Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 187 . mál.
Nd.
218. Frumvarp til laga
um sölu notaðra bifreiða og annarra skráningarskyldra ökutækja.
Flm.: Ingi Björn Albertsson, Geir Gunnarsson, Guðmundur G. Þórarinsson,
Jón Sæmundur Sigurjónsson, Kristín Halldórsdóttir, Stefán Valgeirsson.
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Hver sá, sem reka vill verslun eða umboðssölu með notaðar bifreiðar eða önnur skráningarskyld ökutæki, skal hafa til þess sérstakt leyfi dómsmálaráðuneytis. Leyfi skal veitt til fimm ára í senn og aðeins þeim sem fullnægja skilyrðum laga nr. 41/1968, um verslunaratvinnu, og fullnægja að öðru leyti þeim skilyrðum sem sett eru í lögum þessum.Leyfishafi skal leggja fram tryggingu sem dómsmálaráðuneytið metur gilda, að fjárhæð 1,5 millj. kr., til að standa straum af skaðabótum sem honum kann að verða gert að greiða viðskiptamanni vegna starfsemi sinnar. Fjárhæð tryggingar skal taka mið af verðlagsþróun eftir nánari reglum sem dómsmálaráðherra setur með reglugerð.
Leyfishafi, svo og þeir sem starfa á hans vegum, skulu standast próf í samningarétti og skjalagerð eftir nánari reglum sem dómsmálaráðherra setur með reglugerð. Undanþegnir slíku prófi eru þó héraðsdóms- og hæstaréttarlögmenn.
Öðrum en þeim sem fengið hafa leyfi samkvæmt grein þessari er óheimilt að reka verslun eða umboðssölu með notaðar bifreiðar eða önnur skráningarskyld ökutæki.
2. gr.
Afturkalla má leyfi skv. 1. gr. ef sannað þykir að leyfishafi hafi brotið lög nr. 41/1968, ákvæði laga þessara eða lög um óréttmæta viðskiptahætti eða ef leyfishafi fullnægir ekki lengur skilyrðum til að mega reka starfsemina.3. gr.
Dómsmálaráðuneytið skal láta útbúa almenn stöðluð afsalseyðublöð og sölukvittanir sem beri sömu númer og bifreiðasala er skylt að nota í viðskiptum með notaðar bifreiðar eða önnur skráningarskyld ökutæki. Skulu eyðublöð þessi þannig gerð að þau gegni einnig hlutverki sölutilkynningar til Bifreiðaeftirlits ríkisins.Seljandi bifreiðar eða annars skráningarskylds ökutækis skal sanna með vottorði Bifreiðaeftirlits ríkisins að hann sé skráður eigandi þess. Bifreiðasala er óheimilt að annast sölu bifreiðar eða annars skráningarskylds ökutækis nema ótvírætt sé að seljandi sé skráður eigandi þess eða fyrir liggi skrifleg heimild frá skráðum eiganda sé hann annar en seljandi og að fyrir liggi veðbókarvottorð yfir ökutækið.
II. KAFLI
Réttindi og skyldur bifreiðasala.
4. gr.
Bifreiðasali skal í hvívetna leysa störf sín af hendi svo sem góðar viðskiptavenjur bjóða. Hann skal gæta þess að viðskiptamenn hans njóti jafnræðis um upplýsingar, verð og önnur viðskiptakjör, svo og þess að aðila séu eigi settir ólögmætir, ósanngjarnir eða óeðlilegir kostir í samningum. Telji bifreiðasali vafa leika á um greiðslugetu kaupanda skal hann gera seljanda um það viðvart.5. gr.
Bifreiðasali skal afla upplýsinga sem staðfestar skulu skriflega af seljanda um árgerð, akstur og ástand bifreiðar eða annars skráningarskylds ökutækis, svo og annarra þeirra upplýsinga sem kaupanda eru nauðsynlegar vegna kaupanna. Gögn þessi skal bifreiðasali varðveita í eitt ár frá söludegi viðkomandi ökutækis.6. gr.
Bifreiðasali skal annast um að endanlega sé gengið frá afsölum og öðrum skjölum vegna viðskipta á hans vegum og skal nafn þess bifreiðasala, sem gengur frá samningi, koma fram á afsali. Þá skal bifreiðasali jafnframt annast um að Bifreiðaeftirliti ríkisins berist sölutilkynning vegna hverrar bifreiðar eða annars skráningarskylds ökutækis sem selt er á hans vegum.Nú annast bifreiðasali eða annar aðili viðskipti með bifreiðar eða önnur skráningarskyld ökutæki, fyrir hönd kaupanda eða seljanda, og skal sá aðili þá hafa skriflegt dagsett umboð er heimili slíka milligöngu.
7. gr.
Nú hyggst bifreiðasali, bifreiðasalan sjálf eða starfsmenn hennar selja eigin bifreið eða annað skráningarskylt ökutæki í rekstri sínum eða kaupa bifreið eða annað skráningarskylt ökutæki sem þessum aðilum hefur verið falið að annast sölu á og skal þá viðskiptamanni kynnt það sérstaklega og þess jafnframt getið í afsali. Sama gildir um maka bifreiðasala og náin skyldmenni hans.8. gr.
Þóknun bifreiðasala vegna aðstoðar við sölu bifreiðar eða annars skráningarskylds ökutækis skal ekki fara fram yfir 2% af söluverði ökutækisins en rétt er bifreiðasala að áskilja sér aukalega útlagðan auglýsingakostnað, enda hafi auglýsing verið birt sérstaklega að beiðni seljanda. Sé önnur bifreið eða skráningarskylt ökutæki notað sem greiðsla í viðskiptunum skal seljandi þess ökutækis greiða 1% þóknun vegna sölu þess.III. KAFLI
Viðurlög.
9. gr.
Brot gegn lögum þessum varða sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að sex mánuðum. Mál vegna brota á lögum þessum skulu sæta meðferð að hætti opinberra mála.10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi þau ákvæði laga nr. 61/1979 sem fjalla sérstaklega um bifreiðar eða samrýmast ekki ákvæðum laga þessara að öðru leyti.Þeim sem við gildistöku laga þessara stunda starfsemi sem lögin taka til er heimilt án leyfis dómsmálaráðuneytis að reka starfsemi sína til 31. desember 1990.
Greinargerð.
Á undanförnum árum hefur alloft orðið nokkur umræða um nauðsyn þess að setja löggjöf um starfsemi þeirra sem stunda verslun og umboðssölu með notaðar bifreiðar. Hefur umræðan oftar en ekki einkennst af neikvæðum viðhorfum í garð þeirra er þessa starfsemi stunda, oftast óverðskuldað. Því þykir full ástæða til að setja löggjöf um þessa starfsemi sem gæti orðið bæði bifreiðasölum og
viðskiptamönnum þeirra til hagsbóta. Að vísu voru sett lög um sölu notaðra lausafjármuna, lög nr. 61/1979, en ákvæði þeirra um sölu notaðra bifreiða eru afar ófullkomin svo að ekki sé fastar að orði kveðið. Frumvarpi þessu er ætlað að bæta hér úr auk þess sem ætla má að löggjöf um þessi efni sé bæði bifreiðasölum og viðskiptamönnum þeirra til hagsbóta og geti dregið úr ágreiningi og deilum og létt af bílasölum óréttmætri gagnrýni vegna starfa þeirra.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í greininni er mælt fyrir um það hvaða skilyrðum þurfi að fullnægja til að mega reka verslun eða umboðssölu með notaðar bifreiðar eða önnur skráningarskyld ökutæki. Í lögunum sjálfum er hugtakið bifreið ekki skilgreint, en stuðst er við þá skilgreiningu sem fram kemur í umferðarlögum, nr. 50/1987. Um skráningarskyld ökutæki að öðru leyti vísast til reglna sem dómsmálaráðherra setur skv. 64. gr. sömu laga.
Í 1. mgr. eru sett sömu skilyrði og í lögum nr. 61/1979, um sölu notaðra lausafjármuna, að öðru leyti en því að gert er ráð fyrir að leyfisveitingar verði í höndum dómsmálaráðherra í stað lögreglustjóra eins og mælt er fyrir í lögum nr. 61/1979. Þykir þetta eðlilegri skipan enda er dómsmálaráðherra ætlað að setja ýmsar reglur um bifreiðar samkvæmt lögum nr. 50/1987.
Í 2. mgr. kemur fram það nýmæli að bifreiðasala er gert að leggja fram tryggingu, sem dómsmálaráðherra metur gilda, til að standa straum af skaðabótum sem honum kann að verða gert að greiða viðskiptamanni vegna starfsemi sinnar. Ýmis tilvik getur borið að höndum sem kunna að leiða til bótaábyrgðar bifreiðasala eftir almennum reglum. Ákvæði þessu er ætlað að tryggja að bifreiðasali hafi ávallt nokkurt svigrúm til að greiða slíkar bætur, auk þess sem ákvæðið er nokkur trygging fyrir viðskiptamann sem kann að eiga rétt til bóta. Lagt er til í 2. mgr. að fjárhæð tryggingar taki mið af verðlagsþróun eftir nánari reglum sem dómsmálaráðherra setur með reglugerð.
Í 3. mgr. er mælt fyrir um að leyfishafi, svo og þeir sem starfa á hans vegum, skuli standast próf í grundvallaratriðum samningaréttar og skjalagerð. Þykir eðlilegt að gera þessar kröfur til þessara aðila, enda eru þessi atriði snar þáttur í starfi þeirra og nauðsynlegt að þeir hafi nokkra grunnþekkingu á þessu sviði.
Í 4. mgr. er loks ótvírætt tekið fram að einungis þeim sem til þess hafa fengið sérstakt leyfi skv. 1. gr. sé heimilt að stunda þá starfsemi sem lögin taka til.
Um 2. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 3. gr.
Í 1. mgr. er gert ráð fyrir því að dómsmálaráðuneytið láti útbúa almenn stöðluð afsalseyðublöð og sölukvittanir sem bifreiðasala sé skylt að nota í viðskiptum með notaðar bifreiðar og önnur skráningarskyld ökutæki. Er að þessu leyti höfð nokkur hliðsjón af 4. gr. laga nr. 44/1979, um húsaleigusamninga. Ákvæðinu er ætlað að stuðla að því að rétt og örugglega sé frá samningum þessum gengið og ekki séu í afsölum ólögmæt eða ósanngjörn ákvæði. Samræmd tölumerking afsala og sölukvittana er mikilvæg frá skattalegu sjónarmiði.
Þá er einnig gert ráð fyrir því nýmæli í 1. mgr. að afsalseyðublöð séu einnig sölutilkynningar til Bifreiðaeftirlits ríkisins en nánari útfærsla þess er lögð í hendur dómsmálaráðuneytisins. Slíkt fyrirkomulag yrði vafalaust til hagræðingar fyrir alla þá er gögn þessi varða.
Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. er samhljóða 3. mgr. 7. gr. laga nr. 61/1979, að öðru leyti en því að bætt er við ákvæði um önnur skráningarskyld ökutæki. Auk þess er því bætt hér við að sé eignarhald á bifreið eða öðru skráningarskyldu ökutæki ekki ótvírætt eða fyrir liggi skrifleg heimild frá skráðum eiganda sé bifreiðasala óheimilt að annast sölu ökutækis. Er með þessu stefnt að auknu öryggi í þessum viðskiptum. Sömu forsendur liggja að baki því ákvæði 2. mgr. að bifreiðasala sé óheimilt að annast sölu nema fyrir liggi veðbókarvottorð.
Um 4. gr.
Í 4. gr. felst almennt ákvæði um skyldur bifreiðasala gagnvart viðskiptamönnum sínum. Áréttað er að bifreiðasali er í þjónustu beggja aðila, seljanda og kaupanda, og ber að gæta hagsmuna þeirra beggja við samningsgerð eins og kostur er. Þó má ætla að vegna reynslu sinnar sé bifreiðasala e.t.v. kunnugt um að kaupandi hafi litla sem enga raunhæfa möguleika á að standa við skyldur sínar samkvæmt tilboði og er þá eðlilegt að bifreiðasali geri seljanda um það viðvart. Áhættan hvílir eftir sem áður á seljanda taki hann tilboði eigi að síður.
Um 5. gr.
Í 5. gr. er sú skylda lögð á bifreiðasala að afla þeirra upplýsinga sem kaupanda eru nauðsynlegar vegna kaupa á bifreið eða öðru skráningarskyldu ökutæki. Ákvæðinu er hvorki ætlað að leysa seljanda undan ábyrgð vegna þeirra
upplýsinga sem hann veitir né er því ætlað að slaka á hinni svokölluðu „rannsóknarskyldu“ sem hvílir á kaupanda skv. 47. gr. laga nr. 39/1922, um lausafjárkaup. Hins vegar er ákvæðinu ætlað að skerpa skyldu bifreiðasala til að miðla þeim upplýsingum sem hann veit um eða hefur aflað í starfi sínu sem bifreiðasali. Varðveisluskylda bifreiðasala á gögnum í eitt ár er í tengslum við ákvæði 54. gr. laga nr. 39/1922. Ákvæði um skriflega staðfestingu seljanda á þeim upplýsingum, sem hann veitir, tryggir sönnun málsatvika ef til ágreinings kemur vegna viðskipta með notaðar bifreiðar eða önnur skráningarskyld ökutæki.
Um 6. gr.
Í 1. mgr. er leitast við að tryggja endanlegan frágang skjala vegna bifreiðaviðskipta. Ákvæðinu er m.a. ætlað að sporna við hinum svokölluðu „opnu afsölum“ sem lengi hafa tíðkast og oft leitt til vandræða, ekki síst vegna opinberrar skráningar bifreiða og réttaráhrifa hennar. Þá þykir eðlilegt að fram komi á afsali hvaða bifreiðasali annaðist samningsgerð. Sérstaklega skal bent á það ákvæði greinarinnar að bifreiðasali skuli annast um að sölutilkynning berist Bifreiðaeftirliti ríkisins. Nú hvílir þessi skylda á seljanda bifreiðar samkvæmt reglugerð um Bifreiðaeftirlit ríkisins. Misbrestur hefur því miður orðið á að seljendur sinni þessari skyldu sinni og þykir því tryggilegast að bifreiðasali annist þetta atriði. Hins vegar þurfa kaupendur eftir sem áður að framvísa sölutilkynningu er þeir umskrá bifreið á sitt nafn.
Ákvæði 2. mgr. þarfnast ekki skýringa.
Um 7. gr.
Ákvæði 7. gr. er ætlað að koma í veg fyrir hugsanlega misnotkun bifreiðasala eða starfsmanna hans á aðstöðu sinni. Að öðru leyti þarfnast greinin ekki skýringa.
Um 8. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 9. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringa.
Um 10. gr.
Ákvæði 1. mgr. þarfnast ekki skýringa.
Samkvæmt 2. mgr. er þeim sem við gildistöku laga þessara stunda starfsemi sem lögin taka til veittur nokkur aðlögunartími vegna breyttrar löggjafar á þessu sviði. Eðlileg sanngirnissjónarmið mæla með þessu ákvæði.