Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 20 . mál.


Ed.

200. Nefndarálit



um frv. til l. um aðgerðir í efnahagsmálum.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Frumvarp þetta er flutt til staðfestingar á bráðabirgðalögum sem gefin voru út 20. maí sl. að tillögu fyrrverandi ríkisstjórnar. Bráðabirgðalögunum hefur verið breytt tvívegis, fyrst 31. maí vegna nokkurrar óvissu um skilning á 8. gr. laganna og síðan í september eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum. Þá voru gerðar verulegar breytingar á lögunum með nýjum bráðabirgðalögum (sbr. 8. mál). Þannig eru aðeins fáar greinar upphaflegu laganna enn í gildi.
    Meiri hl. nefndarinnar telur eðlilegast að frumvarp þetta verði afgreitt á þann hátt að inn í það verði felldar þær breytingar sem gerðar hafa verið á efni þess síðar og flytur breytingartillögur í samræmi við það á sérstöku þingskjali. Meiri hl. nefndarinnar telur því ekki ástæðu til að afgreiða 21. mál.
    Um efnisatriði frumvarpsins að öðru leyti vísast til nefndarálits um 8. mál.
    Fulltrúi Alþýðubandalagsins hefur fyrirvara um þær greinar frumvarpsins sem eftir standa óbreyttar frá því í maí sl.

Alþingi, 8. des. 1988.



Eiður Guðnason,

Valgerður Sverrisdóttir,

Margrét Frímannsdóttir,


form., frsm.

fundaskr.

með fyrirvara.



Jóhann Einvarðsson.