Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 206 . mál.


Nd.

423. Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 45 16. apríl 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, með síðari breytingum.

Frá landbúnaðarnefnd.



1.     Við 1. gr., a-lið (19. gr.). 2. málsl. 1. mgr. orðist svo:
.      Sjóðurinn skal hafa sjálfstæðan fjárhag en vera í vörslu og umsjón Stofnlánadeildar landbúnaðarins er jafnframt sér um rekstur hans samkvæmt nánari reglum er landbúnaðarráðherra setur, sbr. 23. gr.
2.     Við 1. gr., c-lið (21. gr.). 3. og 4. málsl. orðist svo:
.      Í nefndinni eiga sæti fimm fulltrúar og skal einn þeirra skipaður eftir tilnefningu stjórnar Stofnlánadeildar landbúnaðarins, tveir samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldis- og hafbeitarstöðva og sá fjórði samkvæmt tilnefningu fjármálaráðherra. Fimmta nefndarmanninn skipar landbúnaðarráðherra án tilnefningar og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.
3.     Við 1. gr., d-lið (22. gr.). 1. málsl. 1. mgr. orðist svo:
.      Landbúnaðarráðherra ákveður árlega í samráði við fjármálaráðherra iðgjald sem tekið er fyrir greiðslutryggingu sjóðsins.
4.     Við 1. gr., d-lið (22. gr.). Orðin „þrátt fyrir ákvæði 11. gr.“ í niðurlagi 2. mgr. falli brott.
5.     Við 1. gr., d-lið (22. gr.). 3. mgr. orðist svo:
.      Auk hins árlega iðgjalds skv. 1. mgr. skal landbúnaðarráðherra í samráði við fjármálaráðherra og að fengnum tillögum tryggingaeftirlitsins ákveða sérstakt áhættugjald þeirra fyrirtækja, sem við sjóðinn skipta, sem hlutfall af söluverðmæti þeirra. Iðgjaldið skal ákveðið út frá eðlilegu áhættumati og með tilliti til þess að ná jöfnuði í fjárhag sjóðsins. Iðgjöld þessi skulu verðtryggð með byggingarvísitölu og falla í gjalddaga að fjórum árum liðnum og er þá heimilt að taka þau lögtaki. Telji ráðherra að fjárhag sjóðsins sé borgið án iðgjaldsins í heild eða að hluta, þegar að innheimtu kemur, skal ráðherra heimilt að lækka gjaldið eða fella það niður.
6.     Við 1. gr., e-lið (23. gr.). Við bætist ný málsgrein svohljóðandi:
.      Um endurskoðun og bókhald Tryggingasjóðs fiskeldislána fer eftir lögum nr. 86 4. júlí 1985, um viðskiptabanka. Ársreikningar sjóðsins skulu að lokinni endurskoðun lagðir fyrir landbúnaðarráðherra til staðfestingar. Reikningar Tryggingasjóðs fiskeldislána skulu birtir árlega í Stjórnartíðindum með reikningum Stofnlánadeildar.
7.     Við 2. gr. Í stað „1993“ komi: 1992.