Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 212 . mál.


Nd.

360. Frumvarp til laga



um bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði og heimildir til lántöku á árinu 1989 o.fl.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988.)



1. gr.

    Þar til fjárlög fyrir árið 1989 taka gildi, þó ekki lengur en til 31. janúar 1989, er ríkisstjórninni heimilt að greiða úr ríkissjóði til bráðabirgða í samræmi við ákvæði fjárlaga fyrir árið 1988, að teknu tilliti til almennrar verðlagsþróunar, öll venjuleg rekstrargjöld og önnur gjöld er teljast til venjulegra fastra greiðslna ríkisins þótt ákveðin séu eða heimiluð til eins árs í senn. Þá er ríkisstjórninni heimilt að greiða úr ríkissjóði nauðsynlegar greiðslur til að standa við þegar gerða samninga vegna fjárfestinga ríkisins.

2. gr.

    Fjármálaráðherra er heimilt á árinu 1989 að stofna til tímabundins yfirdráttar á aðalviðskiptareikningi ríkissjóðs hjá Seðlabankanum vegna árstíðabundinna sveiflna í fjármálum ríkisins.

3. gr.

    Fjármálaráðherra er heimilt að gefa út fyrir hönd ríkissjóðs til sölu innan lands á árinu 1989 verðbréf, spariskírteini og ríkisvíxla að fjárhæð allt að 3.000.000 þús. kr.

4. gr.

    Fjármálaráðherra er heimilt fyrir hönd ríkissjóðs að taka lán á árinu 1988 að fjárhæð allt að 6.500.000 þús. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt til að greiða upp skammtímaskuldir við Seðlabanka Íslands vegna greiðsluhalla ríkissjóðs á árunum 1987 og 1988, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 36/1986, um Seðlabanka Íslands.

5. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Með hliðsjón af samkomulagi stjórnar og stjórnarandstöðu um afgreiðslu þingmála, þar á meðal fjárlaga, verður ekki unnt að afgreiða fjárlög fyrir árið 1989 fyrir næstu áramót og ber því brýna nauðsyn til að veita ríkisstjórninni þær heimildir sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir þannig að ekki komi til greiðslustöðvunar hjá ríkissjóði þegar hinn 1. janúar nk. Ef til slíkrar greiðslustöðvunar kæmi næði hún m.a. til allra samningsbundinna greiðslna ríkissjóðs, þar á meðal launa, auk allra venjulegra rekstrargjalda og annarra gjalda sem talist geta venjulegar fastar greiðslur ríkissjóðs. Af þessum sökum er frumvarp þetta lagt fram.

Um 1. gr.


    Gildistími þeirra heimilda sem um getur í þessari grein rennur eðlilega út við samþykkt fjárlaga 1989. Gildistíminn er þó takmarkaður við janúar 1989 með tilliti til þess að samkvæmt heimild þessari verða greidd laun fyrir janúarmánuð. Að öðru leyti þarfnast greinin ekki skýringar.

Um 2. gr.


    Ákvæði þetta er sama efnis og liður 2.1 í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 1988 og þarfnast ekki frekari skýringar.

Um 3. gr.


    Ákvæði þetta er efnislega hliðstætt 1. gr. frumvarps til lánsfjárlaga fyrir árið 1989 og er m.a. nauðsynlegt vegna útgáfu spariskírteina á móti nokkrum flokkum þeirra sem innleysanlegir verða fyrri hluta janúar 1989.

Um 4. gr.


    Ákvæði þetta er sama efnis og 35. gr. frumvarps til lánsfjárlaga fyrir árið 1989, en fjárhæð lántökuheimildar er breytt með hliðsjón af breyttum afkomuhorfum ríkissjóðs. Tilvitnað ákvæði laga um Seðlabanka Íslands kveður á um uppgjör skammtímaskulda ríkissjóðs við bankann og er brýnt að frá lántökum í því skyni verði gengið hið fyrsta.

Um 5. gr.


    Greinin þarfnast ekki skýringar.