Ferill 206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 206 . mál.


Ed.

433. Nefndarálit



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 45 16. apríl 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, með síðari breytingum.

Frá minni hl. landbúnaðarnefndar.



    Stjórnvöldum ber skylda til þess að skapa hagkvæmar aðstæður fyrir útflutningsgreinar. Það er einnig eðlilegt að efla fjölbreytni þeirra og hvetja til nýrra atvinnugreina. Miklu varðar þó að vanda til undirbúnings og líta til lengri tíma. Það er eðlilegt að styðja við bakið á nýjum atvinnugreinum meðan þær eru að fóta sig en sjálfsagt er einnig að krefjast ákveðinna lágmarksskilyrða áður en stjórnvöld veita fé eða styrki til framkvæmda og það hlýtur að vera grundvallaratriði að útflutingsgreinar beri sig. Alltaf geta þó komið upp óviðráðanlegar aðstæður sem gera kröfur til þess að stjórnvöld hlaupi undir bagga.
    Þetta frumvarp er flutt til að taka á langvinnum og vaxandi vanda fiskeldisfyrirtækja, en þar hefur gætt meira kapps en forsjár. Hvort tveggja er að stjórnvöld hafa óspart hvatt menn til framkvæmda og margir hafa eygt skjótfenginn gróða í þessari atvinnugrein.
    Vandi fiskeldisfyrirtækja var viðurkenndur af stjórnvöldum í maí síðastliðnum þegar þau veittu þeim nokkurn stuðning. Sá stuðningur hvatti menn til að halda áfram rekstri. Síðan hefur orðið óskiljanleg töf á frekari aðgerðum stjórnvalda og hefur það aukið mjög á skuldabagga og annan vanda fiskeldisfyrirtækja.
    Það er því enn óskiljanlegra að þessu máli skuli nú skellt næsta fyrirvaralítið inn á Alþingi og þess krafist að það sé afgreitt næstum umyrðalaust án þess að nægilegur tími gefist fyrir þingmenn til að athuga það. Af viðræðum við ýmsa menn sem sótt hafa tvo sameiginlega fundi landbúnaðarnefnda beggja deilda er ljóst að vandinn er mikill og nauðsyn að taka á honum án mikillar tafar. Það er hins vegar einnig ljóst að á málinu eru margir lausir endar og margt óljóst um framkvæmd þess jafnvel fyrir þá sem ætlað er að sjá um lánveitingar. Ekki liggur fyrir mat á áhættu sem
stjórnvöld taka með þessum aðgerðum en hún hlýtur að vera töluverð þar sem hér er um mjög fjármagnsfrekan atvinnurekstur að ræða. Skilyrði fyrir lánveitingu eru einnig mjög óljós svo og þáttur erlendra aðila, t.d. raunverulegur eignarhluti þeirra.
    Það er til að mynda undarlegt að hvergi í frumvarpinu skuli minnst á mikilvæg skilyrði eins og staðsetningu fiskeldisstöðva, mengunarvarnir, hollustuhætti og kröfur um menntun og þekkingu þeirra sem að greininni starfa. En það verða að teljast eðlilegar kröfur þegar um slíkan áhætturekstur er að ræða.
    Lengri tíma þarf til að athuga málið og betri umfjöllun þarf ekki að tefja það. Án þess telja þingkonur Kvennalistans ekki óhætt fyrir stjórnvöld að styðja við þessa mikilvægu atvinnugrein á þann hátt sem til er lagt. Við viljum þó ekki standa gegn málinu og munum sitja hjá við afgreiðslu þess í þinginu.

Alþingi, 6. jan. 1989.



Guðrún Agnarsdóttir,


fundaskr.