Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 162 . mál.


Nd.

307. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 97/1987, um vörugjald.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Umsagnir bárust frá Félagi íslenskra iðnrekenda, Meistara- og verktakasambandi byggingamanna, Landssambandi iðnaðarmanna, Félagi húsgagna- og innréttingaframleiðenda, Félagi ísl. stórkaupmanna og Kaupmannasamtökum Íslands.
    Þá komu á fund nefndarinnar Sveinn Björnsson frá utanríkisráðuneyti, Guðrún Ásta Sigurðardóttir frá fjármálaráðuneyti, Ólafur Friðriksson, framkvæmdastjóri verslunardeildar SÍS, Kristmann Magnússon frá Kaupmannasamtökunum, Árni Reynisson frá Félagi ísl. stórkaupmanna, Vilhjálmur Egilsson frá Verslunarráði Íslands, Sigurgeir A. Jónsson frá tollstjóra, Sveinbjörn Guðmundsson og Jón Mýrdal frá tollvörðum, Helgi Hjálmarsson og Jón Bragi Gunnlaugsson frá Tollvörugeymslunni, Þórleifur Jónsson, Guðlaugur Stefánsson og Haraldur Sumarliðason frá Landssambandi iðnaðarmanna, Björn Lárusson og Guðjón Pálsson frá Félagi húsgagna- og innréttingaframleiðenda, Guðmundur Þ Jónsson frá Iðju, Loftur Pétursson frá Meistarafélagi húsgagnabólstrara, Kristinn Björnsson og Ólafur Davíðsson frá Félagi ísl. iðnrekenda, Benedikt Davíðsson frá Sambandi byggingamanna, Árni Brynjólfsson frá Landssambandi rafverktaka, Gísli Karlsson frá Framleiðsluráði landbúnaðarins, Gunnlaugur Júlíusson og Hákon Sigurgrímsson frá Stéttarsambandi bænda, Jóhannes Gunnarsson og María Ingvadóttir frá Neytendasamtökunum, Snorri Páll Snorrason og Hrafn Tulinius frá manneldisráði, Jón Gíslason frá Hollustuvernd, Ólafur Ólafsson landlæknir og Georg Ólafsson verðlagsstjóri.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem fluttar eru á sérstöku þingskjali. Meginbreytingin er að vörugjaldið verður 9% en gjaldstofn breikkaður, lækkar þá gjald á þær byggingarvörur er borið hafa 14% vörugjald. Rafmagnstæki og snyrtivörur, er borið hafa 14% vörugjald, lækka. Hins vegar leggst 9% vörugjald á húsgögn, innréttingar, lampa, teppi, bílavarahluti, timbur, steypu, málningu, lökk, lím, gler, vörur til pípulagna og byggingarefni úr plasti.
    Þá leggst sérstakt 16% vörugjald til viðbótar 9% vörugjaldi á sælgæti, kex, gosdrykki og sykur.
    Nefndin leggur loks til að lögin verði endurskoðuð fyrir 1. jan. 1991.

Alþingi, 20. des. 1988.



Páll Pétursson,

Árni Gunnarsson.

Ragnar Arnalds.


form., frsm.



Guðmundur G. Þórarinsson.