Ferill 8. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 8 . mál.


Nd.

293. Nefndarálit



um frv. til l. um efnahagsaðgerðir.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og kvaddi á sinn fund Ásmund Stefánsson, Örn Friðriksson og Láru V. Júlíusdóttur frá ASÍ, Þórarin Þórarinsson frá VSÍ og Vilhjálm Egilsson frá Verslunarráði Íslands.
    Meiri hl. leggur til að frumvarpið verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 246 með breytingum sem fluttar eru á sérstöku þingskjali.
    Breytingarnar eru þessar:
1.     Þremur mönnum er bætt við í stjórn Atvinnutryggingarsjóðs.
2.     Við Byggðastofnun verður komið á fót hlutafjársjóði með sjálfstæðum fjárhag og sérstakri stjórn.
3.     Atvinnutryggingardeild verður stofnuð við Byggðastofnun og tekur hún við eignum og skuldbindingum Atvinnutryggingarsjóðs á stofndegi.
4.     Atvinnuleysistryggingasjóði verða tryggð viðbótarframlög eftir mitt ár 1990 í hlutfalli við endurgreiðslu lána sem Atvinnutryggingarsjóður hefur veitt.

Alþingi, 20. des. 1988.



Páll Pétursson,

Árni Gunnarsson.

Guðmundur G. Þórarinsson.


form., frsm.



Ragnar Arnalds.