Ferill 147. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 147 . mál.


Nd.

309. Breytingartillögur



við frv til l. um breyt. á l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 86/1988.

Frá félagsmálanefnd.



1.     Á eftir 1. gr. komi ný grein er orðist svo:
.      6. og 7. mgr. 92. gr. laganna falli brott.
2.     Við 2. gr., er verði 3. gr.:
. a.     Orðin „allt að“ í 2. mgr. falli brott.
. b.     4., 5. og 8. mgr. falli brott.
3.     Á eftir 2. gr. (er verði 3. gr.) komi ný grein er verði 4. gr. og orðist svo:
.      Á eftir 93. gr. laganna kemur enn ný grein, 94. gr., en töluröð annarra greina breytist samkvæmt því. Greinin orðist svo:
.      Leigugjald af íbúðum skv. 92. og 93. gr. miðast við afborganir og vexti af láni Byggingarsjóðs verkamanna og vaxtakostnað af framlagi framkvæmdaaðila að viðbættum almennum rekstrarkostnaði. Við ákvörðun á vaxtakostnaði af framlagi framkvæmdaaðila skal við það miðað að vextir verði að hámarki þeir sömu og eru á hverjum tíma af lánum nýrra eða notaðra íbúða hjá Byggingarsjóði ríkisins. Leiga greiðist með jöfnum mánaðarlegum greiðslum. Nánari reglur um ákvörðun húsaleigu skulu settar í reglugerð.
.      Varðandi íbúðir sem um getur í 93. gr. skal þó taka tillit til eftirfarandi þátta:
.      Leigutaki ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi húsnæðisins í samræmi við eignarhlut sinn enda lækki leigugjald sem því nemi.
.      Eftir að kaup á eignarhlut í íbúð samkvæmt þeirri grein hafa farið fram lækkar leigugjald sem nemur vöxtum af því framlagi sem leigutaki hefur fest kaup á.
.      Nánari ákvæði um félagsskap í tengslum við reksturinn má setja í reglugerð.
.      Að öðru leyti gilda ákvæði laga nr. 44/1979, um húsaleigusamninga, eftir því sem við á, m.a. um heimild framkvæmdaaðila til að rifta leigusamningi ef íbúð er framleigð án heimildar.