Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 206 . mál.
Nd.
422. Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 45 16. apríl 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, með síðari breytingum.
Frá landbúnaðarnefnd.
Landbúnaðarnefndir beggja deilda þingsins héldu sameiginlegan fund 22. des. sl. þar sem farið var yfir frumvarpið strax að lokinni 1. umr. í neðri deild. Á fundinn komu fulltrúar Stofnlánadeildar landbúnaðarins og Búnaðarfélags Íslands sem gerðu grein fyrir afstöðu til málsins.
Landbúnaðarnefnd neðri deildar hefur haft málið til meðferðar síðan.
Fyrir liggur samþykkt stjórnar Stofnlánadeildar landbúnaðarins sem leggur áherslu á samþykkt frumvarpsins með nokkrum breytingum.
Landbúnaðarnefndir beggja deilda þingsins héldu sameiginlegan fund um málið í dag. Á þann fund kom fulltrúi frá Búnaðarbanka Íslands, fulltrúar Landssamtaka fiskeldis- og hafbeitarstöðva, svo og fulltrúar frá landbúnaðarráðuneyti.
Ljóst er að frumvarp þetta, ef að lögum verður, er mikilvægt fyrir stöðu fiskeldis hér á landi ekki síst nú vegna alvarlegs rekstrarfjárskorts og takmarkaðra möguleika þessarar atvinnugreinar á nægjanlegum afurða- og rekstrarlánum. Þess vegna er brýnt að hraða afgreiðslu þessa frumvarps. Nefndin leggur til að svo verði gert. Vonast er til þess að góð samstaða verði um málið á Alþingi.
Nefndin flytur breytingartillögur á sérstöku þingskjali.
Alþingi, 5. jan. 1989.
Alexander Stefánsson,
Guðni Ágústsson,
Ingi Björn Albertsson,
form., frsm.
fundaskr.
með fyrirvara.
Pálmi Jónsson.
Eggert Haukdal.
Jón Sæmundur Sigurjónsson.
Ragnar Arnalds.