Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 20 . mál.


Nd.

310. Nefndarálit



um frv. til l. um aðgerðir í efnahagsmálum.

Frá 1. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Með þessu frumvarpi tekur ríkisstjórnin sér það vald að ákveða einhliða þak á almenn laun og segja fyrir um hvenær segja megi upp samningum. Fyrsti minni hl. getur ekki fallist á það sem réttmætan lið í lausn á vanda atvinnulífsins sem er að stærstum hluta fólginn í óhóflegum fjármagnskostnaði, svo og þróun gengis og verðlags. Fyrsti minni hl. leggur því til breytingar á frumvarpinu sem birtar eru á þskj. 284. Í þeim felst að frá gildistöku laganna verði aflétt banni við launahækkunum og uppsögn samninga.

Alþingi, 20. des. 1988.



Ingi Björn Albertsson,

Kristín Halldórsdóttir,


fundaskr.

frsm.