Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 147 . mál.


Nd.

308. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1986.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og leggur til að það verði samþykkt með breytingum sem fluttar eru á sérstöku þingskjali. Efnislega er sú eina breyting gerð að í 2. mgr. 2. gr. falli orðin „allt að“ brott, þannig að skýrt verði að leigutaki þurfi að kaupa 15% kostnaðarverðs eða kaupverðs íbúðar til að tryggja sér ótímabundinn afnotarétt. Aðrar breytingar lúta einungis að breyttri framsetningu frumvarpsins og uppröðun greina.
    Á fund nefndarinnar komu Ingi Valur Jóhannsson frá félagsmálaráðuneytinu, Þórarinn V. Þórarinsson frá VSÍ, Björn Þórhallsson og Grétar Þorsteinsson frá ASÍ, Sigurjón Þorbergsson og Reynir Ingibergsson úr stjórn Búseta.
    Fram kom hjá umsagnaraðilum að hið nýja fyrirkomulag væri þáttur í hinu félagslega kaupleigukerfi og veitti engan sérstakan forgang eða réttindi umfram það sem almennt gildir í félagslega kerfinu. Almennt töldu umsagnaraðilar rökrétt að þetta frumvarp væri flutt og að þessi breyting yrði gerð á lögunum um Húsnæðisstofnun ríkisins.

Alþingi, 20. des. 1988.




Jón Sæmundur Sigurjónsson,

Guðrún Helgadóttir,

Jón Kristjánsson.


form., frsm.

fundaskr.



Geir H. Haarde.

Alexander Stefánsson.

Eggert Haukdal.



Kristín Einarsdóttir,


með fyrirvara.