Ferill 8. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 8 . mál.


Nd.

303. Nefndarálit



um frv. til l. um efnahagsaðgerðir.

Frá minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Meiri hl. nefndarinnar ákvað að afgreiða frumvarp þetta ásamt breytingartillögum frá nefndinni með slíkum hraða að minni hl. gafst hvorki tóm til að kynna sér tillögurnar að nokkru marki né ræða þær við hagsmunaaðila.
    Minni hl. getur við þessar aðstæður ekki annað en lýst andstöðu við þessi vinnubrögð og málatilbúnað og mun flytja breytingartillögur á sérstökum þingskjölum.

Alþingi, 20. des. 1988.



Ingi Björn Albertsson,

Geir H. Haarde,

Kristín Halldórsdóttir.


fundaskr.

frsm.