Ferill 242. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 242 . mál.


Ed.

447. Frumvarp til laga



um breytingu á lögum nr. 86/1985, um viðskiptabanka.

(Lagt fyrir Alþingi á 111. löggjafarþingi 1988–89.)



1. gr.

    Við 1. mgr. 13. gr. laganna bætist:
    Hlutafjáreign í fyrirtæki telst þátttaka í atvinnurekstri nema um sé að ræða óverulegan hlut sem ekki ræður úrslitum um stjórnun þess og sem fyrst og fremst telst ávöxtun sparifjár. Bankaeftirlit Seðlabanka Íslands sker úr um í einstökum tilvikum hvort hlutafjáreign brjóti í bága við grein þessa. Getur það, þegar sérstaklega stendur á, veitt viðkomandi aðila frest í allt að 3 mánuði til þess að uppfylla skilyrði þessarar málsgreinar.

2. gr.

    4. mgr. 21. gr. laganna hljóði svo:
    Bankaráð ákvarðar vexti bankans og gjaldskrá þjónustugjalda fyrir einstaka þætti starfseminnar að fengnum tillögum bankastjórnar. Bankaráð fjallar einnig um vexti af skuldabréfum, sem bankinn gefur út, og þá vexti sem bankinn áskilur sér við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum. Við umfjöllun um vexti eða kaupgengi viðskiptavíxla og viðskiptaskuldabréfa skal bankaráð gæta þess að ávöxtunarkrafa bankans sé sambærileg við ávöxtun almennra útlána bankans í hliðstæðum áhættuflokkum.
    5. mgr. 21. gr. hljóði svo:
    Bankaráð setur og að fenginni umsögn bankastjórnar almennar reglur um lánveitingar og ábyrgðir bankans þar með um hámark lána til einstakra lántakenda og tryggingar fyrir lánum. Reglur þessar skal endurskoða eigi sjaldnar en árlega og skulu þær sendar bankaeftirlitinu sem láta skal í té álit á þeim hverju sinni.
    Núverandi 5. mgr. færist aftur og verði 6. mgr.

3. gr.

    2. mgr. 33. gr. laganna hljóði svo:
    Bankaráðsmenn skulu ekki taka þátt í meðferð máls er varðar viðskipti þeirra sjálfra eða fyrirtækja sem þeir eiga hlut í, sitja í stjórn hjá, eru fyrirsvarsmenn fyrir eða eiga að öðru leyti verulegra hagsmuna að gæta í. Sama gildir um þátttöku bankaráðsmanna í meðferð máls er varðar aðila sem eru þeim tengdir, persónulega eða fjárhagslega.
    Núverandi 2. mgr. 33. gr. færist aftur og verði 3. mgr.

4. gr.

    1. mgr. 40. gr. laganna orðist svo:
    Endurskoðun hjá ríkisviðskiptabanka skal framkvæmd af Ríkisendurskoðun og skoðunarmanni sem ráðherra skipar til fjögurra ára í senn og skal hann vera löggiltur endurskoðandi.

5. gr.

    Við 1. mgr. 54. gr. bætist svohljóðandi málsliður:
    Sé bókfært virði fasteigna og búnaðar, sem viðskiptabanki notar til starfsemi sinnar hærra en sem nemur 65% af eigin fé bankans, skal hlutfallið fara stöðugt lækkandi á þessu tímabili þar til 65% markinu er náð, nema ráðherra veiti að fengnum tillögum bankaeftirlitsins undanþágu til hækkunar á hlutfallinu á tímabilinu.

6. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Lögin um viðskiptabanka öðluðust gildi 1. janúar 1986. Eftir þriggja ára reynslu af framkvæmd laganna og í ljósri breyttra aðstæðna þykir nú rétt að leggja til nokkrar breytingar á þeim. Hér er fyrst og fremst um að ræða breytingar sem miða að því að skýra betur ákvæði núgildandi laga, girða fyrir hagsmunaárekstra og skilgreina verkefni bankaráða annars vegar og bankastjóra hins vegar. Að hluta til er hér endurflutt efni lagafrumvarps sem flutt var á 110. löggjafarþingi.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.


Um 1. gr.


    Komið hefur upp það álitamál hvort hlutafjáreign teljist þátttaka í atvinnurekstri. Meirihlutaeign í hlutafélagi telst tvímælalaust þátttaka í atvinnurekstri og í mörgum tilvikum á það einnig við um eignarhald á minni hluta hlutabréfa í félagi. Svo er t.d. þegar hlutafjáreignin er þess eðlis að hún sé til þess fallin að hafa veruleg áhrif á rekstur fyrirtækis, t.d. með hliðsjón af stærð eignarhlutarins, tengslum við stjórn fyrirtækisins, áhrifamætti hlutar miðað við valdahlutföll á hluthafafundum o.fl. Í öðrum tilvikum getur eignarhald smáhluta t.d. í almenningshlutafélagi, sem til er komið vegna arftöku eða ávöxtunar sparifjár, fallið utan þátttöku í atvinnurekstri í skilningi greinarinnar. Hér er lagt til að bankaeftirlit Seðlabanka Íslands úrskurði í einstökum tilvikum, þar sem vafi þykir leika á hvort skilyrði greinarinnar séu uppfyllt og að það geti gefið viðkomandi aðila frest til þess að fullnægja settum skilyrðum.

Um 2. gr.


    Hér er í fyrsta lagi gerð tillaga um ákveðnara orðalag varðandi hlutdeild bankaráða í vaxtaákvörðunum og ákvörðunum um þjónustugjöld banka, en verkaskipting bankaráða og bankastjórna virðist í einstökum tilvikum hafa verið óljós. Það liggur í hlutarins eðli, að bankaráð á tvímælalaust að taka ákvörðun um jafn þýðingarmikil atriði sem vexti bankans og þjónustugjöld. Lögð er sú skylda á bankaráð að þau gæti þess að ávöxtunarkrafa bankans í viðskiptum með viðskiptavíxla og viðskiptaskuldabréf sé sambærileg við vexti sem bankinn tekur í útlánum í sambærilegum áhættuflokkum.
    Í öðru lagi er gerð tillaga um nánari útfærslu á núverandi ákvæði laganna varðandi almennar reglur um lánveitingar bankans. Lagt er til að í ákvæðinu sé kveðið á um að í hinum almennu reglum, sem settar eru um lánveitingar og ábyrgðir, skuli m.a. vera ákvæði um hámark lána til einstakra lántakenda og tryggingar fyrir lánunum. Reglurnar sæti endurskoðun eigi sjaldnar en árlega. Gert er ráð fyrir að sama málsmeðferð gildi um ábyrgðir og tryggingar. Á þennan hátt er þess m.a. freistað að draga úr líkum á stóráföllum í rekstri banka og tryggja betur hag þeirra og sparifjáreigenda. Það er gullvæg regla í rekstri innlánsstofnana að þær bindi ekki fé sitt um of hjá einum eða fáum viðskiptaaðilum, enda hafa fjárhagsörðugleikar banka oft stafað af því að ekki hefur verið gætt nægilegrar varfærni í þeim efnum.

Um 3. gr.


    Í íslenskum stjórnarfarsrétti hafa ekki almennt verið lögfestar reglur til að girða fyrir hagsmunaárekstra handhafa framkvæmdarvalds við töku ákvarðana, gagnstætt því sem er um handhafa dómsvalds hér á landi. Rétt þykir nú að gera í lögum strangari kröfur um svo mikilvægar stofnanir sem banka, þar sem hagsmunaárekstrar geta haft meiri afleiðingar en oft endranær og því mikilvægt að tryggja óháðar ákvarðanir. Þessi ákvæði eru hliðstæð þeim sem eru í bankalöggjöf nágrannalanda okkar.

Um 4. gr.


    Með lögum nr. 12 29. apríl 1986, um ríkisendurskoðun, var Ríkisendurskoðun falið m.a. að endurskoða reikninga fyrirtækja og stofnana sem rekin eru á ábyrgð ríkissjóðs eða ríkissjóður á að hálfu eða meira. Sú breyting, sem hér er lögð til, er í samræmi við ákvæði ofangreindra laga um ríkisendurskoðun og er gerð í kjölfar endurskoðunar á ákvæðum viðskiptabankalaga um skoðunarmenn eins og lagt var til í framhaldsnefndaráliti á þskj. 753 frá fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar Alþingis á 108. löggjafarþingi.
    Ekki er þörf á að breyta ákvæðum laga nr. 86/1985 hvað þetta snertir að öðru leyti og munu þau ákvæði laganna sem fjalla um skoðunarmenn taka jafnt til skoðunarmanna Ríkisendurskoðunar sem og þeirra skoðunarmanna er ráðherra tilnefnir.
    Í 6. gr. laga nr. 12/1985 segir að Ríkisendurskoðun skuli annast endurskoðun þeirra fyrirtækja sem ríkisjóður eigi að hálfu eða meira og gildir þetta einnig um þá hlutafélagsbanka er ríkið kann að eiga. Um þetta er að finna ákvæði í 2. mgr. 40. gr. viðskiptabankalaga og er óþarft að breyta því ákvæði enda yrði skoðunarmaður ávallt tilnefndur af Ríkisendurkskoðun og kjörinn á aðalfundi hlutafélagsbanka eins og mælt er fyrir í 2. mgr. 40. gr. laganna nr. 86/1985, um viðskiptabanka.

Um 5. gr.


    Með ákvæði þessu er leitast við að eyða ágreiningi um það hvernig skilja beri 1. mgr. 54. gr. laganna. Hefur borið á því að viðskiptabankar, þar sem bókfært virði fasteigna og búnaðar, sem bankarnir nota til starfsemi sinnar, er hærra en nemur 65% af eigin fé bankanna, telji sér í sjálfsvald sett að hækka þetta hlutfall, m.a. með því að bæta við útibúum, á því fimm ára aðlögunartímabili sem ákveðið er í lögunum (1986–1990), og telji nóg að hafa farið niður í 65% hlutfallið í lok tímabilsins. Tekin eru af öll tvímæli um
það í frumvarpinu að lögin heimili ekki svo frjálslega túlkun. Þó er gert ráð fyrir möguleika á undanþágum í undantekningartilvikum.

Um 6. gr.


    Grein þessi þarfnast ekki skýringar.