Ferill 20. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 20 . mál.
Nd.
311. Nefndarálit
um frv. til l. um aðgerðir í efnahagsmálum.
Frá 2. minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.
Frumvarp þetta á rætur að rekja til bráðabirgðalaga sem ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar beitti sér fyrir í maímánuði sl. Þeim bráðabirgðalögum var breytt með öðrum bráðabirgðalögum núverandi ríkisstjórnar sem eru til meðferðar samhliða þessu frumvarpi, 8. mál.
Að dómi undirritaðs eru forsendur brott fallnar fyrir mikilvægustu greinum þess máls sem hér liggur fyrir. Hann stendur því að breytingartillögum á þskj. 284 ásamt fulltrúa Borgaraflokks og Kvennalista og styður frumvarpið svo breytt.
Alþingi, 20. des. 1988.
Geir H. Haarde.