Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 206 . mál.


Nd.

305. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 45 16. apríl 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, með síðari breytingum.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988.)



1. gr.

    Við lögin, sbr. lög nr. 68/1973, bætist nýr kafli: Um Tryggingasjóð fiskeldislána er verður II. kafli, 19.–23. gr., svohljóðandi:

    a. (19. gr.)
    Starfa skal sérstakur sjóður er nefnist Tryggingasjóður fiskeldislána er lýtur stjórn nefndar er landbúnaðarráðherra skipar, sbr. 21. gr. Sjóðurinn skal vera í vörslu og umsjón Stofnlánadeildar landbúnaðarins er jafnframt sér um rekstur hans samkvæmt nánari reglum er landbúnaðarráðherra setur, sbr. 23. gr. Hlutverk sjóðsins er að tryggja greiðslu afurðalána sem bankar og aðrar lánastofnanir veita eða útvega innlendum fiskeldisfyrirtækjum, þannig að rekstrar- og afurðalán þeirra til fiskeldis geti numið allt að 75% af verðmæti birgða.
    Greiðslutrygging skal því aðeins veitt að viðkomandi fyrirtæki hafi tryggt afurðir sínar með svonefndri umframskaðatryggingu eða hliðstæðri tryggingu er nemi a.m.k. 50% af tryggingarverðmætum afurða og að fyrirtækið fái afurðalán frá lánastofnunum í eðlilegu hlutfalli við það sem tryggt er, og verði sá hluti afurðalánsins utan greiðslutryggingar sjóðsins. Landbúnaðarráðherra er heimilt að víkja frá þessu ákvæði við ákvörðun reglna fyrir hafbeit að fengnum tillögum nefndar, sbr. 21. gr. Ekki verði gripið til greiðslutryggingar nema tjónabætur dugi ekki til greiðslu á afurðaláni og fyrirtækið geti ekki greitt það með öðrum hætti.

    b. (20. gr.)
    Hámark skuldbindinga sjóðsins á hverjum tíma má nema samtals 1800 millj. króna, eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt (SDR).

    c. (21. gr.)
    Landbúnaðarráðherra skipar sérstaka nefnd sem ákveður skilyrði fyrir veitingu greiðslutryggingar. Skal nefndin fjalla um hverja einstaka umsókn og ákveða með hvaða kjörum sjóðurinn veiti greiðslutryggingar hverju sinni. Í nefndinni eiga sæti fjórir fulltrúar og skal einn þeirra skipaður eftir tilnefningu stjórnar Stofnlánadeildar landbúnaðarins, annar samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva og sá þriðji samkvæmt tilnefningu fjármálaráðherra. Fjórða nefndarmanninn skipar landbúnaðarráðherra án tilnefningar og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.

    d. (22. gr.)
    Landbúnaðarráðherra ákveður árlega iðgjald sem tekið er fyrir greiðslutryggingu sjóðsins. Skal gjaldið ákveðið að fengnum tillögum nefndar, sbr. 21. gr. Nefndin skal leita tillagna tryggingaeftirlitsins. Við ákvörðun gjaldsins skal hverju sinni miða við að sjóðurinn verði rekinn hallalaus.
    Tekjuafgang skal leggja í sérstakan varasjóð. Nægi varasjóður eigi til að greiða áfallnar tryggingar skal sjóðnum aflað lánsfjár til þess að hann geti staðið við skuldbindingar sínar. Reynist nauðsynlegt vegna stöðu sjóðsins skal veita sérstaka ríkisábyrgð fyrir slíkum lánum þrátt fyrir ákvæði 11. gr.
    Verði höfuðstóll tryggingasjóðs neikvæður í árslok 1993 er landbúnaðarráðherra heimilt að ákveða tímabundna gjaldtöku á söluverðmæti fiskeldisfyrirtækja í allt að fimm ár og miðist heildarfjárhæð gjaldsins við að jafna fjárhag sjóðsins. Gjald þetta má taka lögtaki.

    e. (23.gr.)
    Landbúnaðarráðherra skal, að fengnum tillögum nefndar skv. 21. gr., setja með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þessa kafla. Skal þar m.a. kveðið á um efni og eðli trygginga, hversu hátt hlutfall afurðalána er tryggt, sbr. ákvæði 19. gr., röð ábyrgða, rekstur sjóðsins og þóknun fyrir umsjón hans og nánari reglur um álagningu og innheimtu gjalds skv. 22. gr ef til þess kemur.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og skulu endurskoðuð fyrir lok ársins 1993.


Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Frá því á síðastliðnu vori hefur verið mikil umræða um stöðu fiskeldis hér á landi, annars vegar varðandi þau starfsskilyrði sem greininni eru búin með hliðsjón af öðrum gjaldeyrisskapandi atvinnugreinum og hins vegar um þau starfsskilyrði sem fiskeldið býr hér við samanborðið við erlenda samkeppnisaðila. Af þeim gögnum sem unnin hafa verið má ráða að fjárhagsleg aðstaða við stofnun fiskeldisfyrirtækja hér á landi hafi verið viðunandi þegar frá er talinn tímabundinn skattur á erlendar lántökur til framkvæmda og stimpilgjöld af lánum. Hins vegar má benda á að í samkeppnislöndum okkar er fyrir hendi opinbert styrkjakerfi við stofnun fiskeldisfyrirtækja, hærra lánshlutfall sem hvert fyrirtæki á kost á af stofnkostnaði og að vextir vegna stofnkostnaðar eru niðurgreiddir af hálfu hins opinbera. Hér er í langflestum tilvikum um að ræða lið í byggða- og þróunarmálum viðkomandi lands.
    Á hinn bóginn hafa allar athuganir leitt í ljós að aðgangur fiskeldisfyritækja að fjármagni þegar að rekstri kemur hefur verið mjög ófullnægjandi hérlendis, hvort sem litið er til möguleika samkeppnisaðila erlendis eða til annarra útflutningsatvinnugreina hér á landi. Segja má að fyrirtækin hafi undanfarin ár leyst rekstrarfjárvanda sinn með því að flytja út sem seiði meginhluta framleiðslunnar í stað þess að auka útflutningsverðmætin eftir megni með því að ala seiðin upp í matfiskstærð og flytja út sem slík. Fyrir þessa lausn lokaðist í verulegum mæli á þessu ári vegna þess að stefna stjórnvalda í þeim löndum, þar sem kaupendur voru, hefur verið sú að takmarka innflutning seiða vegna viðskiptahagsmuna framleiðenda heima fyrir og vegna sjúkdómahættu sem gæti stafað af innflutningnum.
    Hinn 14. október sl. skipaði landbúnaðarráðherra, í samráði við forsætisráðherra, starfshóp til að gera tillögur um, hvernig leyst verði úr þeim alvarlega rekstrarfjárskorti sem fiskeldi stendur frammi fyrir vegna takmarkaðra möguleika greinarinnar á að fá veitt afurða- og rekstrarlán. Við tillögugerðina skyldi tekið tillit til hversu ör vöxtur atvinnugreinarinnar er um þessar mundir og þar af leiðandi vaxandi rekstrarfjárþörf fram undan þar til að útflutningstekjum kemur.
    Í starfshópnum áttu sæti: Guðmundur G. Þórarinsson, formaður Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva, Össur Skarphéðinsson fiskeldisfræðingur og Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu, sem jafnframt var skipaður formaður starfshópsins.
    Samkvæmt úttekt starfshópsins getur fjárþörf stöðva sem framleiða matfisk numið allt að 1,8 milljörðum kr. til ársloka. Sú tala getur þó orðið
allmiklu lægri þar sem snemmbúin vorkoma og bærilegur sumarhiti getur leitt til þess að kvíaaldir laxar nái markaðsstærð fyrr en ella. Fjárþörfin stafar að langmestu leyti af fóðurkostnaði sem eykst eftir því sem fiskurinn stækkar. Samhliða vaxa birgðir hratt og við lok eldisferilsins koma því geysilegar fjárhæðir til baka vegna sölu birgða. Reiknað er með að allt að 500 millj. kr. sé þörf fyrir 1. júní á næsta ári, þannig að mestur hluti fjárþarfarinnar myndast á allra síðustu mánuðum ársins þegar fiskurinn er í þann mund að ná markaðsstærð.
    Útreikningur á fjárþörfinni byggir á því að 5,7 millj. seiði séu í eldi sem skiptist þannig að í strandeldi eru 3,1 millj. og 2,6 millj. í kvíaeldi. Sú tala er niðurstaða ítarlegrar könnunar á seiðamagni í stöðvunum. Auk þess eru 217 millj. kr. lausaskuldir fyrirtækjanna miðað við 1. september sl. taldar með í fjárþörfinni. Gert er ráð fyrir að úr þessum seiðum verði framleitt í kringum 10 þús. tonn af laxi síðari hluta árs 1989 og fyrri hluta 1990, auk þess sem alls verði 1300 tonnum af fyrri árgöngum í eldi slátrað á tímbilinu 1. september 1988 til 1. júní 1989.
    Starfshópurinn bendir sérstaklega á að fiskeldi í landinu á við tímabundinn vanda að etja. Þetta stafar af því að langflestar matfiskstöðvar hafa ekki enn þá náð heilum framleiðsluferli, heldur eru þær með unglax í uppeldi sem ekki verður að markaðsvöru fyrr en í fyrsta lagi síðari hluta ársins 1989. Tekna verður því ekki aflað fyrr en þá og er því afar brýnt að stöðvunum verði tryggt svigrúm til rekstrar fram að þeim tíma. Auk þess er mikilvægt að koma afurðalánum fiskeldis í varanlegt horf.
    Starfshópurinn skilaði tillögum til landbúnaðarráðherra 25. október sl., en þær fólu í megindráttum í sér eftirfarandi:
1.     Byggt verði upp samræmt afurðalánakerfi viðskiptabankanna er geri fiskeldisfyrirtækjum kleift að haga rekstri sínum á sem hagkvæmastan hátt og komast hjá ótímabærri förgun á eldisfiski vegna lausafjárskorts eins og nú er í dag.
2.     Rekstrar- og afurðalán til fiskeldis verði hliðstæð því sem er í sjávarútvegi og hefðbundnum landbúnaði. Það leiðir til þess að lán út á birgðir gætu numið allt að 75% af heildarverðmæti þeirra þar til skil á söluandvirði fara fram.
    Til að leysa úr bráðum rekstrarfjárvanda fiskeldisfyrirtækja beiti
stjórnvöld sér fyrir eftirfarandi aðgerðum:
1.     Stofnuð verði tryggingadeild fiskeldislána við Ríkisábyrgðasjóð er geti veitt bönkum og öðrum lánastofnunum greiðslutryggingu, þannig að rekstrar- og afurðalán þeirra til fiskeldis gætu numið allt að 75% af verðmæti birgða.
2.     Greiðslutrygging verði því aðeins veitt að viðkomandi fyrirtæki hafi tryggt afurðir sínar með svonefndri umframskaðatrygginu er nái a.m.k. 50% af tryggingarverðmætum afurða og að fyrirtækið hafi afurðalán frá lánastofnun í eðlilegu hlutfalli við það sem tryggt er. Skal það hlutfall afurðalánsins vera utan greiðslutryggingar deildarinnar. Ekki verði gripið til greiðslutryggingarinnar nema tjónabætur dugi ekki til greiðslu á afurðaláni og fyrirtækið geti ekki greitt það með öðrum hætti.
3.     Fiskeldisfyrirtækin greiði tryggingadeildinni ákveðinn hundraðshluta tryggingarinnar sem þóknun.
4.     Sérstök matsnefnd verði skipuð er ákveði m.a. hvaða fyrirtæki verði talin tryggingarhæf umfram það sem takmarkast af 2. tölulið. Á sama hátt geri nefndin tillögur til fjármálaráðherra um frávik frá þeim takmörkunum sem 2. tölul. setur, þó eingöngu í tilvikum þar sem ónóg reynsla hamlar því að komið verði á skipulögðu afurðalánakerfi, svo sem vegna hafbeitar.
5.     Verði sett lög um tryggingadeild fiskeldislána samkvæmt framansögðu komi þau til endurskoðunar eigi síðar en fyrir lok ársins 1991. Í millitíðinni verði úr því skorið hvort unnt reynist að bankar og lánastofnanir geti veitt fiskeldinu það afurðalánahlutfall miðað við verðmæti birgða, sem áður er nefnt, án endurgreiðslutryggingar, eða hvort hagkvæmara sé talið að stofna sérstakt greiðslutryggingafélag meðal hagsmunaaðila, svo sem Landssambands hafbeitar- og fiskeldisstöðva, viðskiptabanka, sparisjóða, stofnsjóða og tryggingafélaga, er yfirtæki verkefni deildarinnar eða aðrar hagkvæmari lausnir fyndust.
    Við frekari athugun stjórnvalda á þessu máli hefur þótt réttara að sú starfsemi, sem þetta frumvarp gerir ráð fyrir, fari fram í tengslum við Stofnlánadeild landbúnaðarins. Við deildina verði stofnaður sérstakur sjóður, Tryggingasjóður fiskeldislána. Tryggingaiðgjöld ábyrgðarþega skulu bera uppi starfsemi sjóðsins. Komi til þess að afla verði tímabundið fjármuna til þess að sjóðurinn standi við skuldbindingar sínar verði sú lántaka með sérstakri ábyrgð af hálfu ríkisins og óháð almennri starfsemi Stofnlánadeildarinnar.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


Um a. (19. gr.)


    Tryggingasjóði fiskeldislána er ætlað að tryggja greiðslu rekstrar- og
afurðalána sem lánastofnanir veita fiskeldisstöðvum. Greiðslutrygging verði því aðeins veitt að viðkomandi fyrirtæki hafi tryggt afurðir sínar með svonefndri umframskaðatryggingu er nái a.m.k. 50% af tryggingarverðmætum afurða og að fyrirtækið hafi afurðalán frá lánastofnun í eðlilegu hlutfalli við það sem tryggt er. Verði það hlutfall afurðalánsins utan greiðslutryggingar deildarinnar. Þó er landbúnaðarráðherra heimilt að víkja frá þessum skilyrðum vegna hafbeitar þar sem ekki hefur enn verið lagður grunnur að reglum til að fara eftir um tryggingar af hálfu tryggingafélaga vegna skamms reynslutíma greinarinnar. Ekki verði gripið til greiðslutryggingarinnar nema tjónabætur dugi ekki til greiðslu á afurðaláni og fyrirtækið geti ekki greitt það með öðrum hætti.

Um b. (20. gr.)


    Gert er ráð fyrir að heildarábyrgðir sjóðsins fari ekki fram úr 1800 millj. kr. hverju sinni eða sambærilegri fjárhæð í erlendri mynt. Afurðalán sem veitt eru fyrirtækjum er framleiða fyrir erlendan markað eru að öllu jöfnu veitt í erlendri mynt sem leiðir til þess að þessi heimild lækkar ekki að raungildi umfram það sem nemur erlendum verðhækkunum umfram fast verðlag.

Um c. (21. gr.)


    Lagt er til að skipuð verði fjögurra manna nefnd með fulltrúum frá Landssamtökum fiskeldis- og hafbeitarstöðva, stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins, fjármálaráðuneyti og landbúnaðarráðuneyti sem hafi m.a. það hlutverk að gera tillögur til landbúnaðarráðherra um skilyrði fyrir veitingu ábyrgða og taka afstöðu til þess með hvaða kjörum tryggt er hverju sinni. Auk þess geri nefndin tillögu til landbúnaðarráðherra um iðgjöld til tryggingasjóðsins.

Um d. (22. gr.)


    Lagt er til að landbúnaðarráðherra ákveði, að fengnum tillögum nefndar skv. 21. gr., iðgjöld af veittum ábyrgðum. Iðgjöldin verði að grunni til miðuð við að sjóðurinn standi undir sér og að ekki komi til varanlegra útgjalda vegna ábyrgða sem ríkið veitir. Standi fjármunir sjóðsins ekki undir þeim lánum er sjóðurinn þarf að taka vegna tímabundinna greiðsluerfiðleika svo koma þurfi til sérstakra ábyrgða veitir ríkið þær. Þar skal koma til sérstök ríkisábyrgð vegna starfsemi tryggingasjóðsins og óháð starfsemi Stofnlánadeildarinnar að öðru leyti, sbr. ákvæði 11. gr.
    Lagt er til að landbúnaðarráðherra sé heimilt að ákveða sérstakt tímabundið gjald á afurðir fiskeldis til að jafna þann halla sem sjóðurinn kynni að hafa safnað upp í árslok 1993. Samkvæmt fyrirliggjandi áætlunum um þróun fiskeldis er ekki líklegt að á greinina muni reyna í neinum mæli, enda gert ráð fyrir að iðgjöld verði ákvörðuð á líkan hátt og tryggingaiðgjöld, þannig að þau standi undir skuldbindingum er kunna að falla á sjóðinn.

Um e. (23. gr.)


    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 2. gr.


    Gert er ráð fyrir að lögin verði tekin til endurskoðunar eigi síðar en í árslok 1993. Á því tímabili ætti að vera fengin reynsla af þessu fyrirkomulagi og unnt að kanna aðra möguleika er kynnu að gefast til að tryggja fiskeldi sambærilegan aðgang að rekstrarfé og öðrum útflutningsatvinnugreinum ef hagstæðara þykir. Það gæti orðið við almenna endurskoðun afurðalánakerfisins sem er fyrirhuguð við stofnun ábyrgðarfélags með hlutdeild sem flestra hagsmunaaðila eða á annan hátt.