganna er nú notað hugtakið „vín“ sem ekki á lengur við miðað við hinar breyttu aðstæður.
    Auk þeirra breytinga sem hér hafa verið raktar felur frumvarpið í sér nokkrar minni háttar breytingar á áfengislögunum sem getið verður nánar í athugasemdum við einstakar greinar þess.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Greinin miðar að því að skilgreina sterka drykki annars vegar og létt vín hins vegar með tilliti til þess að áfengt öl verður nú löglegt.

Um 2. gr.


    Lagt er til að í 5. gr. laganna verði hugtakið „loftfar“ notað í stað hugtaksins „flugvél“, en flugvél er ein tegund loftfara eins og það hugtak er skilgreint samkvæmt loftferðalögum.

Um 3. gr.


    Í 5. gr. áfengislaganna er vikið að viðbrögðum hreppstjóra þegar skip strandar og hefur meðferðis áfengi. Rétt er að lögreglumanna almennt verði hér getið auk hreppstjóra.

Um 4. gr.


    Með sveitarstjórnarlögunum frá 1986 hefur verið gerð breyting á réttarstöðu sveitarfélaga og hafa kaupstaðir eigi lengur sérstöðu meðal sveitarfélaganna. Í 10. gr. áfengislaganna er heimild til að setja á stofn áfengisútsölu bundin við kaupstaði. Er lagt til að greininni verði breytt á þann veg að heimild til að setja á stofn útsölustaði áfengis miðist við
sveitarfélög þar sem meiri hluti íbúanna býr í þéttbýli og íbúafjöldi hefur náð a.m.k. 1000 í þrjú ár samfellt. Eru það þau sveitarfélög sem skv. 8. gr. sveitarstjórnarlaga mega nefnast bær.

Um 5. gr.


    Breytingin felur í sér að rætt er um áfengi en ekki vín.

Um 6. gr.


    Samkvæmt 12. gr. áfengislaganna er dómsmálaráðherra heimilað að veita veitingahúsum leyfi til vínveitinga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Má þannig ekki veita leyfi ef hlutaðeigandi bæjarstjórn eða sýslunefnd er leyfisveitingu mótfallin.
    Vegna breyttra aðstæðna frá því heimild til að veita veitingahúsum leyfi til vínveitinga var fyrst lögtekin á árinu 1954 þykja ekki vera efni til að þessar leyfisveitingar skuli áfram vera í höndum ráðherra og ráðuneytis. Er gert ráð fyrir að um slík leyfi fari samkvæmt almennum reglum og að leyfisveiting flytjist til hlutaðeigandi lögreglustjóra. Er eðlilegt að veitingavald í þeim efnum verði í höndum lögreglustjórnarinnar svo sem er einnig um almenn veitingaleyfi. Jafnframt er lögð áhersla á ábyrgð sveitarstjórna að þessu leyti með því að áfram er gert ráð fyrir því að óheimilt verði að veita áfengisleyfi ef sveitarstjórn er leyfisveitingu mótfallin. Þar sem sýslunefndir verða lagðar niður frá ársbyrjun 1989 að telja er gert ráð fyrir því að allar sveitarstjórnir hafi umsagnaraðild, hver innan síns umdæmis, auk áfengisvarnarnefnda þar sem þær starfa, sbr. ákvæði 9. gr. frumvarpsins og gildistökuákvæði.
    Frumvarpsgreinin felur að auki í sér nokkrar aðrar breytingar. Lagt er til að skipunartími matsnefndar þeirrar, sem dæmir um hvort veitingastaður fullnægi skilyrðum til að fá leyfi til áfengisveitinga, verði fjögur ár, en í núgildandi lögum er ekki ákvæði um skipunartíma nefndarinnar. Þá eru ákvæði sem ákvarða stöðu veitingamanns þegar sótt er um endurnýjun leyfis eða nýr maður tekur við rekstri veitingastaðar þann tíma sem umsókn er til meðferðar. Í reynd hefur verið litið svo á að fyrra leyfi gildi meðan svo stendur á, en rétt er að lögfesta þá skipan.
    Með því að útgáfa leyfa flyst samkvæmt frumvarpinu frá dómsmálaráðuneyti í hendur lögreglustjóra er gert ráð fyrir því að dómsmálaráðherra geti sett almennar reglur um skilyrði fyrir leyfisveitingu. Jafnframt er lagt til að til lögreglustjóra flytjist sú heimild sem ráðherra hefur nú til að fella niður
leyfi ef veitingamaður brýtur gegn settum skilyrðum eða uppfyllir þau ekki lengur.
     Ákvæði greinarinnar, sem að öðru leyti eru í meginatriðum í samræmi við gildandi lagaákvæði, þarfnast ekki skýringa. Rétt er þó að taka fram að lagt er til að Samband veitinga- og gistihúsa verði umsagnaraðili við setningu reglugerða um áfengisveitingar.

Um 7. gr.


    Lagt er til að fellt verði niður sérákvæði 19. gr. áfengislaganna um lögregluskýrslur til dómara og um dómsrannsókn. Um það efni fer nú samkvæmt almennum ákvæðum laga um meðferð opinberra mála.

Um 8. gr.


    Með hliðsjón af því að áfengt öl hefur verið heimilað þykir rétt að nota ekki framar hugtökin „vínveitingar“ og „vínveitingaleyfi“.

Um 9. gr.


    Lagt er til að áfram verði miðað við það að áfengisvarnarnefndir starfi í öllum sveitarfélögum, kosnar af sveitarstjórn en formaður skipaður af ráðherra að fengnum tillögum áfengisvarnarráðs. Fellt er hins vegar niður ákvæði um fjölda nefndarmanna, hlutfallskosningar og skipunartíma, en um það efni mundi fara eftir almennum ákvæðum sveitarstjórnarlaga og samþykkt um stjórn sveitarfélags.
    Þá er lagt til að ákvæði 3. og 4. mgr. 30. gr. áfengislaganna um heimild ráðherra til að fela félagsmálaráði störf áfengisvarnarnefndar að nokkru eða öllu leyti verði breytt. Verði ákvæðið almenns eðlis þannig að í samþykkt um stjórn sveitarfélags megi ákveða að nefnd eða ráði, sem fjallar um félagslega aðstoð sveitarfélags við íbúa þess, skuli falið hlutverk áfengisvarnarnefndar. Er slík skipan í samræmi við ákvæði 58. gr. sveitarstjórnarlaga um sameiningu nefnda.

Um 10. gr.


    Breyting þessi leiðir af því að áfengt öl hefur verið heimilað.

Um 11. gr.


    Lagt er til að gildistaka þeirra breytinga, sem í frumvarpinu felast, verði 1. janúar nk. Meginbreyting frumvarpsins varðar efni 12. gr. áfengislaganna og heimild til að leyfa áfengisveitingar á veitingastöðum. Er
rétt að sú breyting komi til framkvæmda áður en heimild til að veita áfengt öl tekur gildi 1. mars nk. Þá er þess og að gæta að sýslunefndir eru lagðar niður frá næstu áramótum að telja og geta þær því eigi lengur verið umsagnaraðilar.