Ferill 201. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 201 . mál.


Sþ.

264. Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um áfengiskaup handhafa forsetavalds og hlutverk Ríkisendurskoðunar.

Frá Stefáni Valgeirssyni.



1.     Hvaða reglur gilda nú, og hafa gilt, um kaup handhafa forsetavalds á áfengi?
2.     Hvenær vissi Ríkisendurskoðun fyrst um umtalsverð áfengiskaup handhafa forsetavalds?
3.     Hvenær fékk ríkisstjórnin fyrst skýrslu um áfengiskaup handhafa forsetavalds?
4.     Hver eru mörkin um áfengiskaup handhafa forsetavalds sem ástæða er til að gera athugasemdir við eða láta það ógert?
5.     Hvað veldur því að Ríkisendurskoðun er falið vald til að fara með þann þátt dómsmála að ákveða hvort hafa skuli uppi aðgerðir í mögulegum dómsmálum?
6.     Eru það fleiri mál eða málaflokkar, sem heyra til dómsmálum, sem dómsmálaráðuneytið hefur eða ætlar að fela Ríkisendurskoðun?
7.     Nú hefur dómsmálaráðherra veitt einum hæstaréttardómara lausn til bráðabirgða úr starfi vegna áfengiskaupa. Upplýst hefur verið að fleiri hafi notað þennan meinta rétt til áfengiskaupa í verulegum mæli. Hvað verður gert í málum þeirra?
8.     Eru áform uppi hjá dómsmálaráðherra að láta rannsaka þessi mál til hlítar og gefa Alþingi skýrslu um þau?



Skriflegt svar óskast.