Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 162 . mál.


Nd.

320. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 97/1987, um vörugjald.

Frá minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Frumvarpi þessu um vörugjald er ætlað að afla ríkissjóði um 1.600 millj. kr. viðbótartekna á árinu 1989. Nái það fram að ganga verður það til að íþyngja almenningi í landinu ofan á aðrar boðaðar skattahækkanir.
    Meiri hl. boðaði breytingartillögur við frumvarpið. Þær tillögur voru ekki lagðar fyrir nefndina áður en meiri hl. afgreiddi málið. Minni hl. átelur slík vinnubrögð og leggur áherslu á að slíkt komi ekki fyrir aftur.
    Þær takmörkuðu upplýsingar, sem fram komu um breytingar á fumvarpinu, benda þó eindregið til þess að þar sé verið að gera hlut innlendrar framleiðslu enn lakari en til stóð í upphaflega frumvarpinu. Athugasemdir í fylgiskjölum eiga því ekki síður við frumvarpið eins og það mun væntanlega líta út eftir 2. umr.
    Þegar matarskatturinn var lagður á á síðasta þingi voru tollar og aðflutningsgjöld lækkuð til að milda áhrif hans. Nú er áformað að taka þá lækkun til baka og um leið að hverfa af braut „einfaldleikans“ sem svo mjög var talað fyrir á síðasta þingi.
    Allt er hér á sömu bókina lært: laun fryst, skattar stórauknir, kaupmáttur stórlega skertur og verðstöðvun hefur farið úr böndum. Það jaðrar því við siðleysi að leggja auknar byrðar á almenning sem óhjákvæmilega verður með samþykkt þessa frumvarps. Þess vegna getur minni hl. ekki staðið að samþykkt frumvarpsins og leggur til að það verði fellt.
    Á fund nefndarinnar komu fjölmargir aðilar til umsagnar. Nokkrar skriflegar umsagnir þeirra fylgja áliti þessu.

Alþingi, 20. des. 1988.



Ingi Björn Albertsson,

Geir H. Haarde.

Kristín Halldórsdóttir.


fundaskr., frsm.






Fylgiskjal I.



Kaupmannasamtök Íslands
Félag raftækjasala
Kristinn Magnússon varaformaður:

Athugasemdir til fjárhags- og viðskiptanefnda Alþingis


vegna væntanlegra hækkana á vörugjaldi.


(9. des. 1988.)



    Félag raftækjasala vill mótmæla fyrirhugaðri hækkun á vörugjaldi og vekja athygli fjárhags- og viðskiptanefnda Alþingis á eftirfarandi:
    Enn á ný stendur til að leggja hækkað vörugjald á heimilistæki og þá svo til eingöngu á rafknúin heimilistæki. Vörugjöld eru lögð á í stað tolla m.a. til þess að geta lagt gjöld á vörur frá EFTA og EB-löndum og farið þannig í kring um samninga okkar um afnám tolla á vörum frá þessum löndum. Vörugjöld á rafknúin heimilistæki eru því nokkurs konar fölsun á staðreyndum, þau eru í svo til öllum tilfellum dulbúnir tollar þar sem svo til engin framleiðsla er á slíkum tækjum hér á landi. Hér eru eingöngu framleiddar eldavélar og eldhúsviftur og er magn þeirra miðað við heildarinnflutning mjög lítið og óverulegt. Öll önnur raftæki eru innflutt og megnið af þeim kemur frá EFTA og EB-löndum. Mun því eingöngu verða greitt vörugjald af innflutningi auk fyrrgreindrar innlendrar framleiðslu á eldavélum og viftum.
    Okkur raftækjasölum finnst nú að frekar hefði átt að breikka grunn vörugjaldsins með því að leggja það á fleiri vöruflokka og þá um leið að lækka prósentu þess. Hefði sú aðgerð ekki síður skilað auknum tekjum í ríkissjóð en þær síendurteknu árásir sem ávallt eru gerðar á heimilistæki.
    Í desember 1987 bentum við raftækjasalar á fjöldann allan af vöruflokkum, sem þá voru lækkaðir úr hæstu tollum 80% og hæsta vörugjaldsstigi 30% og voru sett í 0% innflutningsgjöld. Þar á meðal voru vörur eins og ýmsar skrautvörur, körfugerðarvörur, leiktæki og spil alls konar, skjalakassar, reiknivélar, fjölritunarvélar, símar, telex, telefax o.fl. Það mætti nefna fjöldann
allan af öðrum vöruflokkum sem upphaflega stóð til að setja á vörugjald, en horfið var frá því vegna pólitísks þrýstings og „björgunaraðgerða“ Félags ísl. iðnrekenda sem vel er lýst í fréttaskýringu Morgunblaðsins fimmtudaginn 10. des. 1987 undir fyrirsögninni „Erfið fæðing en efnilegt barn“.
    Það er því furðulegt að heyra nú ári seinna mótmæli frá framámönnum FÍI um að nú standi til að skattleggja eina atvinnugrein umfram aðrar, það væru einmitt þeir sömu menn sem á síðasta ári lögðu til að eingöngu yrði lagt á sérstakt gjald á sælgæti, gosdrykki og rafmagnstæki, en fallið frá að leggja vörugjaldið á fleiri vöruflokka þar með taldar ýmsar iðnaðarvörur.
    Við síðustu breytingar á tollalögum og lögum um vörugjald í desember 1987 tók hæstvirt fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar tillit til ábendinga okkar um lækkun á tollum og afnám vörugjalds á vörur sem við höfum nefnt „smyglnæmar vörur“. Allverulega var tekið tillit til ábendinga okkar um niðurfellingu gjalda á ákveðna vöruflokka, en aðrir vöruflokkar sem við bentum á fengu ekki náð fyrir augum nefndarinnar.
    Það er rétt að hér komi fram að stór hluti verslunar með vöruflokka, sem lækkaðir voru um sl. áramót, hefur nú komið inn í landið í stað þess að eiga sér stað á erlendri grund. Þessi verslun á enn eftir að aukast hér á landi því enn ber töluvert á því að landinn trúi því ekki að einhverjar vörur geti verið ódýrari eða jafndýrar hér á landi og erlendis. Þetta á þó vonandi eftir að breytast þegar boðskapurinn um sama eða lægra verð hefur náð eyrum fleiri neytenda en nú er. Miðað við hið gífurlega „smygl“ síðustu ára eða áratuga erum við sannfærðir um að tekjutap ríkisins vegna lækkana um sl. áramót verður lítið sem ekkert og munu tekjur ríkisins aukast þegar fram í sækir miðað við það sem áður var.
    Sennilega fáum við nú litlu breytt um það frumvarp um vörugjald sem nú liggur fyrir Alþingi, en þó hefðum við gjarnan viljað sjá afnám vörugjalds á „smyglnæmum“ vörum eins og straujárnum (85.16.4009), heyrnartólum (85.18.3000), geislaspilurum (85.19.2100/2900) svo og litlum sambyggðum útvarps- og hljóðupptökutækjum (85.27.1100/2100).
    Mjög nauðsynlegt er þó að leiðrétta ósamræmi í núverandi tollskrárnúmerum og fella niður eftirtalin tollskrárnúmer úr því frumvarpi sem fyrir Alþingi liggur. Það eru númerin:

84.50.9000 Varahlutir í þvottavélar.
    Það er alls ekki í neinu samræmi við aðra varahluti að hafa vörugjald á þessum lið. Ekkert vörugjald er á varahlutum í uppþvottavélar (84.22.9000), þurrkara (84.51.9000), kæliskápa (84.18.9900) eða þvottasuðupotta (85.16.9000). Hér er um hróplegt ósamræmi að ræða þar sem sömu hlutir geta passað á milli t.d. þvottavéla, þvottapotta og uppþvottavéla.
     Heildarinnflutningur allra tækja, sem falla undir þetta númer fyrstu 8 mánuði ársins 1988, var 1.358.929 kr.

85.09.8000 Önnur smærri raftæki til heimilisnota.
    Hér er um að ræða önnur smærri rafmagnsheimilistæki sem ekki eru nefnd annars staðar í tollskránni, t.d. hakkavélar, ávaxta- og matjurtapressur, rafmagnstannbursta og önnur slík smærri tæki. Fyrir utan 15% toll eiga þessi tæki að bera vörugjald og er lítið samræmi í því þar sem t.d. hrærivélar bera hvorki toll né vörugjald. Aðrir tannburstar eru einnig komnir í 0% innflutningsgjöld og er því ekkert samræmi í þessu. Rafmagnstannburstar eru fyrst og fremst notaðir af fötluðu fólki og öðrum sem eru hreyfihamlaðir. Hvers á þetta fólk að gjalda? Hvers á tannhirða þess að gjalda?
     Heildarinnflutningur allra tækja, sem falla undir þetta númer fyrstu 8 mánuði ársins í ár, var 1.358.929 kr.

85.09.9000 Varahlutir í ryksugur, hrærivélar og kvarnir.
    Hér er einnig mikið ósamræmi. Ryksugur og hrærivélar bera hvorki toll né vörugjald, en varahlutir í þessi tæki eru tolluð með 15% tolli og eiga nú einnig að bera 25% vörugjald. Ekkert vörugjald er á varahluti í önnur tæki í 85. kaflanum, t.d. varahluti í strokjárn, hár- og handþurrkur, örbylgjuofna, kaffivélar, brauðristar o.fl. Þau eru öll í tollnúmeri 85.16.9000.
     Heildarinnflutningur fyrstu 8 mánuði ársins 1988 var 2.499.626 kr.

    Eins og sést af ofangreindum innflutningstölum þá getur það ekki skipt sköpum fyrir afkomu ríkissjóðs þótt vörugjald verði fellt af þessum flokkum. Aðalatriðið er þó hitt að samræmi sé á milli vöruflokka, en fyrrgreind dæmi sýna því miður að svo er ekki. Það á ekki að þurfa langan tíma né margar vökunætur til að lagfæra þetta frumvarp og við vonum að háttvirt fjárhags- og viðskiptanefnd taki þessar ábendingar okkar til jákvæðrar meðferðar.


Fylgiskjal II.



Félag íslenskra stórkaupmanna
Árni Reynisson framkvæmdastjóri:



Bréf til fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis.


(13. des. 1988.)



    Félag íslenskra stórkaupmanna hefur samkvæmt beiðni yðar í bréfi dags. 7. des. tekið saman álitsgerð vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum nr. 97/1987, um vörugjald, 162. mál, og eru fulltrúar félagsins reiðubúnir að koma á fund nefndarinnar til nánari viðræðna um eftirfarandi sjónarmið félagsins.
    Fyrir réttu ári síðan, haustið 1987, fór fram mikil og ítarleg umræða um skattkerfið íslenska, ekki síst skattheimtu ríkisins af vörum og þjónustu. Í því sambandi var rætt um nauðsyn þess að aðlaga nú aðstæður íslenskra atvinnuvega þeim sem tíðkast í viðskipta- og samkeppnislöndum okkar með tilliti til aðildar Íslands að EFTA og samninga við Evrópubandalagið, núverandi og væntanlegra. Aðlögun að hinum nýja Evrópumarkaði er eitt mesta stórmál sem nú er við að glíma í íslenskri efnahagspólitík og árangur á því sviði verður að mati félagsins að setja langt ofar tímabundnum erfiðleikum í greiðslustöðu ríkissjóðs Íslands.
    Til þess að ná framangreindum markmiðum náðist í fyrrahaust samstaða eða a.m.k. skilningur á því að eftirfarandi höfuðbreytingar væru óhjákvæmilegur liður í aðlögun að breyttum aðstæðum í Evrópu og víðar:
    Virðisaukaskattur verði tekinn upp í stað söluskatts. Innflutningstollar og vörugjöld hverfi sem helsti tekjustofn ríkisins, en VASK taki við sem
aðaltekjustofn þess af vörusölu og þjónustu og verði ásamt tekjusköttum annar burðarásinn í fjáröflun ríkissjóðs. Í þessu sambandi voru samþykktar þrjár lagabreytingar:
1.     Samþykkt var að taka upp virðisaukaskatt 1. júlí 1989 og leggja niður söluskatt frá sama tíma.
2.     Söluskattsstofn var breikkaður og er nú tekinn af allri almennri vöru og þjónustu.
3.     Samþykkt voru ný lög um tollskrá sem tóku gildi 1. janúar 1988 og voru þar felld niður aðflutningsgjöld á aðföng atvinnuvega og tollar á almennar vörur ýmist stórlækkaðir eða felldir burt.
4.     Vörugjald var að mestu afnumið og var um það rætt að leifar þess féllu endanlega burt við upptöku virðisaukaskatts, enda fellur skatturinn illa að framkvæmd VASK.
5.     Þá var lántökugjald lagt á til bráðabirgða, en á að falla niður um þessi áramót samkvæmt gildandi lögum.
    Frekari skref í framhaldi af afnámi þessara skatta töldust eðlilega þau að smám saman verði afnumdir allir skattar sem mismuna atvinnugreinum þjóðarinnar innbyrðis og veikja samkeppnisstöðu þeirra út á við. Hér er m.a. átt við skatt á atvinnuhúsnæði, mishá aðstöðugjöld og launaskatt á nokkrar atvinnugreinar, þ.e. gjöld sem eru dæmd til að hverfa ef íslensk stjórnvöld sjá nauðsyn á að aðlaga sig hugmyndum Evrópubandalagsins um samskipti ríkis og atvinnulífs.
    Höfuðtilgangurinn með þeim skattkerfisbreytingum, sem hófust á síðasta ári, er samkvæmt framansögðu að styrkja og jafna samkeppnishæfni atvinnugreina við nýjar og breyttar aðstæður í milliríkjaviðskiptum. Frumvarp það til laga um vörugjald, sem hér liggur fyrir og felur í sér nýja og stóraukna skattheimtu af vörum, gengur hins vegar í þveröfuga átt.
    Óljóst er af frumvarpinu hvað ríkissjóður gerir ráð fyrir miklum tekjum af þessum skattstofni. Þó er ljóst að frumvarpið, ef að lögum verður, mun leiða til umtalsverðrar hækkunar á þýðingarmiklum vöruflokkum sem mjög getur orkað tvímælis á viðsjárverðum tímum eins og nú.
    Vísitala framfærslukostnaðar mun hækka, svo og vísitala byggingarkostnaðar og þar með einnig lánskjaravísitala. Bein afleiðing er verðbólga sem mun m.a. torvelda mjög skynsamlega kjarasamninga á næsta ári.
    Vegna almenns samdráttar í þjóðfélaginu og minnkandi kaupgetu almennings og atvinnuveganna má búast við að stórfelld hækkun á vöruverði, eins og hér er gert ráð fyrir, muni ekki leiða til tilætlaðrar tekjuaukningar, heldur geti
eftirspurn eftir hinum skattlögðu vörum minnkað eins og rýrar tekjur af vörugjaldi á þessu ári benda til.
    Samkeppnisstaða íslenskrar verslunar gagnvart erlendri skerðist enn við auknar álögur á svokallaðar ferðamannavörur. Þetta mun væntanlega lýsa sér í auknum innkaupaferðum til Glasgow og annarra ódýrra verslunarstaða í grannlöndum okkar þar sem álögur ríkisins eru hóflegar og virðisaukaskattur endurgreiddur við brottför.
    Á þessu ári hafa menn kynnst einföldun og skilvirkni í skattkerfunum og ríkulegri hagræðingu sem af því leiðir. Með þremur skattstigum í vörugjaldsfrumvarpinu er snúið af þeirri leið og haldið inn í frumskóginn aftur.
    Telji einhver að hollustusjónarmið ráði ferðinni þegar fyrirhugaður er skattur á sælgæti, öl og gosdrykki þá er það skoðun FÍS að betur þurfi að vanda til slíkrar löggjafar en hér er gert. Vörugjaldið leggst aðeins á hluta sykurneyslunnar og hollustustefna í skattlagningu og verðlagningu þarf að sjálfsögðu að taka til fleiri vara en sykurs. Nægir að benda á að hollustuvörur eins og grænmeti eru hér seldar á margföldu því verði, sem algengt er á erlendum mörkuðum, vegna verndarstefnu sem haldið er uppi með viðskiptahömlum og réttnefndum ójafnaðargjöldum. Skattabyltingin, sem ríkisstjórn þriggja flokka hratt í framkvæmd á síðasta þingi, var mikið framfaraspor.
    FÍS skorar á Alþingi að hvika hvergi af áður markaðri braut, fella fyrirliggjandi frumvarp um vörugjald en ljúka þess í stað afnámi vörugjalds og skatta er mismuna atvinnugreinum fyrir upptöku virðisaukaskatts.



Fylgiskjal III.


Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda
Guðjón Pálsson formaður,
Björn R. Lárusson varaformaður:


Umsögn til fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis


um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald.


(13. desember 1988.)



    Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda lýsir yfir harðri andstöðu við frumvarp þetta, einkum c-lið 1. gr. þess. Jafnframt lýsir félagið undrun sinni á þeirri vanþekkingu og/eða skilningsleysi á samkeppnisaðstöðu húsgagna- og trjávöruiðnaðar sem frumvarpið ber með sér. Vísar félagið til og tekur undir þau rök gegn frumvarpinu sem fram koma í umsögn Landssambands iðnaðarmanna um það, einkum þar sem fjallað er um áhrif á húsgagnaiðnað og annan tréiðnað, en einnig til almennra röksemda gegn vörugjaldinu, sérstaklega margháttaðra vandamála sem fyrirsjáanleg eru við eðlilega framkvæmd skattheimtunnar.
    Sérstaklega er vakin athygli á að eitt af mikilvægustu loforðum sem iðnaðinum voru gefin við inngöngu Íslands í EFTA var að iðnaðurinn þyrfti ekki að greiða aðflutningsgjöld eða söluskatt af aðföngum til framleiðslunnar. Í orði kveðnu hefur átt svo að heita að loforð þessi væru virt þótt enn þá skorti talsvert á að þau hafi verið uppfyllt og m.a. varð að hluta til afturför við skatt- og tollkerfisbreytinguna um sl. áramót. Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda telur að nær hefði verið að ríkisstjórnin sæi sóma sinn í því að vinna að lausn þeirra vandamála sem fyrir eru vegna gjalda á aðföngum iðnaðarins í stað þess að leggja fram umrætt frumvarp sem felur í sér umbúðalaus svik á EFTA-loforðunum svonefndu.

RREPRÓ Í GUTENBERG








Fylgiskjal IV.


Landssamband iðnaðarmanna
Þórleifur Jónsson framkvæmdastjóri:



Umsögn til fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis


um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald.


(12. desember 1988.)



    Landssamband iðnaðarmanna lýsir andstöðu sinni við ofangreint frumvarp í heild sinni, en þó sérstaklega við c-lið 1. gr. þess sem er bein ógnun við samkeppnisstöðu fjölda fyrirtækja og heilla iðngreina innan Landssambandsins þannig að ekki verður við unað.
    Með frumvarpinu er í þriðja sinn á aðeins tveimur árum gælt við það af hálfu stjórnvalda að auka skatttekjur með stórfelldri hækkun vörugjalds. Í hin tvö skiptin höfðu þau sér það að vísu til afsökunar að auknum tekjum af vörugjaldi var ætlað að mæta tekjutapi vegna tollalækkana en að þessu sinni er hins vegar um að ræða hreina viðbótarskattheimtu.
    Í fyrri skiptin tvö, sem stjórnvöld áformuðu að auka tekjur af vörugjaldi, varð endirinn sá að menn áttuðu sig á því að vörugjaldið er meingallað skattform, m.a. vegna þess að það leggst á aðföng iðnfyrirtækja og annarra framleiðslufyrirtækja og skerðir samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum keppinautum þar sem erlendir samkeppnisaðilar þurfa ekki að greiða hliðstæð gjöld. Það er því mikill misskilningur að vörugjald sé hlutlaus skattur og hafi ekki áhrif á samkeppnisstöðu innlendra aðila gagnvart erlendum keppinautum. Auk þess leiðir það iðulega til mikillar mismununar milli vöruflokka og skekkir þar með samkeppnisgrundvöll hér innan lands. Vegna annmarka vörugjaldsins varð því niðurstaðan sú um sl. áramót að vörugjald var einfaldað með því að taka upp eitt skatthlutfall og fækka gjaldskyldum vörum. Með því að leggja enn á ný út á þá braut að hækka skatta í formi vörugjalds er því verið að gera að engu ávinninginn af skattkerfisbreytingunni um sl. áramót.
    Frumvarpið er og forkastanlegt að því leyti að ekki er gert ráð fyrir því að leiðrétta eigi þá alvarlegu agnúa sem felast í mjög mikilli nýrri skattlagningu á aðföng fyrirtækja, þar á meðal í svonefndum útflutnings- og samkeppnisgreinum. Heimild 9. gr. vörugjaldslaga um frádrátt við skattskil á greiddu vörugjaldi af hráefni er engan veginn fullnægjandi lausn á þessu vandamáli. Í fyrsta lagi gildir heimildin aðeins fyrir vörugjaldsskylda aðila þannig að fyrirsjáanlegt er að mörg fyrirtæki, t.d. í málmiðnaði, sem framleiða vörur sem ekki eru vörugjaldsskyldar, mundu þurfa að greiða vörugjald af aðföngum. Sama gildir um einingahúsaframleiðslu. Í öðru lagi þurfa innlendir framleiðendur að leggja út fyrir skattinum og bera hann í allt að þrjá mánuði. Í þriðja lagi hefur iðnaðurinn bitra reynslu af því að veruleg tæknileg vandkvæði eru á því að undanþiggja aðföng vörugjaldsskyldu þar sem sama varan er mjög iðulega hráefni eða önnur aðföng til framleiðslu og neyslu- eða fjárfestingarvara. Í framkvæmd hefur túlkun undanþáguheimilda auk þess
ávallt verið þröng og iðnaðinum í óhag. Í fjórða lagi verður alls ekki séð að mögulegt verði almennt að koma við undanþágu eða frádrætti af aðföngum iðnfyrirtækja sem kaupa aðföng af innlendum efnissala. Í þessu sambandi ber að hafa í huga þann mikla fjölda smáfyrirtækja sem er t.d. í tré- og málmiðnaði. Fjöldamörg önnur vandkvæði eru á því að koma í veg fyrir að iðnfyrirtæki þurfi að greiða vörugjald af þeim margvíslegu aðföngum sínum sem gjaldskyld verða með frumvarpinu. Jafnvel þótt góður vilji væri til þess að leysa þau, sem þó verður að efast um miðað við anda þessa frumvarps, er ógerlegt að gera það á viðunandi hátt. Frumvarpið er raunar svo óvandað að í athugasemdum þess er ekki orði vikið að þessum vandamálum.
    Þá verður ekki hjá því komist að minna á að mjög kreppir að í íslensku atvinnulífi um þessar mundir. Stóraukning skatta á fyrirtæki við slíkar aðstæður eykur að sjálfsögðu þann vanda sem fyrir er en er að vissu leyti í samræmi við langa reynslu. Hún lýsir sér í því að stjórnvöld fara að gera samdráttarráðstafanir þegar efnahagslífið er að dragast saman og ekki er nauðsyn á því að auka samdráttinn með sérstökum ráðstöfunum. Að skattleggja „kreppuna“ með þessum hætti gæti reynst fjármálaráðherra óþægur ljár í þúfu þar sem gjaldstofninn fer óhjákvæmilega ört minnkandi og í kjölfarið það sem verra er, söluskattsstofninn líka.
    Sú fyrirætlun að leggja vörugjald á byggingarefni og unna trjávöru bendir til þess að fjármálaráðherra sé illa upplýstur um staðreyndir um þróun í fjárfestingu og byggingarstarfsemi og lýsir ekki síður vanþekkingu eða
skilningsleysi á erfiðri samkeppnisstöðu húsgagna- og trjávöruiðnaðar og annars íslensks iðnaðar sem framleiðir efni og vöru til bygginga í samkeppni við innflutning. Þá er og forkastanlegt að leggja vörugjald á aðföng málmiðnaðar sem stjórnvöld sjálf hafa marglýst yfir að þyrfti að gegna mikilvægu hlutverki í tæknivæðingu fiskvinnslu og útgerðar ásamt því að vera ein helsta vonarglætan um eflingu útflutnings.

Áhrif á byggingariðnað.
    Varðandi fjárfestingu og umsvif í byggingariðnaði, sem hin nýja skattlagning mun óhjákvæmilega — og er e.t.v. ætlað að — bitna á, er í fyrsta lagi mjög hæpið það sjónarmið sem margir hafa haldið á lofti að þenslan, sem var í efnahagslífinu allt fram í byrjun þessa árs, hafi stafað fyrst og fremst af „offjárfestingu“. Fjárfesting er talin verða aðeins 17,7% af vergri landsframleiðslu á þessu ári og 17,2% á næsta ári eða lægra hlutfall af landsframleiðslu en verið hefur á síðustu fjörutíu árum. Síðari talan byggist á spá Þjóðhagsstofnunar um 3,3% samdrátt í fjárfestingu á næsta ári. Forsendur þeirrar spár hafa að undanförnu breyst verulega. Í ljósi nýrra aðstæðna spáir Landssamband iðnaðarmanna því að fjárfesting muni dragast saman um 15% á næsta ári og um 17–18% ef frá er talin sérstök fjárfesting vegna flugvéla o.fl. Með bréfi þessu fylgja frekari upplýsingar um þróun fjármunamyndunar undanfarinna ára samanborið við aðrar þjóðhagsstærðir. Upplýsingar þessar byggjast allar á opinberum tölum, þar á meðal fjárfestingarspá fyrir árið 1989.
    Mjög mörg fyrirtæki og einstaklingar hafa verið ýmist að hætta við fjárfestingu í húsnæði, fresta framkvæmdum eða dreifa yfir lengri tíma. Upplýsingar frá byggingarfyrirtækjum, byggingarefnissölum, hönnuðum o.fl. benda einnig eindregið til þess að framkvæmdir og fjárfestingaráform séu þegar farin að dragast mikið saman. Það er því mjög hæpið að sérstakra hagstjórnaraðgerða, eins og ný skattlagning á byggingarefni er, sé þörf til að draga úr fjárfestingu.
    Hafa ber í huga að áform um vörugjaldið koma til viðbótar ýmsum öðrum ráðstöfunum sem opinberir aðilar hafa haft á prjónunum sem einnig draga úr fjárfestingu, bæði skattheimtu og samdrátt í framkvæmdum. Hér má nefna að ákveðið hefur verið að hægja á framkvæmdum við Blönduvirkjun og Nesjavallavirkjun og fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að útgjöld ríkissjóðs til framkvæmda verði í lágmarki á næsta ári. Þá hefur einnig verið til athugunar að skera verulega niður ráðstöfunarfé íbúðalánasjóðanna. Af nýrri
skattheimtu, sem draga mun úr framkvæmdum, ef af verður, má nefna tvöföldun skatts á skrifstofu- og verslunarhúsnæði, skattlagningu veðdeilda banka og fjárfestingarlánasjóða, framlengingu skatts á erlendar lántökur, þrátt fyrir að forsendur hans, þ.e. mismunur á innlendri og erlendri verðlagsþróun, séu tæpast lengur til staðar, og frestun á gildistöku laga um virðisaukaskatt.

Áhrif á húsgagnaiðnað og annan tréiðnað.
    Áform um viðbótarskattlagningu á húsgögn og innréttingar lýsa fádæma vanþekkingu og/eða skilningsleysi á aðstöðu þeirrar iðngreinar. Húsgagnaiðnaðurinn hefur löngum átt í mjög harðri og erfiðri samkeppni við erlenda aðila og orðið að láta undan á tilteknum sviðum markaðarins þótt hann hafi staðið sterkum fótum á þeim sviðum þar sem hann hefur ákveðið að sérhæfa sig. Undanfarin missiri hafa ytri skilyrði versnað stórlega vegna fastgengisstefnu. Auk þess hefur verið nokkur samdráttur í húsgagnasölu almennt framan af þessu ári, bæði til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Viðbótarskattlagning á húsgögn og innréttingar yrði fyrst og fremst rothögg fyrir innlenda framleiðslu á þessu sviði.
    Til marks um samkeppnisstöðu íslenskra húsgagna- og innréttingaframleiðenda skal bent á að Landssamband iðnaðarmanna hefur í samstarfi við aðildarfélag sitt, Félag húsgagna- og innréttingaframleiðenda, gert reglubundnar kannanir á innlendri markaðshlutdeild í húsgögnum og innréttingum. Endanleg niðurstaða fyrir árið 1987 liggur ekki enn þá fyrir þannig að það sem sagt er hér á eftir um árin 1987 og 1988 eru áætlanir sem gætu breyst lítils háttar við endanlega úrvinnslu.
    Á árinu 1977, þegar áhrifa EFTA-aðildar var ekki tekið að gæta verulega, höfðu íslenskir húsgagnaframleiðendur um 70–75% markaðarins. Markaðshlutdeildin hefur síðan smám saman minnkað en þó misjafnlega hratt eftir aðstæðum hverju sinni. Á árinu 1986 er innlend markaðshlutdeild talin hafa verið um 40%. Á árinu 1987 jókst hins vegar innflutningur húsgagna gríðarlega mikið, eða úr um 782 millj. kr. í um 1351 millj. kr., en í því felst 72,9% aukning í krónum talið og um 62% aukning að raungildi miðað við vísitölu innflutningsverðs. Er talið að þrátt fyrir talsverða magnaukningu í innlendri framleiðslu hafi innlend markaðshlutdeild þá lækkað í um 34%. Við tölvuvæðingu hjá tollstjórum og með upptöku nýrrar tollskrár um sl. áramót hefur ekki betur tekist til en svo að upplýsingar um innflutning eru nú langtum síðbúnari en áður var og nokkur óvissa ríkir um innflutning og sölu
húsgagna á síðari hluta þessa árs vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum. Fyrirliggjandi upplýsingar benda þó helst til þess að innflutningur verði að magni til lítið minni en í fyrra og innlend markaðshlutdeild svipuð, þ.e. um 34%.
    Upplýsingar um markaðshlutdeild í innréttingum liggja ekki fyrir jafnlangt aftur í tímann og í húsgögnum enda er talið að áhrifa fríverslunarsamninga hafi gætt síðar á þeim markaði, eða fyrst og fremst eftir 1980. Segja má að innlend framleiðsla innréttinga sé tvíþætt, þ.e. stöðluð framleiðsla fyrirtækja, sem sérhæfa sig í innréttingaframleiðslu, og sérsmíði. Innflutningurinn er hins vegar nánast að öllu leyti stöðluð framleiðsluvara. Samkvæmt athugunum Landssambands iðnaðarmanna er talið að innlend markaðshlutdeild í innréttingum, þegar miðað er eingöngu við staðlaða innlenda framleiðslu, hafi lækkað úr um 65% á árinu 1980 niður í um 40% á árinu 1987. Þegar öll innlend innréttingasmíði, stöðluð og óstöðluð, er borin saman við innflutning er markaðshlutdeild hins vegar talin hafa lækkað úr um 85% niður í um 65% á sama tímabili.
    Um annan trjávöruiðnað má sem dæmi nefna að límtrésframleiðsla mun að öllum líkindum leggjast niður hér á landi verði frumvarpið að lögum og vandi einingahúsaframleiðenda, sem verið hefur ærinn fyrir, mun sannarlega ekki minnka. Einnig er fyrirsjáanlegt að samkeppnisstaða glugga- og hurðaframleiðenda mundi skerðast verulega og innflutningur aukast.
    Hvað varðar innlenda trjávöruframleiðslu almennt, og þó einkanlega innréttingaframleiðslu og hurða- og gluggaframleiðslu, mundi álagning vörugjalds á framleiðsluvöruna og hráefni til hennar stuðla mjög að því að smíði færðist frá verksmiðjum eða vel búnum og viðurkenndum trésmíðaverkstæðum inn á byggingarstað og þó einkum að hvers kyns „bílskúrsstarfsemi“, með tilheyrandi skattsvikum og tengdum lögbrotum, mundi blómstra. Getur slíkt hvorki talist þjóna hagsmunum ríkissjóðs né íslensks iðnaðar.

Áhrif á aðrar iðngreinar.
    Auk áhrifa vegna skattlagningar á aðföng, m.a. málm- og skipasmíðaiðnaðar, mundi vörugjaldið hækka framleiðslukostnað allra greina iðnaðarins og raunar atvinnuveganna almennt og skerða samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum keppinautum. Þá skal einnig sérstaklega bent á að gjald af þessu tagi fyrirfinnst almennt ekki í samkeppnislöndunum.
    Eins og fjármálaráðherra hefur lýst yfir er vörugjaldið
fjárfestingarskattur og það sem verra er fyrsta skrefið í enn þá víðtækari skatti í þá veru. Fjárfestingarskattur hefur að sjálfsögðu veruleg áhrif á öll fyrirtæki í landinu og verður að minna á í þessu sambandi hve stór hluti iðnaðarins er tengdur mannvirkjagerð, framkvæmdum og þjónustu við atvinnulífið. Ef virðisaukaskattur hefði orðið að veruleika hefðu mörg gjöld fallið burt af fyrirtækjum vegna fjárfestingar. Með þessum nýja fjárfestingarskatti er fjármálaráðherra að ganga í þveröfuga átt og bæta við vandkvæði útflutnings- og samkeppnisgreina sem hafa sem kunnugt er átt við ærinn vanda að glíma vegna fastgengisstefnu og óstjórnar í efnahagsmálum.

Vandamál við framkvæmd.
    Vandamál við framkvæmd þessa lagafrumvarps, ef að lögum verður, eru fleiri en svo að þeim verði gerð tæmandi skil í þessari umsögn. Sumt hefur þegar verið nefnt. Til viðbótar skal vakin athygli á því að gjaldskyldum aðilum mun fjölga mjög verulega með breytingu á lögunum. Þannig eru t.d. um 350 rekstraraðilar skráðir í trjávöruiðnaði, þar af um 270 með 5 starfsmenn eða færri. Auk þess mun gjaldskyldan einnig ná til vöruflokka, t.d. burðarvirkja í húsum sem mjög mörg málmiðnaðarfyrirtæki smíða stundum, enda þótt þau séu almennt ekki í vörugjaldsskyldri starfsemi, en í málmiðnaði starfa um 500 fyrirtæki, þar af um 350 með 5 starfsmenn eða færri.
    Minnt skal á að vörugjald var upphaflega lagt á tilteknar greinar verksmiðjuiðnaðar sem framleiddu tiltölulega „samkynja“ vörur sem framleiddar eru af fáum stórum fyrirtækjum. Ekki skal því haldið fram að skattlagningin eigi þar rétt á sér en ljóst er að skattformið hentar enn þá síður í iðngreinum þar sem starfar mikill fjöldi smáfyrirtækja. Að áliti Landssambands iðnaðarmanna er ógerlegt í framkvæmd að koma þessu skattformi við í slíkum iðngreinum þannig að viðunandi geti talist. Í þessu sambandi er vakin athygli á því að aðeins hluti af starfsemi t.d. tréiðnaðarfyrirtækja verður með einföldum og augljósum hætti skilgreindur eftir tollskrárnúmerum, eins og vörugjaldslög gera þó ráð fyrir. Eins og fram hefur komið er mikill fjöldi smáfyrirtækja í þessari iðngrein sem fæst eru með staðlaða framleiðslu heldur fyrst og fremst sérsmíði og einnig viðgerðir. Þessi fyrirtæki verðleggja almennt ekki vöruna sjálfa beint heldur selja út vinnu, vélavinnu og efni. Samkvæmt lagafrumvarpinu liggur engan veginn ljóst fyrir hver skattstofninn er í slíkum tilvikum. Helst virðist þó mega ætla að allir þættir í rekstri sérsmíðafyrirtækja séu skattskyldir. En hvar eru þá mörkin milli sérsmíði og viðgerða?
    Þá skal að lokum vakin athygli á að trjávöruiðnaðurinn er í mörgum tilvikum nátengdur byggingariðnaði og algengt er að sama fyrirtæki reki bæði byggingarstarfsemi þar sem óheimilt er samkvæmt frumvarpinu að draga frá vörugjald af hráefni, t.d. til trésmíða innan húss, og trésmiðju þar sem heimilt væri að draga vörugjald af hráefnum frá vörugjaldi af heildarsölu. Fyrirsjáanlegt er að ógerlegt er að koma við þessari skattheimtu þannig að eðlilegt og réttlátt geti talist.
    Landssamband iðnaðarmanna telur að lagafrumvarp þetta sé ósvífin aðför að íslenskum iðnaði og ítrekar harða andstöðu sína við það.



Fylgiskjal V.


Samþykkt framkvæmdastjórnar Sambands byggingamanna.


(12. des. 1988.)



    Skammt gerist nú stórra högga á milli.
    Við myndun þeirrar ríkisstjórnar, sem nú situr, voru framlengd með bráðabirgðalögum „ólög“ þau sem notuð voru til að afnema frjálsan samningsrétt verkalýðsfélaga í landinu í maí sl. Til viðbótar því voru sett inn ákvæði sem bönnuðu einnig þegar umsamdar launabreytingar. Þá var og við upphaf þessa stjórnartímabils ráðist að tryggingakerfinu, sem verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir og komið upp í landinu, oft við mjög harða andstöðu atvinnurekenda og ríkisvalds.
    Nú var það framlagið til Atvinnuleysistryggingasjóðs sem ráðist var að á hinn ósvífnasta hátt og fellt niður án þess að leitað væri nokkurs samráðs við aðra aðila vinnumarkaðarins um meðferð þess máls, heldur einhliða samningsrof og lögbrot ríkisvaldsins. Á sama tíma og landsfeðurnir boða landslýð þrengingar sem m.a. muni leiða til verulegs atvinnuleysis fjölda verkafólks.
    Í kjaramálaályktun 13. þings SBM frá 14. október 1988 er m.a. kveðið svo á að lausn húsnæðismála sé oftast stærsta og afdrifaríkasta efnahagsmál hverrar fjölskyldu og því skipti miklu hvernig þeim reiðir af.
    Með kjarasamningum verkalýðshreyfingarinnar við atvinnurekendur og ríkisvald í febrúar 1986 var unnið að lausn þess máls á þann hátt að launafólk
taldi sig vel geta við unað ef staðið yrði við það samkomulag.
    Einn aðili þessa samkomulags hefur hins vegar brugðist, þ.e. stjórnvöld. Þau hafa ekki til þessa staðið við þær fjárskuldbindingar sem þau tóku á sig og nemur mismunurinn jafnvirði mörg hundruð íbúðalána. Af þeim sökum m.a. hefur skapast sá mikli biðlisti eftir lánum sem nú er talað um.
    Nú munu uppi ráðagerðir um að ríkið dragi enn í auknum mæli úr þeim framlögum sínum til húsnæðiskerfisins sem um var samið í febrúar 1986. Með þeim hætti væru enn svikin áður gefin fyrirheit í einu af hinum mikilvægustu kjaramálum launafólks.
    Þessum áformum mótmælir stjórn SBM harðlega og lýsir allri ábyrgð á afleiðingum slíks á hendur núverandi ríkisstjórnar.
    Stjórn Sambands byggingamanna hefur nú fengið til umfjöllunar frumvarp til laga um breytingar á lögum nr. 97/1987, um vörugjald.
    Samkvæmt frumvarpi þessu er gert ráð fyrir að flestar meginbyggingarefnavörur og húsgögn verði stórlega skattlagðar umfram það sem verið hefur. Slík skattlagning mundi tvímælalaust hafa í för með sér mikla verðhækkun, t.d. íbúðarhúsnæðis, sem er meðal brýnustu nauðsynja alls almennings, auk þess sem það væri almennt verðbólguvaldandi og ylli samdrætti í húsgagnaframleiðslu.
    Ráðstafana til tekjuöflunar eftir öðrum leiðum, t.d. með viðbótarsköttum á háar tekjur eða á gróða velgengnisáranna sem dreginn hefur verið með ýmsum hætti út úr atvinnulífinu, verður hins vegar ekki vart.
    Því mótmælir Samband byggingamanna mjög harðlega áðurnefndum aðgerðum og fyrirætlunum stjórnvalda og bendir á að ef ríkisstjórn svokallaðra félagshyggjuafla finnur ekki aðrar leiðir til lausnar þeim rekstrarvanda atvinnufyrirtækja, sem nú er talið við að etja en þær sem hér hafa verið nefndar, þá hljóti það að leiða til algers stríðs milli slíkrar ríkisstjórnar og verkalýðshreyfingarinnar.



Fylgiskjal VI.


Félag ísl. iðnrekenda
Ólafur Davíðsson framkvæmdastjóri:

Umsögn til fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis


um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 97/1987, um vörugjald.


(6. des. 1988.)



    Félag íslenskra iðnrekenda lýsir yfir andstöðu sinni við fram komið frumvarp til laga um breytingar á núverandi lögum um vörugjald.
    Samkvæmt frumvarpinu er horfið frá þeirri meginstefnu sem mörkuð var við setningu núverandi laga, þ.e. að gera álagningu og framkvæmd skattheimtu einfaldari og skilvirkari ásamt því að undanþágum sé fækkað. Með þessu frumvarpi er einnig verið að auka enn á neyslustýringu í þjóðfélaginu.
    Með því að taka upp þrjár mismunandi vörugjaldsprósentur í stað einnar er verið að auka mismun á milli fyrirtækja og atvinnugreina sem um leið eykur óvissu og óstöðugleika sem fyrirtæki þurfa að starfa við.
    Verði þetta frumvarp að lögum hafa sum fyrirtæki búið við þrenns konar mismunandi vörugjaldsinnheimtu á sl. 12 mánuðum. Slíkur hringlandaháttur af hálfu stjórnvalda er óþolandi fyrir fyrirtækin.
    Sérstakt 25% gjald á sælgæti, öl og gosdrykki mun hafa veruleg áhrif á starfsemi þeirra fyrirtækja, sem framleiða þessar vörur, ekki síst við núverandi efnahagsástand þegar samdráttur er þegar verulegur. Samtals vinna 700–800 manns við þessa framleiðslu. Vegna umræðu um manneldis- og hollustusjónarmið skal áréttað að opinberar skýrslur sýna óbreytta sykurneyslu landsmanna síðastliðin ár þrátt fyrir aukna einkaneyslu í heild, enda eru nú t.d. mjög margar drykkjarvörur án sykurs. Hér er því verið að skattleggja eina atvinnugrein langt umfram aðrar í skjóli hollustusjónarmiða. Þessar framleiðslugreinar nota nú aðeins 25–30% af innfluttum sykri. Auk þessa má benda á að flutt er inn umtalsvert magn af vörum með miklu sykurinnihaldi án þess að á þær sé lagt vörugjald. Því gefur auga leið að hér er um mikinn tvískinnung að ræða.
    Ljóst er að stór hluti þeirra vöruflokka, sem nú fá vörugjald eða vörugjald er hækkað á, eru daglegar neysluvörur alls meginþorra landsmanna, enda mun kaupmáttur rýrna um 1 / 2 % vegna þessarar breytingar auk þess sem byggingarkostnaður um hækka um 3%. Lánskjaravísitala mun því hækka um rúmlega 1,3%.
    Samkvæmt frumvarpinu mun innheimtuaðilum vörugjalds fjölga verulega, einkanlega vegna vörugjalds á húsgögn, innréttingar og framleiðslu byggingarefna, en fyrirtæki í þessum greinum eru afar mörg (yfir 300 fyrirtæki
og þar af rúmlega 250 með 5 starfsmenn eða færri). Framkvæmd og eftirlit með vörugjaldsinnheimtu verður því mun erfiðara og mannfrekara en nú er.
    Þessar breytingar, ef af verður, munu draga framleiðsluna út úr fyrirtækjunum og leiða til óhagkvæmari framleiðsluhátta og gera allt eftirlit með skattheimtunni erfiðara.
    Verði frumvarpið að lögum og taki gildi fyrir áramót eins og ráð er fyrir gert er ljóst að innlendar vörur munu hækka strax, en erlendar vörur mun síðar.