Ferill 162. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 162 . mál.


Ed.

370. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 97/1987, um vörugjald.

Frá minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.


    Skattlagning sú, sem ríkisstjórnin boðar með frumvarpi þessu, er liður í gífurlegum nýjum álögum á almenning strax eftir áramótin eða í upphafi þess árs sem stjórnin telur verða ár atvinnuleysis og versnandi kjara. Þetta er liður í skattlagningu á ýmsar nauðsynjar launafólks í landinu sem nú býr við launafrystingu og kjararýrnun.
    Minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar leggur til að frumvarpið verði fellt.
    Danfríður Skarphéðinsdóttir sat fundi nefndarinnar og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 22. des. 1988.


Ey. Kon. Jónsson,

Júlíus Sólnes.

Halldór Blöndal.


frsm.