Ferill 195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 195 . mál.


Ed.

231. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 91/1982, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988.)



1. gr.

    1. mgr. 28. gr. laganna orðast svo:
    Lög þessi gilda til 31. desember 1989.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Lög um málefni aldraðra, nr. 91 31. desember 1982, með síðari breytingum, hafa að geyma sólarlagsákvæði um að þau rynnu úr gildi 31. desember 1987, enda hefðu þau ekki verið endurskoðuð fyrir þann tíma.
    Með lögum nr. 32 27. mars 1987 var gildistími laganna framlengdur til 31. desember 1988.
    Um alllangt skeið hefur staðið yfir á vegum heilbrigðisráðuneytisins endurskoðun laga um málefni aldraðra. Endurskoðunin hefur nokkuð tafist, ekki síst vegna óvissu um framvindu frumvarps um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
    Ljóst er að ekki gefst tími til að afgreiða nýtt frumvarp til laga um málefni aldraðra áður en gildistími núgildandi laga rennur út 31. desember 1988. Nauðsyn ber því til að framlengja að nýju gildistíma laganna, enda allir sammála um að ekki sé tímabært að lögin falli úr gildi.
    Því er hér lagt fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra sem gerir ráð fyrir að gildistími laga nr. 91/1982 verði framlengdur til 31. desember 1989. Gert er ráð fyrir að nýtt frumvarp til laga um málefni aldraðra verði lagt fyrir Alþingi fljótlega eftir jólaleyfi, í ársbyrjun 1989.