Ferill 8. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 8 . mál.


Ed.

207. Nefndarálit



um frv. til l. um efnahagsaðgerðir.

Frá minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar í september hafa ekki komið að neinu haldi. Útflutningsgreinarnar eru reknar með vaxandi halla og fyrirtæki í samkeppnisgreinum sömuleiðis, auk þess sem hlutdeild þeirra í markaðnum hefur farið minnkandi og heldur áfram að minnka. Það hefur ekki þýðingu að nefna tölur í þessu sambandi, þær úreldast áður en búið er að reikna þær út. Þó er óhætt að fullyrða að við óbreytt rekstrarskilyrði muni tap sjávarútvegsins á næsta ári nema milljörðum króna. Stöðvun og gjaldþrot fjölda fyrirtækja blasir því við eins og þegar er reyndar komið í ljós.
    Miðað við óbreyttar forsendur er veruleg byggðaröskun óhjákvæmileg og gera má ráð fyrir atvinnuleysi er tekur til þúsunda manna. Ógjörningur er að sjá fyrir afleiðingar þess ef rekstrarstöðvun í sjávarútvegi verður almenn.
    Minni hl. nefndarinnar flytur breytingartillögur á sérstökum þingskjölum sem hér skal gerð grein fyrir.
    Sjávarútvegsráðherra hefur m.a. lýst yfir á þingi Sjómannasambands Íslands og í viðræðum við stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna að endurgreiðsla á láni Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins muni falla á ríkissjóð. Einsýnt er að hafa lagatextann í samræmi við það.
    Minni hl. tekur fram að ekki er hægt að bæta eiginfjárstöðu fyrirtækja né tryggja eðlilegan rekstur þeirra nema almenn rekstrarskilyrði útflutnings- og samkeppnisgreina séu þannig að vel rekin fyrirtæki skili hagnaði. Því er ekki til að dreifa nú. Þvert á móti hefur langvarandi hallarekstur etið upp eigið fé fyrirtækjanna svo að mörg þeirra eru ekki lengur rekstrarhæf, jafnvel þótt almenn rekstrarskilyrði yrðu viðunandi. Við þessar aðstæður verður að horfast í augu við þá staðreynd að gengi krónunnar er fallið en lögum samkvæmt ber Seðlabankanum að taka ákvarðanir um gengi krónunnar sem „miðast við að halda sem stöðugustu gengi og að ná settu markmiði um viðskiptajöfnuð en tryggja jafnframt rekstrargrundvöll útflutningsatvinnuveganna og samkeppnisgreina“. Í lögunum er sú skylda lögð á Seðlabankann að „tryggja“ rekstrargrundvöll enda
hefur reynslan hvarvetna verið sú að það hefur jafnan haft skelfilegar afleiðingar ef gengi gjaldmiðils hefur verið skráð of hátt og hækkandi til langframa. Um hitt markmiðið, að ná jafnvægi í viðskiptunum við útlönd, þarf ekki að hugsa meðan gjaldeyririnn er á útsölu.
    Jafnframt því sem nauðsynlegt er að leiðrétta gengið er óhjákvæmilegt að treysta eiginfjárstöðu fyrirtækja og losa um greiðslustöðuna þannig að þeim sé gert kleift að skipta tapinu á mörg ár með skuldbreytingu. En forsendan er auðvitað sú að fyrirtækin geti skilað hagnaði. Með slíkum aðgerðum er unnt að ná viðspyrnu á nýjan leik og leggja grunn að jafnvægi í þjóðarbúskapnum. En það er að sjálfsögðu forsenda batnandi lífskjara og áframhaldandi uppbyggingar.
    Verði gengið fellt er nauðsynlegt að mæta því með lækkun söluskatts á helstu nauðsynjar heimilanna.
    Ekki er fyrir það að synja að mörg fyrirtæki í útflutnings- og samkeppnisgreinum eiga í mjög miklum erfiðleikum af ýmsum toga sem bætast ofan á þá almennu örðugleika sem nú eru í atvinnugreinunum í heild.
    Minni hl. leggur áherslu á nauðsyn þess að með breytingu á skattalögum verði fyrirtækjum auðveldað að skipuleggja fjárfestingu sína fram í tímann og mæta sveiflum. Það yrði annað tveggja gert með greiðslum í verðjöfnunarsjóð á nafni viðkomandi fyrirtækis eða heimild til að geyma fé á bundnum reikningum sem kemur til skattlagningar þegar það er tekið út.
    Minni hl. getur ekki fallist á Atvinnutryggingarsjóð útflutningsgreina eins og markmið hans er skilgreint í frumvarpinu og eins og stjórn hans er skipuð, sem brýtur í bága við þingræðishefð og er til þess fallið að vekja tortryggni eins og margsinnis hefur komið fram á opinberum vettvangi, ekki síst meðal starfsfólks í fyrirtækjum í sjávarútvegi eða samkeppnisgreinum. Stofnun nýs Atvinnutryggingarsjóðs er auk þess viðbót við sjóðakerfið og hefur óþarfa kostnað í för með sér.
    Minni hl. leggur til að í stað Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina verði stofnuð sérstök rekstrardeild við Byggðastofnun er hafi sjálfstæðan fjárhag og það markmið að treysta fjárhagsstöðu fyrirtækja í útflutnings- og samkeppnisgreinum í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu, meiri háttar skipulagsbreytingar, samruna fyrirtækja og annað það sem til hagræðingar horfir.
    Minni hl. getur ekki fallist á að tekjur Atvinnuleysistryggingasjóðs séu skertar. Á hinn bóginn er eðlilegt að rekstrardeild fái heimild til innlendrar lántöku allt að 600 millj. kr. sem endurgreiðist af ríkissjóði og verði hluti af framlagi hans.
    Minni hl. leggur áherslu á nauðsyn þess að komið verði á fót opnum hlutabréfamarkaði hér landi. Til að stuðla að því leggja þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Samtaka um kvennalista til að stofnaður verði hlutafjársjóður við Byggðastofnun er hafi sjálfstæðan fjárhag og afli tekna með sölu aðildarbréfa. Sjóðurinn skal síðan kaupa hlutabréf í fyrirtækjum í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu þeirra eða samruna fyrirtækja. Nauðsynlegt er að veltuhraði í slíkum hlutafjársjóði sé sem mestur og því er ákveðið að hlutabréf séu boðin til sölu innan fjögurra ára. Ávöxtun aðildarbréfanna fer eftir því hvaða arð hlutabréfaeignin í heild gefur. Erlendis hefur góð reynsla fengist af slíkum hlutabréfasjóðum.
    Atvinnuástand er víða ótryggt og verulegt atvinnuleysi ýmist orðið eða blasir við. Þess vegna leggja þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Samtaka um kvennalista til að skipaðar verði atvinnunefndir í kjördæmunum er fylgist með þróun atvinnumála og verði Byggðastofnun til ráðuneytis um verkefni rekstrardeildar.
    Danfríður Skarphéðinsdóttir, þingmaður Samtaka um kvennalista, sat fundi nefndarinnar og er samþykk nefndaráliti þessu.

Alþingi, 9. des 1988.



Halldór Blöndal,

Júlíus Sólnes.

Ey. Kon. Jónsson.



frsm.