Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 20 . mál.


Ed.

201. Breytingartillögur



við frv. til l. um aðgerðir í efnahagsmálum.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (EG, VS, MF, JE).



1.     Við 1. gr. Greinin orðist svo:
.      Laun, þ.e. launataxtar og kjaratengdir liðir, þar á meðal kauptrygging sjómanna, í síðast gildandi kjarasamningum, skulu hinn 1. júní 1988 hækka um það sem á kann að vanta 10% hækkun frá 31. desember 1987 að telja.
.      Í stað launahækkana, sem koma skyldu til framkvæmda á tímabilinu 1. september 1988 til og með 1. mars 1989, skulu laun hækka um 1,25% hinn 15. febrúar 1989. Ákvæði kjarasamninga um aðrar launahækkanir eftir 1. mars 1989 halda gildi sínu.
.      Kjarasamningar, sem ákveða minni hækkun launa en felast í 1. og 2. mgr. þessarar greinar, breytast í samræmi við þær.
.      Ákvæði 1. mgr. þessarar greinar raska ekki þeim ákvæðum gildandi kjarasamninga, sem falið hafa í sér meiri hækkun launa en kveðið er á um í 1. mgr., enda hafi sú hækkun komið til framkvæmda fyrir gildistöku bráðabirgðalaga nr. 74 26. ágúst 1988.
.      Frekari hækkun launa, kjaratengdra liða og hvers konar endurgjalds fyrir unnin störf en kveðið er á um í þessari grein er óheimil til 15. febrúar 1989. Ákvæði þessarar greinar breyta ekki reglum um starfsaldurshækkanir eða aðrar einstaklingsbundnar launabreytingar samkvæmt þegar gildandi kjarasamningum.
2.     Við 2. gr. Greinin orðist svo:
.      Fjárhæðir launaliða í verðlagsgrundvelli búvöru skulu til 1. mars 1989 ekki taka meiri hækkunum en mælt er fyrir um í 1. og 2. mgr. 1. gr.
3.     Við 3. gr. Greinin orðist svo:
.      Fjárhæðir launaliða í gjaldskrám sjálfstætt starfandi sérfræðinga skulu til 28. febrúar 1989 ekki hækka meira en greinir í 1. og 2. mgr. 1. gr. Sama gildir um hvers kyns útselda vinnu og þjónustu.
4.     Við 4. gr. 1. mgr. orðist svo:
.      Með þeim breytingum á kaupgjaldsákvæðum kjarasamninga, sem kveðið er á um í lögum þessum, framlengjast allir gildandi og síðast gildandi kjarasamningar til 15. febrúar 1989. Heimilt skal að segja upp kjarasamningum frá 15. febrúar 1989 með þeim uppsagnarfresti sem um þá gildir.
5.     Við 7. gr. Greinin orðist svo:
.      Gjaldskrár fyrirtækja og stofnana á vegum ríkis og sveitarfélaga skulu ekki hækka til 28. febrúar 1989. Þó skal heimilt að taka tillit til hækkana á verði innfluttra aðfanga enda liggi fyrir mat Verðlagsstofnunar á þeirri þörf.
6.     Við 8. gr. Greinin orðist svo:
.      Verðtrygging nýrra fjárskuldbindinga til skemmri tíma en tveggja ára er óheimil frá 1. júlí 1988. Með fjárskuldbindingum í þessu sambandi er átt við sparifé og lánsfé.
.      Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur Seðlabanki Íslands að fengnu samþykki viðskiptaráðherra auglýst reglur er leyfi innlánsstofnunum að taka á móti sparifé og öðrum innstæðum gegn verðtryggingu til skemmri tíma en tveggja ára.